Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 Laun alþingismanna verði hækkuð verulega og vinnu- aðstaða þeirra stórlega bætt Laun alþingismanna Eitt af því sem fer ákaflega í taugarnar á mörgu fólki hér á landi er það hve há laun alþingismenn og ráðherrar eru sagðir hafa. Almenningur full- yrðir að landsfeðurnir mati krókinn á því að hafa valist til forystu í landsmálabaráttunni. Rætt er um óhófleg laun þing- manna, og fólk virðist telja það vera nær örugga leið til mikill- ar auðlegðar að leggja fyrir sig stjórnmálastörf hér á landi. Slíkt er þó í rauninni hinn mesti misskilningur eins og sýnt verður fram á hér í grein þessari. Stjórnmálamenn á Islandi vinna nefnilega van- þakkláta, erfiða og illa launaða vinnu, og tími er til þess kominn að einhver bendi á þá staðreynd. Eðli starfa sinna vegna eiga þingmenn erfitt með að krefjast hærri launa, slíkt yrði tekið óstinnt upp hjá umbjóðendum þeirra, þar sem ekki er til þess ætlast að þingmenn þurfi að lifa á laun- um sínum eins og aðrir laun- þegar. Eins má benda á það að alltaf eru innanum þeir þing- menn er reyna að slá sér upp á því að vera á móti hækkuðum launum þessarar stéttar, og gerir það öðrum erfiðara um vik eins og gefur að skilja. Þjóðin hefur ekki efni á að greiða svo lág laun Mikill fjöldi nýrra þing- manna tók sæti á hinu háa Alþingi eftir síðustu kosningar eins og alkunna er. Það kemur vafalaust mörgum á óvart, þeg- ar upplýst er að flestir þeirra lækkuðu verulega í launum er þeir urðu alþingismenn. Fæstir hafa trúlega rennt í grun að sú hafi verið raunin, og víst er að þessi staðreynd kom mörgum hinna nýju þingmanna í opna skjöldu. Þeir höfðu eins og aðrir haldið að þar væri feitan gölt að flá, þar sem þing- mennskan væri. Anders Hansen. En veruleikinn er allt annar. Núverandi laun þingmanna eru aðeins rétt rösklega sex hundr- uð þúsund krónur á mánuði, og þykir það ekki ýkja mikið í dag. Fá einkafyrirtæki landsins greiða sínum bestu starfs- mönnum svo lág laun, enda héldist þeim ekki á góðum starfskröftum með slíku hátta- lagi. Þjóðin telur sig hins vegar fullsæmd af þessum lágu laun- um er hún greiðir landsfeðrun- um. Hvernig sem á það er litið eru sex hundruð þúsund króna mánaðarlaun ekki há, jafnvel þó haft sé í huga að þingmenn fá lítilsháttar ferðastyrk, bíla- ‘peninga og greidd umframsím- gjöld. Þjóðin hefur ekki efni á að greiða þingmönnum svo lág laun, einfaldlega vegna þess að á meðan því er svo varið er útilokað að til starfans fáist bestu mögulegu starfskraftar. Til þess ber hins vegar ríka nauðsyn, og ætti# þeir sem sífellt hafa horn í síðu stjórn- málamanna að geta fallist á það sjónarmið. Hætta við framboð vegna launanna Öruggt má telja að allmargir hæfir menn sem áhuga kunna að hafa á störfum fyrir samfé- lagið í formi ráðherrastarfa og þingsetu telji sér það ekki fært vegna hinna lágu launa og lélegrar aðstöðu sem þing- mönnum er boðið uppá. Menn í góðum stöðum hjá einkafyrir- tækjum og hálfopinberum eða alopinberum, svo sem banka- starfsmenn, hafa ekki áhuga á því að setjast á Alþingi laun- anna vegna, svo mikið er víst. Fullyrða má að í þeim próf- kjörsslag sem nú stendur yfir hjá öllum flokkum séu margir mætir menn utandyra vegna þess að þeir vilja ekki hætta á að lenda inni á þingi, launanna vegna! Ungir menn með góða menntun, í góðum stöðum hér Úr fundarsal Sameinaðs Alþingis 'vrir bimrmenn og áhorfendur. og þar um þjóðfélagið, búnir að takast á hendur fjárhagsskuld- bindingar vegna íbúðakaupa eða einhvers annars; þeir hafa ekki efni á því að gerast þingmenn. Nöturleg staðreynd, en staðreynd eigi að síður. Launakjör þing- manna verði bætt Hér er í óefni komið, þegar telja má fullvíst að margir bestu sona þessa lands og margar bestu dætur þess geti ekki tekið að sér störf í al- mannaþágu vegna launanna. Hér þarf úr að bæta, og það frekar fyrr en seinna. Ekki virðist auðvelt að segja til um hvaða laun geti talist sanngjörn fyrir þingmenn. Hér skal þó slegið fram tölunni 1500 þúsund krónur á mánuði, eins og hálf milljón króna, til þing- manna. Þau laun ættu að nægja og neðri deildar. Verði Alþingi breytt í eina málstofu má bæði auka rými til þess að menn þurfi ekki að óttast að lenda inni á þingi launanna vegna, og jafnvel gætu þau freistað sumra. Það er heldur ekki nema æskilegt, til þings eigum við að velja okkar bestu menn, og okkar bestu menn eiga að vera laun- aðir að verðleikum. Fullyrða má að það sé fjárfesting sem yrði fljót að skila hagnaði. Hlunnindi verði aukin Um leið og laun þingmanna yrðu aukin, þarf að huga að ýmsum öðrum þáttum, svo sem bílastyrk, símakostnaði og fleiri atriðum. Ekki virðist ósanngjarnt að alþingismenn fái á hverjum tíma hæsta bílastyrk sem greiddur er af hinu opinbera. Allur kostnaður af einkasíma þingmanna heima hjá þeim ætti skilyrðislaust að greiða af almannafé. Greiða á þingmönnum hæfilegan risnu- kostnað. Þingmönnum eiga að standa til boða eins margar ferðir innanlands á ári og þeir óska eftir, hvort heldur þeir eru þingmenn fyrir Reykjavík, Reykjanes eða önnur kjördæmi. Þeim þingmönnum sem verða að eiga tvö heimili vegna starfa sinna á að greiða fulla húsa- leigu. Jafnframt ættu þing- menn að eiga aðgang að léttum málsverðum og kaffi í Alþing- Anders Hansen: Það er orðin lenska hér á landi að tala illa um stjórnmálamenn. Einkum á það við um þá stjórn- málamenn er starfa að þjóðmálum utan sveitar- stjórnarstjórnmálanna. Sjaldan kemur fólk svo saman að ekki berist talið að stjórnmálum og stjórnmálamönnum, og að ekki séu einhverjir í hópnum sem telji íslenska stjórnmálamenn fremur lítilsgilda, og að þeim megi um margt kenna hve illa horfir nú fyrir þjóð vorri á ýmsum sviðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.