Morgunblaðið - 13.12.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979
23
Fjárlagafrumvarp Sighvats:
Segja yrði 22 starfs-
mönnum hjá Landhelg-
isgæzlu upp störfum
TILLÖGUR þær er Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra lagði fram í fjárlagafrumvarpi sínu gera
meðal annars ráð fyrir niðurskurði á starfsemi Landhelgisgæslunnar. Er meðal annars gert ráð fyrir þvi
að einu varðskipanna verði lagt, og að önnur flugvél Gæslunnar verði seld. Að sögn Péturs Sigurðssonar
þýðir þetta að segja verður upp um 22 mönnum, og að þjónusta Landhelgisgæslunnar minnkar stórlega.
Sagði Pétur Gæsluna nú vera með varðskipin óðin, Þór, Ægi og Tý, og Árvakur að auki, en starfrækslu
þess siðast talda mætti hætta með minni afleiðingum. Menn um borð i hverju hinna stóru varðskipa sagði
hann vera 22 talsins, en ekki yrði unnt að segja upp starfsfólki i landi þótt einu skipanna yrði lagt. Sala
annarrar flugvélarinnar yrði ekki til þess að segja mætti upp starfsmönnum.
Þessar aðgerðir yrðu hins vegar
til þess að mun sjaldnar yrði hægt
að fljúga vél Gæslunnar, og mun
minni líkur yrðu til að fljúga
mætti án mikils fyrirvara. Við-
hald flugvéla væri mjög mikið, og
væri yfirleitt unnið að viðhaldi og
viðgerð á annarri flugvélinni í
einu, meðan hin væri í notkun.
Sala eins varðskipsins yrði til
þess að þjónusta og eftirlitshlut-
verk þeirra yrði skorið niður, og
væri það einkum bagalegt á vetr-
um er venja væri að haga því svo
að eitt skipa væri við Vestfirði og
annað fyrir Austfjörðum.
I samtali við blaðamenn Morg-
unblaðsins í gær sagði Pétur
Sigurðsson að ekki hefði enn verið
ákveðið hvernig við þessu yrði
brugðist, og ekki hefðu verið send
nein mótmæli eða greinargerð um
málið, enda væri það mikil óvissa í
landsmálum um þessar mundir að
önnur staða gæti verið komin upp
áður en langt um liði.
Mótmælendafundur flugmanna í Evrópu:
Fljúga ekki vélunum
nema flugmenn séu 3
MILLI 5 og 6 hundruð flugmenn komu sl. þriðjudag saman til fundar í Frankfurt til að fjalla um andmæli
við þeirri fyrirætlan flugvélaframleiðenda og flugfélaga að framvegis fljúgi 2 flugmenn í stað 3 vélum af
gerðunum t.d. Airbus og Boeing 757. Björn Guðmundsson og Ámundi H. ólafsson sóttu þennan fund af
hálfu Félags. isl. atvinnuflugmanna, en hann héldu samtökin Europilot, sem er flugmannafélag i
alþjóðasamtökum flugmanna
Björn Guðmundsson sagði í
samtali við Mbl., að á fundinum
hefði ríkt algjör eining um að
mótmæla þeim ásetningi flugvéla-
framleiðenda og flugfélaga að
nota í flugvélum af gerðunum
Airbus 300 og Boeing 757 2
flugmenn. Flestar þotur eru gerð-
ar þannig að tveir flugmenn sitja
fremst við stjórntæki vélarinnar
og fyrir aftan þá er komið fyrir
stjórntækjum og mælaborði fyrir
flugvélstjóra. Sagði Björn, að
fyrirhugað væri að spara flugvél-
stjórann og flytja tæki hans
framar í stjórnklefann þannig að
flugmennirnir sjálfir önnuðust
þau. Telja flugmenn þetta ógnun
við öryggi flugvéla og farþega og
vart gerlegt að bæta verkefnum
við flugmenn, enda hefur það
margoft sýnt sig, að þriðji maður-
inn er ekki síður nauðsynlegur en
hinir tveir og töldu menn á
ráðstefnunni ekki skipta höfuð-
máli hvort hann væri flugmaður
eða flugvélstjóri. Airbus-vélarnar
eru ýmist hannaðar fyrir 2 flug-
menn eða 3 og hafa sum flugfélög
í hyggju að taka þær í notkun með
2 flugmönnum og var því algjör-
lega mótmælt á fundinum. Sviss-
air er t.d. eitt þessara félaga, en
SAS hefur ákveðið að taka vélar
gerðar fyrir 3 menn. Við flugmenn
teljum vafasaman sparnað að því
að hafa 2 menn í stjórnklefanum,
enda eru flugmenn ekki það hár
kostnaðarliður í rekstri flugvélar,
sagði Björn Guðmundsson. Þá
'sagði Björn, að reyndar mætti
telja það furðulegt að flugvéla-
hönnuðir skyldu ekki taka meira
tillit en gert er til óska flugmanna
og ekki leita til þeirra eftir
ráðleggingum varðandi staðsetn-
ingu tækja og fleira í sambandi
við flugvélasmíði, þar sem flug-
menn væru þeir menn er vissu
mest um þau atriði.
