Morgunblaðið - 25.10.1979, Qupperneq 12
f
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Þjóðarhagur við
stjórnarskipti
Hvernig er viðskilnaður ríkisstjórnar ólafs Jóhannessonar í
raun, spyrja menn þessa dagana í moldviðri framboðsrauna, sem
hylja þær pólitísku og efnahagslegu staðreyndir, sem óumflýjan-
legar verða eftir kosningar. Svarið við spurningunni fæst að
hluta að minnsta kosti með því að skoða skýrslu um þjóðhagsáætl-
un, sem ólafur Jóhannesson laj^ði fram sem forsætisráðherra á
Alþingi 11. október s.l., áður en hann sagði af sér. Skýrsla þessi er
samin af Þjóðhagsstofnun á grundvelli laganna um stjórn
efnahagsmála o.fl. sem samþykkt voru af Alþingi í apríl s.l.
Skýrslan um þjóðhagsáætlun
skiptist í þrjá hluta. I fyrsta
hlutanum er gerð grein fyrir
framvindu efnahagsmála á árinu
1979 og horfum fyrir árið 1980. í
öðrum hluta er gerð grein fyrir
markmiðum í efnahagsmálum
fyrir árið 1980. í þriðja hluta er
gerð grein fyrir þeim ráðstöfun-
um, sem þarf að beita til þess að
nálgast markmiðin, sem efna-
hagsstefnunni eru sett á næsta
ári. Nú er það svo, að aðeins fyrsti
hluti þessarar skýrslu hefur eitt-
hvert raunhæft gildi. Hinir tveir
síðari fjalla um pólitísk efni, sem
viðurkennt er, að ekki einu sinni
þeir stjórnarflokkar, sem sátu í
samstarfi með forsætisráðherran-
um, sem lagði fram skýrsluna
fram, hafi samþykkt. Á síðari
stigum gefst ef til vill tækifæri til
að velta því fyrir sér, hvaða
tilgangi það þjóni að leggja vinnu
í gerð slíkra skjala, ef ekki er fyrst
Ur skýrslu
Þjóðhags-
stofnunar
gengið úr skugga um, að pólitískar
forsendur þeirra séu samþykktar.
En vinnubrögð af þessu tagi ein-
kenndu mjög allt starf síðustu
ríkisstjórnar.
Hér verður því einungis fjallað
um þann þátt fyrsta hluta skýrsl-
unnar, sem nær til þjóðarfram-
leiðslunnar og afkomu þjóðarbús-
ins í heild. Skýrslan á að vera
hlutlægt mat á stöðunni eins og
hún var við fráhvarf rikisstjórnar
Ólafs Jóhannessonar. Verður nú
stiklað á stóru í yfirliti Þjóð-
hagsstofnunnar:
xxx
Frá águát 1978 til ágúst 1979
hefir verð á Bandaríkjadollar í
íslenskum krónum hækkað um
42% en meðalgengi innflutnings
hefur hækkað um 49% gagnvart
íslenskri krónu.
xxx
í spá Þjóðhagsstofnunar í des-
ember 1978 var gert ráð fyrir, að
sjávarafurðaframleiðslan gæti
aukist um 2% á árinu 1979, þótt
dregið yrði úr þorskafla og að-
halds gætt við loðnuveiðar. Það
sem af er árinu 1979 hefur fram-
leiðsla aukist mun meira en spáð
var, enda hefur þorskaflinn orðið
meiri en reiknað var með. í
ágústlok var þorskaflinn orðinn
287 þús. tonn eða jafn mikill og að
var stefnt á árinu öllu. Þetta er
6% meiri afli en á sama tíma í
fyrra, þrátt fyrir víðtækari sókn-
artakmarkanir. Ef ekki verður
gripið til strangari takmarkana
það sem eftir er ársins en gert var
á síðasta ári eða beinlínis ákveðið
aflahámark, er útlit fyrir, að
þorskaflinn verði a.m.k. 330 þús.
tonn á þessu ári samanborið við
320 þús. tonn í fyrra. í lok júlí var
framleiðsla sjávarafurða frá ára-
mótum 14% meiri en á sama tíma
í fyrra. Vegna minni loðnuafla
verður að gera ráð fyrir, að
sjávarvöruframleiðslan á tímabil-'
inu ágúst-desember í ár verði
minni en á sama tíma í fyrra. Eins
og horfir gæti ársframleiðslan
orðið um 5% meiri en í fyrra.
