Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
31
„Mer fannst þetta
allt svo ótrúlegt“
Stúlkurnar 10 sem kepptu um titilinn ungfrú ísland 1979. Talið frá vinstri: Guðbjörg Sigurðardóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Sigrún Sætran, Kristin Eria Karlsdóttir,
Guðlaug Halldórsdóttir, Maria Björk Ingvadóttir, Kristín Bernharðsdóttir, Brynja Sigurðardóttir, Auður Elisabet Guðmundsdóttir og Björg Gisladóttir.
- segir ungírú ísland 1979, Kristín Bernharðsdóttir
írá Vestmannaeyjum
„ÉG átti allra síst von á að hreppa titilinn,“ sagði nýkjörin ungfríiú ísland
1979, Kristín Bernharðsdóttir, í samtali við Mbl. í gær. Kristín er tvítug
Vestmannaeyjamær og starfar í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
„Er úrslitin voru tilkynnt varð mér strax hugsað til 1. deildarliðs Í.B.V.
í knattspyrnu, fslandsmeistaranna i ar. Mér fannst þetta allt svo ótrúlegt,
ég gerði mér ekki almennilega grein fyrir að þetta væri raunveruleiki fyrr
en ég var komin niður af sviðinu.“
Hvers vegna fórstu út í það að taka þátt í þessari keppni
„Ætli það hafi ekki verið vegna tilbreytingarinnar,“ sagði Kristin.
Hvað hefur þú hugsað þér að gera nú
„Ég fer bara heim að vinna í fþróttamiðstöðinni eins og vanalega. Ég
hef ekki hugsað mér að gera neitt sérstakt vegna þessara úrslita.“
Næsta ár mun Kristín taka þátt í keppninni Miss Universe, fyrir hönd
fslands og kvaðst Kristin ekkert vera farin að hugsa út i þá keppni.
Bauð öllum gestum á krýningarkvöldinu
Ýmis verðlaun fylgdu titlinum Ungfrú ísiand í ár, m.a. 500 manna
kokteiiboð í Hollywood. Sagðist Kristín vera búin að bjóða 300 manns,
öllum þeim sem voru á krýningarkvöldinu á Hótel sögu og sjálf ætlaði hún
siðan að úthluta 100 miðum til vina og kunningja.
„Ég ætla að halda hófið á miðvikudaginn og fer svo heim til
Vestmannaeyja n.k. fimmtudag.“
f lok samtalsins sagði Kristín að siminn á hótelinu sem hún býr hefði
ekki þagnað allan daginn, og heillaóskum hefði rignt yfir hana.
Kristín Bernharðsdóttir, ungfrú ísland 1979, gengur um meðal áhorfenda að lokinni krýningunni.
Ljósm. Emilia
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
Úlfar Þormódsson,
kosningast. Alþýdubandal.
ÉG SPÁI:
Fjöldi þingmanna '78-79 Spá
Alþýðubandalag 14 /*" * y
Alþýðuflokkur 14 c. /
Framsóknarflokkur 12 /.1
Sjálfstæðisflokkur 20 V- ■'
Aðrir flokkar og utanflokka 0 V'
Samtals 60 60
Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
FURUHUSG0GN
sem eru feti framar
Vönduö íslenzk framleiösla
Við erum óhræddir að taka 5 ára ábyrgö á
þessum húsgögnum.
-u:
FURUHUSIÐ
Grettisgötu 46, sími 18580.