Morgunblaðið - 26.07.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
Dregið úr
hvalveiðum
næsta ár?
Brighton. EnKlandi. 25. júli. AP.
SAMNINGAVIÐRÆÐUM Al-
þjódahvalveiðiráðsins mjakar
hæjrt i átt að lætcri ársveiðimörk-
um, að sögn Richard Frank,
sendimanns Bandarikjanna á
Fjögur
morð
á dag
KingHton, Jamaira, 25. júlt. AP.
AÐ MINNSTA kosti 4 morð
hafa verið framin af pólitísk-
um ástæðum daK hvern i
KinKston, hófuðborn Jama-
ica, sl. mánuð, að sögn lög-
reglunnar i landinu.
Aðstoðarmaður lögreglu-
stjóra sagði að fyrstu 24 daga
júlí hefðu 114 morð verið
tilkynnt. í Kingston og ná-
grenni hennar býr um hálf
milljón manna. Miklar póli-
tískar óeirðir hafa verið í
borginni síðastliðna mánuði,
en nú líður að kosningum.
Efnahagslegir örðugleikar ha-
fa valdið matarskorti í land-
inu og pólitískir hópar hafa
ekki veigrað sér við að nota
byssur á andstæðinga sína.
Ekki er vitað hversu mörg
morð má kenna um pólitískum
flokkum, þar sem þeir neita
allir að bera ábyrgð á slíku.
ráðstefnunni. Hann viðurkenndi
jafnframt að enn stæðu samning-
ar um mörg atriði i járnum eftir
fimm daga þref.
„Við erum smám saman að ná
samkomulagi um lægri mörk fyrir
næsta ár“ sagði Frank. „Veiðar á
hrefnu og búrhveli verða tak-
markaðar enn frekar".
í viðtali við fréttastofu AP lýsti
forseti Alþjóðahvalveiðiráðsins,
Þórður Asgeirsson, því yfir að
sprengiskutullinn, sem Islend-
ingar hafa notað í þrjátíu og tvö
ár, væri lang mannúðlegasta
drápsvopnið, sem tíðkaðist. Hann
gat þess jafnframt að Japanir
gerðu nú tilraunir með smærri en
öflugri skutul, sem deyða myndi
fórnardýrið samstundis. Hann
sagði að þar til þessi skutull hefði
verið tekinn upp, yrði enn um sinn
að nota sprengjulausan örvarskut-
ul til veiða á smærri hvölum eins
og hrefnu.
„EKKI BERJA MIG AFTUR“. Bólivisku konurnar á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i
Kaupmannahöfn hafa ekki allar gleymt þvi hversu hressilega danska lögreglan tók á móti þeim er
þær mótmæltu byltingunni i Bóliviu á ráðstefnunni á dögunum. Þessi kona gekk um meðal
lögregluþjóna við ráðstefnuna fyrir nokkru, hvitmáluð i framan, og bað þá að berja sig ekki aftur.
Ítalía:
Þrernur ungl-
ingum rænt
Florence, 25. júli. AP.
ÞREMUR vestur-þýskum ungl-
ingum var rænt i litlu þorpi
nærri Florence á ítaliu i dag.
Hópur mannræningja réðist inn
í þorpið og lokaði foreldra tveggja
unglinganna, systkina, inni meðan
þeir óku á brott. Sjónvarvottar
segja ræningjana vera milli 25 og
30 ára. Ekki er vitað hverrar
þjóðar þeir eru.
Yfirmenn á risaolíuskipinu sem rifnaði sundur í Rotterdam:
„Hefðum átt að færa farminn
til, eftir losun í Frakklandi“
Kotterdam, 25. júll. AP.
TVEIR af yfirmönnum á risaolíu-
skipinu „Energy Consentration“
sem rifnaði sundur i höfninni i
Rotterdam fyrir nokkrum dög-
um, hafa viðurkennt að hafa ekki
farið að settum reglum við að
jafnvægisstilla skipið, að sögn
hollensku lögreglunnar.
Skipstjórinn, sem er kínverskur,
og fyrsti stýrimaður sem er frá
Taiwan, voru handteknir sl.
þriðjudag. Þeir hafa skýrt frá því
við yfirheyrslur að eftir losun í
Frakklandi hefði með réttu átt að
færa til farminn í skipinu vegna
jafnvægis þess. Um borð var engin
tölva sem gaf til kynna hvort
skipið væri rétt hlaðið. Þar var
aðeins vél til að reikna út slagsíðu
þess. En áhöfnin hafði takmark-
aða kunnáttu á notkun hennar og
„Billygate44 í
uppsiglingu?
