Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980
Landbúnaðarvörur
hækka 1. september
LANDBÚNAÐARVÖRUR lækk-
uðu í gærdag um 2,4%—11,4%,
eins og skýrt hefur verið frá i
Morgunbiaðinu.
Það verður þó skammgóður
vermir að óbreyttum niðurgreiðsl-
um, því 1. september n.k, munu
landbúnaðarvörurnar hækka á
nýjan leik með hækkandi vísitölu.
Mbl. tókst ekki að afla sér
upplýsinga um hversu mikil
hækkun landbúnaðarvaranna
verður, sé miðað við bráðabirgða-
tölur um hækkun vísitala.
„Vonumst eftir vaxandi
viðskiptum milli þjóðanna44
- segir f ráf arandi sendiherra S-Kóreu á íslandi
þeim.
Blm. spurði Sang Kook Han
sendiherra að því hverjar líkur
hann teldi á betri samskiptum
Kóreuríkjanna tveggja og svar-
aði hann því til, að þar væri því
miður ekki við miklu að búast. í
þeim viðræðum, sem fram hefðu
farið milli þjóðanna, hefðu
S-Kóreumenn lagt til, að byrjað
yrði á að leyfa eðlilegar póst-
samgöngur milli landanna og að
fólk fengi að heimsækja ætt-
ingja sína handan landamær-
anna. Sang gat þess, að um 10
milljónum kóreskra fjölskyldna
hefði verið tvístrað í lok
Kóreustríðsins. N-Kóreumenn
legðu hins vegar alla áherslu á
fulikomna sameiningu landanna
strax, sem S-Kóreumenn teldu
með öllu óaðgengilegt þar sem
þjóðarhelmingarnir byggju við
svo gerólíkar aðstæður í efna-
hagslegu og stjórnarfarslegu til-
liti.
Sang Koök Han, sendiherra
S-Kóreu á Islandi sagðist að
Iokum vilja koma á framfæri
þakklæti sínu til allra þeirra,
sem hann hefði átt samskipti við
hér á landi. Hann hefði hvar-
vetna átt vinsemd og virðingu að
mæta. Hann sagðist vona að
samskipti S-Kóreumanna og ís-
lendinga mættu fara vaxandi í
framtíðinni og nefndi í því
sambandi, að á næsta ári hygð-
ust S-Kóreumenn taka þátt í
kvikmyndahátíð sem haldin yrði
hér á landi.
SENDIHERRA Suður-Kóreu á
tslandi, hr. Sang Kook Han, er
nú staddur hér á Iandi og er
þetta hans sjötta heimsókn til
landsins og jafnframt sú sið-
asta að sinni þar sem hann
hverfur nú til nýrra starfa
fyrir land sitt. Hann hefur
verið sendiherra hér i fjögur ár
og haft aðsetur í Ósló.
í stuttu spjalli, sem Mbl. átti
við Sang Kook Han, bárust m.a. í
tal samskipti þjóðanna, íslend-
inga og S-Kóreumanna. Sang
sagði, að fjarlægðin milli land-
anna væri að vísu mikil en þrátt
fyrir það væru viðskiptin minni
en efni stæðu til. Útflutningur
S-Kóreumanna til Norðurlanda
væri einkum vefnaðarvara, skór
og raftæki og færi vaxandi.
Hann sagði, að í viðskiptunum
við íslendinga hallaðist mjög á
aðra hlið og íslendingum í óhag.
S-Kóreumenn hefðu að vísu
keypt nokkra ull héðan og vildu
kaupa meira en vegna takmark-
ana á þeim útflutningi hér væri
þar við ramman reip að draga.
Sang sagði, að S-Kóreumenn
væru nú að þreifa fyrir sér á
alþjóðlegum bílamarkaði með
smábíl, sem kallaður væri Pony
og væri sambærilegur við jap-
anska smábíla hvað verð og gæði
snerti.
