Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980 29 jF5***** • MÉC f i u 1 i \ I \ • I I » r “TT^r- VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI skrárstjórnandi í eina klukku- stund og mega flytjendur tala á eigin ábyrgð. Enginn hefur sagt orð um þetta, þangað til núna, þegar sagnfræðingur kemur með sannar sögur úr frelsisbaráttu okkar, þá hleypur Ólafur R. Ein- arsson og klagar fyrir útvarps- ráði. Líklega gleymir því enginn, þegar Jón Múli klagaði það að þurfa að útvarpa mótmælum við innrásinni í Afganistan og sagði að það væri komið meira en nóg af Rússaníði, eins og hann orðaði það. Eg skora á útvarpsráð að manna sig upp og láta lesa í útvarpið söguna Óvinir, eftir Nób- elskáldið Isaac Bashevis Singer. Húsmóðir • Fegrun Kópa- vogskirkju Ætíð finnst mér mikið vanta á, þar sem engin er altaristafla í kirkju, engin mynd, sem glatt gegi augu kirkjugesta. í öllum eldri kirkjum var mynd í þeim stað kirkjunnar, sem helgastur var. Þessi mynd var einskonar brenni- punktur eða miðdepill kirkjunnar, þangað beindust augu allra, hún sameinaði hugi fólksins, og efni myndarinnar gaf hugmyndaflug- inu byr undir vængi, og jók á þá samstillingu, sem skapast getur meðal kirkjugesta. í flestum nýjum kirkjum er engin mynd. Svo er t.d. um Kópavogskirkju. Þar er engin alt- aristafla. En geta má þess, að til hliðar við kórinn er fögur, lítil mynd eftir Barböru Árnason, þá snjöllu listakonu. Þessi mynd, þótt lítil sé, beinir hugum fólks að þeim ákveðna stað, öllum til yndis og hugarbóta. En kirkjan býður upp á miklu meiri listræna möguleina: Bak við altarið er fagurlega lagaður vegg- ur, hár og bogadreginn, innan við steindar rúður umhverfis hann. Þessi bogadregni veggur væri kjörinn staður til að mála á stóra, fagra mynd. Hér fengju listamenn verðugt viðfangsefni til að reyna getu sína og listræna sköpun. Ekki þyrfti þessi mynd endilega að vera trúarlegs eðlis. Vel mætti t.d. hugsa sér, að þarna væri sýnd sólarupprás eða sólsetur, eins og þau fyrirbæri geta fegurst orðið. Mundi slík mynd ekki verða ó-guð- legri en einhver biblíumynd, ef vel tækist til. Því hvað lyftir frekar hug til hæða, eða til hinnar æðstu veru, en sumt hið fegursta, sem náttúran hefur að bjóða, enda má allt slíkt teljast guðlegrar ættar. En betra er enga mynd að hafa, eins og nú er, heldur en einhverja, sem ekki fellur að hugarfari eða listasmekk fólksins, sem kirkjuna sækir, eða sem vekur til göfugra kennda. Því skyldi vel til vandað, og fyrirfram ákveðið, hvaða myndefni skuli valið. Hér væri verðugt umhugsunar- og framkvæmdarefni þeirra, sem sjá um og stjórna málum kirkj- unnar og fegrun hennar. Velviljaður kirkjuge.stur. Mercedes Benz 220 diesel Mercedes Benz 220 diesel 1976, vel með farinn til sölu. Upplýsingar gefur Oddgeir Báröarson, c/o Ræsir hf.. sími 19550. Bátafram- leióendur Bátainn- flytjendur Snarfari, félag sportbátaeigenda, ætlar aö halda útibátasýningu fljótlega. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku, vinsamlegast hafi samband viö Hörö Guðmundsson í síma 31206. Stjórnin Þessir hringdu . . . • Af Hverju? „Sniff, snuff" hringdi: Af hverju er nú búið að banna okkur að taka í nefið? Þarf alltaf að banna alla hluti í þessu landi: Var ekki hægt að hafa jákvæð áhrif á unglinga án þess að láta það ganga út yfir okkur hina eldri einnig. Með tilkomu þessa menthóltób- aks tókst mér að hætta að reyja vindlinga og einnig vonaðist ég til að með notkun þess gæti ég haldið hárinu á höfði mér eitthvað leng- ur, en sagan hermir að tóbak þetta gagni vel til þess. Af hverju? SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákþingi Sovétríkjanna í fyrra kom þessi staða upp í viðureign stórmeistaranna Rom- anishins og Balashovs, sem hafði svart og átti leik. 36.... Hxh2+! og hvítur gafst upp. 37. Kxh2 yrði svarað með Bg3+ o.s.frv. Úrslitin á mótinu urðu þessi: 1. Geller IV/2 v. af 17 mögulegum. 2. Jusupov 10'/2 v., 3.—4. Balashov og Kasparov 10 v. 5.-7. Georgadze, Kupreitschik og Makarichev 9‘A v. 8. Vaganjan 9 v., 9. Lerner 8V2 v., 10,—13. Beljavsky, Razuvajev, Rashkov- sky og Romanishin 8 v., 14.—15. Dolmatov og Tal (?) 7% v. 16. Sveschnikov 7 v. 17,—18. Anika- jev og Tseshkovsky 5'/2 v. HÖGNI HREKKVÍSI „þANN Eú AÐ ÚDKIA £I60M e>'lN0M 'A 'ÖeUóúUM 6TAÐ. . . " S^5 SlGGA V/öGA £ \iLVt%AH EíSj'íisij Lærið ensku í Englandi 12.4.80 — 5.7.80 (12 vikur) 694 pund 13.5.80 — 5.7.80 (9 vikur) 523 pund 13.9.80 — 20.12.80 (14 vikur) 871 pund Innifaliö í veröinu eru 23 kennslustundir á viku, fullt fæöi og húsnæði hjá enskri fjölskyldu. Fjögurra vikna námskeiö í júlí, ágúst og september fyrir börn og fulloröna. Einnig eru námskeiö í tennis og hestamennsku, frá 235 pundum á mánuöi. Skólinn er í samtökum v'öurkenndra enskra tungumálaskóla. Spyrjiö um upplýsingar og umsóknareyðublöö. G. Bryant The International school 1 Mount Radford Crescent Exeter Devon EX2 4EW England. Sími (0392) 54102/50096 Telex 42931 G Upplýsingar gefa einnig fyrri nemendur: Bergljót og Kolbrún Skógum Fnjóskadal um Akureyri eóa Karl Kristjánsson 96-21296 — 96-23222. fa VC^Vl wew\lw(\1il Vtt m vm alwj LÍ6I& VPd ALMÐO NA 06 5ÝA/A WEtibil A9 É6 YVKftT m\ VP/K1 VMV/NN A9 \/A9A H XVKI m$r LIGT$E!6A\ MomLtiQ- <$0&AÍ 'Q AVÍR&I \VW05//VMA y\mi? 5/-0Ko» ■\á .06 K YoWV50690 V/KI9 (M5V/fA- /.AU5T ÖW ST/ltfF/, \lföWn IWEm<WHEm,œrMú fa’o'b Vftm '&OT/L ^£$5 1 ' AW WÚN Kovl/ TKK/ NÁL/O&Ta F/5KI Vtá) im Eft kmuAW m winuí TKK/ ALL'b VAK/VAtf?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.