Morgunblaðið - 26.07.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1980
37
jm
tíu
'VflU
W
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13—14
FRÁ MANUDEGI
það tónlag liggur svo hátt og gerir
svo miklar kröfur, að það hefur að
jafnaði ekki verið notað nema á
stórhátíðum. Þetta tónlag er sér-
stakt framlag íslensku kirkjunn-
ar, og er svo fagurt, að ekkert vit
er í að leggja það algerlega niður,
enda veit ég ekki um nokkurn
lifandi mann sem hefur lagt það
til.
• Gregoríska tónið
nýtt og gamalt
Gregoríska tónið er bæði nýtt
og gamalt. Það er svo gamalt, að
það má kenna áhrif þeirrar söng-
hefðar bæði í íslenzkum rímna-
stemmum og „Gömlu lögunum"
svonefndu, þ.e. sálmalögum frá
eldri tíð. Nýtt er gregoríska tónið
að því leyti, að nýrri tíma laga-
smiðir og söngfræðingar hafa
endurnýjað þessa sönghefð mjög
víða innan kirkjunnar. Má við því
búast að einnig íslenzkir tónsmið-
ir eigi eftir að byggja á þeim
grunni í framtíðinni. Eg hefi hér
rætt einvörðungu um sönghefð við
guðsþjónustur þjóðkirkjunnar', en
svo hefir einnig myndazt sönghefð
innan annarra safnaða, svo sem
hvítasunnumanna að ógleymdum
hjálpræðishernum. Það var ein-
hverntímann haft eftir Þórhalli
biskupi, að hann vildi óska þess,
að eitthvað af sönghraða nágrann-
anna í Hjálpræðishernum væri
komið yfir í dómkirkjuna.
• Hver vill láta
leggja niður Sig-
fúsartónið?
Hvað er nú framundan? I
fyrsta lagi liggur ekki fyrir nein
uppástunga að leggja niður Sig-
fúsartónið. Tillögur helgisiða-
nefndarinnar gera ráð fyrir því,
eins og nú er ástatt, að valið sé
milli Sigfúsartónsins, Séra Bjarna
Þorsteinssonar-tónsins og hins
gregoríska tóns, og ekkert því til
fyrirstöðu að fleira sé upp tekið.
Einu sinni fyrir mörgum árum,
heyrði ég útvarpað messu, þar sem
öll þrjú tónlögin voru notuð í
sömu messunni. Slík aðferð er
hrein della. Hún gefur enga hug-
mynd um gildi hverrar tegundar
fyrir sig, og verður stílleysa.
Guðsþjónustan er „helgileikur"
sem í öllum sínum einfaldleik á að
„uppfæra" stílhreint og listrænt.
Nú skal það að lokum tekið
fram, að ekki er gregoríska tónið
allt eins. Það sem brennur í
mínum huga er ekki aðeins sú
tign, sem getur verið yfir því við
hátíðamessur eða þegar bæði
prestur og söfnuður hafa þá hæfni
til að bera, að unnt sé að fram-
kvæma athöfina, svo að ýtrustu
kröfum sé fullnægt, heldur hitt,
hvernig það reynist í litlum söfn-
uðum við hversdagsleg skilyrði.
Eg skal engu spá um það hvort
gregoríska tónið kemur til með að
hafa þau áhrif á líf guðsþjónust-
unnar sem forystumennirnir gera
sér vonir um. Sjálfur hefi ég ekki
trú á því að breytt tónlag valdi
neinni byltinu út af fyrir sig. Það
sýnir þó reynslan. En það er mikið
lán að það er innleitt af mönnum
eins og Dr. Róberti A. Ottosyni,
sem var með færustu mönnum á
sínu sviði. En mín skoðun er:
Verum ekki mótfallin því að hin
gregoríska sönghefð sé innleidd
hér á landi, en varðveitum jafn-
hliða það sem íslenzkir söfnuðir
hafa vanizt og styrkt hefur anda
tilbeiðslunnar í íslenzkum kirkj-
um.
Jakob Jónsson,
fyrrverandi sóknarprestur
Þessir hringdu . . .
