Morgunblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979
+ LILJA MATTHÍASDÓTTIR, Furugeröi 1 lést í Landspítalanum miövikudaginn 12. þessa mánaöar. Jónína Pétursdóttir, stjúpbörn og systkini hinnar lótnu.
+ Eiginkona mín, móöir og stjúpmóðir HELGA GUÐNADÓTTIR andaöist í Landspítalanum að morgni 11. desember. Marteinn Jónasson, Jóhanna Halldóra Marteinsdóttir, Hafdís Magnúsdóttir, Elín Guönadóttir, Agla Marta Marteinsdóttir.
Eiginkona mín, GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR, Grensósvegi 60 er lést hinn 4. þ.m. á sjúkrahúsi í London, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. þ.m. kl. 3.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd og aðrar líknarstofnanir. Fyrir hönd barna, tengdabarna og systkina hinnar látnu Kristjón G. Magnússon.
+ Eiginmaöur minn, MAGNÚS JONSSON, leikstjóri sem lézt í Carbondale í Bandaríkjunum 2. þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 14. desember kl. 13.30. Renata Kristjónsdóttir, börn og vandamenn.
+ Konan mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, ANNA EINARSDÓTTIR, Eikjuvogi 1 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 14. desember kl. 13.30 e.h. Fyrir hönd vandamanna, Kristinn Friöriksson.
+ Útför frænku minnar SIGRÚNAR DANÍELSDÓTTUR HAWKINS Hótúni 10a, Reykjavík fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. desember kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Róbert Dan Jensson
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu GUÐRÚNARÓLAFSDÓTTUR, Álftamýri 48 Valdís Guðmundsdóttir, Snorri Pétursson. Sæmundur Vigfússon og barnabörn.
+ Þakka af alhug samúö og vináttu sýnda viö fráfall og útför föðurbróöur míns JÓNASARJÓNASSONAR, Óöinsgötu 20a Anna Sigurjónsdóttir.
t
Þökkum innilega þá samúö og hlýhug er okkur var veitt viö andlát
og útför
KRISTJONU SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Langholtsvegi 156
Ólafur Betúelsson,
Kristján Ólafsson, Kolbrún Óöinsdóttsr
og dætur.
Inga Kristfinns-
dóttir Minningarorð
Fædd 30. júlí 1915.
Dáin 6. desember 1979.
Inga Kristfinnsdóttir, hús-
freyja, andaðist á Landspítalanum
þann 6. þ.m. eftir þrálát veikindi.
Ég hlýt að kveðja mágkonu mína
nokkrum orðum að leiðarlokum.
Inga fæddist að Kvíabryggju í
Eyrarsveit 30. júlí 1915, dóttir
hjónanna Ingveldar Ólafsdóttur
og Kristfinns Þorsteinssonar, sem
sjómennsku stundaði. Inga missti
föður sinn ung að árum, en hann
drukknaði við störf sín þann 6.
nóv. 1916, en rétt fyrir fráfall hans
eða þann 2. sept. 1916 hafði Inga
eignazt systur, Kristfinnu, en hún
lézt 2. des. 1937. Fyrstu árin eftir
fráfall föður Ingu bjuggu mæðg-
urnar áfram að Kvíabryggju hjá
afa hennar og ömmu eða þar til
þær fluttust til Stykkishólms. Á
unglingsárum sínum fluttist Inga
til Reykjavíkur til móðurbróður
síns, Kristjóns Ólafssonar, og
konu hans, Magðalenu Guðjóns-
dóttur, sem í hvívetna reyndust
henni sem beztu foreldrar enda
veit ég af raun, að hún virti þau
hjónin og bar hlýhug til þeirra
sem foreldra.
Á heimili Magðalenu og Kríst-
jóns bar fyrst saman fundum Ingu
og eftirlifandi eiginmanns hennar,
Björgvins Þorbjörnssonar, nú að-
albókara hjá Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar, sem er mörg-
um Reykvíkingum og landsmönn-
um kunnur frá fjögurra áratuga
starfi sínu í Haraldarbúð og hjá
Heilverzlun Har. Árnasonar hér í
Reykjavík.
Inga og Björgvin gengu í hjóna-
band 15. maí 1937 og varð þeim
þriggja barna auðið. Frumburð-
inn, sem fæddist 1. ágúst 1938 og
var gefið nafnið Björn, misstu þau
8. marz 1939. Seinni sonur þeirra,
sem einnig var gefið nafnið Björn,
er fæddur 8. jan. 1943 og býr hann
í foreldrahúsum. Þann 24. nóv.