Wmihintcton, 25. júli. frá önnu
Bjarnadóttur. fréttaritara Mbl.
SAMSKIPTI Billy Carters við
rikisstjórn Libýu á undanförn-
um árum geta komið Jimmy
Carter, forseta Bandaríkjanna
og stórabróður Billys, í koll i
kosningabaráttunni, sem i hönd
fer. Billy hefur skráð sig sem
erindreka Líbýustjórnar í
Bandarikjunum og greint frá
220.000 dollurum, sem hann
hefur fengið „að láni“ frá Libýu
á þessu ári. Carter neitar, að
Billy hafi rekið erindi banda-
risku stjórnarinnar i Libýu, en
dómsmálanefnd þingsins og
leiðarahöfundar helztu dag-
blaða Bandaríkjanna eru á einu
máli um, að rétt sé, að opinber
rannsókn fari fram á samskipt-
um Billys við Libýustjórn.
Hvíta húsið greindi frá því á
þriðjudag, að Billy hefði verið
milligöngumaður Zbigniew
Brzezinskis, öryggismálaráð-
gjafa forsetans, og Ali Hourdin,
sendiráðsritara Líbýu í Wash-
ington, í nóvember, þegar Brzez-
inski vildi hitta Hourdin að
máli. í yfirlýsingunni kom ekki
fram, að Jimmy Carter hefði
sjálfur hitt Hourdin í desember,
en Jody Powell, blaðafulltrúi
forsetans, kannaðist við það við
blaðamann Washington Post á
miðvikudag. Hann sagði, að
Carter hefði hitt Hourdin, eftir
að Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hefði
reynt að aðstoða við lausn
bandarísku gíslanna í Teheran
úr haldi og bandaríska sendiráð-
ið í Tripoli hafði verið brennt til
kaldra kola. Powell neitaði, að
Billy hefði haft nokkuð með fund
forsetans að gera.
Köldu hefur lengi andað milli
rikisstjórna Líbýu og Bandaríkj-
anna. Starfsmenn bandaríska
utanríkisráðuneytisins segja þó,
að sambandi hafi ávallt verið
haldið við Líbýu og því ónauð-
syniegt að nota bróður forsetans
til að ná sambandi við sendiráðs-
ritara landsins.
New York Times segir í leið-
ara í dag, að Carter forseti hafi
ávallt neitað að bera nokkra
ábyrgð á gjörðum bróður síns.
Hann virðist þó ekki hafa gert
stjórnvöldum í Líbýu fullljóst,
að Billy hefði engin áhrif í
Washington. Það hefði þvert á
- .
móti bent til hins gagnstæða,
þegar Billy var notaður sem
milligöngumaður milli Líbýu-
stjórnar og öryggismálaráðgjafa
forsetans. Peningarnir, sem
Billy hefur þegið, líta því út sem
borgun fyrir sambönd og áhrif í
Washington, en Líbýa hefur
lengi reynt að koma ár sinni þar
vel fyrir borð. — Það þykir
ótrúlegt, að Líbýustjórn hafi
tekið svo miklu ástfóstri við
Billy, sem er atvinnulaus, en rak
áður benzínstöð í heimabæ sín-
um, Plains í Georgiu, án þess að
búast við nokkru í staðinn.
Repúblikanar í bandaríska
þinginu voru fljótir að fara fram
á rannsókn á málum Billys.
Dómsmálanefnd öldungadeildar-
innar mun taka málið til athug-
unar, en sérstök nefnd verður
ekki skipuð. Ef rannsókn leiðir í
ljós, að Carter forseti hafi ekki
verið alveg hreinskilinn um mál
bróður síns, og Billy hafi aðhafzt
eitthvað misjafnt í samskiptum
sínum við Líbýu, getur Carter-
fjölskyldan þegar farið að undir-
búa flutninga sína aftur til
Plains. Þótt ekkert nýtt komi
fram, hefur Billy þegar spillt
verulega fyrir bróður sínum.
Gaddafi er svarinn óvinur ís-
raelsmanna og bandarískir gyð-
ingar því lítt hrifnir af honum.
