Morgunblaðið - 26.07.1980, Side 10
/
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
Nýbúið er að steypa gangstéttir viA Kötur i Lundunum. Krakkarnir hafa síðan sléttað og tyrft meðfram þeim. Fullt jafnrétti er 1
unglingavinnunni og stelpurnar látnar vinna sömu verk og strákarnir. „Þetta vilja þœr sjálfar og hér er enga miskunn að fá44
sagði verkstjórinn, lengst til vinstri á myndinni, kimileitur.
*
Garðabær:
„Nauðsyn
að þessi
starfshópur
njóti viður-
kenningar"
Breytt fyrirkomulag unglinga-
vinnu gefur góðan árangur
Krakkarnir hafa unniA miklð starf i kirkjugarðinum við Garðakirkju
í sumar. Sagði Hannes, að sum þeirra hefðu tekið ástfóstri við staðinn
og þau hefðu sjálf fundið sér það verkefni til frekari fegrunar i
irarðinum.
„Við erum eiginlega að vinna
okkur i álit i sumar, og á ég þar
bœði við krakkana og okkur
umsjúnaraðilana." sagði Hannes
Hilmarsson umsjónarmaður
unglingavinnunnar í Garðabæ,
er Mbl. ræddi við hann um
tilhogun vinnunnar, en nokkrar
breytingar hafa þar verið gerðar
á fyrirkomulagi hennar. „Ungl-
ingavinnan hefur því miður haft
fremur leiðinlegt orð á sér — og
á það ekki aðeins við hér i
Garðabæ. Allir hafa heyrt setn-
ingar cins og „Ég fæ ekkert að
gera i sumar — verð að fara i
unglingavinnuna". Hér hefur að
minu áliti margt komið til. Yfir-
völd hafa hallast að þvi að líta á
þetta sem illa nauðsyn — og
launin og vinnutiminn verið í
samræmi við það."
Hannes sagði, að þetta væri
annað sumarið, sem hann sæi um
unglingavinnuna í Garðabæ. „Ég
fann það fljótlega í fyrrasumar, að
krakkarnir voru óánægðir bæði
með launin og vinnuna, enda
launin lág og vinnan mest fólgin í
því að sópa. Þá fengu þau ekki
nema hlutavinnu, sem orsakaði
það að hópurinn, sem vann fyrir
hádegið, kom einnig eftir hádegi
og krakkarnir héngu yfir þeim
sem áttu að vera að vinna. Þá varð
ég einnig var við að foreldrar voru
óánægðir og allt varð þetta til
Þessi hópur hafði lokið sinu verkefni og eru krakkarnir hér að ræða sin á milli hvert halda skuli.