Morgunblaðið - 23.01.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANUAR 1980
31
Fer karlalandsliðið
í handknattleik til
Kína í ágúst?
-tel á því nokkrar líkur segir
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ
EKKI er enn loku fyrir það
skotið, að íslenska karlalandslið-
ið í handknattleik fari í keppnis-
ferð til Kína á yfirstandandi ári.
Ef af ferðinni yrði myndi lands-
liðið fara utan í ágústmánuði.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Mbl. barst ÍSÍ boð um að senda
40 manna keppnisflokk til Kína,
karla- og kvennalið í handknatt-
leik. Kínverjar buðu allt uppi-
hald svo og ferðir innan Kína en
sjálft ferðalagið þurfti ÍSÍ og HSí
að greiða. Ferð sem þessi er
gífurlega kostnaðarsöm og
myndi kosta um 25 milljónir
króna fyrir allan hópinn.
í stuttu spjalli við Mbl. í gær
sagði forseti ÍSÍ, Gísli Halldórs-
son, að verið væri að vinna að
þessum málum. Ef ferðin yrði
farin myndi um 20 manna hópur
fara út og yrði þar um karlalands-
liðið að ræða. Slík ferð væri afar
kostnaðarsöm og myndi kostnað-
urinn við svona ferð vera um 12
milljónir króna fyrir 20 manna
hóp. „Ég tel nokkrar líkur á að
þessi ferð verði farin í ágústmán-
uði,“ sagði Gísli en þetta mál mun
væntanlega skýrast á næstu vik-
um.
Kínverjar hafa í nokkur skipti
sótt okkur heim. Hingað hafa
komið borðtennisspilarar, og fim-
leikaflokkur svo nokkuð sé nefnt.
Það yrði því til þess að styrkja
samband Kína og íslands á
íþróttasviðinu og menningarlega
ef ferð þessi yrði farin. Væntan-
lega mun íslenska ríkisstjórnin
reyna að hlaupa undir bagga með
ISI og styrkja þessa sérstöku
keppnisferð svo að af henni geti
orðið.
Verði af ferðinni er þetta
lengsta ferð sem íslenskur íþrótta-
hópur hefur farið í.
- Þr.
• Kristján Arason. hinn hávaxni
og nautsterki leikmaður FH er
nú markhæsti leikmaðurinn í 1.
deild, hefur skorað 41 mark.
Kristján lék með hinu sigursæla
unglingalandsliði i Danmörku
undir lok síðasta árs og á vafa-
laust möguleika á því að spila sig
inn í landsliðshópinn sem hugs-
anlega fer til Kína í ágúst.
HandknattieiKur
V...........-...... J
Fékk 1,5 milljón
ÞÁ hefur vetur konungur haldið
innreið sína á Bretlandseyjum
með tilheyrandi frestunum knatt-
spyrnuleikja. Alls var 16 leikjum
frestað í ensku deildakeppninni á
laugardag og þar af voru 4
leikjanna á getraunaseðlinum.
Þegar Axel Einarsson hafði beitt
teningnum leit röðin þannig út:
122 - 112 - 212 - 112.
Þessi röð kom fram á 2 seðlum,
og var vinningur fyrir hvora röð
kr. 1.184.500 - og með 11 rétta var
21 röð og vinningur fyrir hverja
kr. 48.300- Annar hinna heppnu
er frá Siglufirði, en þar sem hann
var með 36 raða kerfisseðil, var
hann auk raðarinnar með 12 rétta,
einnig með 11 rétta í 6 röðum og
vinningur fyrir seðilinn því tæp-
lega 1.5 millj. kr.
N.k. laugardag fer fram 4.
umferð ensku bikarkeppninnar og
á seðlinum nr. 22 eru allir leikirn-
ir úr þeirri keppni. Vakin er
athygli á, að strika skal út nöfn
tveggja liða, Portsmouth og Chel-
sea, sem bæði hafa fallið út eftir
að seðillinn fór í prentun. Birm-
ingham fær því Middlesboro í
heimsókn og Everton fær Wigan í
heimsókn. Wigan hefur verið
þekktari bær fyrir frækið rugby-
lið en knattspyrnuliðið, en eftir
sigurinn yfir Chelsea má gera ráð
fyrir hverju sem er á Goodison
Park í Liverpool á laugardaginn,
sérstaklega þegar þess er gætt, að
borgin Wigan er ekki nema
steinsnar frá Liverpool.
Frá riðlakeppninni. Gísli Eyjólfsson hefir skorað fyrir Tréborg.
Keflavíkurverktakar
unnu firmakeppni Víðis
Garði 21. janúar.
SL. SUNNUDAG lauk í Iþrótta-
húsinu í Njarðvíkum innanhúss-
knattspyrnumóti sem knatt-
spyrnufélagið Víðir í Garði stóð
fyrir. Þátttaka var mjög góð en
alls tóku 24 firmu þátt í keppn-
inni og voru nokkur þeirra frá
Reykjavík.
Leikið var í riðlum og til úrslita
kepptu Keflavíkurverktakar og
Tréborg úr Garði. Keflavíkurverk-
takar unnu leikinn 6—4 eftir að
hafa komist í 6—1 í upphafi síðari
hálfleiks. Nokkrir núverandi og
fyrrverandi leikmenn í Kefla-
víkurliðinu léku með sigurliðinu.
Má þar nefna Grétar Magnússon,
Marka-Jón og Þórð Karlsson.
Mótið fór í alla staði vel fram þó
gætti nokkurs misræmis í út-
færslu reglna hjá dómurunum.
Arnór.