• Góð þjónusta
Þórir hringdi.
„Það er alltaf vert að geta
þess ef vel er gert við mann. Ég er
nú einhleypur maður og þarf að
fara með fötin mín æði oft í
hreinsun. Áður fyrr fékk ég fötin
mín alltaf óaðfinnanlega frágeng-
in, en upp á það síðasta hafa
fatahreinsanirnar einhverra hluta
vegna leyft sér að trassa frágang-
inn. Svo var ég á rölti um
vesturbæinn um daginn og rakst á
fatahreinsunina Hraða. Ég fór
með fötin mín þangað og aldrei
hefði ég haldið að svona góð
þjónusta væri enn við lýði. Þar
fékk ég þjónustu sem leiðir af sér
að annars staðar verzla ég ekki
eftir þetta.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á skákþingi Úkraínu í ár kom
þessi staða upp í viðureign meist-
aranna Okhotnik, sem hafði hvítt
og átti leik og Kaplun.
28. Rb5! og svartur gafst upp því
hann getur ekki forðað stórkost-
legu liðstapi.
• Snyrtimennska
við hús Rafveitunnar
Aðalsteinn Guðjónssen
hringdi. Hann vildi aðeins svara
spurningunni sem beint var til
Rafveitunnar af HAP 11.06. og
sagði að hægt væri að safna
svarinu saman í máltækið „Lengi
býr að fyrstu gerð“. Frá fyrstu tíð
hefur frágangurinn hjá Rafveit-
unni setið í fyrirrúmi. Ástæðan
fyrir hve snyrtilegt er í kringum
hús Rafveitunnar, er kannski sú,
að raforkuver hafa ekki verið talin
til prýði af almenningi og þess
vegna kannski reynt að hafa
snyrtiiegt í kringum þau.
HÖGISTI HREKKVÍSI
Eg sendi hér með kveðju mína og hugheilar
þakkir öllum þeim sem minntust mín og
heiðruðu með ýmsum hætti í tilefni af áttatíu
ára afmæli mínu 3. júlí sl.
Ólafía Pálsdóttir.
Sumarhús til sölu
Til sölu er timburhús úr vatnsheldum plötum, byggt á
staurum, stærö 6x10 fm. Húsiö stendur í Vatnsfiröi á
Barðaströnd. Þaö var byggt í sambandi viö Þjóöhátíö
Vestfirðinga 1974 og er eign bæjar- og sýslufélaga á
Vestfjöröum.
Húsiö hefur ekki stöðuleyfi og er selt til niðurrifs eöa
brottflutninga.
Tilboö óskast í húsiö. Tilboð þurfa aö berast til
undirritaös fyrir 10. ágúst n.k.
Sýslumaöur Barðastrandarsýslu,
22. júlí 1980.
Jóhannes Árnason.
Veitingatjald til sölu
Til sölu er veitingatjald, úr grænum sterkum
nylondúk stærö 14x28 fm. Tjaldiö var saumaö fyrir
Þjóöhátíö Vestfiröinga í Vatnsfiröi 1974 og er eign
bæjar- og sýslufélaga á Vestfjöröum. Tjaldinu geta
fylgt sérstakar innréttingar fyrir sölubúðir (á þjóöhá-
tíðinni voru þar 7 verslanir).
Tjaldiö veröur væntanlega sett upp á Hrafnseyri viö
Arnarfjörö 3. ágúst n.k.
Tilboö óskast í tjaldið og þurfa tilboö aö berast
undirrituöum fyrir 10. ágúst n.k.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu,
22. júlí 1980.
Jóhannes Árnason.
Kópavogsbúar
Höfum opnaö heilsurækt að Þing-
hólsbraut 19, Kópavogi.
Bjóöum uppá sólböð, gufuböð, nudd,
hitalampa, hvíldarherbergi, setustofu.
Síminn er 43332. Reynið viðskiptin.
Þægindi í fyrirrúmi — þjónusta í alfara-
leið.
AUGLYSINGAR;
22480
AFGREIGSLA:
83033