Morgunblaðið - 30.11.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979
23
Kjartan T. Ólafsson:
Hafa skal það sem
sannara reynist
Um framboðsmál á Suðurlandi
Viðtöl:
Fríða Proppé
staðið Áætlunin miðaðist við
ákveðið mafkmið, þ.e. sjúkrahús-
byggingar af heppilegri stærð til að
kenna ákveðnum fjölda lækna-
nema. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Alls konar þrýsti-
hópar hafa risið upp og eru enn að
láta á sér kræla, sem hefur tekist
að sveigja upphaflegar hugmyndir
og áætlanir til og frá eftir pólitísk-
um leiðum. Weeks-áætlunin er því
alltaf að breytast, en ég var
sæmilega ánægður með hana eins
og hún leit síðast út á pappírnum.
Það er samt ekki nægilegt að gera
fallegar og góðar áætlanir ef lítið
sem ekkert gengur að framkvæma
þær. Að sjálfsögðu eiga allar áætl-
anir að vera háðar sífelldri end-
urskoðun því kröfurnar vaxa og
hugmyndir breytast með aukinni
tækni og þekkingu. Hins vegar er
bráðnauðsynlegt að halda í ein-
hverja grundvallarstefnu og í þessu
tilviki er framkvæmdahraðinn sá,
að mér virðist það geta tekið
áratugi að koma málefnum lækna-
deildar og Landspítalans í skaplegt
horf.“
Aöstaða barnadeilda
nokkuð góð
— Hver er að staða barnadeild-
anna?
„Það má segja, að aðstaða barna-
deilda Landspítalans sé nokkuð
góð, en þó hefur ekki verið tekið
nægilegt tillit til sérþarfa barna á
sjúkrahúsum. Stöðuheimildir hafa
ekki fengist í hlutfalli við vaxandi
þjónustu. Sem dæmi um hversu
þjónustan hefur aukist má nefna,
að þegar heilahimnubólgufaraldur-
inn gekk hérlendis 1976 tókum við
upp sérstaka skyndivakt, þ.e. vakt
læknis og hjúkrunarliðs allan sól-
arhringinn. Hægt var að leita
hingað með börn, sem grunur lék á
um að sýkst hefðu. Þetta gafst
ágætlega og ég tel að þetta hafi
orðið til þess að mörg tilfelli
uppgötvuðust í tíma. Við höfum
haldið þessari vaktþjónustu áfram,
en sökum hemils á stöðuveitingum
höfum við orðið að bæta þessari
vinnu við Jþá sem fyrir eru á
deildinni. Eg tel þjónustu sem
þessa bráðnauðsynlega bæði fyrir
börn og fullorðna. Raunar höfum
við í læknaráði á Landspítalanum
gert fyrir nokkru síðan tillögu um
það til stjórnarnefndar að slík opin
neyðargöngudeild yrði tekin upp
við Landspítalann þar sem hægt
yrði að taka á móti öllum bráðatil-
fellum, öðrum en slysum.
Rekstur barnasjúkrahúsa hefur
tekið miklum breytingum á síðustu
árum. Æskilegt er að sem minnst
röskun verði á daglegu lífi barna,
er þau leggjast inn á sjúkrahús en
til þess þarf ýmiss konar aðstaða
að vera fyrir hendi á sjúkrahúsinu.
Börnin þurfa að hafa stóra og góða
leikaðstöðu úti sem inni. Kennslu-
aðstaða þarf að vera fyrir hendi
fyrir börn á skólaaldri og mikil-
vægt að hægt sé að láta börnin
taka þátt í alls konar föndurstarf-
semi bæði til að dreifa huganum og
beinlínis til að örva sköpunarmátt
sem getur verið stór þáttur í
endurhæfingu.
Eitt er það sem ekki hefur verið
hugsað fyrir, en það er að foreldrar
hafi mun betri aðstöðu til að vera
hjá börnum sínum, jafnvel svefn-
aðstöðu. Það er mikil nauðsyn að
þeir geti verið sem mest hjá
börnum sínum og fársjúk börn og
jafnvel dauðvona eiga ekki að
þurfa að takast á við þjáningar
sínar fjarri ástvinum. Foreldrar
vilja vera hjá sjúkum börnum
sínum og leggja oft mikið á sig í því
sambandi. Sjúkrahúsbyggingar
eiga að vera þannig hannaðar að
þeim sé það unnt.
