Morgunblaðið - 26.07.1980, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.07.1980, Qupperneq 29
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JULI 1980 29 PlÖtll- sumarið '80 Undanfarnar vikur hef- ur íslensk hljómplötuút- gáfa staðið í blóma. Fjórar plötur hafa borist til um- fjöllunar og aðrar tvær eru einnig komnar í búðir. „Sonn ást“ litla platan með aðallaginu úr „Óðal feðranna" sungið af BJörgvini Halldórssyni verður fyrst til umfjöllunar, en af henni hafa nú selst um það bil 2000 cintök sem er mjög gott fyrir íslenska smáskífu. Þess má geta að plata Tívolí gekk líka vel, og hafa þessar plötur aukið bjartsýni á útgáfu litlu plötunnar að sögn útgefenda. Svo plöturnar séu teknar í tíma- röð þá kom „Kvcðjustund“ Upp- lyftingar næst, fyrir u.þ.b. 2 vikum. Sú plata er hin fyrsta frá þessari efnilegu hljómsveit, og virðast viðtökur ætla að verða sæmilegar, enda margar ágætar melódíur á plötunni. Þann 18. júlí síðastliðinn komu út tvær breið- skífur, „Hvers vegna varst’ ekki kyrr? frá Pálma Gunnarssyni, og „Sprengisandur“ frá Þú og ég. Báðar þessar plötur eru líklegar til vinsælda. Pálmi flytur 12 sterk lög, sem bæði eru fallegar melódí- ur og kröftugt rokk. „Þú og ég“ platan er þegar orðin söluplata, þar sem 3 þúsund eintökum hefur þegar verið dreift í búðir. Tvær aðrar plötur eru komnmar í versl- anir, önnur frá Örvari Kristjáns- syni, harmónikkuleikara, og hin 1. Tómas Tómasson og Þórður Árnason Þursar taka „Punkarann". 2. Ilalli og Laddi fara „í hringfcrð" á næstu plötu. 3. Rut Reginalds kcmur loksins mcð nýja plötu á na'stu vikum. 4. Buhbi og Utangarðsmcnn tilhúnir mcð EP plötu. 5. Magnús Þór cr að vcrða húinn mcð plötu mcð hljómsvcit sinni „Stcina hlund". Mcð honum á mvndinni cr Ellcn Kristjáns- dóttir. frá Hljómsveit Finns Eydal. Plata Örvars nýtur þegar góðrar sölu, en hvorugar þessara platna hafa bor- ist Slagbrandi, þannig að nánari vitneskja liggur ekki fyrir að sinni. Væntanlegar eru nokkrar plötur áður en sumri lýkur. í lok ágúst kemur lítil plata frá Utangarðs- mönnum með 4 lögum. Eru það lögin „Rækjureggae (Ha Ha Ha)“, „Miðnesheiði“, „13—16“ og „Over- dub“, sem er spiluð útsetning á „Rækjureggae". Þess má geta, að Bubbi og Utangarðsmenn munu gefa út breiðskífu með haustinu, líklega í október. Ilaukur Morthens, frændi Bubba, er búinn að taka upp breiðskífu ásamt Mezzoforte, og verður hún gefin út innan tíðar en nafn er ekki enn komið á plötuna. Þessar tvær verða gefnar út f Steinari hf. Eins er plata Rut Reginalds á lokastigi og átti að ljúka upptök- um um þessa helgi. Utgefandi plötu Rutar er Geimsteinn hf. Ragga og Bjöggi. þ.e. Ragnhild- ur Gísiadóttir og Björgvin Hall- dórsson, eru að ljúka upptökum á breiðskífu sem Hljómplötuútgáf- an gefur út. Umfjöllunarefnið er samband karls og konu, og mun plata þeirra koma út í ágústmán- uði og þá líklega fyrri partinn. Þursaflokkurinn sendir frá sér nýja plötu þann 20. ágúst næst- komandi, sem heitir jÁ hljómleik- um“. Eins og nafnið bendir til og frá hefur verið skýrt í Slagbrandi fyrr, var efni plötunnar tekið upp á hljómleikum Þursanna í Þjóð- leikhúsinu í vor. Verða 4 ný lög á plötunni og fjögur eldri. Meðal nýju laganna er „Punkarinn“ sem Tómas Tómasson söng, en það er’ lag Jónasar Árnasonar, „Jón var kræfur karl“ með hluta úr „Föður- bæn sjómannsins" eftir Árelíus Níelsson skeytt inn í. Auk þessa alls er Magnús Þór Sigmundsson og hljómsveit hans „Steinblundur" að ljúka breiðskífu fyrir SG Hljómplötur og sama er að segja um Silfurkórinn. I haust, líklega í september, kemur plata frá Torfa Olafssyni sem samið hefur lög við texta Steins Steinarrs. Platan mun heita „Kvöldvísa" og leika Mezzo- forte undir. Meðal söngvara eru Jóhann Helgason, Jóhann G. Jó- hannsson og Sigurður Sigurðsson. Einnig eru Halli og Laddi að undirbúa plötu fyrir haustútgáfu, sem á að heita „Halli og Laddi umhverfis jörðina á einni plötu“. Fjórir kórar eru einig með plötur á næstunni, Samhjálp, Söngfélag Skaftfellinga, Árnesskórinn og Karlakórinn Goðinn. Viðar Alfreðsson, hornaleikari, hefur auk þess verið að taka upp efni á væntanlega plötu, en hve- nær hún mun koma á markaðinn er enn óvíst, en án efa verður hún athyglisverð. IIIA Spilverk þjóðanna verða með efni á Bilakassettunum Fleiri bílakassettur Um þessar mundir flæðir yfir kassettuút- gáfa. Hér er um svonefndar bíla-kassettur að ræða með blönduðu efni. Steinar hf. og Geimsteinn hf. gefa út tvær tveggja tíma spólur hvor, með efni úr „katalog" sínum. Kassettur þessar eru kallaðar Stjörnukass- ettur og eru þær aðgreindar með númerum frá 1 til 4. Meðal efnis á þessum spólum eru lög af plötum Stuðmanna, Dúmbó og Steina, Þú og Ég, Lónlí Blú Boys, Brimkló og Spilverk Þjóðanna, svo eitthvað sé nefnt. Innan tíðar er svo væntanleg fimmta kassettan, en á henni verða þó nýjar upptökur. Á henni verða tuttugu lög eftir Gylfa Ægisson sem hann leikur sjálfur á rafmagnsorgel. Efnið verður ekki gefið út á plötu. HIA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.