Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 'J Sími á ritstjórn 10100 og skrifstofu: MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980 Lánsf járáætlun nú í 164 milljörðum NIÐURSTOÐUTOLUR láns- fjáráætlunar samkvæmt þeim til- lö)?um. sem stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar á Alþingi hafa nú til meðferðar um síðari hlutann, eru 164 milljarðar króna, cn fyrri hlutinn. sem stjórnarliðar hafa þegar samþykkt hljóðaði upp á 36,5 milljarða króna. Afgreiðsla síðari hlutans strandar á afstöðu framsóknarmanna til er- lendra lána, sem samkvæmt upphaf- legum tillögum ríkisstjórnarinnar hefðu í heild orðið 94,5 milljarðar, þar af röskir 73 í síðari hlutanum, en framsóknarmenn vildu setja heild- armarkið við um 80 milljarða. Ýms- ar tillögur um niðurskurð erlendu lánanna í síðari hlutanum hafa komið fram og mun heildarupphseð- in nú standa i 85 til 86 milljörðum króna, sem reynt er að fá framsókn- armenn til að fallast á þannig að eðlilegt geti talizt að erlend lán vegna flugvélakaupa Flugleiða standi utan við 80 milljarða markið. Þeir þingmenn Framsóknarflokks- ins, sem harðastir eru í málinu, telja hins vegar að markinu megi ná með því að fresta 9 milljörðum til Járnblendiverksmiðjunnar um eitt ár, þar sem næsti vetur verði svo erfiður í raforkumálum að spurning- in sé ekki, hvort Járnblendið geti fengið raforku til tveggja ofna, heldur hvort verksmiðjan fái raf- magn til fulls rekstrar eins ofns. A móti lækkunarhugmyndum er unnið að því að auka lánsfjáröflun innan- lands. Meðal þess sem til greina kemur til lækkunar erlendrar lántöku er frestun varalínu Hrauneyjafoss- virkjunar í Hvalfjörð, sem þýðir um milljarð, og frestun línu á Austur- landi til Hornafjarðar, en hins vegar mun iðnaðarráðherra Hjörleifur Guttormsson leggja áherzlu á að þeirri framkvæmd verði ekki frest- að. Útvarpsumræðan frest- ast fram á mánudaginn „ÚTVARPSUMRÆÐAN frestast að öllum líkindum fram á mánu- dagskvóld. en það er samkomu- lag þingflokkanna um, að sá frestur tefji ekki afgreiðslu máls- ins í neðri deild og að það verði afgreitt þar á miðvikudaginn í næstu viku,“ sagði Guðmundur Bjarnason forseti efri deildar í samtali við Mbl. í gær. Breyt- ingartillaga fjármálaráðherra við tekju- og eignarskattsfrum- varpið var lögð fram á Alþingi í gær, en í henni er, eins og Mbl. hefur skýrt frá. gert ráð fyrir 550 þúsund króna lágmarksfrá- drætti einhleypinga og einstæðra foreldra og einnig er gert ráð fyrir að einstæðir foreldrar fái harnabótaviðauka og að persónu- afsláttur Iækki úr 525 þúsund krónum í 505 þúsund krónur. A fundi um útvarpsumræðuna í gær kom fram, að ætti hún að fara fram í dag, miðvikudag, vildi útvarpið helzt að hún yrði á tímanum 16:30 — 18:30, en það töldu stjórnarandstæðingar óheppilegan tíma og allir voru sammála um að útvarpsumræður væru ekki rétt dagskrárefni á kvöldi síðasta vetrardags. Þá kom fram hugmynd um föstudag, en menn féllu frá henni, þar sem rætt hafði verið um að þingfundir yrðu ekki á föstudaginn eftir sumar- daginn fyrsta. Sættust menn svo á mánudaginn, sem fyrr segir með fororði um að málið yrði eigi að síður afgreitt á miðvikudag. Þessar breytingartillögur fjár- málaráðherra munu þýða um 2,6 milljarða króna skattaívilnun gegnum lágmarksfrádráttinn og barnabótaviðaukann til einstæðra foreldra, en á móti kemur 2,5 milljarða króna hækkun með lækkun