Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980 31 Umsjón: Séra J&n Dalbií Hróbjailsson Séra Karl Siyv rbjörvsson Siyurbur Prtlsson DROrriNSDEGI Allt, sem lifir, lofar Drottin! Það er oft haft á orði að nútímamaðurinn lifi í gerviverðld, án raunverulegra tengsla við nátt- úruna umhverfis sig. Borgarmenn- ing nútímans er a.m.k. æði firrt eðlilegri umgengni við dýr, jurtir og móður jörð og lítur það gjarnan sem andstæðing sinn. Það birtist meðal annars í þeirri takmarka- lausu skemmdaráráttu, sem knýr fólk til að rifa upp og eyðileggja blóm og plöntur í almenningsgörð- um sem nýleg dæmi sanna hér í höfuðstaðnum. Og hve margir gefa sér tíma um þessa mestu ferðahelgi sumarsins, að njóta fegurðar og kyrrðar náttúrunnar? Flytja menn ekki bara með sér þægindin, hávað- ann og streituna í sumarbústaðinn eða á tjaldstæðin þar sem ærandi hávaði útvarps og segulbandstækja glymur öllum stundum? Ef til vill ber þetta vott um djúpstæðan ótta mannsins og öryggisleysi í heimin- um, sem hann telur sig hafa á valdi sínu, og krampakenndar tilraunir hans til að sanna fyrir sjálfum sér að svo sé. Afleiðing þessa birtist svo í mengun, rányrkju og umhverfis- katastrófum margskonar, em eru nánast daglegt brauð um þessar mundir. Blind tæknitrú efnishyggj- unnar hefur att manninum út í styrjöld gegn náttúrunni og því umhverfi sem maðurinn sjálfur er hluti af. Sú trú sem Biblían boðar og kristin kirkja lifir i, ótUst ekki náttúruna. Hún virðir hana, en forðast hana ekki. Hún skynjar lífið sem eina heild. Hún heyrir hjartslátt Drottins í sköpuninni og sér fótspor hans og fingraför í brautum stjarna og blómum jarðar og barnsaugum tærum. Hún heyrir enduróm raddar hans í ómum vorsins og lofsöngvum sumarsins, stormum haustsins og dimmri þögn vetrarnátta. Trúin sér og skynjar að tilveran er ekki af tilviljun runnin eða leiksoppur blindra afla og lögmála, að baki alls sem er hugsun, vit og vilji — GUÐ. Sú skynjun gefur okkur nýja afstöðu til dýra merkurinnar, fiska vatns- ins og fugla himinsins, orms i mold og pöddunnar undir steini. Afstöðu, sem er óháð nýtingarmöguleikum og arðsemissjónarmiðum. Maður- inn er hluti alls þessa, hluti lífkeðju heimsins. En maðurinn er þó meir en þetta allt. Maðurinn er skapaður i Guðs mynd, segir Biblían, þ.e. skapaður til samfélags við Guð, samstarfs með Guði. Maðurinn er hugsandi vera, skapandi, og kallaður til þátttöku í áframhaldandi sköpun Guðs, sem samverkamaður og ráðs- maður. Það felur í sér köllun til að vinna gegn upplausn og eyðingu í sérhverri mynd, og rækta, hlúa að og bæta. í sköpunarhugtaki Biblí- unnar felst einmitt þetta að standa gegn óskapnaðinum og upplausn- inni, setja hinu illa skorður, gera jörðina lífvænlegri, byggilegri og betri. Byggja varnargarða og áveit- ur, halda illgresi og meindýrum í skefjum, hamla gegn mengun, en líka að stuðla að þeim efnahagslegu og pólitísku aðstæðum, sem efli rétt og réttlæti og almenna heill manna og þjóða. Kristin sköpunartrú hvetur okkur til að bera virðingu fyrir lífinu. „111 meðferð á skepnum ber vott um grimmt og guðlaust hjarta — segir Helgakver og vitnar í 2. Mós. þar sem segir: „Sjöunda dag- inn skaltu halda heilagan svo að uxi þinn og asni geti hvílt sig.“ Kirkjur erlendis hafa vakið athygli á því undanfarin ár hversu ómann- úðleg (og þá um leið ókristileg) meðferð á dýrum hefur rutt sér til rúms með hinni háþróuðu vélvæð- ingu í matvælaframleiðslunni sérst. í alifuglarækt. Slík „verk- smiðjubú" tíðkast líka hérlendis í nokkrum mæli. „Ár trésins" minnir okkur á þær ægilegu afleiðingar, sem rányrkjan hefur á allt umhverfi mannsins. Eyðing skóga á íslandi af völdum skógarhöggs og ofbeitar til forna, hefur valdið stórkostlegri gróður- eyðingu og uppblæstri og gert ísland stórum snauðara. (Minna má t.d. á orðið holt, sem upphaf- lega merkti „skógur" en nú hefur allt aðra merkingu. t fornum mál- daga Reykjavíkurkirkju segir að hún eigi „skógarhögg í Þingholt- um!“). Það er gleðilegt, að skilning- ur manna á þessum málum fer vaxandi og tæknin er fyrir hendi til að snúa óheillaþróuninni við. PrYÖum landió-plonlum tijam! BIBLÍULESTUR Vikuna 3.