„Þú og ég“ í Hollywood
SÖNGDÚETTINN „Þú og ég“, flutt á skemmtistöðum borgar-
eða Ilelga Möller og Jóhann innar næstu vikurnar.
Helgason, kemur íram í Holly- „Þú og ég“ gáfu nýverið út
wood í kvöld ásamt fjögurra hljómplötu, „Ljúfa líf“ og hefur
manna dansflokki. hún selst í meira en 5000 eintök-
Allur undirleikur hljómsveitar um. „Þú og ég“ fá þar afhenta
verður af segulbandi en kynnir gullplötu frá hljómplötufyrirtæk-
verður Þorgeir Ástvaldsson. inu, Steinari h.f., í Hollywood í
Skemmtidagskrá þessi verður kvöld.
„Síðasta bað-
stofan“ og
„Margslung-
ið mannlíf“
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur gefið út tvær nýjar bækur,
„Síðasta baðstofan“ eftir Oddnýju
Guðmundsdóttur og „Margslung-
ið mannlíf" sjálfsævisaga Frið-
riks Hallgrimssonar.
Fyrrnefnda bókin er skáldsaga,
tileinkuð æskuminningum höfund-
ar, og skiptist í 30 kafla. Fyrri
hluti bókarinnar kom út 1943, en
síðari hlutinn er saminn 1979. Bók
þessi er sveitalífssaga. Hún er 209
bls. að stærð.
Sjálfsævisaga Friðriks Hall-
grímssonar skiptist í 28 kafla.
Aftast er niðjatal, kaflinn að
leiðarlokum og skrá yfir þá, sem
við söguna koma. Bókin er 202 bls.
að stærð. Káputeikningu gerði
Guðbrandur Magnússon.
Friðrik Hallgrímsson er frá
Úlfsstaðakoti í Blönduhlíð í Skaga-
firði. Hann fæddist í lítilli bað-
stofukytru að Úlfsstaðakoti 1895
og er því kominn á níræðisaldur,
þegar hann skráir ævisögu sína, og
hefur eignast 80 afkomendur.
Hann hefur stundað búskap.
nroutgóðír
árounastund
11. bindi björgunar- og sjóslysasögu
íslands árin 1907 — 1910
Steinar J. Lúövíksson skráði
Hér er rakinn tími hinna opnu róöraskipa,
vélbátar voru þó aö koma til sögunnar og
skúturnar gegndu enn þýðingarmiklu hlut-
verki.
Einn stærsti og merkasti bókaflokkur
landsins.
ÖRN&ÖR1YGUR VE5TURCÖTU 42, SIMI 25722
Forn
frœgðor-
setur
séra Ágúst Sigurösson skráöi
Hér er rakin byggöarsaga Valþjófsstaöar í
Fljótsdal, Snæfjalla á Snæfjallaströnd,
Glaumbæjar á Langholti, Glæsibæjar viö
Eyjafjörö og Víöihóls á Fjöllum.
Bókin er sjór af fróðleik úr þjóöarsögunni.
Fjöldi teikninga og mynda prýöa bókina.
ÖRN&ÖRLYGUR VESTURGÖTU 42, SÍMi 25722