Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Um 10% vinnuafls
þjóðarinnar vinn-
ur í bílgreininni
Gunnar Thoroddsen:
Frá fréttamannafundinum þar scm niðurstöAur skýrslu um þýðingu
bíÍKrcinarinnar voru kynntar. F.v. Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslcnzkra stórkaupmanna, Örn Guðmundsson,
skrifstofustjóri félajfsins, Brynjólfur Ilelgason rekstrarhafífræðinK-
ur. höfundur skýrsiunnar, oj? Ingimundur Si»?fússon frá Bílgreina-
sambandinu.
í»ýðing bílgreinarinnar:
í NIÐURSTÖÐUM skýrslu sem
Brynjólfur Helgason rekstrar-
hagfræðingur hcfur unnið fyrir
Bilgreinasambandið um þýðingu
bílgreinarinnar i tilefni þcss að
nú eru liðin 75 ár siðan fyrsti
bíllinn kom hingað til lands segir
m.a. að innan Bilgreinasam-
bandsins séu nú 170 aðilar og
starfi hjá þeim um tólf hundruð
manns við bílgreinina. Áætluð
heildarvelta þeirra var um 40
milljarðar króna árið 1978. Þá
megi telja að við hilgreinina í
heild vinni um 9500 manns á
íslandi eða um 10% vinnuafls
þjóðarinnar.
Um áhrif ríkisvaldsins á grein-
ina segir að þau séu gífurleg og sé
greininni mjög Iþyngt með háum
álögum og gjöldum. Þá virðist
þáttur ríkisvaldsins í verðmynd-
unarkerfinu engum til góðs og
bílar þess vegna alltof dýrir á
íslandi.
Þá segir að alltof lítið af tekjum
ríkisins af bílum og bílaumferð sé
veitt aftur til vegagerðar, til
endurbóta á lélegu vegakerfi.
Minna en 3% vega utan þéttbýlis
séu með varanlegu slitlagi. Þjóð-
hagslegt gildi bílgreinarinnar,
segir í skýrslunni, er mikið og
verður eingöngu mælt með tölum.
Um tíundi hver íslendingur vinn-
ur við bílgreinina og skylda starf-
semi.
Þá segir ennfremur að bensín-
eyðsla bíla hér á landi nemi ekki
nema 15.5% af heildareldsneytis-
notkun þjóðarinnar. — Fram
kemur að meðalrekstrarkostnaður
fólksbíls árið 1978 var 69.30 krón-
ur á ekinn kílómetra, en 380.60
krónur á ekinn kílómetra hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur.
Tekjur SVR af fargjöldum stóðu
Þrjú skip
seldu afla
ÞRJÚ íslensk skip seldu afla sinn
erlendis í gær. Vestmannaey seldi
í Fleetwood 77,8 tonn og fékk
41,6 milljónir króna fyrir aflann.
eða 535 króna meðalverð. Afli
skipanna var þorskur, ýsa, koli
og eitthvað litilsháttar af ufsa.
Þá seldi Skafti frá Sauðárkróki
í Hull í gær, samtals 104,2 tonn.
Heildarverð fyrir aflann var 55,9
milljónir, eða 537 króna meðal-
verð.
Loks seldi Hringur frá Dalvík í
Grimsby 61,3 tonn og fékk fyrir
aflann 34,5 milljónir, 562 króna
meðalverð.
Þjóðinþarfnýja
stjórnarskrá
undir rúmlega helmingi af rekstr-
arkostnaði á hvern ekinn kíló-
metra.
Meðalálagning á sölu á bílum og
bílavörum er lægri en í verzlun
alls. Heildarvelta bílverzlunarinn-
ar var 32.1 milljarður króna á
árinu 1978 eða 9.4% heildarverzl-
unar í landinu. 90.2% bílasölunnar
eru í Reykjavík.
Að síðustu segir að sé litið á
bílgreinina í víðari merkingu og
tillit tekið til þeirra er við bíla-
samgöngur starfa sé ekki fjarri
lagi að áætla að 10% þjóðarfram-
leiðslunnar stafi frá bílgreininni.
mynd
Allt frá endurreisn lýðveldis
hefur það verið ósk og draumur
íslendinga að eignast nýja
stjórnarskrá.
