Morgunblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979
25
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa farið viða á
vinnustaði að undanförnu og þarna er Rangæingur-
inn Sigurður óskarsson að ræða við Kort Ingvarsson
í einu af frystihúsunum í Eyjum. Ljósmynd Mbl.
Sigurgeir í Eyjum.
Basar í Kirkjubæ
KVENFÉLAG Óháða safnaðarins efnir laugardaginn 1.
desember til basars í Kirkjubæ. Verða þar seldir munir er
konurnar hafa sjálfar unnið, en basarinn hefst kl. 14 á
morgun, laugardag.
Sjálfsævisaga Lillian Roth:
Eg græt að morgni
BÓKAÚTGÁFAN Hildur heíur
sent frá sér bókina Ég græt að
morgni eftir Lillian Roth í þýð-
ingu Hrefnu Þorsteinsdóttur.
Bókin var fyrst gefin út í New
York árið 1954 og seldist þá á
skömmum tíma í 150 þúsund
eintökum og hlaut höfundurinn
Christopher-verðlaunin fyrir
hana. Síðan hefir bókin verið
margendurprentuð á mörgum
tungumálum og gerð kvikmynd
eftir henni.
Bókin fjallar um ævi Lillian
Roth. Fimm ára er hún farin að
leika og eykst frægð hennar stöð-
ugt. Um tvítugt er hún eftirlæti
allra á Broadway og fræg orðin í
Hollywood. Þá tekur Bakkus við
stjórntaumunum og dregur hana
dýpra og dýpra niður í svaðið. Að
lokum snýr hún sér til AA-sam-
takanna og með þeirra hjálp nær
hún aftur tökum á lífi sínu. í
sextán ár hafði hún verið þjónn
Bakkusar og átti að baki fjögur
misheppnuð hjónabönd.
í lok formála segir Lillian Roth:
Allt sem í þessari bók stendur er
sannleikur.
Bókin er 279 blaðsíður, prentuð í
Prentverki Guðjóns Ó. Bókin hefir
áður verið gefin út á íslenzku.
Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 85055.