Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 25 Óvænt úrslit að Varmá UMFA sigraði Þór Ak. ÞAÐ URÐU svo sannarlega óvænt úrslit í 2. deildinni í handknattleik á sunnudag. Lið UMFA sigraði Þór frá Akureyri með 16 mörkum gegn 15, eftir æsispennandi leik. Þór frá Akur- eyri fór því enga frægðarför til Reykjavíkur að þessu sinni. tap- aði báðum sínum leikjum, þeim fyrri á móti Fylki, og þeim síðari á móti UMFA. Lið Þórs var greinilega sterkari aðilinn í leiknum framan af og hafði forystuna í hálfleik, 9—7. En lið Aftureldingar gafst aldrei upp og sýndi af sér mikla baráttu. Það ásamt geysiöflugum hvatningar- hrópum áhorfenda lagði grunninn að sigrinum í leiknum. Þegar um það bil 10 mínútur voru eftir af leiknum náði Afturelding foryst- unni og tókst að halda henni út ™AAr 16-15 leikinn. Varnarleikurinn og markvarslan hjá Emil Karlssyni var mjög góð hjá liðinu og Steinar Tómasson var aðaldriffjöðrin í öllu spili liðsins, jafnframt því sem hann skoraði fimm falleg mörk. Þá var Björn Bjarnason góður. Lið Aftureldingar sýndi að það er ekki auðunnið á heimavelli, á því fengu norðanmenn að þreifa. Lið Þór hefur e.t.v.verið of sigurvisst og það kann ekki góðri lukku að stýra. Erfitt er að gera upp á milli leikmanna í liðinu, meðalmennskan var allsráðandi. Má liðið sýna betri leiki en það gerði hér fyrir sunnan ætli það sér ekki botnsætið í deildinni. MÖRK UMFA: Steinar Tómasson 5, Björn Bjarnason 5, Ólafur Sigurjónsson 2, Lárus Halldórsson 2, Ingvar Hreinsson 1. MÖRK ÞÓRS: Sigurður Sigurðs- son 5, Sigtryggur Guðlaugsson 2, Oddur Halldórsson 2, Davíð Þor- steinsson 2, Hrafnkell Óskarsson 1, Arnar Guðlaugsson 1. — þr. Þrottmiklir Þrottarar ÞRÓTTUR vann góðan sigur á Ármanni i a. deild íslandsmóts- ins í handknattleik i Laugar- dalshöllinni um helgina. Lokatöl- ur leiksins urðu 22—19 og til að undirstrika hversu sanngjarn sigurinn var, má geta þess, að Þróttarar voru einum leikmanni færri síðustu tvær mínúturnar, en skoruðu samt tvö síðustu mörk leiksins. Staðan i hálfleik var 12—11 fyrir Þrótt. Þykir sýnt að baráttan mun einkum standa á milli Fylkis og Þróttar í 2. deild, en önnur iið eru svo sem líkleg til að blanda sér þar einnig inn i. Þetta voru ekki auðtekin stig hjá Þrótti, öðru nær. Leikurinn var jafn upp í 2—2, en eftir það var munurinn yfirleitt ekki meiri en eitt til þrjú mörk og þegar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan 20—19 og allt gat gerst, einkum þegar einum Þróttara var vikið af leikvelli og sýnt var að hann kæmi ekki aftur inn á. En Ármenningum tókst ekki að færa sér þetta í nyt, Sigurður Sveinsson skoraði með þrumuskoti og á síðustu sekúndunum bætti Svein- laugur Kristjánsson 21. markinu Þróttur: Ármann við úr hraðaupphlaupi, sigurinn var í höfn. Lið Þróttar virkaði að mörgu leyti mjög gott í þessum leik. Sigurður markvörður átti mjög góðan leik og átti það mjög stóran þátt í að Ármenningum tókst aldrei að jafna þó að munurinn væri oft lítill. Vörn Þróttar var í heild nokkuð þokkaleg með Ólaf Jónsson í góðu formi. Sóknarleik- ur liðsins er dálítið einhæfur og hnoðkenndur er líða tók á leikinn, en einstaklingarnir eru með ólíkindum kröftugir, t.d. kom Páll Ólafsson skemmtilega á óvart, en hann skoraði mikið af mörkum með þrumuskotum og réðu Ár- menningarnir lítið við pilt. Sig- urður Sveinsson sýndi ekki sínar