Þjóðhagsstofnun byggir spá sína
fyrir árið 1980 á því, að þorskafl-
inn þá verði nálægt 300 þús.
tonnum. Reiknar hún með, að
framleiðsla sjávarafurða minnki
um nálægt 3% á árinu 1980.
xxx
Um útflutningsframleiðsluna í
heild er það að segja, að hún vex
um 6% í ár og um 1% á næsta ári,
þrátt fyrir að dragi úr framleiðslu
sjávarafurða. Vegur framleiðsla
álversins og járnblendiverksmiðj-
unnar þyngst þar til jöfnuðar. En
talið er, að álfremleiðslan muni
aukast um 7% 1980, þegar lokið
verður stækkun verksmiðjunnar.
xxx
Að óbreyttu olíuverði er nú útlit
fyrir, að viðskiptakjör þjóðarinn-
ar gagnvart útlöndum verði að
jafnaði 11—12% lakari í ár en þau
voru í fyrra og undir lok ársins
gætu þau verið 3—4% lakari en að
meðaltali á árinu. Má rekja alla
rýrnun viðskiptakjara til hækkun-
ar olíuverðs, þar sem hækkun
útflutningsverðs hefur vegið upp
verðhækkun á innflutningi öðrum
en olíu. Þegar litið er á verðþróun
olíu á árinu verður að telja óvíst,"
að verðið haldist óbreytt út árið,
en að óbreyttu verði, lætur nærri,
að meðalinnflutningsverð, eins og
það kemur fram í verslunarskýrsl-
um, verði um 290 dollarar hvert
tonn af gasolíu eða 136% hærra en
á síðasta ári. Um þessar mundir er
verðið 15% hærra en þetta áætl-
aða meðalverð. Verð á bensíni
hefur hækkað álíka mikið og
gasolíuverðið en hins vegar hefur
svartolía hækkað mun minna.
Því er spáð að viðskiptakjör á
næsta ári verði óbreytt frá því
sem ætla má að þau verði á
síðasta fjórðungi þessa árs, en í
því felst, að á árinu 1980 verði þau
að jafnaði um 3—4% rýrari en á
þessu ári. Er þá gert ráð fyrir 7%
hækkun útflutningsverðs en 10—
11% hækkun innflutningsverðs.
xxx
í þjóðhagsspá fyrir árið 1979,
sem Þjóðhagsstofnun samdi í des-
ember 1978, var talið, að vísitala
framfærslukostnaðar 1979. mundi
hækka um 30% frá upphafi til
loka árs samanborið við 38%
hækkun 1978 og 35% hækkun
1977. Síðustu áætlanir Þjóð-
hagsstofnunar benda hins vegar
til, að framfærsluvísitalan hækki
um 53—55% frá upphafi til loka
ársins 1979. Lausleg áætlun um
verðlagsþróunina fyrstu mánuði
næsta árs bendir ekki til, að hún
verði að marki hægari en um
þessar mundir. Verði framvinda
ríkisfjármála og peningamála með
líkum hætti á næsta ári og í ár og
vísitölukerfi launa óbreytt eru
engar líkur á að úr verðbólgu
dragi á næsta ári. Hún yrði á
flesta mælikvarða nálægt 45—
50% og þaðan af meiri ef við-
skiptakjör breyttust mikið eða
samið yrði um almennar grunn-
kaupshækkanir.
xxx
Kauptaxtar launþega hækka að
líkindum um 42% að meðaltali á
árinu 1979 samanborið við 55%
hækkun 1978. Sé miðað við, að
vísitala framfærslukostnaðar
hækki um 44% að meðaltali í ár,
verður kaupmáttur kauptaxta 1—
2% minni í ár en í fyrra. Talið er,
að brúttótekjur einstaklinga
hækki að minnsta kosti um 45—
46% milli áranna 1978 og 1979.
Ráðstöfunartekjur hækka þó held-
ur minna, þar sem beinir skattar
eru nokkru hærra hlutfall af
tekjum í ár en í fyrra. Niðurstað-
an virðist því sú, að kaupmáttur
ráðstöfunartekna verði svipaður
eða ívið meiri í ár en á síðasta ári.
Því er spáð, að kaupmáttur tekna
verði í heild heldur minni á árinu
1980 en í ár, eða ef til vill um 2%.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
verður 2—3% minni, ef tekið er
mið af fjárlagafrumvarpinu, sem
fráfarandi ríkisstjórn lagði fram,
því að þar er gert ráð fyrir, að
beinir skattar verði ívið hærri sem
hlutfall af tekjum en í ár.
xxx
Framan af ári var búist við, að
einkaneysla í ár yrði um 3% meiri
en á árinu 1978. Nú eru hins vegar
horfur á, að aukningin verði held-
ur minni eða ef til vill um 1—2%.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
verður minni en áður var gert ráð
fyrir og tiltækar upplýsingar um
útgjöld heimilanna benda einnig
til litillar aukningar, einkum á
þetta við um innflutning neyslu-
vöru, sem dregist hefur saman á
árinu. Talið er, að einkaneyslan
dragist saman á næsta ári eða ef
til vill um 1—2%. Samneyslu-
aukningin verður í ár meiri en
reiknað var með, e.t.v. 2%.
xxx
Ráðgert var, að heildarútgjöld
til fjármunamyndunar 1979 yrðu
182.2 milljarðar króna og hún
drægist því saman um tæplega 7%
að raungildi. Samkvæmt núgild-
andi spá verða heildarútgjöld til
fjármunamyndunar hins vegar
208 milljarðar króna eða um 4%
minni að raungildi en 1978. Frum-
drög fjármunamyndunarspár
fyrir 1980 benda til að í heild séu
horfur á 3% aukningu og starfar'
hún að öllu leyti af raforku-
framkvæmdum. Fjármunamynd-
un atvinnuveganna er talin drag-
ast saman um 7% á árinu 1980.
