Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 Bara vegna þess að ég nenni ekki að stoppa i hvert skipti sem krakkarnir þurfa að pissa! „Sumri hallar, hausta fer...” í Morgunblaðinu laugardaginn 20. okt. 1979 spyr aldraður skóla- maður Velvakanda um höfund vísunnar Sumri hallar, hausta fer, heyri snjallir ýtar. Hafa fjallahnjúkarnir húfur mjallahvítar. Sendi þeim gamla hér meðfylgj- andi heimild um þetta á nokkrum blöðum ljósprentuðum. Þessi blöð eru úr bók Arnfríðar Sigurgeirs- dóttur, Séð að heiman. Þar er einnig getið annarrar vísu góðrar sem ort hefur verið um leið og við sama tækifæri en af öðrum hag- yrðingi: Fýkur mjöllin feiknastinn, fegurð völlinn rænir. Hylja fjöllin sóma sinn, silungshöllin skænir. Arnfríður getur þess að ýmsum hafi verið eignuð vísan Sumri hallar. Heimild hennar um höf- Höfundurinn, Illugi Einarsson, er kallaður skáld í sumum heim- ildum og vitað er um Griðkurímur sem hann orti. Illugi er fæddur 1768 og mun hafa átt heima við Mývátn en einnig á Hlíðarenda í Bárðardal og á Brettingsstöðum í Laxárdal. Foreldrar hans voru Einar Vigfússon (Ingjaldssonar á Kálfaströnd) og Guðrún Þor- steinsdóttir en kona hans hét Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Fleira er hægt að grafa upp um Uluga án vafa, þótt ekki sé það hendi nær núna, en ég vona að þetta nægi skólamanninum í bráð. Reykjavík, 21. október 1979 Þórhallur Hermannsson. • Fegurð himins og stjarna Lítum til himins þegar dimma tekur. Út úr myrkri geims- ins stíga stjörnurnar fram, hver á fætur annarri. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í viðkvæmum spilum getur styrkur og reynsla andstæðinga haft mikil áhrif á meðhöndlun einstakra lita. Lítum á skemmti- legt dæmi. Lesendur ættu að byrgja hendur austurs og vesturs og athuga spilið. Gjafari suður, allir á hættu. Norður S. Á63 H. G7 T. 54 L. DG10743 Austur S. 872 H. D843 T. DG1062 L. Á Suður S. KG5 H. Á1062 T. ÁK93 L. 52 Suður opnar á einu grandi, sem norður hækkar umsvifalaust í 3 grönd. Hvernig myndir þú haga úrspilinu og auðvitað þarf að reikna með bestu vörn, þó spaðatí- an sé þér hagstætt útspil. Eðlilega dettur þér fyrst í hug, að sögn norðurs sé vafasöm. Greinilega treystir hann þér til að rata réttar leiðir. í öllu falli verður að spila strax laufi. Láti vestur lágt er ekki óeðlilegt að láta hátt úr blindum og treysta á, að austur taki slaginn. Þá verður auðvelt að fríspila litinn og spaðaásinn verð- ur innkoman. Svona er eðlilegt að spila þegar ekki er ástæða til að búast við bestu vörn. En sé hún upp á það besta þýðir ekki að treysta á að austur taki slaginn. Hann gefur örugglega drottninguna og þá verður ekki lengur hægt að fría litinn og ekki hægt að vinna spilið. En staðreyndin er, að þrjá slagi verður laufið að gefa og til þess er aðeins einn möguleiki. Þegar vest- ur lætur smátt á laufspilið þitt verður að láta smátt frá blindum og vona, að austur eigi ás eða kóng einspil. Og eins og spilið er leikur ailt í lyndi eftir það. Vestur S. D1094 H. K95 T. 87 L. K986 COSPER Gólfið hefur ekki þolað alla reikningana sem borizt hafa meðan við vorum á Ítalíu! undinn er munnleg og kominn til hennar um þrjár kynslóðir, en saga um tilefni þess að vísan var ort fylgdi einnig höfundarnafninu og sú saga hafði einnig að geyma hina vísuna, sem ég nefndi áðan. Fyrst koma í ljós þær björtustu en síðan þær daufari. Þær eru margfalt fleiri en hinar. Þarna birtast þær allar á hvelfingu himinsins, svo fagrar, svo skínandi._ Lausnargjald í Persíu Kftir Evelyn Anthony