Morgunblaðið - 12.02.1980, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
37
fclk í
fréttum
+ EINN kunnasti leikari
ítala, Romólo Valli, sem er
frægur þar í landi f.vrir leik
sinn í leikritum Shakespear-
es, Chekovs, Molieres og
fleiri, fórst í bílslysi í Róm
fyrir skömmu. Leikarinn var
kominn heim undir húsvegg á
bílnum sínum eftir þeim
heimsfræga Appiavegi er
slysið varð. Hann var aðeins
54 ára að aldri. Hann hafði
líka getið sér frægðar fyrir
leik í kvikmyndum.
Ali meðal aðdáenda
+ IIÉR er „mestur allra" eins og hann tíðum komst að orði um
sjálfan sig, er hann var á blaðamannafundum áður en hann setti
upp boxhanskana og fór inn í hringinn til að verja heimsmeist-
aratitilinn — hér á árunum. — Þá er það auðvitað enginn annar
en hnefaleikakappinn óviðjafnanlegi Muhammad Ali. — Carter
Bandaríkjaforseti sendi hann til Afríkulanda til þess að kynna
þar sjónarmið forsetans varðandi niðurfellingu Ólympíuleikanna
í Sovétríkjunum í sumar. — Myndin er tekin er aðdáendur hans
meðal heimamanna i Tanzaníu fagna komu hans á flugvellinum í
Dar es Salaam.
Yngsti hjartaþeginn
+ ÞAÐ er ekki að sjá að þessi ungi maður hafi fyrir 11 vikum
gengið undir Iifshættulega stóraðgerð á sjúkrahúsi i heimalandi
sinu, Bretlandi. — Þetta er yngsti maðurinn í Bretlandi, sem
gengið hcfur undir hjartaflutning. 29 ára gamall, Andrew
Barlow að nafni. — Barlow hjartaþegi fékk hjarta úr 17 ára
gamalli stúlku. — Á myndinni veifar hann starfsiiði spitalans.
Papworth Hospitai í Cambridgeshire, i kveðjuskyni, er hann ekur
heim af spitaianum.
Yul
Brynnor
+ YUL BRYNNER leik-
ari, sem er sennilega með
frægasta skalla heims,
hefur nú verið sköllóttur
frá því á árinu 1951. — Þá
tók hann að sér annað
aðalhlutverkið í kvik-
myndinni „The King and
1“ og varð að nauðraka
höfuð sitt. — Hann hafði
þá að eigin sögn verið
dökkhærður. — Hann hef-
ur æ síðan rakað höfuð
sitt og er það sem billiard-
kúla æ síðan svo sem
kunnugt er. Hann hefur
ekki í hyggju að láta hár
sitt vaxa á ný. — Þó svo
að hann undir niðri sé
forvitinn og freistandi að
kanna hvort hann sé tek-
inn að grána! — Hann
verður sextugur næsta
sumar. — Hann mun ætla
að fara með sitt gamla
hlutverk í leikhúsinu
London Palladium, og
verður þessi sýning á
næsta hausti.
Á blaða-
manna-
fundi
+ HER eru saman á
blaðamannafundi í London fyrir
skemmstu leiðtogar Breta og
ítala, þau Margareth Thatcher
og Francesco Cossiga. — Þau
höfðu þá rætt um heimsmálin og
fleira í fullar sex klukkustundir.
SKEMMTI-
Þetta er meðal annars á boðstólum:
★ Útsölumarkaðsvörur á ótrúlega lágu
verði frá Karnabæ — Bonanza —
Garbó og Bonaparte. Mikið vörubrval.
★ Hljómplötur og kassettur frá Steinum
h.f. Aldrei meira úrval — við jafnvel
fluttum inn nýjar plötur. VÁ.
★ Alls kbnar efni — efnabútar og tillegg,
frá Saumastofu Karnabæjar og Belgja-
gerðinni — þarna er einstakt tækifæri,
fyrir laghent fólk.
★ Grænmetis og ávaxtamarkaður frá
Blómaval.
★ Gardínu og stórisamarkaður.
★ Vörukynningar frá:
íslensk matvæli
Sól / Tropicana
Glit h.f./ Keramik og leirmunir
★ Tómstundabúðin er með leikföng
o.m.m.fl.©
★ Gullkistan — skrautvörur
★ Skóv. Þórðar Péturssonar / Melissa.
Þorgeir stjórnar af
diskópalli
„Heimsókn
dansins“
Lukkumiðar
Uppboð VÁ
Veitingar
Barnagæzla
Listkynning
Fjölskyldu viðburður
Komið og skemmtið ykkur.
„Þið megið
bara alls ekki
láta þennan
markað fram
hjá ykkur
fara“.