Morgunblaðið - 25.10.1979, Qupperneq 48
Sími á ritstjórn og skrifstofuJ
10100
JXfrgnnliMit
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Sími á afgreiöslu:
83033
JH»r0tinbl«biö
Grindavík:
Lagmetísið ja að
taka til starfa
LAGMETISIÐJAN Garði hí. hef-
ur fest kaup á niðurlagningar-
verksmiðju i Grindavík og
hyggst hefja niðursuðu á þorsk-
lifur fyrir erlendan markað i
janúar n.k. að sogn dr. Arnar
Erlendssonar framkvæmda-
stjóra. Niðurlagningarverksmiðj-
an mun veita 15—20 manns
atvinnu.
Örn Erlendsson sagði að niður-
lagningarverksmiðjan í Grindavík
hefði verið sett upp fyrir nokkrum
árum en aldrei hafið starfrækslu.
Lagmetisiðjan Garði festi nýlega
kaup á öllum búnaðl verksmiðj-
unnar og er nú unnið að því af
fullum krafti að undirbúa verk-
smiðjureksturinn.
Lagmetisiðjan Garði hf. hefur
soðið niður rækju og ennfremur
framleitt majones og remolaði.
Þar starfa 20 manns. Söluhorfur
eru góðar á niðursoðinni rækju og
þorsklifur, að sögn Arnar.
Bíll eyðilagðist í
eldi í Breiðholti
Slökkviliðið var sex mínútur á leiðinni
ELDUR kom upp i bilskýli við Vesturberg i Reykjavik siðdegis i
gær, en ekki er vitað um eldsupptök. Aðaleldurinn reyndist vera
i bifreið i skýlinu, sem var Mazda árgerð 1977, og gjöreyðilagðist
biíreiðin.
Þess má geta að íbúar í
nágrenni við brunastaðinn höfðu
samband við Morgunblaðið og
töldu Slökkviliðið hafa verið
óeðlilega lengi á leiðinni, og
sýndi það vel þörfina á því að
staðsettur yrði slökkvibíll í
Breiðholtshverfi.
Er blaðamaður Morgunblaðs-
ins bar þetta undir varðstjóra
Slökkviliðsins í gærkvöldi, sagði
hann að kall hefði komið til
Slökkviliðsins klukkan 16.06, og
samkvæmt bókun slökkviliðs-
manna hefðu þeir verið komnir á
staðinn klukkan 16.12, eða sex
mínútum síðar. „En það eru
langar mínúturnar þegar beðið
er eftir Slökkviliði eða sjúkra-
bíl,“ sagði varðstjórinn, og sagði
það kunna að vera skýringuna á
þessum ummælum íbúanna við
Vesturberg.
(IRHELLISRIGNING hefur verið sunnan heiða undanfarna daga, í kjölfar hlýindanna, og
ökutækin hafa sum hver neitað að hreyfa sig úr stað vegna bleytunnar. En ökuþórar hafa ráð
undir rifi hverju ... Ljósm. RAX.
Opinber rannsókn
að ósk Ashkenazy
— vegna sjúkrahúsdvalar sonar hans
Sjórinn svartur af síld
Höfn, 24. ukt.
BRÆLA er enn á síldarmiðunum undan suðurströndinni og bátarnir
hafa sama og ekkert getað veitt síðan fyrir helgi. í fyrradag fengu
þrír bátar síld, Freyr og Ilvanney fengu samtais 340 tunnur og komu
með aflann til Hafnar, en Drífa fékk 200 tunnur og fór með aflann til
Djúpavogs.
BREZKA blaöiö The Guardian skýrir frá því um
helgina að í Grikklandi sé í þann veginn að hefjast
opinber rannsókn á meintri vanrækslu Barnasjúkra-
húss Aþenu, þar sem píanóleikarinn Vladimír Ashken-
azy telji að minnstu hafi munað að níu ára sonur hans
hafi látið lífið fyrir skemmstu.
Sjómenn segja að sjórinn sé
svartur af síld austan Ingólfs-
höfða, við Tvísker og Hollaugseyj-
ar og síldin sem bátarnir tveir
komu með inn í fyrradag var mjög
stór og falleg, fallegasta síldin
sem borist hefur hér á land í
haust. Bíða menn þess með
óþreyju að veður lægi og er þá
búist við mokveiði. — Einar.