bestu hliðar, en var engu að síður drjúgur í sóknarleiknum og aldrei mátti líta af bróður hans Einari. Þegar talað er um að sóknarleik- urinn hafi verið einhæfur, nægir að benda á að aðeins fjórir leikmenn skoruðu mörk Þróttar í leiknum. Ármenningar geta að nokkru leyti kennt sjálfum sér um hvern- ig fyrir þeim fór í leiknum. Yfirleitt gerðist það þegar mest á reið að leika af yfirvegun, að hinir og þessir reyndu ótímabær skot og allt þar fram eftir götunum. Minna óðagot í sóknarleiknum hefði hugsanlega uppskorið eitt stig eða fleiri. Enginn Ármenn- inga stóð upp úr að þessu sinni, en þrír leikmenn voru þó atkvæða- mestir, Jón Viðar, Þráinn og Friðrik. Heimir varði þokkalega framan af, en minna er á leikinn leið. Dómgæsla Guðmundar Kol- beinssonar og Gunnlaugs Hjálm- arssonar var í heild séð nokkuð góð, en gloppur komu þó öðru hvoru. MÖRK ÞRÓTTAR: Páll Ólafsson 9, Sigurður Sveinsson 7 (1 víti), Sveinlaugur Kristjánsson og Ein- ar Sveinsson 3 hvor. MÖRK ÁRMANNS: Jón Viðar og Friðrik Jóhannsson 5 hvor, Þráinn Ásmundsson 4, Björn Jóhannes- son og Smári Jósafatsson 2 hvor, Einar eitt mark. — gg. Fylkir heldur sínu striki FYLKIR heldur sínu striki i 2. deild. Liðið sigraði Þór frá Akur- eyri nokkuð örugglega í leik liðanna í Laugardalshöll á laug- ardag. Lokatöiur urðu 21 — 15. Lið Þórs olli nokkrum vonbrigð- um með leik sínum því að von var á liðinu nokkuð sterku til leiks eins og undanfarin ár, en tölu- vert virðist vanta upp á að svo sé. Lið Fylkis lék hins vegar nokkuð vel þó svo að það hafi sýnt betri leiki. — Ég er ánægður með að sigra Þór, Akureyrarliðin eru alltaf erfið sagði Pétur Bjarna- son þjálfari Fylkis. — Ég reikna með að lið KA verði erfiðasti keppinautur okkar i 2. deildinni i vetur sagði Pétur. Gangur leiksins. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og lengst af skildi aðeins eitt mark liðin að. Staðan í hálfleik var 9—8 fyrir Fylki. Fylkir byrjaði hins vegar síðarí hálfleikinn af miklum krafti og skoraði sjö mörk á jafnmörgum minútum, og náði yfirburðastöðu í leiknum, 16—8. Það var þessi leikkafli sem gerði öðru fremur út um leikinn. Leikmenn Þórs voru Fylkir — n-t.fti Þór Ak b I ' l«J alls ekki með á nótunum á þessum tíma og varnarleikur þeirra var afar opin og ráðleysislegur. Það sem eftir var svo hálfleiks- ins héldu Þórsarar svo í við Fylki, sem þó hafði augljósa yfirburði. Liðin: Lið Fylkis er greinilega í góðri æfingu og gefur neðstu liðunum í 1. deildinni ekkert eftir hvað getu snertir. Besti maður liðsins í þessum leik var Jón Gunnarsson markvörður sem varði mjög vel allan leikinn. Þá áttu Ragnar Hermannsson og Ásmundur Kristinsson ágætan leik. Töluverð breidd er í liði Fylkis og er engin spurning um að þeir verða í baráttunni um efsta sætið í 2. deild í vetur. Lið Þórs á að geta mun meira en það sýndi í þessum leik. Besti maður liðsins var Gunnar Gunn- arsson sem fór oft mjög laglega inn úr hornunum og skoraði falleg mörk. Þór vantaði alla baráttu í liðið og eftir að Fylkir náði öruggri forystu var allur vindur úr leikmönnum liðsins. Mörk Fylkis: Ásmundur Krist- insson 4, Ragnar Hermannsson 4, Guðmundur Kristinsson 3, Guðni Hauksson 2, Gunnar Baldursson 2, Óskar Ásgeirsson 2, Magnús Sig- urðsson 2 lv, Einar Ágústsson 1. Mörk Þórs: Gunnar Gunnarsson 6 lv, Sigtryggur Guðlaugsson 2, Árni Stefánsson 2, Oddur