Vinátta Billys og Gaddafis gæti
því kostað Jimmy Carter forseta
atkvæði, sem hann þarfnast
verulega í New York, Pennsyl-
vaniu, Illinois og Kaliforníu í
kosningunum í nóvember.
Veður
Akurayri S rigning
Amsterdam 28 heióskírt
Aþena 32 heiöskírt
Beriín 25 heióskírt
BrUssel 28 heiðskírt
Chicago 29 heióskírt
Feneyjar 28 þokumóöa
Franklurt 28 heiöskírt
Fssreyjar 10 rigning
Genf 27 heióskirt
Helsinki 24 heióskírt
Jerúsalem 27 heióskírt
Jóhannesarborg 17 heióskírt
Kaupmannahötn 23 heiðskírt
Las Palmas 33 heióskírt
Lissabon 28 heiöskírt
London 28 heiöskírt
Los Angeles 30 heióskirt
Madríd 38 heiðskírt
Malaga 25 mistur
Mallorca 30 heiðskírt
Miami 31 heióskírt
Moskva 31 skýjað
New York 31 heióskírt
Osló 20 heióskírt
París 26 heiöskírt
Reykjavfk 8 rigning
Rio de Janeíro 25 heiðskírt
Rómaborg 27 heióskirt
Stokkhólmur 30 heióskírt
Tel Aviv 28 heióskírt
Tókýó 30 heióskírt
Vancouver 22 skýjaó
Vínarborg 25 heióskírt
voru allar skýringar með vélinni á
norsku. Skipið var áður í eigu
Norðmanna.
Björgunarmenn vinna nú að því
að losa olíu úr skipinu og verður
það síðan dregið til viðgerðar.
Áhöfn skipsins er enn í Rotter-
dam, þar sem hún er yfirheyrð af
yfirvöldum í Hollandi og Líberíu
en þar^er skipið skrásett.
Brezk
útgerð
bobba
/
1
Lundúnum, 24. júli. AP.
BREZKUR sjávarútvegur „er að
hruni kominn“ að þvi er brezki
Verkamannaflokkurinn, sem er í
stjórnarandstöðu fullyrti i dag.
Flokkurinn hvatti ríkisstjórn
Margaret Thatchers til að láta
meira fé af hendi rakna til
brezkra sjómanna á meðan Efna-
hagsbandalagið reynir að komast
að samkomulagi um sameiginlega
fiskveiðistefnu. Verði það ekki
gert, sagði flokkurinn, er sjávar-
útvegurinn í alvarlegri klípu.
Brezkir sjómenn hafa krafizt
þess að stjórnin hætti innflutningi
á fiski og taki upp niðurgreiðslur
með sjávarafurðum að nýju. Hafa
margir fiskveiðimenn í Skotlandi
lagt skipum sínum um sinn í
mótmælaskyni við stefnu stjórn-
arinnar.
Námamenn beita
tálmum í Bólivíu
Lau Paz, Bólivlu, 25. júli, AP.
HERSTJÓRN Luis Garcia Mezas
hershöfðingja i Bóliviu fullyrti í
dag að tiu þúsund óánægðir
tinnámamenn hefðu sætzt á að
hætta að berjast gegn stjórnvöld-
um og taka upp vinnu að nýju. Þó
játti herstjórnin þvi að nokkurr-
ar mótstöðu gætti enn á náma-
svæðum í um 480 kilómetra
fjarlægð suður af La Paz, og væri
enduropnun námanna háð því að
takast mætti að rýma tálma
námamanna og landbúnaðar-
verkamanna af þjóðvegum.
Ekki hefur reynzt unnt að fá
staðfestingu á fréttinni þar sem
engum samgöngum til eða frá
svæðinu er til að dreifa vegna
tálmanna. Einnig hefur ríkis-
stjórniii' lagt eignarhald sitt á
útvarpsstöð verkamannanna.
Meirihluti Samtaka Suður-
Ameríkuríkja (OAS) hefur for-
dæmt valdarán hersins í Bólivíu
og sakað herinn um að hafa komið
í veg fyrir að lýðræðislega kjörin
ríkisstjórn tæki við völdum. Sam-
tökin hafa einnig hvatt til þess að
komið verði á fót sérstakri mann-
réttindanefnd Ameríkuríkja til að
kanna hvað hæft sé í ásökunum
þess efnis að borið hafi á alvar-
legum mannréttindabrotum í
Bólivíu frá því að herinn hrifsaði
völdin í síðustu viku.