1946 eignuðust þau dóttur, Guð-
björgu Kristrúnu, sem gift er
Sigurði Runólfssyni, framreiðslu-
manni, og eiga þau hjónin tvö
börn, Björgvin og Sigríði Maríu.
Ingu verður ávallt minnzt sem
göfugrar, háttprúðrar og glað-
værrar konu. Heimili þeirra hjóna
var rómað fyrir gestrisni og átti
Inga sannarlega sinn stóra þátt í
því. Hjálpfýsi hennar og velvild til
allra, jafnt venzlafólks sem vina
og ókunnra, var mörgum kunn.
Með óbilandi kjarki og styrk
studdi hún mann sinn með ráðum
og dáð við hans óeigingjörnu störf
í þágu skátahreýfingarinnar og
síðar Oddfellowreglunnar hér á
landi.
Á heimili þeirra hjóna var
ávallt ánægjulegt að koma, ekki
eingöngu vegna gestrisni þeirra og
vináttu heldur og til að kynnast
ánægjulegu og hamingjusömu
heimilislífi, þar sem ástríki og
glaðværð var í hávegum höfð.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við hjónin, synir okkar og
fjölskyldur þeirra, þakka Ingu
fyrir alla vinsemd hennar, styrk
og stoð. Við öll sendum eftirlifandi
manni hennar, aldraðri móður,
börnum, tengdasyni og barna-
börnum, okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Minningin um Ingu er björt og
flekklaus eins og hún var sjálf.
Sigurbjörn Þorbjörnsson
FYRIR skömmu kom út
ný hljómplata þar sem dr.
Róbert A. Ottósson stjórn-
ar nokkrum þáttum úr
þýzkri sálumessu eftir Jó-
hannes Brahms og þáttum
úr Messías eftir Hándel,
sem sungið er á íslenzku.
Flytjeitdur eru Söngsveit-
in Fílharmónía og Sinfón-
íuhljómsveit íslands,
ásamt einsöngvurunum
Guðmundi Jónssyni og
Hönnu Bjarnadóttur.
Sálumessa Brahms var
hljóðrituð á tónleikum
1966, en Messías í desember
1973 og var það í síðasta
skipti, er dr. Róbert stóð á
hljómsveita.rpalli og
stjórnaði Sinfóníuhljóm-
sveitinni og Söngsveitinni,
en hann lézt í marz 1974.
Hljómplatan er gefin út
af Söngsveitinni Fílharm-
óníu í minningu dr. Róberts
og ritar Jón Þórarinsson
grein um hann og störf
hans í þágu íslenzkrar tón-
menningar, er greinin
prentuð á plötuumslagið.
Sinfóníuhljómsveit íslands,
einsöngvarar og aðrir er
hlut áttu að máli gáfu leyfi
sitt til plötuútgáfunnar, en
allur ágóði, sem kann að
verða af sölu hennar, mun
verða varið til minningar
um dr. Róbert.
Söngsveitin Fílharmónía
hóf sitt tuttugasta starfsár
nú í ár, verður afmælisins
minnst með hátíðartónleik-
um 24. apríl, nú í vor, en þá
verður flutt sálumessa
Brahms. Á umliðnum tutt-
ugu árum hefur Söngsveit-
in í samstarfi við Sinfóníu-
hljómsveit íslands tekið
þátt í flutningi á flestum
öndvegisverkum tónmennt-
anna, sem og til var stofnað
í upphafi. Stjórnandi
Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu nú er Marteinn H.
Friðriksson, formaður
hennar er Guðmundur Örn
Ragnarsson.
+
Alúöar þakkir faBrum viö þeim fjölmörgu er sýndu okkur samúö og
vinarhug við andlát og jarðarför
GUDJONS KLEMENSSONAR,
Veaturbraut 7,
Keflavík
Sigrún Kristjónsdóttir,
Þórhallur Guójónsson, Steinunn Þórleifsdóttir,
Jóhanna Guðjónsdóttir, Hafsteinn Guómundsson,
Kristjón K. Guöjónsson, Ingibjörg Siguröardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað eftir hádegi
á föstudag
vegna jaröarfarar
ÖNNU EINARSDÓTTUR.
Daníel Ólafsson h.f.,
Vatnagördum 26.
Stjórnandi söngsveitarinnar Filharmóniu er nú Marteinn H. Frið-
riksson.
Söngsveitin Fíl-
harmónía gefur
út hljómplötu