Hall- dórsson, Arnar Guðlaugsson, Jón Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson og Benedikt Guðmundsson 1 mark hver. Dómarar voru þeir Árni Tómasson og Jón Friðsteinsson alls var sex leikmönnum úr Fylk- isliðinu vísað af leikvelli í 2 mínútur en einum frá Þór. -þr. Hinn gamalreyndi kappi Stefán Gunnarsson sendir boltann á línumanninn snjalla Steindór Gunnarsson, og óvaldaður. Steindór var ekki í vandræðum með að senda boltann í netið. sem er einn Ljósm. Emilía Valsmenn kaf sialdu HK LEIKUR Vals og HK í 1. dcildinni í handknattleik á sunnudag að Varmá. heimavelli HK, var leikur kattarins að músinni. Yfirburðir Valsmanna voru algerir á öllum sviðum. Og um tíma leit út fyrir að þeir myndu hreinlega rassskella IIK. Staðan var nefnilega orðin 9—0, og það var ckki fyrr en á 18. mínútu leiksins að HK tókst að gera sitt fyrsta mark. Þá var líka greinilegt að leikmenn Vals fóru að slaka á og léku ekki eins kröftugt og þeir gerðu í byrjun leiksins. Var allur annar bragur á leik Vals nú en verið hcfur og er greinilegt að liðið er að ná sér upp úr þeirri lægð sem það datt niður í. Þó er erfitt að dæma liðið í þessum leik, til þess var mótspyrna IIK allt of lítil. ValuT 15S27 Eftir slæma byrjun rétti HK aðeins úr kútnum og staðan í hálfleik var 14—6 Val í hag. Sama VALUR: Brynjar Kvaran 3 Brynjar Haröaraon 2 Björn Björnsson 2 Bjarni Guömundsson 3 Höröur Hilmarsson 2 Steindór Gunnarsson 3 Stefén Gunnarsson 2 Þorbjörn Jensson 2 Jón H. Karlsson 2 Þorsteinn Einarsson 1 Þorbjörn Guömundsson 3 Gunnar Lúövíksson 2 HK: Einar Þorvaröarson 1 Bergsveinn Þórarinsson 1 Kristínn Ólafsson 2 Gissur Kristinsson 1 Kristjén Guöiaugsson 1 Karl Jóhannsson 2 Ragnar Ólafsson 3 Erling Sigurösson 1 Árni Sverrisson 1 Friöjón Jónsson 2 Magnús Guöfinnsson 1 Nói Bjarnason 2 einstefnan var í síðari hálfleik, og 12 mörk skildu liðin að þegar flautað var til leiksloka. Það er greinilegt að róðurinn verður þungur hjá HK í vetur eins og spáð hafði verið. Lið Vals lék þennan leik vel. Varnarleikur liðsins og mark- varsla Brynjars Kvaran var allan FH: Birgir Finnbogason 2 Magnús Ólafsson 1 Guömundur Magnússon 2 Geir Hallsteinsson 2 Guömundur Á. Stefénsson 2 Kristjén Arason 3 Valgaröur Valgarösson 2 Samundur Stefánsson 3 Pétur Ingólfsson 3 Hafsteinn Pétursson 1 Hans Guömundsson 1 KR: Pétur Hjélmarsson 1 Gísli F. Bjarnason 2 Friörik Þorbjörnsson 1 Símon Unndórsson -| Haukur Ottesen 3 Þorvaröur Höskuldsson 2 Björn Pétursson 3 Kristinn Ingason 2 Jóhannes Stefénsson 2 Ólafur Lérusson 1 Konréö Jónsson 2 Dómarar Björn Krístjénsson og Jón Hermannsson 2 tímann góð. Þá var þó nokkur hraði í leiknum hjá liðinu og samvinna línumanna og útispilara var góð. Þorbjörn Guðmundsson var atkvæðamikill í liði Vals og skoraði 6 mörk í leiknum og hefði auðveldlega átt að geta skorað fleiri því að hann fór illa með nokkur opin færi. Þá var Steindór frískur á línunni og líka í vörn- inni. Bjarni Guðmundsson skoraði fimm mörk í leiknum og þar af eitt á stórglæsilegan hátt eins og honum er einum lagið. Hann stökk inn úr horninu og greip boltann í loftinu og skoraði með þrumuskoti framhjá markverði HK. Það hefur sjálfsagt háð liði HK nokkuð að fyrirliði liðsins Hilmar Sigurgíslason var í leikbanni en í stað hans kom hinn síungi Karl Jóhannesson og stóð hann vel fyrir sínu. Liði HK hætti til þess í leiknum að