Morgunblaðið - 30.11.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979
3
Noröurland eystra:
Tvísýnustu og afdrifa-
rikustu kosningarnar
segir Halldór
Blöndal, 2.
maður D-lista
KOSNINGARNAR í Norður-
landskjördæmi eystra verða
tvísýnni og e.t.v. afdrifarikari
en 1 nokkru öðru kjördæmi,
sagði Ilalldór Blöndal, annar
maður á D-lista, er Mbl. innti
hann eftir stöðu og líkum Sjálf-
stæðisflokksins þar nyrðra.
Sprengiframboðið, S-listinn, er
að vísu fjarri þvi að fá mann
kjörinn, til þess þyrfti hann um
1700 atkvaeði. Spurningin er
hinsvegar þessi, hvort þetta
framboð dreifi atkvæðum nægj-
anlega tii þess, að þriðji maður
á framboðslista Framsóknar-
flokksins, sem er „herstöðva-
andstæðingur“, nái kosningu
og felli 2 menn á D-lista. Þessi
spurning er möndullinn sem
kosningarnar snúast um hér.
Því fleiri sem gera sér þetta
ljóst, þeim mun meiri líkur eru
á hagstæðum kosningaúrslitum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hér
getur hvert eitt atkvæði verið
úrslitaatkvæðið!
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokks, D-lista, hafa haldið
fjölda vinnustaðafunda um kjör-
dæmið allt, auk þátttöku í hefð-
bundnum framboðsfundum.
Síðasti framboðsfundurinn er í
kvöld (þ.e. gærkveldi) hér á
Akureyri. Greinilegt er, að
stefnumótun Sjálfstæðisflokks-
ins í efnahagsmálum á fylgi að
fagna, ekki sízt hjá ungu fólki,
sem hefur lagt flokknum drýgra
lið nú en oftast áður. Þannig
mættu um 400 manns á fundi
frambjóðenda með ungu fólki
hér á Akureyri.
Halldór vitnaði til orða Ingv-
ars Gíslasonar (B-l) á fundi J.C.
á Akureyri. Þar hefði Ingvar
gert því skóna, að sprengifram-
boð S-lista yki á vonir Fram-
sóknarflokksins um 3 kjördæma-
kjörna menn. Þá félli annar
maður á lista Sjálfstæðisflokks,
auk þess sem S-lista atkvæði
gögnuðust ■ ekki Sjálfstæðis-
flokknum til landskjörs (uppbót-
arsæta). Sem betur fer, sagði
Halldór, er þessi staðreynd, að
tvískipting atkvæða getur í
bezta falli leitt til „dauðra at-
kvæða“, en ef illa fer, til stór-
skaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
að verða fleirum og fleirum ljós,
eftir því sem nær dregur kosn-
ingum. Þetta hefur styrkt D-list-
ann. Það er eindregin áskorun
mín til alls sjálfstæðisfólks,
yngri sem eldri, í sveit og við sjó,
sagði Halldór að lokum, að
leggja sig alla fram í lokaátök-
unum. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur byr um allt land. Nýtum
þennan byr til að gera stöðu
Sjálfstæðisflokksins í Norður-
landi eystra sem sterkasta. Með
samátaki náum við því sem að er
stefnt.
Sumar verzlanir opnar
til klukkan 16 á morgun
FYRIR skömmu gerðu Kaupmannasamtök íslands og Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur með sér samkomulag um það hve lengi
verzlanir á höfuðborgarsvæðinu skuli vera opnar i desember. í
samkomulaginu var m.a. ráð fyrir því gert að verzlanir skuli vera
opnar til klukkan 12 á morgun, laugardaginn 1. desember.
Guðlaugur. Kvaðst hann vona að
aðrir kaupmenn fylgdu í kjölfarið
og verzlanir yrðu almennt opnar
til klukkan 16 á morgun, iaugar-
dag.
Esóp er sígildur
— og verður eftirlæti allra
w
ESOPS
Þorsteim fiá Hamri þýddi
FrankBaber
myndskneytti
Umsagnir:
... hin eigulegasta og tilval-
in gjöf til barna og unglinga
og hvers vegna ekki fullorð-
inna. Til þeirra mun Esóp
hafa beint orðum sinum.
— Jóhann Hjálmarsson.
Morgunbladinu.
... fullar af þekkingu á
mannlegu eðli og heilræðum,
sem ættu að duga okkur
nokkur ár í viðbót, en nú
hafa þær verið við lýði í
hartnær 2,500 ár.