Stjórnarskrá okkar er að
stofni til meira en aldargömul.
Danakonungur „gaf“ okkur
stjórnarskrána á þúsund ára
afmæli Islands byggðar. Síðan
hefur kosningarétturinn verið
rýmkaður og leiðrétt misræmi í
kjördæmaskipan.
Árið 1944 voru gerðar breyt-
ingar, sem leiddu beinlínis af
því, að konungdæmið var afnum-
ið og lýðveldi stofnað.
Sumt er gott,
en annað úrelt
En öll meginatriði stjórn-
arskrárinnar standa eins og
fyrir einni öld. Sumt er í henni
traust og gott, en annað úrelt, og
margt vantar í stjórnarskrána,
sem breyttir tímar og nýir þjóð-
félagshættir útheimta.
t»að þarf að
rétta hlut
Reykjavíkur
Það þarf að leysa kjördæma-
málið og laga það mikla mis-
rétti, sem íbúar Reykjavíkur ög
Reykjaness búa við. Það þarf að
tryggja jafnrétti milli stjórn-
málaflokka og jöfnuð milli
byggðarlaga. Það þarf að tryggja
í sjálfri stjórnarskránni end-
urskoðun á nokkurra ára fresti
með hliðsjón af fólksflutningum
í landinu. Það þarf að auka
Tilraunir sem
ekki hafa tekizt
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að endurskoða
stjórnarskrána í heild. En þótt
ágætir menn í mörgum nefndum
hafi að því starfað, hefur ekki
tekizt að ná niðurstöðu.
Á liðnu ári var ákveðið að gera
enn eina tilraun. Ný stjórnar-
skrárnefnd var skipuð. Hún hef-
ur nú starfað í tæpa tíu mánuði
og þegar unnið mikið starf. Hún
hefur rætt rækilega öll þau
helztu atriði í stjórnarskránni,
sem þarf að endurskoða, kjör-
dæmamálið alveg sérstaklega.
Fjölda upplýsinga hefur verið
aflað, álitsgerðir samdar. Nefnd-
in stefnir að því að skila heildar-
tillögum um nýja stjórnarskrá
fyrir lok næsta árs. Síðan þarf
Álþingi að fjalla um þetta stóra
mál.
Nú þarf að
ljúka verkinu
Ein meginástæðan til þess, að
ég gef enn einu sinni kost á mér
til þingmennsku er þessi: Mér
hefur verið trúað fyrir því af
öllum stjórnmálaflokkum að
gegna formennsku í stjórnar-
skrárnefnd. Ég vil skila því
starfi og stuðla að því að koma í
höfn heildarendurskoðun stjórn-
arskrárinnar. Við höfum ekki
áður verið jafn nærri því marki
og nú. Það verður að gerast á
næsta kjörtímabili. Ég vil gjarn-
an fá að leggja mitt lóð til þess
að þetta megi takast.
Jón Magnússon formaður SUS:
persónuval, gefa kjósendum kost
á að velja persónur, en ekki
aðeins flokka.
En fjölmörg önnur atriði verð-
Gunnar Thoroddsen
ur að endurskoða, til dæmis
þessi:
Hvort Alþingi á að vera tvær
deildir eða ein málstofa.
Reglur um stjórnarmyndun.
Þingrof.
Dómstólar.
Umboðsmaður Alþingis til
þess að tryggja réttindi borg-
aranna.
Ýmis mannréttindi.
Fylgjum stefnunni eftir
Margir bjuggust við því að
vinstri stjórnin sáluga yrði lang-
lífari en raun varð á. Mátti m.a.
byggja það á hástemmdum yfir-
lýsingum ýmissa forystumanna
vinstri flokkanna um nauðsyn
vinstra samstarfs. Fljótlega kom
þó í ljós, að litlir kærleikar voru
með stjórnarliðum og svo fór að
vinstra samstarfið endaði eins og
jafnan áður með strandsiglingu
þjóðarskútunnar og gagnkvæmum
ásökunum strandkapteinanna úr
stjórnarflokkunum, hverjum væri
um að kenna.
