Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐID. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
31
Stúlkurnar 10 sem kepptu um titilinn ungfrú ísland 1979. Talið frá vinstri: Guðbjörg Sigurðardóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Sigrún Sœtran, Kristin Erla Karlsdóttir,
Guðlaug Halldórsdóttir, Maria Björk Ingvadóttir, Kristin Bernharðsdóttir, Brynja Sigurðardóttir, Auður Elisabet Guðmundsdóttir og Björg Gisladóttir.
„Mér íannst þetta
allt svo ótrúlegt"
- segir ungfrú ísland 1979, Kristín Bernharðsdóttir
írá Vestmannaeyjum
„ÉG átti allra síst von á að hreppa titilinn." sagði nýkjörin ungfruú Ísland
1979, Kristín Bernharðsdóttir, i samtali við Mbl. í kspt. Kristin er tvítug
Vestmannaeyjamær og starfar i íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
..!*> úrslitin voru tilkynnt varð mér strax hugsað til 1. deildarliðs Í.B.V.
i knattspyrnu, íslandsmeistaranna i ar. Mér fannst þetta allt svo ótrúlegt,
ég gerði mér ekki almennilega grein fyrir að þetta væri raunveruleiki fyrr
en ég var komin niður af sviðinu."
Hvers vegna fórstu út i það að taka þátt i þessari keppni
„Ætli það hafi ekki verið vegna tilbreytingarinnar," sagði Kristin.
Hvað hefur þú hugsað þér að gera nú
„Ég fer bara heim að vinna i íþróttamiðstöðinni eins og vanalega. Ég
hef ekki hugsað mér að gera neitt sérstakt vegna þessara úrslita."
Næsta ár mun Kristiu taka þátt i keppninni Miss Universe, fyrir hönd
íslands og kvaðst Kristín ekkert vera farin að hugsa út i þá keppní.
Bauð öllum gestum á krýningarkvöldinu
Ýmis verðlaun fylgdu titlinum Ungfrú ísland i ár, m.a. 500 manna
kokteilboð i Hollywood. Sagðist Kristin vera búin að bjóða 300 manns,
öllum þeim sem voru á krýningarkvöldinu á Hótel sögu og sjálf ætlaði hún
siðan að úthluta 100 miðum til vina og kunningja.
„Ég ætla að halda hófið á miðvikudaginn og fer svo heim til
Vestmannaeyja n.k. fimmtudag."
Í lok samtalsins sagði Kristin að siminn á hótelinu sem hún býr hefði
ekki þagnað allan daginn, og heillaóskum hefði rignt yfir hana.
Kristin Bernharðsdóttir, ungfrú ísland 1979, gengur um meðal áhorfenda að lokinni krýningunni.
Ljósm. EmlHa
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
Clfar Þormoðsson,
kosningast. Alþýðubandal.
EG SPÁI:
Fjöldi þingmanna '78-79 Spá
Alþýðubandalag 14
Alþýðuflokkur 14 <» /
Framsóknarflokkur 12
Sjálfstæðisflokkur 20 \. ¦'
Aðrir flokkar og utanflokka 0 v..
Samtals 60 60
Svona einfalt er að vera með. Klippíð þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
+
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓOUR
FURUHUSGOGN
sem eru feti framar
Vönduö íslenzk framleiösla
Viö erum óhræddir aö taka 5 ára ábyrgö á
þessum húsgögnum.
FURUHUSIÐ
Grettisgötu 46, sími 18580.