Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980 Sjálfstæðisflokkurinn: Vill styðja skyldusparnað af tekjum umfram 7 milljónir „ÞESSAR tillögur Sjálfstæðis- flokksins þýða skattalækkanir, sem nema í heild 13 til 14 milljörðum króna og langmestu lækkanirnar eru hjá tekjulægra fólki,“ sagði Lárus Jónsson, fuil- trúi Sjálfstæðisflokksins í fjár- hags- og viðskiptanefnd efri deildar, í samtali við Mbl. í gær, eftir að þingflokkur sjálfstæð- ismanna hafði samþykkt nýjar tillögur í skattamálum. Þær fela í sér 20% tekjuskatt af fyrstu 2,5 milljón krónum, 30% af næstu 3 milljónum og 40% skatt af skatt- gjaldstekjum umfram 5,5 millj- ónir króna. Persónuafsláttur verði áfram 525 þúsund krónur og einstæðir foreldrar fái, eins og hjón, barnabótaviðauka með börnum undir 7 ára aldri. „Á móti erum við reiðubúnir, ef þetta verður samþykkt, að leggja til að 10% skyldusparnaður verði lagður á tekjur yfir 7 milljónum króna, sem komi í stað skatt- greiðslu samkvæmt 50% skatt- þrepstillögum hinna flokkanna og stuðningsmanna ríkisstjórn- arinnar í Sjálfstæðisflokknum," sagði Lárus. Einnig leggja sjálf- stæðismenn til að sparifé og spariskírteini verði alltaf eignar- skattsfrjáls, að námsmenn geti dregið frá tekjum sínum í 5 ár eftir nám ónýttan persónuafslátt á námstima og að þeir, sem mjög lágar tekjur hafa, geti notað ónýttan persónuafslátt til greiðslu á sóknargjöldum og kirkjugarðsgjöldum, sem eru nú einu opinberu gjöldin, sem ekki má greiða með ónýttum persónu- afslætti. Lárus sagði, að skyldusparn- aðurinn myndi lækka fjárþörf ríkisins vegna skattatillagna sjálfstæðismanna úr 13 til 14 milljörðum í 10 til 11, sem sjálf- stæðismenn vildu mæta með niðurskurði. Vísaði Lárus til til- lagna sjálfstæðismanna við af- greiðslu fjárlaga um niðurskurð upp á 8,5 milljarða króna og sagði sjálfstæðismenn reiðubúna til þess frekari niðurskurðs, sem nauðsynlegur væri. Lárus sagði: „Fram hafa komið tvenns konar nýjar upplýsingar milli annarrar og þriðju umræðu um málið í efri deild. í fyrsta lagi hækkar tekjuskatt- ur einstaklinga meira frá venju- legri álagningu 1978, síðast er Sjálfstæðisflokkurinn réði skatt- lagningunni, heldur en fyrstu upp- lýsingar bentu til og í heild hækka þessir skattar samkvæmt tillögum stuðningsmanna ríkisstjórnarinn- ar á þessu ári um að minnsta kosti 9 til 10 milljarða króna. I öðru lagi komu fram upplýsingar um að breytingartillögúr stuðnings- manna ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu málsins, sem voru sam- þykktar, þýða verulega þyngri skatta láglaunafólks, einkum ein- staklinga og einstæðra foreldra. í ljósi þess að skattar hækka vegna aðgerða núverandi ríkis- stjórnar að óbreyttum tillögum stjórnarliðsins um tekjuskatt um 28 milljarða króna, sem þýðir 650 þúsund krónur á hverja 5 manna fjölskyldu, freistum við sjálfstæð- ismenn þess enn einu sinni til mótvægis að leggja fram tillögur um lækkun tekjuskatts á einstakl- inga. Þessi 28 milljarða hækkun samanstendur af 15 milljörðum vegna söluskatts- og vörugjalds- hækkunarinnar frá í haust, sem nú kemur á allt árið, 10% út- svarshækkunin er áætluð 4 til 5 milljarðar, orkujöfnunargjaldið, sem í raun er 1,5% söluskatts- hækkun, þýðir 6 milljarða og tekjuskattur hækkar um 2 til 3 milljarða ef tillögur stjórnarliðs- ins ná fram að ganga. I þessum tölum eru ekki okurskattar af bensíni, sem ríkisstjórnin ætlar að innheimta áfram, og ekki hækkun flugvallargjalds né hækkanir ým- issa annarra gjalda, þannig að frekar er nú vansagt um skatta- hækkunina en hitt. Með þessum tillögum Sjálfstæð- isflokksins myndi láglaunafólk fá sérstakar skattaívilnanir og ennfremur undirstrika þær þá stefnu flokksins, að beinir skattar fari ekki yfir 50%, en jafnframt er frekar bent á þá leið, að þeir efnameiri láni ríkissjóði fé til nokkurs tíma, eins og Sjálfstæðis- flokkurinn