Jóhanna kristjónsdóttir sneri á íslenzku 96 ihuga það. Hún vildi hann ekki sem bandamann. Hún varð að viðurkenna það þótt það vekti með henni hrylling að eftir árás Resnais á hana hafði hún ekki orku eftir til að berjast gegn Peters. Hún vissi að hún varð að berjast gegn honum. Hún varð að standast þá freistingu að gefa eftir og leyfa sér að verða honum háð og leita til hans eftir vernd. Hún lagði við hlustirnar og vonaðist þó til að heyra fótatak hans. Hann vár hennar eini vin í þessari voða- legu stöðu sem hún var í. Ef hann hefði ekki verið hefði Resnais nauðgað henni. Hún mátti ekki hugsa um Peters sem vin. Hann var hryðjuverka- maður eins og hin tvö. Hún dró lökin upp að höku og skalf þrátt fyrír hitann. Þegar hún heyrði dyrnar opnast, lokaði hún augunum og lét eins og hún væri i fastasvefni. ÁTTUNDI KAFLI Logan lagði upp tii Tokýó klukkan fjögur síðdegis. Þetta var langt og strangt flug með viðkomu i Bangkok og Hong - Kong. Hann var með skjala- tösku úttroðna af skjölum og pappirum um Imshan til að glugga I og tvær svefntöflur, sem Janet hafði krafizt að hann tæki svo að hann gæti slakað á. Hún hafði ekið honum til flug- vallarins. en ekki farið út úr hilnum. Hann kærði sig ekki um að draga athygli að brottför sinni. Hann hafði verið snort- inn að sjá tár i augum hennar þegar hánn 'kvaddi hana. Þau höfðu færzt nær hvort öðru og á annan hátt í þessum erfiðleik- um og það skipti hann máli. Hann kunni að meta hlutlæga dómgreind hennar og þarfnað- ist ástúðar hennar. Hann hail- aði sér aftur i sætinu eftir að vélin var komin á loft og sagði við sjáifan sig, að hann hefði aldrei verið jafn ástfanginn af henni og núna. Kampavin var borið fram. ' Hann afþakkaði og bað um viskí, opnaði töskuna og fór að blaða i skjölum sinum. Hann hafði sagt James Kelly að hafa samband við Homsi og kref jast sönnunar fyrir þvi að Eileen væri enn á lifi. Janet sagði að hann hefði tekið rétta ákvörA un. Keliy horfði á hann eins og hann væri morðingi. Hver sem niðurstaðan yrði var Ijóst að James Kelly myndi ekki vinna lengur hjá Imperialoliuféiag- inu. Keily hafði gegnt þýð- ingarmiklu hlutverki i undir-' búningi samningaviðræðna og vegna þess hve vel hann þekkti til og var lagið að umgangast fólk hafði hann komið málinu á ákaflega góðan rekspöl. En nú var komið að leiðarlok- um. Eftir það sem á milii þeirra hafði íarið var ljóst að þeir gátu ekki unnið saman. Hann var reiður James vegna þess, að hann setti ekki hagsmuni fyrir- tækisins ofar öðru. Og þegar þetta var um garð gengið myndu þeir ganga frá málinu — vonandi í spekt og eins og siðmenntuðu íóiki sæmdi. Hann horfði annars hugar á skjölin. Janet hafði sagt að það væri engin von til þess að lífi Eileenar yrði bjargað. Hann efaðist ekki um dómgreind hennar. Hún var ekki slík manneskja að hún segði slikt við hann vegna tilfinningasam- bands þeirra. Hún var fær um að halda þessu tvennu svo aðskildu að hann var sannfærð- ur um að þar fór ekkert á milli mála. Hún var viss um að kona hans yrði að deyja, J)ó svo að hann gengi að öllu. James Kelly var brjálaður út af þessu, og var viss um að Logan ætti einhverra kosta völ. En auðvitað vissi hann hvers vegna hann var svo þakklátur Janet og hvers vegna hún var honum jafn kærkomin og raun bar vitni um. Einfaldlega vegna þess, að hún létti af honum ábyrgðinni. Hann vildi ekki missa Imshan. Það væri hræsni að segja að hann gæti afsalað sér þvi sem var hátindurinn á ferli hans, minnismerki sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.