Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
21
„Mjög fáir menn
báru ábyrgðina”
Ný refsilöggjöf er í uppsiglingu
í Kína og Kínverjar munu eignast
fyrsta dómkerfið um langt skeið,
sem þeir geta treyst á. Kín-
verskumælandi blaðamaður, Jon-
athan Mirsky, sem nýlega heim-
sótti Kína í fyrsta skipti um
árabil, ræddi við alþýðudómara
um dómkerfi landsins og honum
var efst í huga hvort hin nýja
skipan dómsmála mundi auka
virðingu manna fyrir lögum eða
draga úr henni.
Hann varpaði einnig fram
þeirri spurningu, hvað verða
mundi um fjórmenningaklíkuna
svokölluðu: hvort hún gæti fengið
sanngjörn réttarhöld, þar sem nú
hefðu öll opinber rit og allir
kínverskir leiðtogar, þar á meðal
Hua formaður, tíundað „glæpi"
þeirra, allt frá morðum til undir-
róðurs og spillingar.
Lee dómari við yfiralþýðu-
dómstólinn í Shanghai fullyrti að
svo yrði og gerði mikið úr hinni
nýju refsilöggjöf, sem var sam-
þykkt í júlí á fimmta alþýðuþing-
inu. „Fram að þeim tírna," sagði
hann, „höfðum við engin lög, alls
engin lög, í 15 ár.“ Og vissulega er
það rétt: í að minnsta kosti tvo
áratugi hafa Kínverjar engin lög
haft og farið hefur verið eftir
svokölluðum venjum og reglum,
sem hafa verið mismunandi eftir
héruðum, þannig að fyrir sömu
afbrot hafa menn kannski verið
dæmdir í margra ára fangelsi í
Hangchow en kannski sloppið
með áminningu í Wuhan.
Upplausn
Ef ferðazt er um Kína fæst
hvarvetna staðfesting á því, að á
tímabili menningarbyltingarinn-
ar 1965 til 1976, eða með öðrum
orðum á valdatíma fjórmenn-
ingaklíkunnar, ríkti upplausnar-
ástand á öllum sviðum þjóð-
lífsins: þá var ekki lengur hægt
að tryggja öryggi og reglu, sem
erlendir gestir höfðu þó áður dáð
Kínverja fyrir, og alls konar
embættisafglöp, opinberar hefnd-
arráðstafanir og misferli í emb-
ættisstörfum óðu uppi, eins og nú
er óspart tíundað og skrifað á
reikning fjórmenningaklíkunnar
á sama tíma og „píslarvottar oks
þeirra" eru hafnir til skýjanna.
Viðtöl hafa birzt í blöðum og
tímaritum við marga þeirra sem
urðu að þjást á þessum árum og
ýmsir þeirra eru orðnir þjóðhetj-
ur, sem eru taldir vera öðrum til
fyrirmyndar fyrir hugrekki, þol-
gæði og góðan flokksanda. Sumir
þeirra eru aldraðir og frægir
rithöfundar, sem stunduðu erfið-
isvinnu eða voru fangelsaðir
vegna verka sinna — sem sum
hver voru margra áratuga gömul
og höfðu ekki að geyma réttan
boðskap heldur rangan.
Aðrir eru óþekktir karlar og
konur úr röðum óbreyttra flokks-
manna, sem gagnrýndu Lin Piao
eða Teng Hsiao-peng þegar gæf-
an varð honum hliðholl. Mikil-
vægasta fórnarlambið, Liu
Shao-chi, verður bráðlega end-
urreistur, og þegar það verður
gert verður frá því skýrt að
ólögleg meðferð sem hann sætti
af hendi fjórmenningaklíkunnar
hafi stytt líf hans.
Ég ræddi í þrjá tíma við Lee
dómara, sem kallar sig „verka-
mann“, en segist hafa 27 ára
reynslu af dómstörfum, og að-
stoðarmann hans, Mao, sem var
áður starfsmaður Peking-
útvarpsins. Við fórum yfir nýju
refsilöggjöfina, sem tekur ekki
gildi fyrr en í janúar 1980, þannig
að ég gæti til dæmis skilið þá
áherzlu, sem þar er lögð á
„iðrun“: jafnvel dauðadómur
verður mildaður eftir tveggja ára
bið og honum breytt í fangelsis-
dóm. Dómarar eiga að fara á
vinnustaði sakborninga og kynna
sér framburð starfsfélaga um
skapgerð þeirra eða sönnunar-
gögn.
