Morgunblaðið - 12.02.1980, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
] Mbl. ræðir við 0 / / / / / / / / // // // // // // // // // // //// lympíukeppendur
1 íslands á vetrarleikunum í
| Lake Placid Bam daríkjunum 1980
„Er ekki eins og
hvert annað mót“
— segir Steinunn Sæmundsdóttir
Stcinunn Sæmundsdóttir er
eini kvenmaóurinn sem keppir
fyrir íslands hónd á vetrarleik-
unum í Lake Placid, en hún hefur
um árabil borið höfuð og herðar
yfir hclstu keppinauta sina bæði í
svisi ok stórsvigi. Mbl spurði
Steinunni skömmu fyrir brottför-
ina til Lake Placid, hvort hún
tapaði aldrei. Steinunn bara
brosti ok «af ekkert út á það.
Hitt er svo annað mál. að hún er
slíkt stórveldi á skíðum hérlend-
is, að tiðindum sætir ef hún tapar
keppni.
Þó er Steinunn enn mjög ung að
árum, aðeins 19 ára gömul. 01-
ympíuleikar fara fram sem kunn-
/ ugt er á fjögurra ára fresti og
þegar þeir fóru síðast fram skar-
aði Steinunn þá þegar svo fram úr
hér á landi, að hún var valin í
íslenska liðið. Hún náði þar ein-
hverjum besta árangri sem íslend-
ingur getur státað af, komst í
fremstu röð, aðeins 15 ára. Hún
fór fyrst afskíði 9 ára gömul og
keppti í fyrsta skipti tveimur
árum síðar. Hefur ferill hennar til
þessa verið samfelld sigurganga
og hefur hún unnið alla flokka.
Mbl spurði Steinunni hvort
framfarir hennar hefðu verið
slíkar að hún reiknaði með svipuð-
um árangri eða betri í Lake
Placid. „Ég er kannski betri í dag
en þá, en engin ástæða er að
reikna með öðru en að keppinaut-
arnir séu einnig miklu betri í dag.
Sannast sagna get ég ekki gert
mér í hugarlund hvar ég stend
gagnvart þessu fólki“ svaraði
Steinunn.
Stefnir þú á eitthvað ákveðið
mark á þessum Olympíuleikum?
„Ekki nema það að gera mitt
besta, því eins og ég segi veit ég
lítið um mótherja mína, 6g ætla
bara að gera mitt besta“.
Að lokum spurði Mbl. Steinunni
hvernig það legðist í hana að vera
að fara á Olympíuleika í annað
skiptið á ævinni.
„Það leggst mjög vel í mig, þetta
er ekki eins og hvert annað mót,
þetta er af allt öðru sauðahúsi,
ekki hægt að líkja við önnur mót“
voru lokaorð Steinunnar Sæ-
mundsdóttur, fremstu skíðakonu
landsins.
- KK-
Ingólfur Jónsson Skíðafélagi Reykjavíkur.
Ljósm. Guðjón B.
Skíðadrottningin Steinunn Sæmundsdóttir á fullri ferð í brautinni.
„Verkfallið kom mér
af stað aftur“
rætt við Ingólf Jónsson
EINN þriggja keppenda íslands í göngu á Ólympíuleik-
unum í Lake Placid er Ingólfur Jónsson sem keppir
fyrir Skíðafélag Reykjavíkur, en er fæddur og uppalinn
á Siglufirði. Við báðum Ingólf að segja okkur frá
aðdragandanum að því að hann fór að æfa göngu, og
hversu lengi hann hefði æft hana.
— Ég er íæddur árið 1952 á Siglufirði, og eins og
aliflestir drengir á staðnum kynntist ég skíðaíþróttinni
snemma. Ég var fyrst til að byrja með í alpagreinunum
svigi og stórsvigi en hóf að æfa gönguna 12 ára gamall.
Ég æfði og keppti allt fram til ársins 1970, en þá fluttist
ég til Reykjavíkur frá Siglufirði og snerti ekki skíði í 6
ár.
— Ég æfði hins vegar badminton
af miklum krafti og hafði gaman
af. Það sem kom mér á bragðið
aftur var að árið 1976 lenti ég í
verkfalli. Ég vissi ekki hvað ég
átti við tímann að gera og tók þá
fram skíðin og hóf að æfa gönguna
að nýju.
Þá kom skíðabakterían aftur og
hefur haldist síðan. Mér finnst
hins vegar vera lítill áhugi á
norrænum greinum hér fyrir
sunnan. í Bláfjöllum er til dæmis
upplýst braut fyrir alpagreinar en
engin fyrir göngufólkl Þessum
tveim greinum er ekki gert jafn
hátt undir höfði.
— Það kom mér ekki á óvart að
vera valinn á Ólympíuleikana, ég
átti von á því. Það verður að
sjálfsögðu toppurinn á ferlinum
að taka þátt í þeim. Ég hef ásamt
hinum göngumönnunum undir-
búið mig af mikilli kostgæfni fyrir
leikana, með því að stunda æf-
ingar í Svíþjóð. Við fórum fyrst út
12. nóv. í haust og æfðum til 16.
des. Og svo frá 3. jan. til 29. jan.
Æft var daglega og stundum
tvívegis. Þá tókum við þátt í
fjölmörgum keppnum.
Ég mun taka þátt í 15, 30 og 50
km göngu á leikunum í Lake
Placid. Sjálfum finnst mér að ég
ætti að komast best frá 30 km
göngunni. Minn besti tími í henni
er 1,29,01 klst. Ég hef aldrei tekið
þátt í 50 km göngu í keppni og veit
að það verður erfið þolraun. 01-
ympíuleikarnir eru fyrsta stór-
mótið sem ég tek þátt í. Leikarnir
leggjast vel í mig. Ég reikna með
að Norðmenn verði einna
sterkastir í göngugreinunum og
svo eiga Finnar góða menn. Um
Rússana veit maður ekki.
Ég yrði mjög ánægður ef mér
tækist að verða fyrir neðan 50 í
röðinni í þeim greinum sem ég tek
þátt í. Reikna má með 70 til 80
keppendum í hverri grein,
Við inntum Ingólf eftir því
hvort valið á leikana væri sann-
gjarnt, en um það hafa verið
deilur.
— Mín skoðun er sú að svo hafi
verið. Ég tel að göngumenn hafi
komið betur út á þeim mótum sem
þeir tóku þátt í erlendis en
alpagreinamennirnir. Þá eru
margir sem ætla að gangan sé
ekki eins dýrt sport en það er
miskilningur. Þetta hefur kostað
okkur mikla peninga og erfiði
allar þessar æfingar. Þá er gangan
mikil tæknigrein og geysilega erf-