Morgunblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979 DIODVIUINN Ellert Schram og Jónas Haralz útskýra leiftursókn íhaldsins: w Uppsagnir, atvinnuleysi og snögg kjaraskerðing • Leið Sjátfstœöisflokksins út úr veröbólgunni er aö skapa „höflegt atvinnuleysi” og brjóta niöur andstööu viö erlenda stóriöju. LaiMuriAkn Mokkxnt yi»urii*nndi » *6i «6 ur þvl myndi r»»»«t llokktins g»«n IIHkiðrun- vinnuil»*»*undl h(i M6 «r l»n*r« lidl. J4n«» um mun M«a til atvinnw- Valli »1. I*>*uda« a* Marali. Mlundur alna Imrsn oo snðaorar kiara UiHur«*knM mvndi lai*a haosstafnu vitralsnar • Full atvinna ekki lengur á stefnuskrá Sjálfstœöisflokksins Á*flirT*r»fn I MoWunbla*- - J5íín*k,«1 Okvr c| Aikr*v<>«kkur •! Yfirlýsing frá Ellert B. Schram: Ósannindi sem eru Þjóð- viljanum til skammar Morgunblaöinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Ellert B. Schram: Mér virðist örvænting Alþýðu- bandalagsins taka á sig heldur ógeðfellda mynd á forsíðu Þjóðvilj- ans í dag, fimmtudag. Þar er fullyrt að ég hafi boðað á vinnu- staðafundi hjá BM Vallá, uppsagn- ir, atvinnuieysi og snögga kjara- skerðingu. Þetta eru ýkjur og ósannindi. Ég hef hvorki þar né annars- staðar minnst einu orði á uppsagn- ir. Ég hef hvergi boðað atvinnu- leysi. Að svo miklu leyti sem atvinnumál bar á góma á nefndum fundi ræddi ég um tímabundinn samdrátt í byggingariðnaði yfir vetrarmánuðina, en það væri þekkt vandamál í byggingariðnaðinum, •án tillits til efnahagsaðgerða nú, síðar eða áður. Ég vakti þvert á mót sérstaka athygli á því, að ef tillögur okkar sjálfstæðismanna næðu fram að ganga varðandi húsnæðislánakerf- ið, þá mundi það valda byltingu í byggingariðnaði til betri áttar. Þegar rætt var um kaup og kjör launafólks, lét ég þau orð falla, þar sem annarsstaðar, að til þess að vinna bug á verðbólgunni, þyrftu menn að færa tímabundnar fórnir, sem þeir yrðu fyrst og fremst að bera, sem betur mega sín. Þær fórnir væru þó smávægilegar mið- að við það áfall sem launafólk yrði fyrir, ef verðbólgan helst óbreytt. Stærsta kjarabót launafólks er hjöðnun verðbólgu. Alvarlegasta afleiðing hennar verður bullandi atvinnuleysi strax í vetur. Þeir sem ekki vilja taka þátt í atlögunni að verðbólgunni eru að bjóða atvinnuleysinu heim. í kosningabaráttu er hægt að láta útúrsnúninga sér í léttu rúmi liggja, ef andstæðingarnir vilja frekar grípa til þeirra en málefna- legra umræðna. En ósannindi á borð við forsíðufrétt Þjóðviljans í dag, eru lágkúruleg högg fyrir neðan beltistað. Þau eru Þjóðvilj- anum til skammar. Ellert B. Schram. Verðjöfnunargjald á hitaveitur: 200 milljónir hjá notendum Hita- veitu Suðurnesja SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér mundi hitaveituskattur eða jöfn- unargjald á Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi nema um 200 millj- ónum króna, ef farið yrði að tillögum nefndar Hjörleifs Gutt- ormssonar, fyrrverandi orkuráð- herra, en nefndin lagði til að greitt yrði í verðjöfnun sem svaraði einni krónu á hverja kilówattstund. Á orkusölusvæði hitaveitunnar í Svartsengi búa um 12 þúsund manns. Miðað við hverja 5 manna fjölskyldu myndu aukin útgjöld þessa fólks nema rúmlega 83 þúsund krónum