Sang Kook Han sendiherra
sagði að mörg undanfarin ár
hefðu S-Kóreumenn búið við
efnahagslegt góðæri og árlegur
hagvöxtur verið um 10—12%.
Martin Petersen:
Hef ekki ákveð-
ið neitt ennþá
— Ég vil ekkert um málið
segja á þessu stigi, sagði Jón
Júlíusson fyrrum fram-
kvæmdastjóri stjórnunar-
sviðs Flugleiða, sem látið
hefur af störfum hjá Flugleið-
um eftir 25 ára starf, er Mbl.
ræddi við hann í gær, en
síðasti vinnudagur hans hjá
fyrirtækinu var 31. júlí sl.
Martin Petersen fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
Flugleiða hefur einnig látið af
störfum hjá Flugleiðum, en
hann hóf störf hjá Loftleiðum
í september 1947. Mbl. spurði
hann hvað tæki nú við hjá
honum:
— Ég er nú ekki búinn að
ákveða neitt, en hyggst hugsa
um það næstu eina til tvær
vikurnar hvað ég tek mér fyrir
hendur. Ég óttast ekki að ég
finni mér ekki eitthvert starf,
enda ekki sérlega kröfuharður
um hvaða störf ég hefi með
höndum, sagði Martin og
kvaðst að öðru leyti ekki vilja
ræða um Flugleiðir, það væri
lokuð bók og hann vildi ein-
ungis horfa fram á við.
Heyskapur gengur vel og spretta er með eindæmum góð:
Vegna samdráttar víða um heim
og olíuhækkana væru nú hins
vegar ýmsar blikur á lofti og
væri talið að hagvöxturinn yrði
ekki nema 3—4% á þessu ári.
Þegar blm. spurði Sang um þá
ókyrrð, sem verið hefði í
S-Kóreu að undanförnu, sagði
hann, að þau mál væru ekki
auðskýrð í stuttu máli. Núver-
andi stjórnvöld hefðu þó í
hyggju að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu í október n.k. um
nýja stjórnarskrá og snemma á
næsta ári ættu síðan að fara
fram forsetakosningar og al-
mennar kosningar í kjölfarið á
Sang Kook Han, fráfarandi
sendiherra S-Kóreu á íslandi.
Samtöl á frídegi
verzlunarmanna
í TILEFNI af frídegi verzlun-
armanna átti Morgunblaðið
samtöl við nokkra aðila verzl-
unarinnar um stöðu hennar í
dag, frelsi í verzlun o.fl.
Bls. 10: Samtal við Þorvarð
Elíasson skólastjóra Verzlun-
arskólans og Arna Jónsson
kaupmann.
Bls. 11: Samtal við Jóhann J.
Ólafsson stórkaupmann í
Reykjavík, Valdemar Baldvins-
son stórkaupmann á Akureyri og
Jónas Eggertsson bóksala.
. Bls. 12: Samtal við Úlfar
Ágústsson kaupmann á ísafirði,
Guðmund I. Gunnlaugsson í
hjólasólningunni Bandag og Pét-
ur Guðmundsson verzlunarmann
hjá SÍS.
Bls. 13: Samtal við Ásgeir
Holm í Málaranum.
Bls. 21: Samtal við Magnús L.
Sveinsson formann Verzlunar-
mannafélags Reykjavikur.
Bls. 22: Viðskiptasíða, m.a.
með samtali við Bjarna Snæ-
björn Jónsson hagfræðing Verzl-
unarráðs.
Bls. 28: Pétur Pétursson ræðir
við Kristin Einarsson kaup-
mann.