hefur fyrr staðið að, þegar erfiðleikar hafa steðjað að í ríkisfjármálum. Þessar tillögur undirstrika ennfremur enn einu sinni þá stefnu Sjálfstæðisflokksins að af- nema tekjuskatta af almennum launatekjum." Akurey var væntanleg til Hafnar í nótt, cn á þessari mynd frá Hornafirði liggur Akurey næst bryggjunni og þrír bátar utan á henni. Af strandstað í netadráttinn VÉLBÁTURINN Akurey SF 52 frá Höfn í Hornafirði skemmdist ekki mikið er hann strandaði á Svínafellsfjöru í fyrrinótt. Varðskip náði skipinu af strand- stað undir hádegi í gær og eftir að skipverjum hafði tekizt að gera við stýri bátsins til bráða- birgða hélt Akurey í átt að netatrossunum og byrjað var að draga netin síðdegis í gær. Það var skömmu eftir klukkan 1 í fyrrinótt, að Akurey strandaði um 7 sjómílur vestan við Ingólfs- höfða. Gott veður var á þessum slócum, hægur vindur af vestri og lítið brim við ströndina. Haft var samband við nærliggjandi skip, sem var Skógey SF, en sami maður á bæði skipin. Sneri Skógey Björgunaræfing varnarliðsmanna olli misskilningi hjá sjómönnum „ÞAÐ GERIST allt of oft. að Varn- arliðið er að æfingum úti af Reykja- nesi með neyðarblys án þess að nærstöddum skipum sé tilkynnt um það með öllum þeim afleiðingum sem slíkt hefur,“ sagði Kristinn Jónsson skipstjóri á Ólafi Jónssyni GK 404 í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Kristinn sagði, að það hefði gerst síðast klukkan eitt í fyrrinótt, að stýrimaður á skipi hans sá neyðar- blys á lofti suður af Reykjanesi. Skipstjóri var ræstur og var síðan siglt í átt að þeim stað þar sem blysið sást, í um það bil 30 til 45 mínútur. Þá sagði Kristinn að komið hefði í ljós við eftirgrennslan hjá Reykja- víkurradíói, að þarna myndu vera hermenn frá Varnarliðinu að æfing- um. Æfa þeir meðal annars björgun manna úr hafi og skjóta neyðarblys- um til að vísa á mennina. Kristinn sagði að enginn tilkynning hefði verið gefin út í fyrrinótt og hefðu mörg skip siglt af stað auk hans sjálfs. Væru mýmörg dæmi um slíkt og urgur í sjómönnum af þessum sökum. Lítið gerði til þó að sjómenn eyddu tíma sínum og fjármunum af þessum sökum, en verra væri að þetta gæti gert menn sofandi á verðinum með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum, þó vonandi yrði slíkt ekki. Hannes Hafstein hjá Slysavarna- félaginu sagði í gærkvöldi, að það, sem hér hefði gerst, væri það, að notuð hefðu verið blys til að lýsa upp hafsvæði er æfð væri björgun manna úr hafi. Þessi blys væru ekki rauð eins og neyðarblys, heldur hvít og gul, og ættu mönnum því að vera Ijóst hvað hér væri á ferðinni. Það breytti því þó ekki að tilkynna ætti um æfingar af þessu tagi fyrirfram, og væri það alla jafnan gert. Það hefði þó farist fyrir í fyrrinótt, en Tilkynningaskyldunni bárust boðin ekki frá flugstjórnaraðilum, sem höfðu fengið boðin frá Varnarliðinu. þegar við og varðskipið Óðinn var kominn á strandstað um 40 mínút- um eftir að tilkynnt var um óhappið. Þá voru björgunarsveitir Slysavarnafélags íslands í Öræf- um og á Höfn sendar á vettvang. Strax var vitað, að áhöfn báts- ins, 10 manns, væru ekki í yfirvof- andi hættu og ákveðið var að bíða með björgunaraðgerðir fram í birtingu. Um klukkan 10 í gær- morgun byrjaði varðskipið að und- irbúa að ná skipinu á flot, því flóð var um klukkan 12.30. Auk drátt- artaugar frá varðskipinu í bátinn, var línu komið frá bátnum í land. Laust eftir klukkan 11 náði varðskipið Akureynni af strand- stað og hafði mannskapur aldrei yfirgefið skipið, né slys orðið. Ekki kom leki að bátnum, en einhverjar skemmdir urðu á stýr- isútbúnaði, sem tókst að koma í lag með aðstoð froskmanna frá varðskipinu. Upphaflega stóð til að fara til Vestmannaeyja, en hætt var við það og Akurey tók í staðinn stefnu á netatrossurnar. Búist var við bátnum til Hafnar eftir miðnætti í nótt, en sjópróf fara fram