Getrauna- spá M.B.L O O CQ s s 3 öt u. o 5 Sunday Mlrror Sunday People Sunday Express News of the worid Sunday Telexraph SAWTALS
Arsenal — Brighton 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Birm'm — Portsm./Mid'bro 1 1 1- 1 1 1 6 0 0
Bolton — Halifax X 1 X 1 2 X 2 3 1
Bristol City — Ipswich 2 2 1 2 1 1 3 0 3
Cambridge — Aston Villa X 2 2 2 2 2 0 1 5
Carlisie — Wrexham X 1 2 X 1 1 3 2 1
Chester — Millwall X 1 2 2 1 1 3 1 2
Everton — Chelsea/Wigan 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Nott'm Forest — Liverpool 2 X 1 1 2 2 2 1 3
Orient — West Ham X 1 1 2 2 2 2 1 3
Swindon — Tottenham 1 1 2 2 2 2 2 0 4
Wolves — Norwich 1 1 X X 1 2 3 2 1
Ósigur Ármanns
gegn Grindavík
ÁRMANN tapaði sínum fyrsta
leik i 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik er liðið sótti
STAÐAN
Staðan í
i.deild í körfu
Ármann
ÍBK
Grindavik.
Þór
Borgarnes
Tindastóll
6 5 1 10
7 5 2 10
7 4 3 8
4 2 2 4
5 14 2
5 0 5 0
Grindvíkinga suður í Njarðvík.
Grindvíkingar sigruðu 118—117
cftir framlengdan leik. Banda-
ríkjamennirnir í liðunum tveim-
ur, Danny Shouse og Mark Holm-
es settu mjög mörk sín á leikinn.
Danny skoraði 76 stig fyrir
Ármann og Mark 67 stig fyrir
Grindvíkinga.
Að loknum venjulegum leiktíma
í viðureign liðanna var staðan
jöfn, 103—103. Grindvíkingar
höfðu þá unnið upp gott forskot
Ármanns. Þegar hálf önnur
mínúta var til leiksloka höfðu
Ármenningar sjö stiga forustu,
101—94. Grindvíkingar með Mark
í broddi fylkingar neituðu að
leggja árar í bát og þeir náðu að
minnka muninn í fjögur stig,
101—97, og þá var ein mínúta
eftir. Ármenningar náðu að skora
en góður endasprettur Grindvík-
inga tryggði þeim framlengingu
og í henni vannst dýrmætur sigur.
Þrátt fyrir ósigur hafa Ármenn-
ingar tapað fæstum stigum í 1.
deild — tveimur, en Þór og
Keflavík hafa tapað fjórum stig-
um. Grindvíkingar eru til alls
líklegir en þeir hafa tapað sex
stigum.
Dómarar í leiknum voru þeir
Kristbjörn Albertsson og Björn
Ólafsson.
Bayern
sfeinlá
BAYERN Munchen hefur
mætt einhverju kynlegu and-
streymi að undanförnu. Eftir
að hafa tapað óvænt fyrir
Bayeruth úr 2. deiid í bikar-
keppninni, heimsótti liðið
Bayer Leverkusen í deildar-
keppninni og tapaði enn
óvænt. Vetrarkuldar miklir
hafa geisað í Þýskalandi að
undanförnu og kann það að
vera skýringin á hve sterku
liði Bayern hafa verið mis-
lagðar hendur að undan-
förnu. Leverkusen sigraði
1—0. Hamburger, sem einnig
var slegið óvænt út úr bik-,
arkeppninni, lét það hins
vegar ekkert á sig fá. Liðið
hélt sínu striki í deildakeppn-
inni og sigraði Bochum 3—1.
Endurheimti HSV þar með
efsta sætið, en Bayern hrifs-
aði það sæti hins vegar til sín
fyrir nokkru. Önnur úrslit í
Þýskalandi urðu sem hér
segir:
1860 Munch.—1 FC Köln 1-1
Schalke 04—B.Mönch.gl. 1—0
Dusseld.—Kaiserslaut. 6—1
Dortmund—Frankfurt 0—1
Stuttgart—Duisburg 2—0
Uerdr.—Werder Brem. 2—0
Hamburger hefur nú hlotið
25 stig, en Bayern einu stigi
minna. Köln hefur nú skotist
í þriðja sætið með 23 stig og
þvi til alls líklegt. Þrjú lið
hafa hlotið 22 stig, Frank-
furt, Dortmund og Schalke
04.
, ........
Áhorfendur í
færra lagi!
í BRASILÍU var mikið magn-
aður upp og auglýstur undan-
úrslitaleikur í deildarkeppn-
inni milii America og Mixto
de Cuiaba. Fór leikurinn
fram á Marcana-leikvangin-
um, risavelli sem tekur um
200.000 áhori'endur, eða tæp-
lega alla Islendinga. Síðan
gerðist það, að aðeins um
1200 manns mættu! Mátti
næstum heyra saumnál detta
og bergmál að auki.
Zico til
Valencia?
SPÆNSKA félagið Valencia
hefur hug á að tryggja sér
brasiliska knattspyrnusnill-
inginn og kvikmyndastjörn-
una Zico. Á hann að koma í
stað Reiner Bonhof sem
hyggur á heimferð i lok
keppnistimabilsins, liklega
til Hamburger SV. Zico er af
mörgum talinn einn snjall-
asti knattspyrnumaður Suð-
ur Ameriku.
♦ ------
Suöurnesjamót
í knattspyrnu
SUÐURNESJAMÓT i öllum
flokkum innanhússknatt-
spyrnu íer fram í Njarðvík á
laugardaginn og hefst það
klukkan 11.30. Þaú lið sem
þarna keppa eru Njarðvik,
Sandgerði. Víðir og Grinda-
vík. en síðast nefnda liðið
hefur borið hitann og þung-
ann af undirbúningnum að
þessu sinni.
4'
I.