Það er sjálfsagt að iáta vinstri
mönnum eftir að deila um, hvers-
vegna vinstri stjórnin brást jafn
illa og lét eftir sig ringulreið,
óðaverðbólgu og kyrrstöðu í at-
vinnumálum. Úrlausnarefni kosn-
inganna sem nú fara í hönd er
hinsvegar hverjir eigi að taka við
og hvaða stefnu skuli móta til að
rétta þjóðfélagið við og koma
aftur á stöðugleika og atvinnuupp-
byggingu. Þegar það liggur fyrir,
að vinstri stefnan hefur verið
reynd með jafn hörmulegum ár-
angri og raun ber vitni, þá er
rökrétt að leitað sé nýrra leiða.
Aðrir valkostir en stjórnarforysta
Sjálfstæðisflokksins eru ekki fyrir
hendi.
Þá er eðlilegt að spurt sé, hvað
ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að
gera? Er hann líklegur til að
stjórna þjóðfélaginu á annan og
betri hátt en hinir flokkarnir? —
Mat manna á því er mismunandi,
en í því efni e? eðlilegt að gera sér
grein fyrir því hvað hefur verið að
gerast innan Sjálfstæðisflokksins.
Eftir síðustu þingkosningar fór
fram opinská umræða um stefnu
og störf flokksins. Afleiðing þeirra
umræðna er m.a. sú, að mörkuð
hefur verið skýr stefna í flestum
mikilvægustu málaflokkum.
Stefna flokksins í heild hefur
fengið nýja áferð og hún er nú
mun skeleggari en áður. I efna-
hagsstefnu flokksins „Endurreisn
í anda frjálshyggu" er tekið undir
öll helstu sjónarmið ungra sjálf-
stæðismanna varðandi baráttuna
gegn bákninu. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur með þessari stefnu-
mörkun gert þetta baráttumál
ungra sjálfstæðismanna að sínu
og er það m.a. að þakka baráttu
Friðriks Sophussonar og annarra
ungra Sjálfstæðismanna, á Al-
þingi, landsfundum flokksins og
víðar.
Ég minntist á það fyrr, að
vinstri menn gætu deilt um það
hverjum væri um að kenna að svo
illa tókst til hjá þeim. Staðreyndin
er sú, að það er vinstri stefnunni
um að kenna. Stefna óheftra
ríkisafskipta og skattaáþjánar
sem magnað hefur óðaverðbólgu,
eru þeir sökudólgar sem um er að
kenna. Sá lærdómur einn verður
af því dreginn, að víkja verði af
þessari braut.
Ungt fólk, hvar og hvenær sem
er, hafnar stefnu kyrrstöðu og
versnandi lífskjara. Úngt fólk er
jafnan stórhuga og ætlast til
mikils. Betra og réttlátara þjóð-
félag er það markmið sem stefnt
er að. Ungt fólk hefur séð, að
vinstri stefnan dugar ekki í því
efni, — það vill ný viðhorf og
Þegar Friðrik Sophusson, fyrr-
verandi alþingismaður var for-
maður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna hófu ungir sjálfstæðis-
menn baráttu fyrir samdrætti í
ríkisbúskapnum, auknu svigrúmi
einstaklinganna og lækkun skatta.
Þessi baráttumál fengu misjafnar
undirtektir' í fyrstu, en fljótlega
varð ljóst, að stór hópur sjálfstæð-
isfólks var sama sinnis óg ungir
sjálfstæðismenn og sennilega er
því fremur öðru það að þakka, að
Friðrik hlaut glæsilega kosningu í
síðasta prófkjöri flokksins, studd-
ur einhuga af unga fólkinu í
flokknum og fjölmörgum öðrum.
1
m
Jón Magnússon
leitar nýrra leiða. Sjálfstæðis-
flokkurinn einn býður upp á nýjar
leiðir. Leiðir sem eru varðaðar
baráttu ungs fólks í Sjálfstæðis-
flokknum og komið í höfn af því.
Ungu fólki er því ekkert að
vanbúnaði að styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, en það verður líka að
finna að flokkurinn styðji ungt
fólk á þing og til annarra stjórn-
unarstarfa og veiti þeim brautar-
gengi, sem drýgstan skerf hafa
lagt til nýrrar stefnumörkunar.
Með þeim hætti er best tryggt að
ný stefnumörkun flokksins komist
í framkvæmd og nái þeim árangri
sem að er stefnt.
Friðrik Sophusson