Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 40
Juvél
stálvaskar
Hagstætt verð.
ARABIA
HREINLÆTISTÆKI
BAÐSTOFAN
Ármúla 23 • sími 31810 •Nýborgarhúsiö
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Innborgunarfé
hjá SÍS upptækt
— sæki menn ekki pantanir innan 10 daga
kaupverðsins
Varahlutaverslun sam-
bands ísl. samvinnufélaga
hyggst um næstu mánaða-
mót taka upp þann hátt
þegar viðskiptavinir
panta sérstaklega vara-
hluti að þeir greiði þriðj-
Fá jóla-
póstinn
með
þyrlu
HÉÐAN er allt gott að
frétta, ágætt veður, en allt
ófært og ekki sést maður í
heilan mánuð, sagði Berg-
rún Gunnarsdóttir í samtali
við Mbl., en hún starfar við
veðurathuganir á Hveravöll-
um ásamt Gunnari Pálssyni.
—Þetta er fyrsta árið okk-
ar hér og ég geri ráð fyrir að
við höfum róleg jól og látlaus,
sagði hún aðspurð um vænt-
anlegt jólahald á fjöllum.
—Jólin verða frábrugðin okk-
ar fyrri jólum þar sem við
erum fjarri nánustu skyld-
mennum, en við hlökkum til
jólanna og hyggjumst gera
okkur dagamun í mat og
skreytum að sjálfsögðu híbýl-
in. En hér hefur verið gott að
vera og við höfum kynnst
mörgu, sem við ekki þekktum
áður.
Bergrún kvaðst ekki vita
hvenær næst yrði gesta von,
en að öllum líkindum kæmi
jólapóstur og annar varning-
ur til þeirra með þyrlu dag-
ana 10.—20. desember og
væri það algengasti og auð-
veldasti flutningsmátinn.
ung kaupverðsins við
pöntun.
Hafi viðskiptavinur síðan ekki
sótt pöntunina innan 10 daga frá
því hann fær tilkynningu um
komu hennar verður hún seld
öðrum og innborgunin látin koma
til lækkunar á vörunni, þ.e. inn-
borgunin verður ekki endurgreidd
viðskiptavini. Verslunarstjóri
Varahlutaverslunar SÍS kvað
þennan hátt reyndar hafa verið á
að undanförnu, en með þessum
reglum væri ætlunin að tryggja
betur pöntun og greiðslu vara-
hluta og fyrirbyggja misnotkun,
en hann sagði algengt að hlutir
væru pantaðir og síðan ekki sóttir.
Kvað hann þessar reglur einnig
leggja versluninni þær skyldur á
herðar að flýta afgreiðslu sem
kostur væri til að viðskiptavinir
ættu ekki svo og svo lengi inn-
borgun sína hjá versluninni.
Síðustu
dagarnir
/ -
a
síldinni
Sextán hringnótabátar áttu í gær eftir að fylla kvóta sinn á síldarvertíðinni, en
heildaraflinn er nú orðinn um 40 þúsund lestir. Vetur konungur hefur ygglt sig að
undanförnu og margir dagar fallið úr vegna erfiðrar veðráttu. Það er kaldranalegt
að vera á síldinni sem og öðrum veiðiskap í kafaldshríð og frosti eins og þessi mynd
Sigurgeirs lýsir vel. Myndin er tekin á miðunum undan Suðurlandi fyrir nokkru.
ólaíur Jóhannesson telur verðjöfnun á hitaveitu óhjákvæmilega:
Myndi haía í för með
sér 40% hitaveituskatt
EFSTI maður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík,
ólafur Jóhannesson, hefur lýst því yfir, að verðjöfnun á
hitaveitugjöldum Reykjavíkinga sé óhjákvæmileg. Sam-
kvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar, sem Hjörleif-
ur Guttormsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, kom á
fót, þyrfti gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur að hækka
um 40% til þess að jöfnun ætti sér stað samkvæmt
tillögum nefndarinnar.
Ólafur Jóhannesson var í beinni
línu við kjósendur á ritstjórn-
arskrifstofum Tímans í fyrri viku.
