Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 Jón Bjömsson rithöfundur: Ramakvein í Þjóðviljanum I Kvein mikið birtist í föstu- dagsblaði Þjóðviljans í þættin- um Klippt og skorið. Höfundur- inn er áb, sem mun vera Árni Bergmann. Orsök þess er, að svo vill til að gefið hefur verið út í Búlgaríu safn smásagna eftir Norðurlandahöfunda, en það er 15. bindið í sýnishornum úr heimsbókmenntunum. Eins og heiti bókarinnar, Maðurinn og hafið, ber með sér, eru þetta allt smásögur sem tengdar eru sjómennsku. Jóhannes Helgi hefur gert grein fyrir útgáfunni í frétt í Morgunblaðinu 20. þ.m., þar sem m.a. kemur fram að það eru búlgarskir aðilar sem tekið hafa endanlega ákvörðun um valið, svo að um það þarf ekki að ræða frekar. En það sem fer í taugarnar á áb er, að þarna eru höfundar sem ekki „passa í kramið" hjá skoðanabræðrum hans, og þarf það raunar engan að undra, þegar þess er gætt hversu mikið starf hefur verið lagt í að troða ákveðnum höfundum fram á Norðurlöndum, meira eða minna á kostnað annarra. — Annars er það dálítið skemmtilegt að áb kallar Skandínava „rauðbleika". Annaðhvort talar hér gallharður kommúnisti, sem teiur frændur okkar ekki nógu rauða, eða þá fasisti sem ekki þolir að sjá rauðan lit! — Annars eru Skandínavar hvorugt, sá hávaði sem stundum berst hingað staf- ar frá fámennum hópum sem lítil sem engin ítök hafa í þessum löndum, a.m.k. ekki í bókmenntalegu tilliti. En það er ekki nema von að áb sárni að nokkrir íslenzkir höf- undar skuli vera komnir inn í hið allra helgast í kommúnista- ríki sem einkskonar Trjóuhest- ur, þar sem áb og skjólstæðingar hans telja sig vera hina einu útvöldu. En skyldi skýringin á því ekki vera nærtæk? Gæti ekki verið að búlgarskir Iesendur séu orðnir leiðir á þessu eilífa „sósí- alrealistiska" þrugli, sem kvað liggja óhreyft í bókhlöðum þar syðra? Áb telur „ólíklegt að aftur gefist kostur á að koma íslenzku efni á framfæri í bráð — eins víst að það eigi einmitt við um Búlgaríu," eins og hann orðar það. Ég hafði annars ekki ímyndað mér að við þessir 9 Islendingar sem eigum efni í umræddri bók hefðum afrekað slíku, en eigi þetta að skiljast sem „kompliment", get ég fyrir mitt leyti ekki þakkað fyrir, þar sem við áb vitum báðir að bókmenntir skortir okkur ekki, þó að kommúnistar hafi með áróðri sínum í áratugi leitast við að skipa rithöfundum í þröngan bás pólitískrar þráhyggju. II Samkvæmt venju salónkomm- únista á bókmenntasviðinu getur áb ekki skrifað greinarkorn án þess að senda sumum rithöfund- um allskonar slettur. Þannig upplýsir hann að menn á borð við Kristmann Guðmundsson hafi ekki hlotið hljómgrunn á Norðurlöndum. En eins og allir vita varð Kristmann snemma einn af vinsælustu rithöfundum í Skandínavíu. Mér þætti gaman að sjá upplitið á sumum þeim skoðanabræðrum áb, sem há- vaðasamastir eru, hefði þeim fallið í skaut, þótt ekki væri nema agnarögn af þeirri viður- kenningu, sem Kristmanni hefur hlotnast. Jóhannes Helgi er ekki óþekktur erlendis, heldur ekki í Skandínavíu. Hann hafði fram- Jón Björnsson haldsleikrit í norska útvarpinu, en það fékk ágætar viðtökur hjá blöðum og hlustendum. Skáld- saga hans, Svört messa, hefur komið út á rússnesku og fleiri málum og fjöldi smásagna eftir hann hefur komið í safnritum bæði austantjalds og vestan. Svipuðu máli gegnir um hina íslenzku höfundana í bókinni. Ekki mun áb ókunnugt um að ég hef skrifað