Morgunblaðið - 12.02.1980, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
Þetta gerðist
Reiðir stálmenn
Stálverkfallið í Bretlandi hefur staðið í 42 daga
og fátt bendir til þess að það leysist i bráð. í gær
fékk Sir Keith Joseph fjandsamlegar viðtökur
þegar hann heimsótti verksmiðju í Suður-Wales
og verkfallsverðir köstuðu að honum eggjum og
tómötum. Leiðtogar um 70.000 stálverkamanna
hafa samþykkt að ræða sérstaklega tilboð
stálfyrirtækis brezka ríkisins, en ekkert bendir
til þess að leiðtogar tveggja stærstu stálverka-
lýðsfélaganna aflýsi verkfalli sinu. Myndin sýnir
verkfallsmann láta reiði sína i ljós við stálverk-
smiðju í Sheerness, þar sem einkafyrirtæki
hundsaði verkfallið.
Brezhnev
friðijiælist
við írani
Au^usta, Maine, 11. febrúar. AP.
JIMMY Carter forseti sigraði
Edward Kennedy öldunga-
deildarmann í forkosningum
demókrata í Maine, en Kenne-
dy kvaðst ánægður með úr-
slitin og stuðningsmenn hans
sögðu að hann hefði fengið
byr í seglin fyrir forkosn-
ingarnar sem fara fram í
New Hampshire 26. febrúar.
Starfsmenn forsetans vísuðu
þessu á bug, en sögðu að erfitt
mundi reynast að endurtaka sig-
urinn í Maine í forkosningunum í
New Hampshire. Þátttakendur í
forkosningunum í Iowa og Maine,
þar sem Carter sigraði, voru virkir
flokksmenn, en í New Hampshire
muni allir kjósendur demókrata
velja á milli Carters og Kennedys.
Carter hafði hlotið 45 af hundr-
aði atkvæða í Maine, en Kennedy
39, þegar talningu var að miklu
leyti lokið. í Iowa fékk Carter
helmingi meira fylgi en Kennedy.
Ríkisstjóri Kaliforníu, Edmund
G. Brown jr., var í þriðja sæti með
14% atkvæða og hann kvað þau
úrslit sýna að skriður væri kom-
inn á baráttu sína. Hins vegar
sagði talsmaður demókrata að svo
virtist sem Brown fengi ekki 15%
atkvæða sem hann þarf að fá til
þess að fá hluta af kjörmönnunum
sem verða sendir á flokksþing
demókrata.
Kennedy sagði, að hann hefði
tapað með litlum mun og benti á
að búizt hefði verið við auðveldum
sigri Carters. En talsmaður Cart-
ers lagði áherzlu á það að Kenne-
dy hefði verið á „heimavelli" þar
sem Massachusetts, heimaríki
hans, er í næsta nágrenni.
Einn helzti skipuleggjandi kosn-
ingabaráttu Kennedys í Maine,
Peter Meede, sagði að segja mætti
að barizt hefði verið upp á líf og
dauða af hálfu Kennedymanna.
„Hann fór inn í bakgarð Kenne-
dys öldungadeildarmanns og vann
stóran sigur," sagði yfirmaður
kösningabaráttu Carters.
Fréttir berast aí liðsflutningum Sovétmanna
við landamæri rikjanna vestan Kaspíahafs
„valdbeiting", en á segulbands-
upptökunni notaði hann orðið
„valdbeiting" að sögn AP.
Teheran. Moskvu. 11. febrúar. AP.
LEONII) Brezhnev, forseti Sovét-
ríkjanna. sendi í dag skeyti til
Teheran, þar sem hann sagðist
vonast eftir góðum samskiptum
þessara tveggja grannríkja. að
því er Moskvuútvarpið skýrði frá
í dag. Skeytið til íranskra stjórn-
valda kemur í kjölfar fregna um
aukinn viðbúnað sovéskra her-
sveita við landamæri ríkjanna
vestan Kaspíahafs. Sovéska
fréttastofan TASS sagði slíkar
sögusagnir „argasta slúður“.
I skeyti sínu til Teheran sagðist
Brezhnev vonast til, að samskipti
ríkjanna tveggja yrðu áfram góð
og að hvorugt skipti sér af inn-
anríkismálum hins. Þá sendi
Brezhnev annað skeyti til Khom-
einis trúarleiðtoga þar sem hann
óskaði Khomeini til hamingju með
afmæli byltingarinnar.
Olíumálaráðherra írans, Ali
Akbar Moinfar, sagði í dag, að
olíuvinnsla í Iran hefði aldrei í
sögunni verið meiri. Hann sagði
að þrátt fyrir skemmdarverk á
olíuleiðslum væri dagleg vinnsla
nú liðlega ein milljón tunna. Hann
sagði að áður hefði olíuvinnsla í
íran náð mest 930 þúsund tunnum
á dag.
Utanríkisráðherra Irans, Sadeq
Ghotbzadeh, neitaði því algjörlega
í dag að hafa sagt við fréttamann
AP að stjórnin í Teheran væri
reiðubúin til að beita valdi til að
frelsa gíslana í bandaríska sendi-
ráðinu. Hann sagði að um mis-
skilning fréttamanns hefði verið
að ræða. I Lundúnum voru um-
mæli Ghotbzadeh hins vegar til á
segulbandi og var því haldið fram,
að AP hefði haft eftir orðrétt það
sem utanríkisráðherrann sagði.