Ég vildi gjarnan sjá nýjan
barnaspítala rísa hér á Landspít-
alalóðinni og þá helzt í sem nánust-
um tengslum við fæðingardeildina.
Við þurfum mikið að sinna ný-
fæddum börnum, sjúkum eða að
einhverju leyti veikluðum. Slíkur
barnaspítali yrði þá að öllu leyti
hannaður með sérþarfir barna í
huga.“
Þegar rætt er um röðun á
framboðslista sjálfstæðismanna í
Suðurlandskjördæmi þarf að
huga að því sem liðinn tími
geymir. Ingólfur Jónsson hefur
allar götur frá því að Suður-
landskjördæmi varð til sem slíkt
— í kjördæmabreytingunni 1959
— og þar til í kosningum 1978
skipað fyrsta sæti listans. Hann
var óumdeildur oddviti á fram-
boðslistum flokksins. En þegar
hann kaus að draga sig í hlé þótti
okkur Árnesingum, sem byggjum
fjölmennasta hluta kjördæmisins,
að Steinþór Gestsson — með 12
ára þingreynslu að baki — ætti að
skipa fyrsta sætið.
Þegar kjörnefnd sjálfstæð-
ismanna í Suðurlandskjördæmi
kom saman vorið 1978 varð ljóst
að svo yrði ekki. Mynduð höfðu
verið samtök, sem réðu röðun
listans, gegn atkvæðum Árnes-
inga, þann veg, að Steinþór lenti í
þriðja sæti. Arnesingar voru ekki
ánægðir með þessa skipan mála
þó þeir létu kjurt liggja vegna
eindreginna tilmæla Steinþórs
Gestssonar. Aðeins vegna hans
orða sættu menn sig við þessa
valdbeitingu.
Rétt er að íhuga, hvern veg
íbúatala hinna einstöku hluta
Suðurlandskjördæmis er; þegar
skipan listans er skoðuð. I Árnes-
sýslu býr 51% íbúa Suðurlands-
kjördæmis, eða rúmur helmingur
þeirra. í Vestmannaeyjum 24%. í
Rangárvallasýslu 18% og í
V-Skaftafellssýslu 7%. Þrátt
fyrir þessi íbúahlutföll var full-
trúa Árnesinga, Steinþóri Gests-
syni, skipað í 3ja sæti listans
1978. Hæfni hans og þingreynslu,
sem að sjálfsögðu skipti ekki
minna máli, drógu engir í efa.
Er gengið var frá framboðslista
flokksins nú þótti rétt að Steinþór
Gestsson skipaði efsta sæti hans,
bæði vegna hæfni hans og ein-
dreginna óska Árnesinga. Rangæ-
ingar fluttu þó tillögu um
óbreytta röðun á listann frá
framboði 1978. Sú tillaga var
felld. Með þessari tillögu kröfðust
þeir í raun þess að þeirra fulltrúi
fengi fyrsta sætið en Árnesingar
lytu að því þriðja.
Fullyrðing um að Árnesingar
hafi hafnað prófkjöri er röng,
Árnesingar voru fylgjandi próf-
kjöri eftir þeim reglum sem
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
hafði nýlega sett. Rangæingar
vildu ekki þess konar prófkjör.
Þeir fluttu tillögu um prófkjör
eftir sínum einkareglum. Sú til-
laga féll á jöfnum atkvæðum.
Að lokum langar mig til að
spyrja Eggert Haukdal. Er það
ekki aðalsmerki ungra manna að
axla skipan baráttusæta? Á sama
hátt og Ellert Schram brást við í
Reykjavík.
HVER BYÐUR BETUR?
Já, þaö voru margir, sem geröu góö kaup í Glæsibæ
í síöustu viku.
Við höldum nú
áfram tilboði okkar á
10. vinsælustu plötum
verzlunarinnar sem
eru á
10—20%
afslætti.
Við vorum að taka upp nýja
sendingu af hinum
stórkostlegu
p-hljómtækjum.
Verð 8.750
Okkar verð
7 500
jhtmklú
Sendu
og svo er það
rúsínan í
pylsuendanum.
Bæjarins
beztu
kjör
Verð 11.750
Okkar verð
“9.900
HLJÓMDEILD
(IL'ii) KARNABÆR
ymmJr GLÆSIBÆ, SÍMI 81915