—9. ágúst Sunnudagur 3. ágúst Lúk. 16: 1 — 9 Mánudagur 4. ágúst Prodik 9: 13- -18 Þriöjudagur 5. ágúst Lúk. 16: 10- -13 Mlövlkudagur 6. ágúst Jak 5: 13- -18 Flmmtudagur 7. ágúst I.Tím 4: 12- -16 Föstudagur 8. ágúst Matt. 10: 16- -23 Laugardagur 9. ágúst Lúk. 12: 54- -59 Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill! Þú ert klæddur hátign og vegsemd. Hann sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna, þær drykkja öll dýr merkurinnar villiasnarnir slökkva þorsta sinn. Hann vökvar fjöllin frá hásal sínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna. Hann lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni og vín, sem gleður hjarta mannsins. Hann gjörði tunglið til að ákvarða tíðirnar sólin veit hvar hún á að ganga til viðar. Þegar þú gjörir myrkur verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik. Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði. Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum, en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld. Hversu mörg eru verk þín, Drottinn! þú gjörir þau öll með speki, jörðin er full af því, sem þú hefur skapað. Þar er hafið mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór. Þar fara skipin um, og Levíatan (stórhvelin), sem þú hefur skapað til þess að leika sér þar. Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma, Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi sinni, og þau mettast gæðum. Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau. Þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar. Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar. Dýrð Drottins vari að eilífu Vegsama þú Drottin, sála mín! Halelúja! (Sálm.104) ... kmssfestur, dáinn og grafinn ... Krossinn er tákn hinnar kristnu trúar. Sérkennilegt þeg- ar um er hugsað að aftökutæki skuli öðlast slíkan sess. Krossinn er miðlægur í kristinni trú. Um það verður tæpast deilt, að þegar á fyrstu öldum eftir krossdauða og upprisu Jesú Krists var pred- ikunin um krossinn þungamiðja í hinum kristna boðskap. Það er því ofur eðlilegt að á krossinn skuli minnst í postullegu trúar- játningunni, sem er ein elsta játning kristinnar kirkju. I ofanskráðum þrem orðum er undirstrikað, að sá Jesús Krist- ur, sem dæmdur var á dögum Pontíusar Pílatusar, var kross- festur að rómverskum hætti, lét lífið vegna þeirrar aðgerðar og var lagður í gröf. Einfaldar staðreyndir um örlög manns sem dæmdur hafði verið til dauða. En hér er ekki öll sagan sðgð. Hvers vegna skiptir það kristna menn svona miklu máli að minna á þetta. Það er vegna þess að Nýja testamentið þekkir ekki annan Jesúm en þann, sem „einn er dáinn fyrir alla“. Að heyra um dauða Jesú Krists er að heyra um atburð, sem skiptir manninn meira máli en nokkuð annað. „Einn er dáinn fyrir alla, þá eru þeir allir dánir, og hann er dáinn fyrir alla, til þess að þeir sem lifa, lifi ekki framar sjálfum sér, heldur honum, sem fyrir þá er dáinn og upprisinn." (2. Kor. 5,15) Eða svo notuð séu orð Marteins Lúthers: Ég trúi, að Jesús Kristur ... sé minn Drott- inn, sem mig glataðan og fyrir- dæmdan mann hefur endurleyst, friðkeypt og frelsað frá öllum syndum, frá dauðanum og djöf- ulsins valdi. Ekki með silfri né gulli, heldur með sínu heilaga, dýrmæta blóði og með saklausri pínu sinni og dauða, til þess að ég sé hans eign ...“ Krossdauði Jesú er því ekki fyrst og fremst tákn um örlög góðs manns, sem dó píslavættisdauða, heldur dauði fyrir aðra, svo að þeir mættu lifa. Áherslan sem Nýja testa- mentið og frumkristnin öll legg- ur á krossdauða og upprisu Jesú Krists er ekki af söguiegum toga. Vissuleg er hér um sögu- legan atburð að ræða. En þessi sögulegi atburður er predikaður sem fagnaðarerindi til allra manna. Þeir sem ekki hlusta á þessa predikun sem fagnaðarerindi heyra ekkert annað en heimsku- legt hjal. Þannig hefur það verið frá upphafi: „En vér predikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli, en heiðingjum heimsku, en sjálfum hinum köll- uðu, bæði Gyðingum og Grikkj- um, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.“ (I. Kor. 1,23) En með því út var leiddur alsærður Lausnarinn. gjörðist mér vegur greiddur i Guðs náðarríki inn ok eilift lif annað sinn. Blóðskuld og bölvan mina burt tók Guðs sonar pina. Dýrð sé þér. Drottin minn. H.P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.