Þá hringdi kjósandi í Siglufirði og
spurði Ólaf, hvort Framsóknar-
flokkurinn myndi beita sér fyrir
verðjöfnun á hitunarkostnaði. Ól-
afur Jóhannesson svaraði: „Ég
verð að svara þessu persónulega
fyrir mig. Ég er með verðjöfnun,
þótt kannski sé hættulegt fyrir
mig sem frambjóðanda í
Reykjavík að vera svo. En sann-
færing mín er ekki föl fyrir
atkvæði og það er mín sannfær-
ing, að verðjöfnun á upphitunar-
kostnaði þurfi að koma til.“
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins, mun verðjöfnun valda,
enn meiri hækkun þar sem rafhit-
un á sér stað. Stafar það af því, að
rafmagn til húshitunar er víða á
landinu mjög mikið niðurgreitt, en
verðjöfnun myndi þar valda stór-
hækkun.
Samkvæmt tillögum nefndar
Hjörleifs Guttormssonar um verð-
jöfnun, er gert ráð fyrir, að hver
seld kílówattstund frá Hitaveitu
Reykjavíkur hækkaði um eina
krónu. Hún er nú seld á 2,50
krónur. Hækkunin er 40%.
Sjá forystugrein á bls. 20.
Jóhannes Nordal:
Erindið að koma olíu-
viðræðunum áleiðis
„ERINDI okkar til London er að sjálísögðu að koma viðræðum
um þessi tilboð áleiðis, þannig að unnt sé að taka endanlega
afstöðu til þeirra af stjórnvöldum hér heima,“ sagði Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri og formaður olíuviðskiptanefndar í
samtali við Morgunblaðið í gær, en nefndin er á förum til
London til viðræðna við BNOC, British National Oil Corpora-
tion, um kaup íslendinga á gasolíu á árinu 1980.
Veðurfræðingar spá í dag hægt vaxandi suðaust-
an-átt og hiýnandi veðri um iand alit. Búast má þá
við að snjórinn verði á undanhaldi þegar líður á
daginn og ekki verði þá hægt að henda snjóboltum
i stytturnar eða aðra hluti. er verða á vegi fjörugra
krakka. Ljósm. ólK.M.
Jóhannes kvað viðræðurnar í
London myndu snúast við þau
tilboð, sem borizt hefðu. Kvaðst
hann ekki myndu koma heim
aftur fyrr en um og eftir helgina.
Eins og fram kom í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins, hefur tilboð
borizt frá BNOC um sölu á 100
þúsund tonnum af gasolíu til
Islands og hefur verið látið í veðri
vaka, að hugsanlegt sé að magnið
af gasolíu gæti prðið allt að 150
þúsund tonn. Árleg notkun á
gasolíu hérlendis er um 280 þús-
und tonn. Tilboðin kveða á um
mun hagstæðara verð, en nú fæst
á Rotterdam-markaðinum, sem er
viðmiðun olíuverðs í samningi
íslendinga og Sovétmanna.
Enn beðið við Kröflu
JARÐIIRÆRINGAR halda stöð- maður vaktarinnar að þeir væru
ugt áfram á Kröflusvæðinu. Sam- nokkuð mismunandi margir á
kvæmt upplýsingum skjálfta- sólarhring og menn biðu nú
vaktarinnar urðu á sunnudag 30 kvikuhlaups, en vissu ekki hvert
skjálftar, en upp úr kl. 21 i gær það myndi fara né hvenær það
voru þeir orðnir 18. Sagði tals- myndi verða.
4 skip
seldu í
Bretlandi
FJÖGUR islenzk fiskiskip seldu
afla í Bretlandi í gær. Sæljón
seldi 43 lestir i Hull fyrir 19,6
milljónir, meðalverð 454 krón-
ur, Rán seldi i Hull 71 lest fyrir
26,1 milljón, meðalverð 367
krónur, Framnes seldi 89 lestir 1
Grimsby fyrir 45 miiijónir. með-
alverð 507 krónur og Suðurey
seldi 40 lestir í Fleetwood, með-
alverð 513 krónur.