Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 13 Sýning Jóns M. Baldvinssonar Ég leit inn á Loftið við Skóla- vörðustíg. Það er nokkuð síðan ég hef komið á þann stað, þar var að vísu sýning fyrir stuttu, en mér gafst ekki tóm til að sækja hana. Alltaf er jafn heim- ilislegt að koma á Loftið, og þar andar allt af gamalli menningu og minnir á þá tíð, er menn bjuggu í húmanistísku umhverfi, en ekki steinkössum, sem allir hafa það sameiginlegt að rýja mannfólkið tilfinningu fyrir um- hverfinu. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Jón M. Baldvinsson er með sýningu á Loftinu, og fara mynd- ir hans mjög vel í þessu um- hverfi. Hann er rómantískur málari, sem vefur skáldskap í myndbyggingu sína. Hugmynda- heimur hans virðist öðrum toga sprottinn úr dulúð og jafnvel af öðrum heimi. En ekki veit ég, hvernig hann er, og engan þekki ég, er getur fullyrt, hvernig umhorfs er hjá álfum, hvað þá á enn fjarlægari plönum eins og Þórbergur minntist stundum á. Fuglinn, álfar, ormar ofl. eru viðfangsefni Jóns sem málara. Hann hefur auðsjáanlega orðið fyrir miklum áhrifum frá tveim- ur samtíðarlistamönnum: Kjar- val og Kristjáni Davíðssyni. Sér- staklega er það litameðferðin, sem heillað hefur Jón, og hann hefur afar næmt samfélag við liti, svo að varla verður fundinn snöggur blettur á honum, hvað þetta snertir. Það er í litameð- ferð Jóns, sem mér finnst hann líkjast Kristjáni, og getur hann vel við unað, því að epigonerí er ekki á ferðinni hér. Aftur á móti er, teikning hans á fuglum og einnig meðferð landslags í ætt við Kjarval, og finnst mér það allt í lagi. Það er ekki leiðum að líkjast. Enn aðra þætti mætti tengja þessum tveimur málur- um, er ég hef nefnt, en Jón kann að notfæra sér þá báða án þess að týna sjálfum sér. Þetta er mikið hól og ef til vill heldur mikið sagt. Eg hafði ánægju af þessum verkum Jóns M. Bald- vinssonar vegna þess einfaldlega að hér er málverk á ferð, en ekki hrár grautur, sem því miður er framreiddur um of eins og stendur. Það eru 26 olíumálverk á þessari sýningu Jóns M. Bald- vinssonar á Loftinu. Þau eru ekki mikil að flatarmáli, en skila sér samt. Ég nefni sem áberandi verk á þessari sýningu nr. 18,12, 4, 2 og landslagsmynd, er hangir yfir stiga og hefur ekki númer. Þetta eru yfirleitt afar jöfn verk og eru sjálfsagt unnin nokkuð á sama tíma. Það er viss léttleiki yfir þessari sýningu, sem gerir það að verkum, að hún kippir í fínu taugarnar á fólki, ef menn vita hvað ég á við? Eins og af þessum fáu línum má sjá, kom þessi sýning Jóns M. mér í gott skap og hressti svolítið upp á regnið og súldina fyrir utan. Ég held, að óhætt sé að segja fólki að líta þarna við á Loftinu, og það mun ekki fara vonsvikið á brautu. Valtýr Pétursson. Um skipu- lag bæja Fyrirlestur í Franska bókasafninu BENJAMÍN Magnússon arkitekt heldur fyrirlestur með mynda- skýringum í Franska bókasafn- inu, Laufásvegi 12 í kvöld (þriðjudaginn 27. nóv., kl. 20.30 á vegum Alliance Francaise um skipulagsmál nýrra bæja i ná- grenni Parísar. Síðast liðin 15 ár hafa risið 5 nýir bæir í nágrenni Parísar og er þeim ætlað að taka við fólksfjölg- un Parísarsvæðisins. Bæir þessir eru um margt all nýstárlegir en skiptar skoðanir eru engu að síður um hversu vel hafi tekist til um skipulag þeirra. Fyrirlesarinn mun sýna skyggn- ur af skipulagsuppdráttum og byggingum og gera grein fyrir þeim. Benjamín Magnússon nam arki- tektúr í París á árunum 1964—70 og hefur starfað síðan sem arki- tekt í París og Kópavogi. Karvel vill láta bora við Kröflu Á FRAMBOÐSFUNDI, sem hald- inn var á Súðavik s.l. fimmtudags- kvöld lýsti Karvel Pálmason, 2. maður á lista Alþýðuflokksins, þvi yfir að rétt væri að bora fleiri holur við Kröflu. Hingað til hafa Alþýðuflokksmenn og þá ekki sist Sighvatur Björgvinsson, 1. maður á lista Alþýðuflokksins á Vest- fjörðum, verið mótfallnir borunum þar. Ummæli Karvels komu í fram- haldi af umræðum um mismunandi raforkuverð í einstökum landshlut- um og einn fundarmanna skaut því fram að Alþýðuflokkurinn bæri þar nokkra sök því vegna lítillar raf- orkuframleiðslu Kröfluvirkjunar þyrfti að framleiða raforku á rán- dýran hátt með dieselvélum. Svar- aði þá Karvel orðrétt: „Úr því sem komið er tel ég að það eigi að bora við Kröflu." Þriójudagskvöld Síöasta þriöjudagskvöld komu 2000 manns í Sýningarhöllina en í kvöld koma 4000 þúsund, Hvers vegna? Vegna þess aö í kvöld verður á skemmtipalli kl. 6 og 9 Mun hljómsveitin Brimkló &umktá SANNAR DAGUR VÍSUR kynna nýútkomna hljómplötu sína og Tóti trúður eftirlæti barnanna mun skemmta kl. 7 og 8. Opiö í dag frá 1-10 Miövikudag frá 1 -6 Fimmtudag frá 1-6 m Sýningahöllinni Sýningahöilin S.81410 — 81199 Ártúnshöfða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.