Morgunblaðið - 27.11.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
17
Mörg þúsund manns
komu á „opin hús“ Sjálf-
stæðisflokksins víða um
land um helgina, og tókst
þessi nýbreytni í alla
staði frábærlega vel, að
sögn Jóns 0. Halldórsson-
ar á skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
„Þessi mikla þátttaka
sýnir vel þann sóknarhug
sem er í sjálfstæðis-
mönnum um land allt“
sagði Jón, „og menn eru
sammála um að starfa nú
enn betur þessa síðustu
viku sem eftir er fram
að kosningum“.
Sjálfstæðisflokkurinn
hafði opið hús á sautján
stöðum um helgina, á laug-
ardag og sunnudag, nán-
ar til tekið á eftirtöld-
um stöðum: Akranesi,
Borgarnesi, Akureyri,
Seyðisfirði, Njarðvík,
Garðabæ, ólafsfirði,
Siglufirði, Selfossi, Hafn-
arfirði, Reyðarfirði, Kópa-
vogi, Reykjavík, ísafirði,
Mosfellssveit og víðar.
— Alls staðar var sömu
sögu að segja, húsfyllir
var og mikil stemmning
ríkjandi.
í Reykjavík var opið
hús í Valhöll við Iláaleit-
isbraut, og þar var stöðugt
fólksstreymi allan dag-
inn, og ekki óalgengt að
sjá heilu fjölskyldurnar
þar saman komnar. Fram-
bjóðendur héldu stutt
ávörp og ræddu við
gesti, boðið var upp á
kaffi og kökur, tískusýn-
ingar, söngur og marg-
vísleg skemmtiatriði.
Var allan tímann mikið
um að vera í þremur sölum
hússins, og alls staðar
troðfullt af fólki.
„Þessi nýbreytni er
mjög til fyrirmyndar,“
sagði einn þeirra er blaða-
maður Morgunblaðsins
hitti að máli í Valhöll,
„og þetta mættu aðrir
stjórnmálaflokkar gjarn-
an taka upp. — Gera á
mun meira af því að
bjóða fólki að líta við í
aðalstöðvum flokkanna,
hús þeirra eiga að vera
lifandi félagsmiðstöðv-
ar fyrir fólk á öllum
aldri, enda er starf stjórn-
málaflokka ef til vill mik-
ilvægasta félagsmála-
starfsemin í landinu. —
Hafi Sjálfstæðisflokkur-
inn þökk fyrir þetta
frumkvæði.“
Frambjóðendur ræddu við gesti í „opna húsinu", og hér sést Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins slá á léttari strengi með
þeim yngri.
Birgir ísleifur Gunnarsson lék nokkur létt lög á píanó i Valhöll á iaugardaginn, en þar var fullt hús af fólki allan eftirmiðdaginn.
Ljósm: Emllia Björg Björnsdóttir.
Stúlkur úr Model ’ 79 sýndu það nýjasta í vetrartiskunni.
íslandsmótið í handknattleik y
VALUR - VIKINGUR
í HÖLLINNI
ÁMORGUN
KL. 19.00.
Valur