leika of hratt og gleyma að halda knettinum. Þeir létu Valsmenn ráða hraðanum og það varð til þess að þeir misstu öll tök á leik sínum. Ragnar Ólafsson var besti maður HK og bar nokkuð af. Var hann sá eini sem eitthvað kvað af af útileikmönnum í liðinu. EF SATT skal segja þá er aðstað- an að Varmá í Mosfellssveit ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, að því er varðar keppnisaðstöðu fyrir 1. deildar lið í handknatt- leik. Eitt af því sem vantar tilfinnanlega í iþróttahúsið er klukka svo að leikmenn geti fylgst með timanum og að sjálf- sögðu gerir það leikinn líka skemmtilegri fyrir áhorfendur ef þeir geta fylgst með timanum á í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild Varmá Mos- fellssveit HK — Valur 27—15 (14-6). MÖRK HK: Ragnar Ólafsson 7 (1 v), Karl Jóhannsson 3 v, Friðjón Jónsson 2, Kristinn Ólafsson 2, Magnús Guðfinnsson 1. MÖRK VALS: Þorbjörn Guð- mundsson 6 (1 v), Bjarni Guð- mundsson 5, Steindór Gunnarsson 4, Björn Björnsson 3, Brynjar Harðarson 3 (2 v), Gunnar Lúðvíksson 2, Jón H. Karlsson 2, Hörður Hilmarsson 1, Stefán Gunnarsson 1. BROTTVÍSUN AF LEIKVELLI: Brynjar Harðarson og Jón Karls- son Val í 2 mín. Kristinn Ólafsson og Erling Sigurðsson HK í 2 mín. MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST: Ragnar Ólafsson skaut í stöng og Brynjar Kvaran varði hjá honum víti á 23. mínútu. DÓMARAR: Jón Friðsteinsson og Árni Tómasson. — þr. veggklukku eins og i Laugardal og Hafnarfirði og reyndar víðar. Að Varmá er notuð litil vekjara- klukka og ekki tókst betur til en svo að á leik Vals og HK gleymd- ist að trekkja hana upp, svo að hún stöðvaðist. Þetta uppgötvaði tímavörðurinn sér til mikillar skelfingar i síðari hálfleik. En þar sem þjálfari Vals var með nákvæman tíma kom þetta ekki að sök. — þr. Klukkan stoppaði KR varð FH engin hindrun LIÐ FH heldur áfram sigur- göngu sinni í 1. deild. Liðið bar sigurorð af KR 24—22 í Laugar- dalshöllinni á sunnudagskvöldið nokkuð örugglega. Staðan í hálf- leik var 12-11 FH í vil. Lið KR-inga var óvenjudauft í leikn- um og gerði sig sekt um mikið af mistökum og náði aldrei upp verulega góðri baráttu í varnar- ieik sinn. Þeim tókst aldrei að ná yfirhöndinni í leiknum og var sigur FH sanngjarn og verð- skuldaður. Liðið er því í efsta sæti i 1. deildinni ásamt Vikingi að þremur umferðum loknum. FH-ingar byrjuðu leikinn á móti KR nokkuð vel og komust í 4—1. Voru þeir mun ákveðnari í byrjun leiksins og nýttu tækifæri sin öllu betur en KR-ingar sem virtust þrúgaðir af taugaspennu. Leikurinn jafnaðist þó nokkuð er líða tók á hálfleikinn og á 17. mínútu leiksins jafnaði Jóhannes Stefánsson fyrir KR og staðan var 7—7. En næstu þrjú mörk komu frá FH og þeir náðu þriggja marka forskoti. Leikmenn KR voru þó ekki af baki dottnir og héldu í við FH og aðeins eitt mark skildi liðin er flautað var til hálfleiks. Björn Pétursson skoraði fyrsta markið í síðari hálfleiknum og jafnar metin 12—12, en það var í eina skiptið í hálfleiknum sem staðan var jöfn. FH náðu aftur forystunni og þegar síðari hálf- leikur var hálfnaður var staðan 19—16 og sigur FH reyndist aldrei fhr- 22=24 í hættu. Að vísu átti KR mögu- leika á að setja spennu í leikinn þegar staðan var 21—19 og aðeins sjö mínútur voru eftir og lið KR í sókn: En eins og svo oft áður mistókst sending, gefið var beint í hendurnar á