allmargar bækur á dönsku, sú síðasta kom 1977, og fékk góðar undirtektir hjá blöðum og kaupendum. Þær blaðaúrklippur sem ég hef séð, myndu verða drjúgt efni í Þjóð- viljablað ef þeirra maður hefði átt í hlut. Hvort Skandínavar kunna að meta minn skerf skal ósagt látið, en naumast myndu þeir taka bækur til útgáfu og velja kafla til birtingar í lestrar- bókum skóla, ef höfundur þeirra hefði engan hljómgrunn fengið! Kannski áb og hans nótar séu ekki alveg ókunnugir starfsemi þeirri sem átt hefur sér stað í Skandínavíu af skoðanabræðr- um þeirra og kemur í ljós í greinum Ólafs Jónssonar í Nord- isk Tidsskrift og að nokkru í skýrslum þýðingarmiðstöðvar- innar í Kaupmannahöfn. Þessi starfsemi hefur einkum gengið út á að auglýsa flokksbræður gagnrýnislaust og ata auri þá rithöfunda sem ekki eru á sömu línu og hafa ekki verið í náðinni hjá „mennta“-klíku Alþýðu- bandalagsins. En nóg um það að sinni. Ritstjóri Þjóðviljans veit vel að hér er ekki farið með órökstuddar fullyrðingar. III Þá er komið að Gunnari Gunn- arssyni. Ég get ekki svarað fyrir þá búlgörsku aðila sem tóku endanlega ákvörðun um valið í bókina, enda hef ég enga hug- mynd um það. En ætla má að það hafi verið í samræmi við heiti bókarinnar. Ég held að það séu fleiri en ég sem undrist yfir hneykslun áb yfir að Gunnar skuli ekki vera með. En það er gott og guði þóknanlegt að iðrast. Man áb kannski ekki eftir því að Gunnar neyddist eitt sinn til að höfða mál gegn Þjóðviljanum vegna óvenjulega rætinna rógskrifa og fékk blaðið dæmt í háar fésektir. Blaðsnepill er nefndist Birtingur lét ekki sitt eftir liggja til að svívirða Gunnar. Síðar breyttist þetta nokkuð, því að þeir sem mest níddu skáldið fóru að nudda sér upp við það áður en lauk. r Geta má þess, þó að það sé smánarblettur sem aldrei verður afmáður, að einn af skoðana- bræðrum áb tók að sér að semja íslenzka bókmenntasögu er þvinguð hefur verið inn í skólana sem kennslubók, en þar er Gunnars Gunnarssonar alls ekki getið. Ég held að áb ætti að minnast orðtaksins: maður líttu þér nær. Hvort sem Búlgarir af vangá hafa ekki fundið sögu eftir Gunnar sem átti við í þessu safni eða ástæðan hefur verið einhver önnur, þá felst í því engin afsökun fyrir þá Alþýðu- bandalags-„menntamenn“ sem svívirða mesta skáldsagnahöf- und þjóðarinnar með því að nefna hann ekki á nafn í kennslubók sem ætluð er skóla- æskunni í landinu, eða gera skáldskap hans þau skil sem allir heilvita menn hljóta að krefjast af þeim sem annast fræðslu æskulýðsins. Ég fer nú að slá botninn í þessar athugasemdir mínar, en get þó ekki látið hjá líða að þakka áb fyrir ummæli hans vegna útgáfu þessarar búlgörsku bókar, því að þau staðfesta í einu og öllu það sem ég og fleiri hafa haldið fram í blaðagreinum um ofríkistilburði kommúnista í bókmenntaheiminum. Nú eru Alþýðubandalagsmenn að búa sig undir kosningar eins og fleiri. Það veltur á miklu að þjóðin standi vel á verði og losi sig nú endanlega við yfirráð þeirra í menntamálum og styðji öll frelsisunnandi öfl til þess að svo megi verða. — Svo mega þeir óáreittir af mef lifa í draumum sínum um menningarmálin, en ég er hræddur um að þeim takist seint að ná þvi marki að vera alheimsritskoðarar, eins og þessi búlgarska bók ber raunar ljós- astan vott um. Fiskimjölsframleiðendur: Leyft verði að veiða 900 þús. tonn af loðnu Eftiríarandi ályktun var sam- þykkt samhljóða á