Tímabilið 1958-1978:
Útflutningur hef-
ur nær tílaldast
INNFLUTNINGUR landsmanna
jókst um 17,8% á sl. ári frá árinu
1978, en útflutningur jókst á
sama tímabili um 20,21%. AIls
var flutt út fyrir um 278,5
milljarða króna, en inn fyrir um
292,0 milljarða króna. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var því óhag-
stæður um liðlega 13,7 milljarða
Ef litið er á sambærilegar tölur
fyrir árin á undan, þegar þær hafa
verið uppfærðar á meðalgengi
ársins 1978, kemur í ljós, að
innflutningur landsmanna á árinu
1978 var tæplega 248 milljarðar
Nafn konunn-
ar sem lézt
KONAN, sem lézt í eldsvoðanum
að Langholtsvegi 77 í fyrradag hét
Mathilde Ellingsen. Hún var 68
ára gömul, fædd 11. júlí 1912. Hún
lætur eftir sig eiginmann og
uppkomin börn.
Eldsupptök eru ókunn. Rann-
sóknarlögregla ríkisins vann í
gærmorgun að rannsókn málsins.
króna, en verðmæti útflutnings
var um 231,6 milljarðar króna.
Innflutningsaukningin frá árinu
áður var um 5,7%, en árið 1977 var
flutt inn fyrir andvirði um 234,5
milljarða króna, miðað við meðal-
gengi ársins 1978. Útflutningurinn
milli áranna hafði hins vegar
aukizt um nær 24,4%, en hann var
á árinu 1977 um 186,2 milljarðar
króna.
Vöruskiptajöfnuðurinn hefði
því verið óhagstæður um rúmlega
16,4 milljarða á árinu 1978, en um
rúmlega 48 milljarða króna á
árinu 1977, ef verðmæti inn- og
útflutnings væri fært upp á með-
algengi ársins 1978.
Við samanburð á inn- og út-
flutningstölum, miðað við meðal-
gengi ársins 1978, kemur í ljós, að
útflutningur landsmanna hefur
um tifaldast á tímabilinu 1958—
1978, eða úr 24,5 milljörðum króna
í 231,6 milljarða króna. Innflutn-
ingur hefur hins vegar nær átt-
faldast á þessu tímabiii, en inn-
flutningurinn var um 32,6 millj-
arðar króna árið 1958, en var 1978
um 248 milljarðar króna.
Slys á börnum í heimahúsum
HEILSUVERNDARSTÖÐ
Reykjavíkur hefur nýlega
gefið út bækling sem fjall-
ar um slys á börnum í
heimahúsum.
Bæklingurinn er 18 blað-
síður, og mikið mynd-
skreyttur. í honum er gerð
grein fyrir margskonar
hættum fyrir börn, sem
stafa af daglegum hlutum á
heimilum, s.s. stigum, rúmi
barnsins, barnavagninum,
pelanum, svölum og svo
framvegis.
Slys á f • V
börnum| ^
i heimahúsum
Möguleikar kannaðir
á heysölu til útlanda
„HEYSKAPUR hefur víð-
ast gengið mjög vel og
spretta verið með eindæm-
um góð,“ sagði Agnar
Guðnason, blaðafulltrúi
Búnaðarfélags íslands, er
Morgunblaðið spurði hann
hvernig heyskaparhorfur
væru að þessu sinni.
„Sérstaklega hefur hey-
skapur gengið vel á Suður-
landi og sums staðar í
Eyjafirði er heyskap lokið.
Aðalatriðið nú er að koma
einhverju af þessu heyi á
erlendan markað, því tals-
vert hefur dregið úr eftir-
spurn hér innanlands. Ör-
ugglega verður hægt að
selja nokkurt magn til
Norður-Noregs en verð á
heyi er tiltölulega hátt þar
í landi. Ákveðið var á fundi
hjá Framleiðsluráði í dag,
að Gunnlaugur Björnsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri
hjá Búvörudeild Sam-
bandsins, færi til Noregs á
mánudag og fullkannaði
þar möguleika á heysölu,
en verulegar líkur virðast
á, að hægt verði að selja
hey til Vestur-Noregs.
Búreikningastofa land-
búnaðarins hefur reiknað
út framleiðsluverð á heyi
og er það u.þ.b. 85 kr. hvert
kíló. Verðið í Noregi er frá
100 til 160 kr/kg en flutn-
ingsgjöld á heyi eru hins
vegar nokkuð há.“