Morgunblaðið - 25.10.1979, Síða 13
árinu 1980 eða 25.8% af áætlaðri
þjóðarframleiðslu.
XXX
í ágústlok s.l. var vöruinnflutn-
ingur frá áramótum aðeins 6%
meiri en á sama tíma í fyrra, ef
reiknað er á sama gengi bæði árin.
Að teknu tilliti til verðbreytinga í
erlendri mynt er því um samdrátt
að ræða. Talið er, að samdráttur-
inn á næsta ári geti orðið nálægt
5%. Nú er áætlað að vöruútflutn-
ingur verði um 264 milljarðar
króna í ár en vöruinnílutningur
um 262 milljarðar, þannig að
nokkur afgangur verði í vöruskipt-
um við útlönd á árinu. Hins vegar
er útlit fyrir, að þjónustujöfnuður
(mismunur útfluttrar og inn-
fluttrar þjónustu) verði áfram
óhagstæður á síðari hluta ársins,
þótt hallinn verði e.t.v. ekki eins
mikill og á fyrri hluta ársins. Gera
verður ráð fyrir, að hallinn á
árinu öllu verði um 7 milljarðar
króna og viöskiptahalli því ef til
vill 5 milljarðar, samanborið við
11 milljarða króna afgang í fyrra,
reiknað á gengi ársins í ár.
Erlendar lántökur munu gera
meira en jafna viðskiptahallann
og greiðslujöfnuður ætti því að
verða jákvæður og gjaldeyris-
staðan að batna.
xxx
í lánsfjáráætlun fyrir árið 1979
voru erlendar lántökur ráðgerðar
39 milljarðar króna og afborganir
25.5 milljarðar króna. Síðustu
áætlanir benda hins vegar til þess,
að erlendar lántökur í ár verði
rúmlega 50 milljarðar króna. Er-
lendar skuldir þjóðarbúsins munu
því aukast meira í ár en að var
stefnt. Spáð er 10 milljarða króna
viðskiptahalla 1980 eða tæplega
1% af þjóðarframleiðslu. Fyrstu
áætlanir benda til þess, að end-
urgreiðslur erlendra lána muni
nema 45 milljörðum króna á
næsta ári. Til þess að gjaldeyris-
staðan versnaði ekki þyrftu ný
erlend lán að nema 55 milljörðum
miðað við að einnig þurfi að mæta
við viðskiptahalla upp á 10 millj-
arða. Til viðbótar endurgreiðslu
langra lána þarf að greiða 10
milljarða af skammtímaskuldum
á næsta ári — einkum til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins — en það hefur
ekki áhrif á gjaldeyrisstöðuna
þótt það rýri gjaldeyrisforðann.
Til þess að forðinn rýrnaði ekki
þyrftu erlendar lántökur að nema
um 65 milljörðum króna.
XXX
Nú eru horfur á, að þjóðar-
framleiðsla vaxi um rúmlega 2% í
ár og verði verg þjóðarframleiðsla
því samtals 819 milljarðar króna á
verðlagi ársins. Þetta er nokkru
meiri hagvöxtur en reiknað var
með framan af árinu, fyrst og
fremst vegna þess, að útflutnings-
framleiðslan verður meiri en þá
var gert ráð fyrir. Vegna versn-
andi viðskiptakjara munu þjóðar-
tekjur hins vegar minnka um
nálægt 1%, þ.e. viðskiptakjara-
skellurinn skerðir þjóðartekjur
um rúmlega 3%.
Fyrstu niðurstöður þjóðhags-
áætlunar fyrir árið 1980 benda til,
að þjóðarframleiðslan vaxi um
nálægt 1% og verði verg þjóðar-
framleiðsla því 1139 milljarðar
1980 á verðlagi þess árs. Hins
vegar er gert ráð fyrir, að þjóðar-
tekjur verði nánast óbreyttar
vegna versnandi viðskiptakjara.
Þetta felur í sér, að þjóðartekjur á
mann dragast saman á árinu 1980.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 J 3
Samtökin ekki med almenn frambod
— en kjördæmissamtök athugi
málið „frá heimasjónarmidi”
„.PERSÓNULEGA stefni ég ekki að
framboði,“ sagði Magnús Torfi
Ólafsson formaður Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna, er Mbl.
spurði hann að þvi á mánudag, en á
laugardag var haldinn framhalds-
landsfundur Samtakanna, þar sem
ákveðið var að þau beittu sér ekki
fyrir almennum framboðum í kom-
andi kosningum en kjördæmissam-
tök voru hvött til að „skoða málið
frá heimasjónarmiði og taka
ákvarðanir um það eftir því sem
efni standa til. ein sér eða i
samstarfi við aðra vinstri menn og
flokka".