— Aðaisteinn Ingólfsson.
Dagblaðinu.
... þýðing Þorsteins frá
Ilamri hefur tekist afbragðs-
vel eins og vænta mátti af svo
vandvirkum höfundi. Hún er
í senn lipur og á ákaflega
fallegu máli.
— Jóhann Hjálmarsson,
Morgunbiaðinu.
Ykkar bók, barna ykkar og barnabarna.
Verökr. 5.980 öp) BÓKAFORLAG/Ð
SAGA
Hverfisgötu 54, sími 27622, Reykjavík.
Talsverðrar óánægju hefur gætt
meðal kaupmanna vegna þessa og
hefur orðið að samkomulagi milli
nokkurra verzlana í Reykjavík að
hafa opið til klukkan 16 á morgun,
eða eins lengi og reglugerð heimil-
ar. Umræddar verzlanir eru
Karnabær, Vörumarkaðurinn,
Hagkaup og Penninn.
„Verzlanirnar eru til þess að
þjóna fólkinu og því viljum við
hafa þær opnar eins lengi á
laugardaginn og heimilt er,“ sagði
Guðlaugur Bergmann kaupmaður
í Karnabæ í samtali við Mbl. í
gær. „Við höfum auðvitað borið
þetta undir starfsfólk okkar og
það er tilbúið að vinna," sagði
MARGAR SOLUR
YTRA Á NÆSTUNNl
MÖRG íslenzk fiskiskip landa afla
sínum erlendis þessa dagana og er
það bæði vegna þess, að um
hálfgert millibilsástand er að
ræða hjá bátaflotanum og að á
þessum árstíma er oft gott verð á
ísfiski í Englandi og V-Þýzkalandi
vegna erfiðleika við sjósókn í
Norðursjónum. Búist er við að
mörg skip selji ytra fram undir
jól.
I gær seldi Ársæll Sigurðsson
100 lestir í Grimsby fyrir 51
milljón, meðalverð 510 krónur. Þá
seldi Hrafn Sveinbjarnarson 76
tonn í Cuxhaven fyrir 32.4 millj-
ónir, meðalverð 424 krónur.
Strokuf anginn óf undinn
STROKUFANGINN Sigurður
Sigurðsson er ófundinn, sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í gær hjá
dómsmálaraðuneytinu.
Nú eru rúmir þrír mánuðir
síðan Sigurður strauk úr Vestre-
fangelsinu í Kaupmannahöfn, en
hann strauk þaðan á ævintýra-
legan hátt aðfaranótt 28. ágúst.
Sigurður afplánaði þriggja ára
fangelsisdóm fyrir fíkniefnasölu.
Þorsteinn J. Jónsson fulltrúi í
dómsmálaráðuneytinu sagði að
nokkrar ábendingar hefðu borizt
frá fólki, sem taldi sig hafa séð
Sigurð í Danmörku og annars
staðar í Evrópu en þær hefðu
ekki leitt til lausnar málsins.
Virðist Sigurður hvergi hafa
skilið eftir sig spor.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Engin sambærileg verk áöur á íslenzku:
Bækur allrar f jölskyldunnar
Úr horfnum heimi koma goö, jötnar og hrímþursar
Ijóslifandi fram á sjónarsviöiö.
Goé og garpar úr norraanum sögnum: Hugmynd-
ir hinna heiönu forfeöra okkar um sköpun
heimains, uppruna goöa og manna — og
framvinduna. Meginkjarni norrænnar goöafræöi í
fjörlegri frásögn og hugvitssamlega myndskreytt-
ur.
GOÐ.MENN
OG MEINVÆTTIR
úr griskum sögnum
i-niR MhHMÍI.CtMSON, SR.LRIX'RA MVLiM SSONWlXíl
ClfWV.\NI C ASKU.I MYNIXKKKOTI
Goö, menn og meinvaattir úr gríakum sögnum:
Gömlu goðsagnirnar, um aldir snar þáttur í
menningarsögu Vesturlanda, færöar í aðgengileg-
an búning, sem höföar til nútíma lesanda.
Fjölskrúðugt safn klassískra sagna, fagurlega
myndskreytt.
í líflegri og þróttmikilli endursögn Siguröar A. Magnússonar.
Verö kr. 8.970
fBÓKA FORLAGiÐ
SAGA
Hverfisgötu 54, sími 27622, Reykjavík.