Ghotbzadeh hélt því fram, að
hann hefði aldrei notað orðið
Tveir sjónvarpsfréttamenn,
John Cochran frá NBC og Arden
Ostrander frá CBS í Kanada, voru
teknir í varðhald í dag af bylt-
ingarvörðum og átti að vísa þeim
úr landi. Talsmaður stjórnarinnar
sagði, að fréttamennirnir hefðu
komist ólöglega inn í landið og
hefðu neitað að yfirgefa það þrátt
fyrir fjölmargar beiðnir íranskra
yfirvalda.
Fylkisstjórinn í Turkoman í
norðurhluta landsins sagði að ró
væri komin á í héraðinu. Hann
sagði að herliði yrði beitt ef til
frekari átaka kæmi. Fjórir létust
og 25 særðust í átökum sem
blossuðu upp á föstudag. Turkom-
anar, sem eru rétt um 100 þúsund,
krefjast aukins sjálfsforræðis.
Biðu
Sakh:
Moskvu, 11. febrúar — AP.
ÁKVÖRÐUN um að svipta
Andrei Sakharov öllum titl-
um og orðum, sem hann hafði
verið sæmdur, og senda hann
í útlegð til Gorky var tekin
tveimur vikum áður en hand-
takan fór fram, að því er
segir í fréttablaði æðstaráðs-
ins sovéska. Þar sagði, að
ákvörðunin um frelsissvipt-
1974 — Alexander Soizhenitsyn
handtekinn í Moskvu.
1970 — ísraelsk loftárás á egypzka
verksmiðju (70 fórust).
1938 — Hitler neyðir Kurt von
Schuschnigg til að sleppa nazistum
í Austurríki.
1912 — Manchu-keisaraættin
leggur niður völd í Kína sem
verður lýðveldi.
1899 — Þjóðverjar kaupa Kar-
ólínu- og Marinas-eyjar af Spán-
verjum.
1895 — Glæsilegur sigur Japana
við Wei Hai Wei í Kína.
1887 — Samningur Breta og ítala
um óbreytt ástand á Miðjarðar-
hafi.
1885 — Þýzka Austur-Afríku-
félagið stofnað.
1818 — Lýst yfir sjálfstæði Chile.
1736 — Nadir Khan verður keisari
í Persíu.
1709 — Alexander Selkirk (Ró-
binson Krúsó) bjargað af eynni
Juan Fernandez.
1689 — Réttindayfirlýsingin í
Englandi: Vilhjálmur og María
lýst konungur og drottning.
1554 — Lafði Grey líflátin fyrir
landráö á Englandi.
Afmæli — Abraham Lincoln,
bandarískur forseti (1809—1865) =
Charles Darwin, brezkur vísinda-
maður (1809—1882) » Omar Brad-
ley, bandarískur hermaður
(1893—) = A. Corelli, ítalskt tón-
skáld (1653-1713).
Andiát — 1804 Immanuel Kant,
heimspekingur.
Innlent — 1919 Konungsúrskurður
um skjaldarmerki íslands = 1787
Fyrsta útmæling kaupstaðarlóðar
Reykjavíkur « 1808 Konungstil-
skipun um að birgja ísland vörum
= 1917 Konungsúrskurður um
stjórnarráð í tveimur deildum =
1939 Tólf reknir úr Hlíf « 1975
Gengisfelling (20%) = 1979 Frum-
varp Ólafs Jóhannessonar um
efnahagsmál = 1873 f. Jón Trausti
(Guðmundur Magnússon) = 1892 f.
Eggert Gilfer = 1893 f. Steingrímur
Steinþórsson forsætisráðherra =
1914 f. Lárus Pálsson leikari = 1979
d. Sveinn Benediktsson frkvstj.
Orð dagsins — Ég held því ekki
fram, að ég hafi stjórnað atburða-
rásinni, heldur viðurkenni
hreinskilnislega, að atburðarásin
hefur stjómað mér — Abraham
Lincoln, bandarískur forseti
(1809-1865).
ingu Sakharovs hefði verið
tekin af forsætisnefndinni.
Vestrænir diplómatar í Moskvu
hafa leitt getum að því, að ástæð-
an fyrir töfinni hafi yerið and-
staða meðal vísindamanna. Sama
daginn og Sakharov var handtek-
inn var Vladimir Kirillin settur af
sem formaður vísinda- og tækni-
nefndarinnar. Ýmsir vestrænir
fréttaskýrendur hafa getið sér til,
að Kirillin hafi haldið verndar-
hendi yfir Sakharov og hann hafi
verið settur af vegna andstöðu við
frelsissviptingu hans.
Yelena Bonner, eiginkona Sak-
harovs, beiddist þess á föstudag af
sovéskum vísindamönnum, að þeir
létu mál hans til sín taka og beittu
sér fyrir því, að hann fengi frelsi
sitt á ný. Yelena var í mikilli
geðshræringu þegar hún bar fram
ósk sína. Á sama tíma og Yelena
bar fram ósk sína, réðst helsti
dálkahöfundur Prövdu harkalega
að Sakharov í sovéska sjónvarpinu
og sakaði hann um undirgefni við
erlend öfl.
Carter sigraði
með litlum mun
Aftur leki í
Harrisburg
Ilarrisburg, Pennsylvania, 11. febr. AP.
GEISLAVIRKT vatn
draup úr dælu í kjarn-
orkustöðinni í Harris-
burg, þeirri hinni sömu
og kjarnorkuslysið varð
í s.l. ár.
Talsmaður stöðvarinnar
sagði, að enginn skaði
virtist þó hafa skeð að
þessu sinni en allt
starfsliðið hefði þó verið
flutt á brott til vonar og
vara, meðan málið yrði
rannsakað. Ekki kom
fram í fyrstu fréttum,
hvort komizt hefði fyrir
lekann.
í tvær vikur áður en
arov var handtekinn