leikmanni FH sem náði hraðaupphlaupi og skoraði. í lok leiksins rak hvert upp- hlaupið annað hjá liðunum en mikið var um mistök á báða bóga og lítil yfirvegun í leiknum. í liði FH voru þeir Kristján Arason og Pétur Ingólfsson báðir góðir. Þá áttu Guðmundur Magn- ússon og Valgarð Valgarðsson góðan dag. Geir Hallsteinsson var tekinn úr umferð allan leikinn og stóð lengst af langt úti á velli og gaf lærisveinum sínum skipanir um leikkerfi og stjórnaði leiknum með köllum. Virtist það gefa hina bestu raun. í heildina lék lið FH nokkuð vel, boltinn gekk vel, og liðið býr yfir ágætum leikkerfum sem gefa mörk. Þá er mikil breidd í liðinu og í leiknum skoruðu átta menn mörk. KR-ingar voru greinilega ekki' í essinu sínu í leiknum. Þeir eru þekktir fyrir að berjast vel og hvetja hvern annan til dáða en lítið bar á því að þessu sinni. Virtist vanta meiri leikgleði. Sóknarleikur liðsins er langt frá því að vera nægilega beittur. Betra leikskipulag vantar, leik- menn reyna hvað eftir annað skot svo gott sem úr kyrrstöðu beint fyrir framan vörn andstæð- inganna. Þá var markvarslan langt frá því að vera góð. KR-ingar geta meira en þeir sýndu að þessu sinni. Bestu menn liðsins voru Haukur Ottesen og Björn Pétursson sem þó virkar nokkuð þungur. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Laugardalshöll. KR—FH 22-24 (11-12) Mörk KR: Haukur Ottesen 8, Björn Pétursson 5 (2v), Jóhannes Stefánsson 3, Konráð Jónsson 2, Þorvarður Höskuldsson 2, Krist- inn Ingason 2, Friðrik Þorbjörns- son 1. Mörk FH: Pétur Ingólfsson 5, Kristján Arason 5 (2v), Sæmund- ur Stefánsson 4, Valgarð Val- garðsson 3, Guðmundur Magnús- son 3, Geir Hallsteinsson 4, Hans Guðmundsson 1. Brottvísun af leikvelli: Valgarð Valgarðsson og Pétur Ingólfson FH í 2 mínútur hvor. Ólafur Lárusson KR í 2 mínútur. Misheppnuð vítaköst: Ólafur Lárusson KR, skaut í stöng, Pétur Hjálmarsson varði víti frá Geir Hallsteinssyni og Magnús Ólafs- son varði víti frá Birni Péturssyni. Dómarar voru þeir Björn Kristjánsson og Jón Hermanns- son. — þr. Eftir leiki helgarinnar er nú staðan í 1. deild karla þessi: KR — FH 22-24 HK - Valur 15-27 Víkingur 3 3 0 0 73—59 6 FH 3 3 0 0 68-56 6 Valur 3 2 0 1 63-52 4 Ilaukar 3 1 1 1 59-64 3 ÍR 3 1 0 2 54-57 2 KR 3 1 0 2 54-57 2 Fram 3 0 1 2 56-62 1 HK 3 0 0 3 46-65 0 Markhæstu leikmenn 1. deildar eru nú: Páll Björgvinsson Vík. 23/15 víti Bjarni Bessason ÍR 18 Ragnar ólafsson HK 18/9 víti Atli Hilmarsson Fram 15 Kristján Arason FH 14/7 viti Haukur Ottesen KR 13 Pétur Ingólfsson FH 13 Þorbjörn Guðmundss. Val 13/4 v. Andrés Bridde Fram 12/10 víti ólafur Lárusson KR 12/7 víti Steinar Birgisson Vík. 12 ólafur Jónsson Vík. 11 Simon Unndórsson KR 10 STAÐAN í 1. deild kvenna eftir leiki um helgina og í síðustu viku er þessi: KR - Þór 18-10 UMFG - Þór 13-21 FH - Fram 10-22 Víkingur - Haukar 18-12 Valur - KR 13-14 Fram 3 3 0 0 62-31 6 KR 3 3 0 0 55-34 6 Valur 3 2 0 1 51-45 4 Haukar 3 2 0 1 46-43 4 Þór 3 1 0 2 43-47 2 Vikingur 3 1 0 2 42-46 2 UMFG 3 0 0 3 36-61 0 FH 3 0 0 3 37-65 0 Markhæstar eftir þrjár umferðir eru eftirtaldar stúlkur: Margrét Theodórsd. Haukum Guðriður Guðjónsd. Fram Sjöfn Ágústsd. 24/13 v 23/12 v Kristján Arason FII er ört vaxandi leikmaður. Ilér sést j Kristján skora í leiknum á móti KR á sunnudagskvöld. g Ljósm. Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.