á Höfn. Akurey er 86 lesta eikarbátur, byggður í Dan- mörku 1962. Ásmundur Stcfánsson, framkvæmdastjóri ASÍ: Skattjilækkunarstufna VMSI í samræmi við stefnu ASI Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ: ASÍ ekki lengur sam nefnari fyrir kröfur stéttarfélaganna VERKAMANNASAMBAND ís- lands segir í ályktun sinni, að sambandið leggi á það áherzlu. að skattalækkanir séu raunhæf- ari kjarabætur en krónutölu- hækkanir. sem étnar séu upp í verðlags- og skattahækkunum. Morgunblaðið spurði í gær Ás- mund Stefánsson, framkvæmda- stjóra Alþýðusambands íslands, álits á þessari ályktun. Ásmund- ur sagði. að í raun teldi hann ekki unnt að líta á skattalækkun- arkröfu VMSÍ og krónutölu- hækkun sem hreina valkosti, þar sem VMSÍ krefðist krónutölu- hækkunar í yfirstandandi við- ræðum. Hins vegar sagði Ásmundur, að það væri augljóst mál, að ASÍ væri sömu skoðunar og VMSÍ hvað varðar skatta. í sameigin- legri kröfugerð ASÍ, sem sam- þykkt hafði verið á kjaramála- ráðstefnu ASÍ 11. janúar 1980, segði um skattamál: „I komandi kjarasamningum skuli teknar upp viðræður við ríkisvaldið um skattamál, sem miði að eftirtöld- um atriðum. 1. Upp verði tekin samtíma- sköttun. 2. Hækkun barnabóta. 3. Hækkun persónuafsláttar. 4. Aukið skattaeftirlit. sig,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson alþingismaður og formaður Verkamannasambands tslands, þegar Mbl. spurði hann i gær, hvernig það kæmi heim og saman að hann sem formaður 5. Húsaleiga vcrði frádráttar- bær til skatts. Sérstök áherzla verði lögð á að skattleysismörk verði hækkuð og skattkerfinu beitt til þess að tryggja lágmarkstekjur, t.d. með útborganlegum persónuafslætti og hækkun barnabóta." Ásmundur sagði: „Það, sem Verkamannasambandið er að samþykkja í þessu samhengi er að skattalækkanir séu metnar til kjarabóta. Skattalækkanir hljóta að teljast af því góða og þetta er í samræmi við stefnu ASÍ. Hins vegar er það ekki sama hvernig skattalækkun er framkvæmd.“ Verkamannasambandsins greiddi atkvæði ályktun um skattalækkanir, en sem alþingis- maður væri hann einn upphafs- manna að 10% útsvarshækkun og stuðningsmaður ríkisstjórnar „sem heimtar sífellt meira í sinn „ÞAÐ er rétt að ítreka það að við höfum lagt ríka áherzlu á það, að þríhliða viðræður færu fram um lausn þessara mála og í því sambandi höf- hlut“, eins og segir í ályktun Sambandsstjórnar Verkamanna- sambands íslands. „Þú hefur ekki séð aðra afstöðu mína til skattamála á Alþingi, en til útsvarsins og hún er óbreytt," sagði Guðmundur, er blaðamaður Mbl. ítrekaði spurninguna. Guð- mundur var þá spurður, hvort það þýddi að hann hefði ekki sam- þykkt tillögur fjármálaráðherra eða breytingartillögur stjórnar- liða á Álþingi, en hann sagðist ekki sjá ástæðu til að greina frá gangi mála í þingflokki Alþýðu- bandalagsins. Þá spurði Mbl. Guð- mund hvaða svigrúm væri að hans mati til skattalækkana, en hann sagðist þá ekki vilja ræða málið opinberlega að svo stöddu. um við lagt mesta áherzlu á skattalækkanir,“ sagði Þor- steinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasam- bands Islands í samtali við Morgunblaðið í gær. „Að því leyti er ályktun Verkamanna- sambandsins í fullu samræmi við afstöðu okkar og við lítum á hana sem stuðning við þessi sjónarmið okkar og trúum því, að ríkisstjórnin taki þess- ari málaleitan vel, þegar hún er borin fram bæði af hálfu samtaka vinnuveitenda og verkamanna.“ Þorsteinn Pálsson kvaðst ekki geta tjáð sig um sérkröf- ur VMSI, þar sem hann hefði ekki fengið þær enn. „Hins vegar er augljóst, að þessi ályktun Verkamannasam- bandsins, varpar mjög skíru Guðmundur J. Guðmundsson: Það á eftir að sjást og sýna sig — hvernig formennska í Verkamannasambandinu og stuðningur við ríkisstjórnina koma heim og saman „ÞAÐ á eftir að sjást og sýna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.