Mannréttindi
Hann lagði á það áherzlu, að
framvegis mundi ríkisvaldið ekki
geta haft afskipti af framkvæmd
dómsmála og aðeins æðri dóm-
stólar gætu breytt úrskurðum,
gagnstætt því sem tíðkaðist áður
en fjórmenningaklíkan missti
völdin 1976 þegar dómarar voru
einungis útsendarar valdaklík-
unnar. Lee dómari fullyrti, að
handtökur án dóms og laga væru
úr sögunni, og það lá því beint við
að spyrja um þá sem voru nýlega
handsamaðir við Lýðræðisvegg-
inn í Peking, þar sem þeir átöldu
skort á mannréttindum og gagn-
rýndu stjórnina.
Mannrétt-
inda krafizt.
Þótt nýju lögin hafi ekki tekið
gildi eru í þeim ákvæði um
„falsanir" eða „meiðyrði" á
veggspjöldum, en dómarinn neit-
aði þvi að þeir hefðu verið
handteknir þess vegna (nú er sagt
að sakborningarnir, sem hafa
verið í haldi í fimm mánuði, hafi
gert sig seka um gagnbyltingar-
áróður). í Kína er hægt að hafa
menn í haldi án dóms og laga
samkvæmt nýju lögunum, og því
var eðlilegt að spyrja fyrir hvaða
sakir fjórmenningaklíkan hefði ■
verið höfð í haldi síðan síðla árs
1976. „Þetta er sérstakt ástand,“
sagði dómarinn og bætti því við
að réttarhöldin gegn klíkunni
yrðu einnig „sérstök".
Nokkrir Kínverjar, sem ég
ræddi við um handtöku fjór-
menningaklíkunnar óg væntanleg
réttarhöld, sögðu mér að mála-
ferlin gætu ekki farið fram opin-
berlega, einfaldlega vegna þess að
svo margir núverandi valdhafar
væru viðriðnir málið að ef þeir
yrðu afhjúpaðir mundi tiltrú yf-
irvalda gufa upp.
En burtséð frá refsingu: hvað
verður um þá sem stóðu fyrir
þessu óréttlæti, grimmd og pers-
ónulegum hefndaraðgerðum? Að
minnsta kosti tvær ástæður
mæla með afhjúpun: að tryggt
verði að núverandi réttargæzlu-
menn kunni að haga sér og að
tryggt verði að hörmungum al-
mennra Kínverja sé lokið og að
þær endurtaki sig ekki.
400.000 mál
Ekki alls fyrir löngu var frá því
skýrt í Peking, að hvorki meira
né minna en 400.000 mál, sem
voru afgreidd á valdatíma
klíkunnar, væru í endurskoðun og
að hvorki méira né minna en
170.000 málum hefði verið
hnekkt. En hvað um alla þá sem
hafa verið sviptir starfi, auð-
mýktir, útskúfaðir og pyntaðir,
stundum árum saman, án þess að
hafa verið endurreistir? Ein-
hvern tíma hefur þeim verið sagt,
hvar sem þeir hafa verið staddir,
að „fara heim“ eða „fara aftur að
vinna", án útskýringa, hvað þá
afsökunar. Ég spurði, hvort þeir
sem bæru ábyrgðina yrðu reknir,
settir á svartan lista, eða hvað?
Svar Lees dómara var í fullu
samræmi við þá venju Kínverja
að kenna örfáum um feiknalegt
misferli eða gífurleg ódæði.
„Gagnvart þessum réttar-
gæzlumönnum verður farið að
lögum," sagði Lee dómari. „Þeir
Hver verða afdrif
fj ór menningaklí kunnar
i Kína?
ættu að læra af mistökum sínum.
Þeir munu flestir halda áfram
núverandi störfum sínum. Þeir
tóku aðeins við skipunum frá
yfirboðurum sínum.“
„En hvað um yfirboðara
þeirra?"
„Jafnvel þeir báru yfirleitt ekki
ábyrgðina. Nokkrum verður refs-
að.“
„Eftir hvaða lögum og hve
mörgum?"
„Farið verður eftir sérstökum
leiðum. Nokkrir hafa verið leiddir
fyrir rétt. í Chekiang-héraði voru
þeir tveir. í Fukien einn að ég
held. Þessir þrír fengu ævilanga
dóma.“
Lee dómari og Mao aðstoðar-
dómari brostu góðlátlega. Dóm-
arinn hélt áfram: „Þessu er öllu
lokið, öllu þessu. Mjög fáir menn
báru ábyrgðina."
Fjórmenninga-
klíkan fordæmd