persónuafsláttar. í dag er síðasti vetrardagur og þess vonandi ekki langt að bíða að hlýna taki í lofti. Hér eru nokkrar trillur og smábátar í Reykjavíkurhöfn, sem bíða þess að eigcndur þeirra hefji hinar árstíðabundnu veiðar á Faxaflóa. I.jósm: Ólalur K. Maiínússon. Slæm um- gangspest í Reykjavík „EINKENNI eru fyrst og fremst hár hiti, beinverkir, höfuðverk- ur og þurr hósti, og er fólki ráðlagt að fara varlega með sig eftir að það fer að jafna sig aftur,“ sagði Skúli G. Johnsen borgarlæknir í samtali við Morgunblaðið i gærkvöidi. er hann var spurður um um- gangspest sem herjað hefur á borgarbúa að undanförnu. Skúli sagði ekki vera fyllilega ljóst hvort hér væri á ferðinni inflúensa eða inflúensulík um- gangspest, en veikinnar hefði orðið vart í marsmánuði og sam- kvæmt skýrslum lækna virtist hún heldur vera að ágerast í þessum mánuði. Borgarlæknir kvað tölur um fjölda þeirra er veikst hefðu hins vegar ekki liggja fyrir fyrr en um mánaða- mót. Sem fyrr segir sagði Skúli að fólki væri ráðlagt að fara vel með sig í veikindum og fyrst eftir veikindi, og ætti það einkum við um eldra fólk og lasburða. Því hætti helst til að fá lungnabólgu og aðra fylgikvilla með veikinni og raunar fengi margt yngra fólk einnig lungnabólgu. Takist samningar við BSRB ekki á næstunni: Allsherjarverkfall strax og það hentar félagsmönnum „SAMEIGINLEGUR fundur stjórn- ar og samninganefndar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja átelur stjórnvöld harðlega fyrir þann drátt. sem orðinn er á samninga- viðræðum af þeirra hálfu. Fundur- inn leggur ríka áherzlu á kröfur samtakanna, jafnt kjarakröfur og kröfur um félagslegar umbætur. Ef samningar takast ckki á næstunni verður að nota fyrsta tækifæri. sem hentar félagsmönnum til að knýja á um samningsgerð með boðun alls- herjar verkfalls. Jafnframt ákveður stjórn og samninganefnd banda- lagsins, að efnt skuli til víðtækra fundarhalda til þess að skýra málin og fá fram sem gleggstar upplýs- ingar um afstöðu félagsmanna. Stjórn BSRB er falið að skipuleggja Reykjavík og nágrannasveitarfélög: Um 600 nýjar bygg- ingarlóðir á árinu í REYKJAVÍK og nágranna- sveitarfélögum verða á þessu ári gerðar byggingarhæfar um 600 lóðir, en það eru ýmist beinar úthlutanir sveitarféiag- anna eða lóðir í einkaeigu. sem þau sjá um að gera byggingar- hæfar. Tala þessi er þó ekki nákvæm þar sem ekki er vitað hversu margar lóðir verða til- búnar til úthlutunar í Kópa- vogi, en þar er nú unnið að skipulagningu nýs hverfis. 1 Hafnarfirði er nú unnið að úthlutun í svonefndu Hvamma- hverfi. Búið er að úthluta 50—60 einbýlishúsalóðum, þar verða einnig 60—70 raðhúsalóðir, en ekki er ljóst hversu margar íbúðir verða þar í fjölbýlishúsum og þeim ekki ráðstafað fyrr en á næsta ári. Eru þetta öllu fleiri íbúðir en verið hefur síðustu árin, en hafa venjulega verið 40—50. Að sögn Björns Arnason- ar bæjarverkfræðings hefur ver- ið úthlutað nokkuð mörgum iðn- aðarlóðum, en samdráttur hefur hins vegar orðið í úthlutun fjölbýlishúsalóða. í Kópavogi er nú unnið að skipulagningu nýs byggingar- svæðis í landi Ástúns og Grænu- hlíðar, austarlega í bænum. Stendur yfir samkeppni um skipulag þar og lýkur henni um mitt árið. Er því ekki búizt við að úthlutun þar geti farið fram fyrr en í árslok eða á næsta ári, en reiknað er með milli 2—3 hundruð íbúðum á þessu svæði, í einbýlis—, rað— og fjölbýlishús- um. Um