Magnús sagði, að ályktun fram-
haldslandsfundarins hefði verið sam-
þykkt af þorra fundarmanna með
aðeins einu mótatkvæði. „Ég greiddi
þessari ályktun atkvæði á fundin-
um,“ sagði Magnús, „og að ég hygg
allir fulltrúar Reykjavíkurfélaganna,
þannig að ég held að sú afstaða tali
sínu máii“.
Einar Hannesson formaður sam-
takanna í Reykjavík sagði í samtali
við Mbl. að fljótlega yrði haldinn
fundur, þar sem endanleg afstaða
yrði tekin til þess, hvort og þá
hvernig Samtökin í Reykjavík beittu
sér sem slík tii liðs við einhvern í
kosningunum.
Ályktun framhaldslandsfundar
SVF er svohljóðandi:
„Framhaldslandsfundur Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna, hald-
inn í Reykjavík laugardaginn 20.
október 1979, minnir á að Samtökin
töldu myndun fráfarandi ríkisstjórn-
ar vænlegasta stjórnarkost, eins og
mál stóðu þá, og málgagn þeirra hét
henni stuðningi við góð málefni.
Fyrir því harmar fundurinn, að starf
stjórnarinnar skyldi ekki takast með
betri heilindum, en raun er á orðin.
Fundurinn telur þó, að fráfarandi
ríkisstjórn hafi þokað áleiðis ýmsum
baráttumálum vinstra fólks í land-
inu, en því miður mistekist úrræði í
efnahags- og verðbólgumálum, sakir
innbyrðis togstreitu og sundurlyndis.
Fundurinn varar vinstri menn í
landinu við að draga af þessum
stjórnarslitum þá ályktun, að heilt
og varanlegt vinstra samstarf um
ríkisstjórn geti ekki tekist og haldist
með góðum árangri, ef að því er
staðið af fullri ábyrgðarkennd og
samstarfsvilja.
Fundurinn telur að þetta stjórnar-
samstarf og stjórnarslit sé árétting
þess, að meginmálstaður og pólitísk
krafa Samtakanna um heila og
brigðalausa samstöðu vinstri manna
og flokka séu enn tímabær og
nauðsynleg markmið og stefnuskrá
Samtakanna tímagild svo sem best
má verða.
En þar sem svo skammt er liðið frá
síðustu kosningum, þar sem Samtök-
in lögðu þessi mál í dóm þjóðarinnai
en hlutu ekki nægilegan byr, ákveður
fundurinn að þau beiti sér ekki fyrir
almennum framboðum af sinni hálfu
á landsvísu í kosningum þeim sem í
hönd fara eins og þær ber nú að.
Hins vegar minnir fundurinn á, að
framboð í einstökum kjördæmum eru
samkvæmt lögum Samtakanna alfar-
ið í höndum kjördæmissamtaka, og
hvetur til þess að þau skoði málið frij
heimasjónarmiði og taki ákvarðanir
um það eftir því sem efni standa til,
ein sér eða í samstarfi við aðra
vinstri menn og flokka. Verði um slík
framboð að ræða af hálfu eða með
aðild kjördæmissamtaka, telur fund-
urinn einboðið að málgagn Samtak-
anna stýðji þau, eftir því sem óskir
aðila og efni standa til“.
VLHg'u'tU) W8W'Ib ^IIL
SETTU X VIÐ RETT MERKI, KLIPPTU SVO ALLA GETRAUNINA
ÚT OG SENDU HANA TIL HAGTRYGGINGAR H.F. SUDUR-
LANDSBRAUT 10, REYKJAVÍK. ALLIR ÞEIR, SEM SENDA INN
RÉTTA LAUSN INNAN 10 DAGA FÁ HEIMSENDA SKEMMTI-
LEGA LITABÓK UM TÍU LITLAR BÍLTÍKUR FRÁ HAGTRYGG-
INGU H.F.
SKRIFIÐ NAFN OG HEIMILISFANG GREINILEGA Á GETRAUN-
INA.
HAGTRYGGING HF.
SUÐURLANDSBRAUT 10, REYKJAVÍK.
NAFN
HE»M\U
ALDUR,
SENDU SVARIÐ TIL
HAGTRYGGINGAR HF.
SUDURLANDSBRAUT 10, REYKJAVIK,-.
HVAÖ HeiTVR V1ERK\9 ?