Reiknað er með 3% samdrætti í
íbúðarbyggingum á þessu ári og
svipuðum samdrætti 1980. Áætlað
er, að opinberar framkvæmdir
verði auknar um fimmtung á
árinu 1980. En heildarútgjöld til
fjármunamyndunar eru talin
verða 293.6 milljarðar króna á
Tekjur, verðlag, kaupmáttur 1970—1979.
Vísitölur 1970 = 100
Tekjur:
I Kautaxtar launþega .........
Ráðstöfunartekjur
einstaklinga á mann ........
Verðlag:
Vísitala framfærslukostnaðar
Vísitala byggingarkostnaðar
Kaupmáttur:
Kaupmáttur kauptaxta1) ....
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
á rnann2) ...................
i Breyting frá fyrra ári, %:
I Kauptaxtar .................
1 Ráðstöfunartekjur á mann ..
[ Vísitala framfærslukostn.
Visitala byggingakostnaðar ..
1 ICaupmáttur kauptaxta ......
1 Kaupmáttur ráðstöfunartekna
lá mann ......................
1) MiSað við visitölu framfærslukostnaðar.
2) Miðað við verðlag einkaneyslu.
Spá
1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979
100 118 151 187 277 352 444 639 991 1407
100 123 155 209 319 422 560 826 1284 1850
100 107 118 144 206 307 406 529 762 1097
100 111 132 164 241 358 448 571 847 1220
100 111 128 130 135 115 109 121 130 128
100 114 127 137 146 130 133 149 161 161
24,4 18,5 27,5 23,5 48,7 27,0 26,0 44,0 55,0 42
30,0 22,6 26,1 35,0 52,7 32,3 32,7 47,5 55,5 44
13,2 6,8 10,4 22,1 43,0 49,0 32,2 30,5 44,1 44
17,2 12,2 22,0 27,8 52,0 42,1 23,5 27,5 48,2 44
9,9 11,0 15,5 U 4,0 -14,7 —4,7 10,3 7,6 -1,5
13,8 14,4 10,8 7,9 7,1 —11,2 2,0 12,5 8,0 0
■ Þjóðarframleiðsla, þjóðartekjur og þjóðarútgjöld 1979- -1980.
Milljarðar króna, Magnbreytingar ■
verðlag hvors órs frá fyrra ári, % 1
Spá Spá
1979 1980 1979 1980 1
Einkaneysla 520,0 716,0 1,5 h-2,0
1 Samneysla 100,2 139,4 2,0 1,0 1
1 Fjármunamyndun, alls 203,8 293,6 -4- 6,0 5,0 1
Atvinnuvegir 86,9 116,2 -4-10,0 -2,5 1
i íbúðarhús 47,5 63,1 -4- 3,0 h- 3,0 1
1 Opinberar framkvæmdir 69,4 114,3 - 3,0 20,0 |
I Þjóðarútgjöld 824,0 1149,0 1,5 0,0—0,5
1 Útflutningur vöru og þjónustu 384,0 530,0 3,6 2,4 1
Innflutningur vöru og þjónustu 389,0 540,0 0,5 1,1 1
Vöruskiptajöfnuður - 5,0 + 10,0 . . I
Verg þjóðarframleiðsla 819,0 1 139,0 2,5 0,7—1,0
Viðskiptakjaraáhrif1) -4- 3,3 - 0,9 1
[ Vergar þjóðartekjur . •4- 0,8 0,0 J
L 1) Hlutfall af þjóðarframieiðslu fvrra árs. M
Breyting frá
fyrra ári, % .......
Viðskiptakjör:
Vísitölur .............
Breyting frá
fyrra ári, % ..........
Þjóðartekjur á mann:
Visitölur .............
Breyting frá
a mann:
Visitölur
Breyting frá
1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 Spá 1979 Frum-i drögj spán 19801
100 112 116 123 126 122 125 - 131 135 138 138'
7,7 11,7 4,2 6,1 2,1 -3,0 1,9 5,2 3,3 1,6 0
100 112 111 128 116 99 111 120 120 106 103
14,0 12,0 -4-0,9 15,3 —9,8 -14,6 12,7 8,4 0 -4-11 -4-3
100 115 119 131 130 122 128 139 143 140 139
11,9 14,7 3,8 10,0 -0,3 -4-6,8 5,3 8,2 3.3 -1,9 -4-1
kns 100 114 127 137 146 130 133 149 161 161 158
13,8 14,4 10,8 7,9 7,1 4-11,2 2,0 12,5 8,0 0 -2