Morgunblaðið - 26.07.1980, Síða 17
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1980
17
Dómkirkjan
Marteinn Hunger leik-
ur á orgel kirkjunnar
Á MORGUN, sunnudag, kl. 18.00 leikur Marteinn Hunger
Friðriksson á orgel Dómkirkjunnar í Reykjavík. Á efnisskrá eru
verk eftir Jón bórarinsson, Bach ok Reger. AðKanxur er ókeypis.
Eden
Áttunda einkasýning
Gunnars Halldórs
GUNNAR HALLDÓR Sigurjónsson heldur málverkasýningu í Eden í
Hveragerði dagana 21. til 31. júlí. Er þetta önnur sýning Gunnars
Halldórs í Eden, en áttunda einkasýning hans, auk þess sem hann hefur
tekið þátt í samsýningum. Myndirnar eru málaðar með akrýl- og
olíulitum og eru allar til sölu.
Á HÓTEL BORG i kvöld ki. 22 verður siðasta sýning á Flugkabarett á
vegum Júlileikhússins. Á myndinni er einn leikaranna, Edda
Björgvinsdóttir, stödd á Lækjartorgi við kynningu á kabarettinum.
Óðal feðranna
Sýningum í Reykja-
vík f er að ljúka
UM ÞESSA helgi lýkur sýningum á myndinni óðal fcðranna hér í
Reykjavik og fer myndin til sýningar um landsbyggðina. Alls munu
um 46 þúsund manns hafa séð myndina i kvikmyndahúsum
borgarinnar til þessa og lætur nær, að annar hver íbúi Reykjavikur
haíi séð myndina.
Kjarvalsstaðir
YjEirlitssýnmgu á verkum Gerðar og Kristínar að ljúka
UM ÞESSA helgi lýkur
yíirlitssýningu á verkum
Kristínar Jónsdóttur og
Gerðar Helgadóttur á
Kjarvalsstöðum. Sýningin
er opin í dag og á morgun
frá kl. 14 til 22. Alls munu
um 14 þúsund manns hafa
séð sýninguna til þessa, en
hún var sett upp i tilefni
Listahátíðar, en er jafn-
framt sumarsýning húss-
ins.
Suðurgata 7
Myndir
málaðar í
Hollandi
í GALLERÍ Suðurgata 7 stendur
nú yfir sýning á verkum Magnúsar
Valdimarssonar, sem flest hafa
orðið til í Hollandi á síðastliðnum
vetri. Sýningin er opin virka daga
frá kl. 18.00 til 22.00 og um helgar
frá kl. 16 til 22. Sýningunni lýkur
1. ágúst næstkomandi.
Light Nights
Bjartar næt-
ur á Fríkirkju-
veginum
FERÐALEIKHÚSIÐ heldur
áfram sýningum á „Light Nights“
að Fríkirkjuvegi 11. Sýningar eru
fjórar í víku fram til 31. ágúst ,
það er á fimmtudags-, föstudags-,
iaugardags-, og sunnudagskvöld-
um, og hefjast þær kl. 21.00.
Sýningar þessar eru einkum ætl-
aðar enskumælandi ferðamönn-
um.
Tíunda
Sumargleðin
SUMARGLEÐl Ragga Bjarna
hefur undanfarnar vikur verið á
ferð um landið og komið víða við.
Þetta er í 10. sinn sem Ragnar
safnar liði og fer um landið undir
nafninu Sumargleðin og er í til-
efni af því sérstaklega vandað til
hlutanna, að sögn.
Ómar Ragnarsson.Bessi Bjarna-
son, Magnús Ólafsson og Þorgeir
Astvaldsson halda ásamt hljóm-
sveitinni tveggja tíma skemmtun
áður en dansleikur hefst.
Skemmtunin að Hvoli, i kvöld
hefst kl. 21 og á morgun verður
svo Sumargleðin að Kirkjubæj-
arklaustri.