Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
15
Stórkostlegur
cellóleikur
Tónleikarnir hófust á tón-
verki eftir Coupering og end-
uðu á Sónötu eftir Sjostako-
vits, en í millum voru verk
eftir Bach, Faure og Þorkel
Sigurbjörnsson. Coupering
var einn af frumkvöðlum
svítunnar en í því formi var
hægt að koma fyrir tónlist
fyrir alla. Verkið hófst á
alvarlegum forleik, sem á
tíma Couperings var eins
konar innstilling fyrir hlust-
endur. Annar kaflinn er Cic-
iliene, Sikileyskur dans, Al-
essandro er Scarlatti inn-
leiddi og var feiknavinsæll
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
fyrir sérkennilegan hryn-
hátt sinn. Þriðji kaflinn er
nokkurs konar eftirlíking af
lúðrablæstri, La tromba, og
á sjálfsagt að merkja dóms-
dagslúðurinn, því eftir fer
svo kafli, sem kallast Plain-
ete, kveinstafir, og lýkur
verkinu með söng djöfsa, Air
de diable. Bæði er að celló
tæknin var ekki orðin eins
háþróuð á tímum Couper-
ings og nú og þekking manna
á blæ þess ekki heldur, að vel
mætti ætla að cellóið hafi
verið valið sem túlkunarmið-
ill vegna innihaldsins og
þess hve dökkur tónn hljóð-
færisins hæfði vel túlkun-
armarmiði verksins. Gunnar
Kvaran og Gísli Magnússon
léku verkið mjög vel en varla
nógu nærri stíl þess og
grálegu gríni.
Annað verkið var önnur
cellósvítan eftir Bach, meist-
araverk, sem ásamt einleiks-
verkum hans er eitt af göf-
ugustu verkum tónbók-
menntanna. Það má ef til
vill segja að stílgerð og tími
komi nútímamanninum ekki
við þegar gömul verk eru
leikin. Svítan er fyrst og
fremst dansverk og mjög
rómantísk túlkun, eins hjá
Gunnari, orkar tvímælis.
Það sem þó gerði flutning
svítunnar fallegan, var inni-
leikinn í túlkun Gunnars.
Viðfangsefnin eftir hlé voru
meira í samræmi við leik
Gunnars. í Elegie eftir
Faure var leikur og túlkun
Gunnars í meistaralegu
jafnvægi. Á eftir þessum
heita straumi tilfinninga
kom svo hressandi og
skemmtilegt smástykki eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
Síðasta verkið var svo
hápunkturinn. Sónatan, óp.
40 eftir Sjostakovits, er með-
al stórbrotnustu verka sam-
tímans og þar voru vinirnir
Gísli Magnússon og Gunnar
Kvaran við snilldarmörkin.
Undirritaður hefur ekki
heyrt glæsilegri leik hjá
íslendingi og án þess að
tiltaka neitt sérstakt úr
verkinu, er óhætt að segja að
Gunnar Kvaran sér við mörk
„virtúósískrar" snilli í með-
ferð sinni á þessu stórbrotna
verki, ekki aðeins hvað
snertir tækni heldur og í
listrænni túlkun.
Jón Ásgeirsson
GLASURIT BÍLALÖKK
ERU í SÉRFLOKKI
Glasurit bifreiðalökk eru sérstaklegaendingargóð og áferðarfalleg. Þau eru létt í
meðförum og henta því leikmönnum ekki síður en fagmönnum.
Af lager getum við afgreitt alla liti á nær allar tegundir bifreiða.
Við mælum með:
1. Glassodur 21. olíuacryllakki til stykkja- og almálninga.
2. Glasso AD/AE06 Nitro sellulósa lakk til blettunar í stærri og smærri verk.
3. Glassomax 54. Til notkunar við tveggja laga sprautanir -
litalag + glært yfirlag.
4. Öll önnur hjálparefni t.d. grunnur, sprautusparsl, þynnir, tape, strípur ofl. ofl.
5. Fagleg sérfræðiþjónusta ástaðnum. Opið frá klukkan 9-18allavirkadagaog
til hádegis á laugardögum. _
Remaco hf
Skemmuvegi6 Kópavogi Sími: 73500
i!
5 :
2 5
0
argus
| ■ iTrae'*"""'" . a tetnan
’Lr
1.^ "saanda*''1*11
vcitit C»9an — •
\
, iferruJ ^
..........