Morgunblaðið - 27.01.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1980
3
Allir farseðlar
á lægsta verði.
Hvert sem ferðinni
er heitið.
Austurstræti 17
II. hæð.
Sími 26611
Feröaskrifstofan
Ekki marktækur mun-
ur á dreyfingu vinninga
HHÍ kannar tölvudrátt samanborið við eldri aðferð
Happdrœtti Háskóla íslands hefur
á undanförnum árum látiö kanna
dreifingu vinninga á happdrætt-
ismiða, eftir að tekinn var upp sá
háttur að talva annist útdrátt
vinninga árið 1977 og bera saman
dreifingu vinninga við eldri vinn-
ingaskrár þegar vinningar voru
dregnir út með handafli.
Öðru hverju hafa komið fram þær
raddir hjá handhöfum happdrætt-
ismiða að þeim hafi fundist vinn-
ingar hafa farið framhjá þeim eftir
að tölvudrátturinn var tekinn upp og
segja forráðamenn happdrættisins
að bæði sjónarmið hafi komið upp,
Ágætlega mannað
Reykjavíkurmót
SKÁKSAMBAND íslands
hefur nú boðið bandaríska
stórmeistaranum Robert
Byrne þátttöku á Reykja-
víkurmótinu í lok næsta mán-
aðar. Einnig hefur alþjóðlega
meistaranum Knud Helmers
frá Noregi verið boðin þátt-
taka. Verið er að athuga með
þátttöku stórmeistaranna
Torres frá Filippseyjum og
Miles frá Englandi, en báðir
hafa þeir lýst áhuga á að tefla
á mótinu, og svo gæti farið að
báðir yrðu þeir meðal þátt-
takenda.
Þess má geta að Byrne er
skákritstjóri New York Tim-
es og ætti mótið því að fá
verðuga umf jöllun í því stóra
blaði. Þá má einnig nefna, að
Miles gerði sér lítið fyrir og
lagði Karpov heimsmeistara
að velli í Evrópukeppni lands-
liða í vikunni.
Tékkneski stórmeistarinn Hort
veiktist í vikunni og varð að hætta
við þátttöku í mótinu af þeim
sökum. Ólíklegt er að Friðrik
Ólafsson verði meðal þátttakenda,
en eigi að síður verður mótið vel
mannað, en það stendur frá 23.
febrúar til 10. marz. Eftirtaldir
skákmenn taka þátt í mótinu:
Brown og Byrne frá Bandaríkjun-
um, Sosonko frá Hollandi, Vasju-
kov og Tsechowski frá Rússlandi,
Schússler frá Svíþjóð, Helmers frá
Noregi, Guðmundur Sigurjónsson,
Helgi Ólafsson, Margeir Péturs-
son, Jón L. Árnason og Haukur
Furðuljósin
reyndust vera
á þotu Varn-
arliðsins
FURÐULJÓSIN, sem sáust á
himni yfir Reykjavík í fyrri-
nótt, reyndust vera ljós á
þotu á leið inn til lendingar á
Keflavíkurflugvelli, að því er
Hjálmar Arnórsson flugum-
ferðarstjóri á Reykjavíkur-
flugvelli sagði er Morgun-
blaðið leitaði til hans í gær.
Sagði hann að vegna nýrra
tækja og breyttrar vinnutil-
högunar á Reykjavíkurflug-
velli færu flugvélar hér um án
þess að hafa samband við
Reykjavíkurflugvöll. Flugvél-
in var af gerðinni Boeing 707,
E — 3, frá Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Hljóðin,
sem sumir töldu sig heyra frá
þotunni, heyrast er vélin dreg-
ur úr hraða sínum og lækkar
flugið fyrir lendingu.
Angantýsson, Torres og/eða Miles
og einu sæti er ekki ráðstafað.
Mótið verður í 10. styrkleika-
flokki, þ.e. meðalstig keppenda
verður á bilinu frá 2475 stig —
2450 stig.
menn hafi ýmist sagst vinna meira
eftir þetta eða minna. Jóhannes
Helgason framkvæmdastjóri H.H.Í.
sagði í samtali við Mbl. að í hverjum
drætti væri tölvan látin kanna
dreifingu vinningsnúmera og væri
sú könnun byggð inn í forrit hennar,
en nú nýlega hefði farið fram
ítarlegasta könnun á þessu atriði til
þessa. Fékk happdrættið stærð-
fræðidoktor til aö annast könnunina
og bar hann saman vinningaskrár
áranna 1977—1979 við vinningaskrá
árins 1975, en þá hafði tölvuútdrátt-
urinn ekki verið tekinn upp. Sagði
Jóhannes að ekki hefði komið í ljós
neinn marktækur munur á dreifingu
vinningsnúmera þessi ár og vinn-
ingar virtUst dreifast jafn tilviljana-
kennt og með eldri aðferðinni.
Jóhannes Helgason sagði að niður-
stöður könnunarinnar lægju nú fyrir
og hefði hann fengið þriggja síðna
skýrslu um hana og myndi hún verða
skoðuð nánar og niðurstöðurnar
kynntar í framhaldi af því.
Snjósleðinn og göngubrautarflöggin við Skiðaskálann í Hvera-
dölum.
Snjósleði í Hveradölum
REYKJAVÍKURBORG hefur
nýlega fest kaup á snjósleða sem
ætlaður er til nota við Skíðaskál-
ann í Hveradölum, að því er
segir í frétt frá Skíðafélagi
Reykjavíkur.
I fréttinni segir að sleðinn
muni vafalaust koma sér vel þar
efra við að aðstoða fólk sem
lendir í óhöppum á skíðaslóðum
og eins má nú leggja góðar
göngubrautir með sleðanum.
Þá hefur ferðaskrifstofan Úr-
val gefið vönduð flögg til merk-
ingar á göngubrautum, og mun
þetta hvort tveggja verða til að
auðvelda skíðafólki að iðka íþrótt
sína segir í fréttinni.
Farseðbþjónusta
Útsýnar er löngu
* landsþekht
UuKKa tY'9irá
rcGöU»nultl
larseo
Skíöaferöir fyrir hopa og ein-
staklinga til allra vinsælustu
skíöastaöa meö bestu kjörum.
Feröá
eigin vegum:
— Farseðlar með
fiugvélum,
skipum,
járnbrautum og
áætlunarbifreiðum
Hótel pantanir.
Utvegum:
— Aðgöngumiða
í leikhús,
a tonleika og
hvers kyns
skemmtanir.
Viöskiptaferö:
— Upplýsingar um allar helstu
vörusýningar austan hafs og vest-
an.