The Guardian rekur tildrög þessa
máls, en drengurinn féll fyrir borð
og lenti fótur hans í bátsskrúfu er
Ashkenazy-fjölskyldan var í leyfi í
Grikklandi. Skrúfan skar sundur
slagæð og taug, en áður en tuttugu
mínútur voru liðnar frá því að
slysið átti sér stað komst drengur-
inn til læknis, sem stöðvaði blæð-
ingu og bjó um sár hans til
bráðabirgða. Síðan var drengurinn
fluttur í sjúkrahús í Korintu, en
þegar til átti að taka var þar enginn
sérfræðingur viðstaddur. Var þá
tekið til bragðs að flytja hann í
Barnasjúkrahús Aþenu, en þar var
blóð ekki tiltækt, enda þótt blóð-
flokkur drengsins sé mjög algengur,
að sögn Ashkenazys. Tók tvær og
hálfa klukkustund að finna réttan
blóðflokk í frysti, en afleiðingin
varð sú að ekki var unnt að gefa
drengnum blóð fyrr en sex stundum
eftir að slysið varð. Að því búnu var
Ashkenazy sagt að fara með dreng-
inn í Kat-sjúkrahúsið, sem sérhæfir
sig í skurðaðgerðum, en þar komst
drengurinn loks á skurðarborð átta
stundum eftir að slysið varð. Tók
skurðaðgerðin þrjár klukkustundir.
Ashkenazy gerði grein fyrir máJí
pcasu 1 nren til gríska blaðsins
Kathimerini um helgina, en í fram-
haldi af því hefur tryggingamála-
ráðherra Grikklands, Spyros Dox-
iadis, fyrirskipað opinbera rann-
sókn á málinu.
Norð-Austurland:
Aframhaldandi
sumarveðurfar
ÁFRAMHALDANDI sumarveður
var á norðausturhorni landsins í
gær, mikill hiti og þurrkur. Hins
vegar var vindur víðast hvar of
mikill til að bændur gætu unnið í
heyskap.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Morgunblaðið hefur aflað sér
munu bændur nú vera á síðasta
snúningi með að ljúka heyskap,
aðeins örfáir eiga eitthvað eftir á
túnum. Þurfa þeir ekki nema einn
til tvo góða daga í viðbót til að
ljúka verkum. Hey það sem nú
fæst er orðið mjög velkt enda
slegið í flestum tilfellum fyrir
tveimur mánuðum. Mun heildar-
nýting þess vera í kringum 30%.
99
Ánægðasti mað-
urinn á vellinum”
- sagði Pétur Pétursson, sem skoraði þrennu í Evrópukeppninni
ÉG VAR örugglega ánægðasti leikmaðurinn á vellinum því ég hef
aldrei áður skorað mark í Evrópukeppninni," sagði markaskor-
arinn mikli frá Akranesi, Pétur Pétursson, þegar Mbl. ræddi við
hann í gærkvöldi, eftir að Pétur hafði skorað þrjú mörk þegar lið
hans Feyenoord vann sænska liðið Malmö FF í Evrópukeppninni
4:0. tslendingur hefur aldrei áður skorað þrennu í þessari
keppni.
Ég var áður búinn að leika
átta leiki í Evrópukeppninni, sex
með Akranesi og tvo með Feyen-
oord en aldrei tekizt að skora
mark. Ég var því ákveðinn að
skora í þetta skipti og tókst það
svo sannarlega, sagði Pétur. —
Fyrsta markið kom eftir aðeins
40 sekúndur, mark sem ég skor-
aði af stuttu færi. Á 20. mínútu
var mér brugðið innan vítateigs-
ins og ég skoraði sjálfur úr
vítaspyrnunni. Síðasta markið
mitt kom 15 mínútum fyrir
leikslok og er það eitt fallegasta
markið sem ég hef skorað. Bolt-
inn kom fyrir markið og ég
skallaði hann efst í markhornið.
Ég lék á vinstri kantinum í kvöld
eins og í undanförnum leikjum.
36 þúsund áhorfendur voru á
leikvanginum í Rotterdam og
milljónir manna sáu mörk Pét-
urs í hollenska sjónvarpinu. Pét-
ur hefur nú skorað 17 mörk í 13
leikjum með Feyenoord í haust
og er markhæsti leikmaður Hol-
lands. Hefur hann hlotið geysi-
legar vinsældir í Hollandi vegna
markheppni sinnar.
Annar íslendingur, Ásgeir
Sigurvinsson, var einnig í
sviðsljósinu í gærkvöldi. Hann
skoraði sigurmark Standard
Liege gegn Napoli. Þá stóðu
Keflvíkingar sig mjög vel í
Evrópukeppninni. Nánar segir
frá íþróttum á bls. 46 og 47.
Pétur fagnar marki