Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
27
fjögur góð keppnistímabil. Sao
Polo keypti hann síðan aftur heim
og þegar hann hljóp inn á leik-
vanginn í fyrsta skiptið eftir
útlegðina, var honum fagnað rosa-
lega af 80.000 áhorfendum. í hvert
skipti sem Levinha snerti boltann,
öskruðu 80.000 barkar af hrifn-
ingu. Sao Polo gekk hins vegar illa
að koma knettinum í netið hjá
Francana og þegar leið á leikinn
fór heldur að hljóðna í fólkinu,
Levinha var nefnilega ekkert sér-
stakur og þegar hann var tekinn
út af á 70. mínútu leiksins,
bauluðu 80.000 barkar á hann!
- O -
Það færist mjög í vöxt, að
knattspyrnusnillingar leggi fyrir
sig kvikmyndaleik. Paul Breitner
er nýjasta tilfellið. Hann leikur
miðaldra prófessor í 90. mínútna
heimildamynd frá vestur-þýska
sjónvarpinu. Eigi alls fyrir löngu
lék Brasilíumaðurinn Zico
knattspyrnusjúkan arabaprins í
einhverri svarthvítri skemmti-
mynd. Hvorki Zico né Breitner
hlutu verulega frægð eða lof fyrir
leik sinn.
- O -
Vestur-þýska knattspyrnusnill-
ingnum Reiner Bonhof hefur verið
ráðlagt að leggja.skóna á hilluna.
Ástæðan eru þrálát meiðsl á
ökkla. Margir snjallir læknar hafa
reynt að kippa þessu í lag, en
enginn hefur getað fundið hvers
eðlis meiðslin eru. Kappinn á
varla marga kosti, hann eyðir
mörgum stundum á sjúkrabekkn-
um þessa dagana.
- O -
Það eru einhverjir erfiðleikar
varðandi ísraelska landsliðsmann-
inn í röðum Liverpool, Avi Cohen.
Málið er það að enska knatt-
spyrnusambandið ætlar ekki að
veita Cohen keppnisleyfi hjá Liv-
erpool ef hann ætlar sér að leika
með olympíuliði ísraels en svo var
um samið milli Liverpool og
ísraelska knattspyrnusambands-
ins.
- O -
Einn snjallasti knattspyrnu-
maður heims, Elias Figuroa frá
Chile, lét lífið fyrir skömmu, er
hann hljóp á markvörð sinn á
æfingu með fyrrgreindum afleið-
ingum. Hlaut hann svo slæm
innvortis meiðsli, að hann lést
daginn eftir. Figuroa var þrívegis
kjörinn knattspyrnumaður Suð-
ur-Ameríku á síðustu árunum,
hann þótti óhemjusnjall framlínu-
maður.
Alan Sunderland, einn mark-
hæsti leikmaður 1. deildarinnar í
Englandi og leikmaður með Ar-
senal, hefur þrívegis á þessu
hausti óskað eftir að vera settur á
sölulista. Svar Terry Neil fram-
kvæmdastjóra hefur ávallt verið
stutt og laggott nei. Sunderland er
að sögn ekki ánægður með launa-
umslag sitt.
— O -
Danir unnu frækilegan sigur,
3—1, á Spánverjum í landsleik í
fótbolta eigi alls fyrir löngu. Þá
þótti ekki annað sæma en að sýna
leikinn tvívegis í heild í sjónvarp-
inu. Svona ámóta og þegar ísland
• Líf og ástir tennisleik-
arans
vann Austur-Þjóðverja sællar
minningar, þá sýndi Bjarni Fel.
valda kafla úr leiknum svo oft að
þurft hefði tölvu til að reikna út.
- O -
Eins og sagt var frá hér aðeins
framar, hefur mjög færst í vöxt að
íþróttastjörnur leggi fyrir sig
kvikmyndaleik. Brátt verður
frumsýnd ný kvikmynd sem ber
heitið „Leikið með lífið“ (ísl.
þýðing að sjálfsögðu). Meðal leik-
ara eru Björn Borg, Ilie Nastase,
Vitas Gerulatis, Ali McGraw og
Dean Martin júníor. Fjallar
myndin um líf og ástir tennissnill-
inga.
- O -
Alan Simonsen, góðkunningi
íslendinga, hefur gefið út nýja
bók. Þær eru fjölbreyttar hinar
ýmsu fjáröflunarleiðir sem
• Þjálfarinn og leikmaðurinn
knattspyrnumenn leggja fyrir sig
auk knattspyrnunnar. Bókin hans
Alans heitir „Mod nye Mál“ eða
gróflega þýtt „Stefnt að nýjum
markmiðum." Nú skal græða.
— O -
Gordon McQueen, miðvörður
Manchester Utd. og skoska lands-
liðsins í knattspyrnu, þarf varla
að kvíða fyrir að fara heim á
kvöldin eftir erfiðan vinnudag.
Hann á nefnilega þessa fallegu
konu. Hún heitir Yvonne og er
ljósmyndafyrirsæta að atvinnu.
- O -
Það er erfitt fyrir Vladimir
Tkachenko (t.v.) að líta ekki niður
á þjálfara sinn Alexander Gom-
elski. Tkachenko er landsliðs-
maður í körfuknattleik og eins og
nafnið bendir til eru þeir félag-
arnir Sovétmenn. Skyldi Gomelko
hafa verið körfuboltamaður á
sínum yngri árum?