á ári, ef slík verðjöfnun kæmist á eins og efsti maður á lista Framsóknarflokks- ins í Reykjavík, Ólafur Jóhannes- son hefur lýst yfir að eigi að framkvæma. Eins og áður hefur komið fram, myndi slík verðjöfn- un hækka hitunarkostnað á orku- sölusvæði Hitaveitu Reykjavíkur um 2 miiljarða króna. Afleiding ákvarðana ólafs Jóhannessonar í verðlagsmálum: Gjaldskrá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 38% hœrri en hún þyrfti að vera Sex bátar róa með línu llofn. 29. nóv. FYRSTU bátar reru með línu 16. nóvember. Sex bátar landa hjá frystihúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga og hafa aflað rúmlega 234 tonn í 36 róðrum. Meðalafli í róðri er 6,021 kg. Þórir SF er hæstur með rúmlega 46 tonn í 7 róðrum. Hann er einnig með bezta róðurinn, 9.038 kg. Tveir bátar eru að fiska fyrir sölu erlendis, Gissur Hvíti SF og Skógey SF. — Einar. GJALDSKRÁ Rafmagnsveitu Reykjavíkur er nú 38% of há vegna tregðu stjórnvalda á að veita umbeðnar gjaldskrárhækk- anir allt frá árinu 1972. Á þessu ári hefur Rafmagnsveitan greitt i afborganir og vexti rúmlega 1.900 milljónir króna af rekstr- arlánum, sem fyrirtækið hefur neyðzt til að taka af áðurnefnd- um ástæðum. Þessar upplýsingar fékk Morg- unblaðið í gær hjá Aðalsteini Guðjohnsen, rafmagnsveitustjóra. Hann sagði, að allt frá árinu 1972, er fyrirtækinu var ýtt út í að taka erlend rekstrarlán vegna þess að synjað var um eðlilegar gjald- skrárhækkanir, hafi gjaldskráin verið of há. „Ef við hefðum aldrei þurft að taka þessi lán,“ sagði Aðalsteinn, „er ljóst, að gjaldskrá- in væri mun lægri. Er hún nú 38% hærri, en hún þyrfti að vera, ef við hefðum aldrei þurft að taka þessi lán.“ Svo sem getið var í Morgunblað- inu í gær, spurðist Morgunblaðið fyrir um sama hlut hjá Hitaveitu Reykjavíkur og er gjaldskrá þess fyrirtækis 34% of há af sömu ástæðum. Ólafur Jóhannesson, efsti maður á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík hefur lýst því yfir, að hann beri ábyrgð á þeirri stefnu, að hamla gegn hækkunum á gjaldskrám þjónustufyrirtækja sem þessara, sem ,hér hefur verið minnst á. Flateyri: Snjóflóð féll á kirkjugarð Norðudand vestra: Er hóflega bjartsýnn enda auðvelt valið Framboðsfundir í Norður- landskjördæmi vestra hafa verið vel sóttir, víðast hvar, og frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins hafa viða komið við í kosningabaráttunni, á vinnustöðum og heimilum, sagði Pálmi Jónsson, efsti maður D-listans, er Mhi. innti hann í gær eftir stöðu og líkum Sjálfstæðisfiokks- ins í kjördæminu. Ég er hóflega bjartsýnn, sagði Pálmi, en úrslitin ráðast í afstöðu fólks á sunnudag- inn, og ekki er rétt ég hafi uppi neinar fullyrðingar um þau. Það tvennt, sem einkum hefur sett svip á framboðs- fundi, er annarsvegar inn- byrðis hávaðarok vinstri flokkanna, sem kennt hafa hver öðrum um hvernig kom- ið er málum þjóðarinnar, og hinsvegar umræða um efna- hagsstefnu Sjálfstæðis- flokksins, sem tekið hefur upp mun meira af ræðutíma andstöðuflokka en skilgrein- sagði Pálmi Jónsson, bóndi á Akri ing þeirra á eigin stefnu, sem raunar hefur farið lítið fyrir. Helzt er að skilja- á fram- sóknarmönnum að þeir vilji óbreytt ástand. — Eina við- leitni þeirra til sjálfstæðrar Pálmi Jónsson stefnumörkunar í efna- hagsmálum hefur falist í óljósum hugmyndum um að lögfesta hámark á verðlagn- ingu vöru og þjónustu, án annarra, samvirkandi verð- bólguhemla. Þetta hljómar eins og kynda eigi áfram gufuketilinn en lögfesta jafnhliða, að gufan megi ekki fara út um stútinn, sagði Pálmi. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur greinilega betri byr í kjördæminu en í síðustu kosningum og ég er hóflega bjartsýnn á úrslitin. Loka- áfanginn er þó eftir, sem m.a. felst í því að ná til þess fólks, sem enn er óráðið, og ég heiti á alla velunnara Sjálfstæðisflokksins að duga vel í lokaspretti kosninga- átakanna. Valið er auðvelt: Annars vegar vinstri stjórn og verðbólgan, hinsvegar verðbólguhjöðnun sem vegur til bættra lífskjara, sem er kjarninn í kosningastefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins. SNJÓFLÓÐ féll á kirkjugarðinn fyrir ofan Flateyri i gærmorgun en tjón varð ekkert, að sögn Gunnhild- ar Guðmundsdóttur fréttaritara Mbl. á staðnum. Vegurinn lokaðist vegna snjóflóðsins en hann var ruddur í gær. Fyrir nokkrum árum féll snjóflóð á svipuðum slóðum og tók það af kirkjugarðsvegg. Fárviðri geisaði á Vestfjörðum í fyrrakvöld og fyrrinótt en síðdegis í gær tók að lægja. Fylgdi veðrinu talsverð snjókoma og sjógangur. Ekki er Mbl. þó kunnugt um að umtalsvert tjón hafi orðið í þessu ofsaveðri. Allir fjallvegir á Vest- fjörðum eru ófærir og víða mjög erfið færð á láglendi. Víða á Vestfjörðum urðu rafmagns- og símatruflanir í veðrinu. Í gær vöruðu Almannavarnir við snjóflóðahættu í norðanverðum Ön- undarfirði. Ólafur Jóhannesson: Ný athugasemd MBL. hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá ólafi Jóhannes- syni: Vegna fyrri misskilnings Morg- unblaðsins á ummælum mínum í „beinni línu“ Tímans hefi ég gefið skýra og afdráttarlausa yfirlýs- ingu og hún er þessi: Það kemur ekki til greina að mínum dómi að leggja sérstakan skatt á Hitaveitu Reykjavíkur. Það er mergur máls- ins. Hvort sem misskilja hefur mátt ummæli mín eða ekki, eru allar bollaleggingar um afstöðu mína til þessa efnis óþarfar, eftir slíka yfirlýsingu af minni hálfu. Eg mun því ekki ræða þetta „kosningamál" Morgunblaðsins frekar. Slíkt rex er á lægra plani en ég vil standa á sem stjórnmála- maður. Ólafur Jóhannesson. Athugasemd Morgunblaðsins: Sannfæring Ólafs er á undanhaldi Aths. ritstj. ÞESSI „nýja athugasemd" ólafs Jóhannessonar sýnir að hann er á hröðu og skipulagslausu undan- haldi vegna ummæla sinna um verðjöfnunargjald á hitaveitur. ítrekaðar fyrri yfiriýsingar hans verða ekki misskildar. Þær tala sínu máli. Morgunblaðið fagnar því, að sú fyrirætlan ólafs Jó- hannessonar að leggja 2 milljarða hitaveituskatt á íbúa höfuðborg- arsvæðisins skyldi verða „kosn- ingamál" fyrir kosningar. Þessi „nýja athugasemd" Ólafs Jóhann- essonar sýnir, að hann er orðinn hræddur við reiði reykvískra kjós- enda. Hún bendir til þess, að sannfæring hans sé — þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar - „föl fyrir atkvæði". Ekki vill Morgunblaðið standa með Ólafi Jóhannessyni á því plani.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.