fundi Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda sem haldinn var í Reykjavík miðvikudaginn 17. október 1979. „Á tímabilinu frá ágúst 1978 til ágúst 1979 var loðnuafli nær 1200 þús. tonn. Nú telja fiskifræðingar að ekki sé rétt að veiða meira en 600 þús. tonn á tímabilinu ágúst 1979 til ágúst 1980. Rök fiskifræð- inga fyrir svo miklum samdrætti eru ekki nægjanlega sannfærandi til að réttlæta aðgerðir er stefna fjárhagsafkomu fjölda fyrirtækja í hættu með tilheyrandi atvinnu- leysi. Telja verður að skipstjórar loðnuveiðiskipa hafi góða aðstöðu til þess að segja nokkuð til um hvað til er af loðnu í sjónum. Það er almenn skoðun þeirra að sjald- an hafi verið meiri loðna á miðun- um en nú. Hér ber því mikið á milli. Með tilliti til þessa og með hliðsjón af því að nauðsynlegt er að fara að öllu með gát í þessum efnum, leggur fundurinn til, að leyfilegt verði að veiða 900 þús. tonn á veiðitímabilinu 1979— 1980.“ Graf íksýning Á SNERRU-LOFTI j Mosfellssveit stendur nú yfir sýning á grafik eftir Jón Reykdal. Á sýningunni er 21 mynd og stendur hún til 2. nóvember n.k. Allar myndirnar eru til sölu. Opið er á venjulegum verslunartima, laugardag og sunnudag kl. 2—4 sd. V etr arstarf Æskulýðsráðs Reykjavíkur að hef jast Vetrarstarf Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur er nú að hefjast og er það um flest með svipuðu sniði og s.l. ár. Æskulýðsráð veitir ýmiss konar samtökum og hópum húsnæðisaðstöðu á Fríkirkjuvegi 11, til Félagsmiðstöðvarnar Vetrardagskrá félagsmiðstöðv- anna, Fellahellis og Bústaða, tók að flestu leyti gildi um mánaða- mótin síðustu. Flestir starfshættir hafa verið ákveðnir fyrir allan veturinn. Upplýsingablöðum um félagsmiðstöðvarnar hefur verið dreift í viðkomandi hverfum. Námsflokkar Reykjavíkur eru m.a. með aðstöðu í Fellahelli. Barnagæsla er á staðnum fyrir þá fundahalda, námskeiða o.þ.h. Hægt er að bóka slíka aðstöðu á skrifstofu ráðsins. Jafnframt annast skrifstofan útleigu á ferðadiskóteki og bingóút- búnaði fyrir skóla og æskulýðsfélög. Eins og áður fá smærri hópar úr æskulýðsfélögum inni í Saltvík og Kjalar- nesi fyrir „útilegur“ Tómstundastörí í skólum Tómstundastarf yfir 7. 8. og-9. bekk grunnskólans er nú að hefj- ast. Það fer fram í 16 skólum borgarinnar og verða að líkindum starfandi allt að 130 hópar með u.þ.b. 1.600 þátttakendum. Rit til kynningar á starfsemi þessari hefur verið útbúið og dreift til skólanna. nemendur námsflokkanna sem ekki komast frá börnunum sínum. Þá er í Fellahelli ýmiskonar klúbba- og félagastarfsemi auk þess sem alla sunnudaga kl. 14—17 verður búnings— og baðað- staöa fyrir þá sem hafa áhuga á að hreyfa sig jafnt úti og inni. I Bústöðum er, eins og í Fella- helli, ýmis klúbba- og félaga- starfsemi. Sú nýjung verður í starfi Bústaða í vetur að eftir hádegi á laugardögum og milli kl. 16 og 19 á þriðjudögum verður tómstundastarf fyrir 10—12 ára börn. Þátttökugjald er 1000 krón- ur og er innritunin i Bústöðum alla virka daga kl. 15—18. Meðal þess sem á boðstólum verður fyrir börn er leðúrvinna, borðtennis, leikræn tjáning, plastmódelsmíði, blaðaútgáfa, tónlist og starfsemi safnaraklúbbs. Á fundi sem Æskulýðsráð hélt með blaðamönnum kom það fram að vonast er til þess að félags- heimilið við Sæviðarsund verði tilbúið til notkunar á næsta ári og að félagsmiðstöðin í Árbæ verði opnuð árið 1981.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.