Morgunblaðið - 11.03.1980, Síða 15

Morgunblaðið - 11.03.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 15 Nýjasta skáldsaga Graham Greene er komin út hjá AB BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka- félagsins hefur sent frá sér nýj- ustu skáldsögu Grahams Green- es. Hún hefur hlotið á íslenzku titilinn HINN MANNLEGI ÞÁTTURV og þýðandi hennar er Haukur Ágústsson sóknarprest- ur að Hofi í Vopnafirði. Skáldsaga þessi hefur farið sig- urför um heimínn síðastliðið ár, en hún kom fyrst út 1978 og var þá af mörgum talin bezta bók ársins í Bretlandi. Þessi saga Greenes er skrifuð með hliðsjón af njósnamálunum í Bretlandi fyrir nokkrum árum, þegar háttsettir menn í leyniþjón- ustunni urðu uppvísir að njósnum en sluppu til landsins sem þeir njósnuðu fyrir áður en reynt var að hafa hendur í hári þeirra. Greene er þó engan veginn að skrifa um þetta mál og tekur skýrt fram aftan á titilsíðu bókarinnar að sagan sé einbert hugarfóstur höfundar — en bætir við: Skáld- sögur mótast af raunveruleikan- um. Þessi njósnasaga verður í hönd- um Greenes mikið drama um einmanaleik, ótta og leit eftir öryggi annars vegar, — hins vegar um tryggð, þakklæti og hollustu — þó ekki drottinshollustu. Hinn mannlegi þáttur er 297 bls. að stærð og unnin í Prentstofu G. Benediktssonar. Leikarar og leikstjóri í „Allir eru þeir eins“. Sigurður Þórisson í hlutverki bóndans og Hólmfríður Hermannsdóttir í hlutverki vinkonu sonarins. siðan félagið var formlega stofn- að. Um hvað fjallar verkið? Leikurinn fjallar eiginlega um iðnrekanda sem er í sumarbústað við Þingvallavatn. Ástamál, hjónaband, kynslóðabil og þess háttar. Annars getur það sem gerist í leiknum allt eins verið að gerast í þjóðfélaginu í dag. Hver er leikstjóri? Auður Jónsdóttir leikstýrir verkinu og er þetta í annað sinn sem hún leikstýrir verki fyrir okkur. Hvað hafa æfingar staðið lengi yfir? Við höfum æft á hverju kvöldi og um allar helgar í fimm vikur samfleytt. Fólkið hefur verið mjög duglegt að mæta á æfingar. Sumar konurnar vinna úti allan daginn, hugsa um bú og börn og mæta svo á æfingar í frítímum. Grenivík I. mars 1980. LEIKFÉLAGIÐ Vaka í Grýtu- bakkahreppi hefur að undanförnu sýnt gamanleikinn „Allir eru þeir eins“ eftir Jocye Raybum á Greni- vík og víðar við mjög góðar undirtektir. Fréttaritari Mbl. á Grenivík leit inn fyrir skömmu hjá Sigurði Þórissyni bónda að Hléskógum í Grýtubakkahreppi til að inna hann frétta af starfsemi leikfé- lagsins, en Sigurður er formaður Vöku. Hvenær var Leik- félagið Vaka stofnað? Leikfélagið Vaka var stofnað árið 1976 og eru félagar rösklega 60 talsins. Annars má segja að hér hafi verið leikfélag frá aldamótum því menn æfðu hér leikrit í Gamla salthúsinu á Kljáströnd í gamla daga og svo seinna settu Kvenfé- lagið og íþróttafélagið Magni upp leiksýningar. Annars er þetta 5. verkefnið sem Vaka setur upp Karlmennirnir hafa sett af sér vinnu til þess að mæta á æfingar enda var ekkert skrítið þegar einn leikari átti að mæta á æfingu en hann er líka í kirkjukórnum að hann ruglaðist í ríminu og fór upp í kirkju til þess að æfa sig að syngja og söng þar hástöfum þegar að var gáð. Hverjir leika í leikritinu? Eins og ég gat um eru leikarar 5 talsins, Oddný Guðmundsdóttir leikur frúna, Sigurður Þórisson fer með hlutverk bóndans, Ómar Steindórsson leikur heimilisvin, Þorvaldur Kristjánsson leikur soninn og Hólmfríður Hermanns- dóttir fer með hlutverk vinkonu sonarins. Og eins og áður sagði er Auður Jónsdóttir leikstjóri og hún ásamt Sveini Sigurbjörnssyni hönnuðu leikmynd. Hvað hafið þið sýnt oft? Við höfum sýnt leikinn 9 sinn- um og farið með sýninguna út um sveitir, t.d. til Blönduóss, Hofsóss, Þorvaldur Kristjánsson, Hólmfriður Hermannsdóttir og Sigurður Þórisson i hlutverkum sinum. í Ljósvetningabúð og að Stóru- tjarnarskóla. Og alls hafa 750 manns séð sýningarnar. Við höfum tekið fyrir 2 einþátt- unga, 1976 Happið og háaséið, 1977 tókum við fyrir Kona í morgunslopp, síðan ’78 settum við upp Selurinn hefur mannsaugu, Ég vil fá minn mann ’79 og svo núna Allir eru þeir eins. Hvað er svo fram- undan hjá ykkur? Við höldum eitthvað áfram með sýningar á þessu verki. Þetta er geysileg vinna sem liggur að baki. Leikaðstaða hér í skólahúsinu er frekar slæm, en við lítum björtum augum á framtiðina. Leikfélagið hefur undanfarin ár haldið sinar árshátíðir, en í fyrra féll hún niður vegna mikillar vinnu hjá fólkinu. Stundum er ég ákveðinn að taka ekki þátt í fleiri sýningum, en þetta er líkt og með ávanalyf, maður á bágt með að hætta, sagði Sigurður Þórisson bóndi og leikari að Hléskógum, hinu myndarlega býli, að lokum. Vigdís. Sjödagaskotió í sjö daga frá þriðjudeginum 11. marztil þriðjudagsins 18. bjóðum við í Sýningahöllinni aldeilis makalaus kjor Þ-is. ut úr 54 mismun \ °g 80 þus. andi tegundum \ á mánuði ,. / \ ihvaða af hjonarumum. \ rúmasett sem er Komdu í Sýningahöllina 6 o o Bíldshöföa 20 - Sýningarhöllín S. 81410 — 81199 - Ártúnshöföa „Allir eru þeir eins“ á Grenivík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.