- O -
Nýi heimsmeistarinn í hnefa-
leikum, John Tate er frægur
kvennabósi. Á meðfylgjandi mynd
er hann að 'gera hosur sínar
grænar fyrir Geraldine Chaplin
kvikmyndaleikkonu á Studio 54,
diskótekinu fræga í Nýju Jórvík.
- O -
Met? Nýlega gerðist það í grísku
1. deildarleik í knattspyrnu, að
þrír leikmenn brenndu af víta-
spyrnum. Allir leikmenn sama
liðsins!
• Yvonne MQueen
• Allan og útgefandinn hýrir í bragði.
Roaldo Borja, knattspyrnudóm-
ari í Brasilíu, þótti ekki standa sig
sem skyldi fyrir nokkru. Meðal
þess sem hann vogaði sér að gera,
var að dæma mark af heimaliðinu
vegna rangstöðu. Þegar hann kom
til búningsklefa síns eftir leikinn
hafði verið brotist inn í hann,
fötum hans stolið og varpað í fljót
eitt mikið sem liðast silfurtært
skamrnt frá vellinum. Skóm hans
var búið að troða í salernisskálina.
- O -
George Best átti gott „come
back“ í bresku knattspyrnunni um
helgina, en hann hefur undirritað
samning við skoska liðið Hibern-
ina. Best skoraði mark í sínum
fyrsta leik, en Hibs töpuðu og eru
í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.
- O -
Það gengur stundum á ýmsu
þegar knattspyrnumenn eru í
samningaþjarki. Paolo Cicero,
leikmaður með CBB í Brasilíu, var
spurður um nýjan samning sem
hann undirritaði við félag sitt.
Hann svaraði: „Spurðu ekki mig,
spurðu konu mína. Hún samdi
fyrir mína hönd, hún veit betur en
ég hvert verðlagið á matvörum er
nú til dags!“
Annar skrautlegur heitir Jose
Jiminez og var leikmaður með
Racing Santander á Spáni. Real
Madrid hafði hug á að fá kappann
til sín og hafði komist að munn-
legu samkomulagi bæði við leik-
manninn og félag hans. Hitt vissi
enginn nema Jiminez, að hann
hafði gert skriflegan samning við
Senor Vegas umsvifamann nokk-
urn í fjármálum um að sá síðar-
nefndi hefði umboð til að semja
fyrir hönd þess fyrrnefnda.
Síðan gerðist það, að þegar
fulltrúar Real og Santander komu
saman til að ræða um tilvonandi
sölu, kom í ljós að Senor Vegas var
búinn að selja kappann til Valen-
cia!!!
- O -
Einu sinni var mjög efnilegur
unglingur í Perú. Efnilegur
knáttspyrnumaður þ.e.a.s. Hann
hét Rafael Palomino 17 ára. Eitt
sinn lék hann með félagi sínu
Atlas og hafði skorað öll mörk
liðsins þrjú að tölu snemma í
síðari hálfleik, er brjálaður áhorf-
andi skaut hann til bana með
afskorinni haglabyssu.
- O -
America de Cali, knattspyrnulið
í Kolombíu, á nú möguleika á því
að verða meistari í heimalandi
sínu. Mikil bjartsýni ríkir nú bæði
meðal bæjarbúa og leikmanna.
Ástæðan er sú að særingamaður
flæmdi illa anda burt af leikvang-
inum að viðstöddum 60.000 áhorf-
endum eigi alls fyrir löngu! For-
saga málsins er sú, að árið 1948
var Benjamin nokkur Urrea rek-
inn sem þjálfari America de Cali.
Annar maður var skipaður í hans
stað og var Benni æfur af reiði.
Hann var galdramaður í frístund-
um og lagði þau álög á félagið, að
það myndi aldrei vinna nokkurn
skapaðan hlut. Merkilegt nokk,
hefur þetta orðið raunin, America
hefur aldrei unnið Kolombíutitil-
inn. En nú stendur þetta sem sagt
allt til bóta, enda púkarnir á bak
og burt.
- O -
Fyrst verið er að ræða um
hjátrú á annað borð má skjóta inn
því sem leikmenn og þjálfarar
Santiago Wanderers gripu til þess
að gera þegar hvorki gekk né rak
hjá þeim í deildarkeppninni í
Chile. Þeir brenndu alla búninga
sína og fótboltaskó með.
Síðan mættu þeir í nýjum
keppnisgöllum fullir sjálfstrausts
í næsta deildarleik sinn......en
aðeins til að tapa einn ganginn
enn. I þokkabót hafði fatabrennan
næstum sett fátækt félagið á
höfuðið.
- O -
Manchester Utd. hefur keypt til
liðs við sig júgóslavneska lands-
liðsbakvörðinn Nikolai Jovanovic
frá Rauðu stjörnunni í Belgrað.
Jovanovi hefur leikið allmarga
landsleiki fyrir Júgóslavíu, en
hefur enn ekki leikið með" aðalliði
Manchester Utd., enda keppir
hann við sterka kappa um bak-
varðarstöðurnar.
• Avi Cohen