aðrar byggingárlóðir í Kópavogi er ekki að ræða. Á Seltjarnarnesi verður á þessu ári úthlutað 30 einbýlis- húsalóðum í Nesbalahverfi og 10—15 annars staðar í bænum, en einnig eru til ráðstöfunar þyrpingasvæði, þ.e. 12—14 hús í þyrpingu á tveimur stöðum. Reynt er að láta lóðaúthlutun á Seltjarnarnesi haldast í hendur við þá þjónustu er bæjarfélagið veitir og hefur verið úthlutað kringum 50 lóðum á ári að undanförnu. Þá verður í sumar byrjað á byggingu 16 íbúða fyrir aldraða við Melabraut, en þær verða seldar þeim er kynnu að vilja minnka við sig húsakynni. I Mosfellssveit fer ekki fram eiginleg lóðaúthlutun á þessu ári. Hins vegar hafa verið seldar að undanförnu 24 lóðir úr landi Helgafells, sem hreppurinn sér um að gera byggingarhæfar. Hefur verið úthlutað milli 20 og 30 lóðum þar síðustu árin og er gert ráð fyrir að lóðir verði tilbúnar til úthlutunar á næsta ári. í Reykjavík er úthlutað á þessu ári 232 lóðum í einbýlis- og raðhúsum og er verið að vinna að úthlutun um þessar mundir. I Seljahverfi var úthlutað 61 ein- býlishúsalóð og 10 raðhúsalóð- um, 50 einbýlishúsalóðum í Hólahverfi, 12 í Rauðagerði, 35 á Eiðisgranda og 64 raðhúsalóðum á Eiðisgranda. Sóttu um 1.000 manns um þessar lóðir og ákvað borgarráð að úthlutun skyldi aðeins vera til einstaklinga en ekki byggingameistara. Þá er um þessar mundir unnið að endurskipulagningu í nýja miðbænum, en þar var gert ráð fyrir 90—120 íbúðum og verður reynt að fjölga þeim í kringum 240. Er m.a. gert ráð fyrir fjölbýlishúsum þar. Þá er búið að ganga frá ráðstöfun svæðisins í Fossvogi, sem næst er Borg- arspítalanum, þ.e. austan við hann. Er þar gert ráð fyrir um 150 íbúðum í lágri byggð, byggt verður einnig sunnan Öskjuhlíð- arskóla og verið er að ræða þéttingu á Laugarásnum, en ákvarðanir hafa ekki verið tekn- fundina í samvinnu við bandalags- félögin.“ Ofangreind tillaga var samþykkt samhljóða á fundinum, sem haldinn var í gær. Stjórn og samninganefnd bandalagsins er stærsta stofnun þess og hafa rétt til setu á slíkum sameiginlegum fundi 70 til 80 manns. Samkvæmt upplýsingum Baldurs Kristjánssonar blaðafulltrúa BSRB, gerðu formenn undirnefnda, sem verið hafa í viðræðum við ríkisvaldið, grein fyrir gangi þeirra. Kom fram að árangur þeirrar nefndar, sem fjallar úm félagslegu hliðina er öllu meiri en þeirrar nefndar, sem fjallar um kjarakröfur sambandsins, þar sem varla er unnt að tala um árangur. Baldur kvað þó engan áþreifanlegan árangur sýnilegan af sviði félagsmálahliðar viðræðnanna. Það hefur reyndar ekki verið haldinn nema einn fundur með fulltrúum ríkisins og kom fram, hjá þeim góður vilji gagnvart ýmsum hlutum. Rufu varnar- liðsþotur hljóðmúrinn? TALSVERÐ skclfing greip um sig á Fáskrúðsfirði um klukkan 18 í gær. er þar heyrðust miklar spreng- ingar. Ekki er ljóst hvað þessum sprengingum olli. og ekki varð þess vart við eftirgrennslan í þorpinu að þar hefði orðið sprenging af einu eða öðru tagi. Hins vegar hafði orðið vart við tvær eða fleiri þotur Varnarliðsins að æfingum, og var það hald manna eystra, að þær hefðu rofið hljóðmúr- inn yfir þorpinu. Samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið aflaði sér í gærkvöldi, voru Phantom F-4 þotur Varnarliðsins þarna að æfingum, en blaðafulltrúi Varnarliðsins, Mik Magnússon, gat í gærkvöldi ekki sagt um hvað þarna hefði gerst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.