Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGLIST 1980 í LEIT AÐ TITANIC Ævintýralöngun freistar bandarískra vísindamanna Brezka KUÍuskipiA Titanic sökk í hafiA u.þ.b. þrjú hundruA sjómílur suA-austur af Nýfundnalandi þann 15. apríl. 1912. eftir árekstur viA isjaka. Klukkan var tuttu^u mínútur yfir tvö aAfaranótt manudaifs. er skipiA hvarf af lyjfnu yfirborAinu «k fórust meA þvi fimmtán hundruA og sautján manns. Titanic var stærsta «k iburAarmesta farþeKaskip. sem smíAaA hafAi veriA á sinum tíma «k «ft kallaA „Ilafdr«ttninKÍn“. Vestur-þýzka tímaritið „Der Spiegel“ skýr- ir frá því að 22. júlí síöastliöinn hafi hópur bandarískra haffræðinga frá Kólumbía-há- skóla í New York lagt upp í leiöangur í leit aö flaki frægasta farþegaskips allra tíma, Titan- ic. Farkostur leitarmanna er rannsóknar- skipiö „Fay“ útbúið fullkomnustu leitartækj- um. Hyggjast þeir þaulkanna fimmtán fersjó- mílna svæöi í suöurátt frá Nýfundnalandi og gera sér vonir um aö þar kunni sextíu og átta ára gamalt flak risaskipsins enn aö leynast á um þrjú þúsund og sex hundruð metra dýpi. Leitin á hafsbotni Tímaritið lýsir útbúnaði skipsins á eftirfarandi hátt: Frá skut hangir stálþráður niður í hafdjúpið. Á enda þráðarins er „sökkuir, um þúsund kíló að þyngd. Framan við sökkulinn er blýlóð, er heldur þráðarendanum á jöfnu dýpi og vegur upp á móti sleða,er tengdur er aftan í sökk- ulinn. Þennan sleða, sem er þrír metrar að lengd og rúmlega einn metri á breidd, dregur skipið áfram í um það bil hundrað og áttatiu metra hæð yfir hafs- botni. í sleða þessum er m.a. að finna málmskynjara. Hann ætti að sýna óvéfengjanlegt frávik, er sextíu þúsund tonna stálskrokk- ur Titanic kemur inn á segulsvið hans í innan við tuttugu kíló- metra fjarlægð. Á hinn bóginn getur málm- skynjarinn ekki skorið úr um hvort þar er raunverulega flak gufuskipsins, sem veldur, taki mælirinn kipp. Til að ganga úr skugga um það hefur verið komið fyrir hárnákvæmum bergmálsleitartækjum sitt hvoru megin á sleðanum. Bæði tækin geta kannað fimm til sex kílómetra svæði með hljóð- bylgjusendingum. Hljóðbylgjur þessar endur- kastast frá botninum og er bergmálið nógu nákvæmt til þess að móttökutækið geti um- breytt því í uppdrátt, er gefur ljósmyndinni lítið eftir að skýr- leika. Svo nákvæm er hljóðmyndin, er áhöfnin á Fay nær á skerma sína um borð, að ekki væri einungis hægt að greina skrokk eða yfirbyggingu skipsins heldur einnig smáhluti á stærð við hengikróka björgunarbátanna. Eða svo fullyrðir tæknilegur framkvæmda8tjóri leiðangurs- ins, Michaei Rawson, að minnsta kosti. Rawson starfar við La- mont-Doherty jarðfræðiranns- óknarsöð Kólumbía-háskólans. Hefur hann, ásamt aðstoðar- mönnum frá Kólumbía, tekið höndum saman með Schripps haffræðistofnuninni við Kali- forníuháskóla. Hins vegar er það olíukóngur frá Texas, Jack Grimm, er stendur straum af leitinni. “Haffræðingar og jarðeðlis- fræðingar eru einnig mannlegir og hafa annan dyntinn sjúklegar þrár“, segir Mike Rawson. „Við einnig trúum því stundum að á hafsbotni sé gersemar að finna, djúpsjávargrafir og eldgýga." En „ævintýrið" er vísindalegt öðrum þræði. Eini hængurinn á er sá, að um þessar mundir er síður en svo auðvelt að finna digra sjóði til „alvarlegra" djúpsævisathug- ana. En styrktarmaðurinn Grimm eygir hagnaðarvon. And- virði skartgripa og demanta, sem sagt er að hafi sokkið með skipinu, er metið á tvö hundruð og fimmtíu milljónir dollara. Leitarsvæðið, þrjú hundruð sjómílur suðaustur af Race- höfða á Nýfundnalandi, er heill- StyrktarmaAurinn Jack Grimm andi fyrir jarðfræðinga. Þar sem Titanic hvarf í hafið hallar landgrunninu skarpt ofan í gilj- ótt svæði hryggja og grafa. „Hugsanlegt er að Titanic hafi stungizt rakleiðis ofan í eina holuna" segir Rawson. „Þess vegna verðum við að fara sem næst hafsbotni með leitartæk- in“. Með málmskynjara og berg- málsleitartæki af ólíkt ófull- komnari gerð en nú tíðkast tókst árið 1963 að finna bandaríska kjarnorkukafbátinn „Thresher" á tvö þúsund og sex hundruð metra dýpi. Þetta er ein af ástæðunum fyrir bjartsýni Rawsons. „Leitarsvæði okkar teygir sig yfir alla þá staði sem bent var á að slysið hefði orðið á. Ef við getum einbeitt okkur án truflunar, ætti það aðeins að taka okkur þrjá daga að kanna allt svæðið', sagði hann áður en lagt var upp f leiðangurinn. Þegar Morgunblaðið aflaði sér síðast upplýsinga um ferðina á miðvikudag, voru leiðangurs- menn enn á leið til áfangastaðar út af Nýfundnalandi. Hafi leitarmenn upp á flakinu hyggjast þeir slaka öðru tæki í hafið. Þetta tæki er kassi búinn ljóskösturum og myndavélum og er hvort tveggja varið gegn hinum gífurlega vatnsþrýstingi í djúpinu (þrjú hundruð og fimm- tíu kíló á fersentimetra). Vonast vísindamennirnir til að ná með þessum hætti viðunandi upp- drætti og kvikmyndum af óláns- fleyinu. Vísindalegur ráðgjafi leiðang- ursmanna, William Ryan, efast hins vegar um að flakið sé að finna á afmörkuðu leitarsvæði. „Landslaginu þarna niðri hallar til suðausturs" segir Ryan. „Við höfum gengið úr skugga um að grjótmoli á stærð við hús getur á þessu dýpi borizt hundruð míina á fáeinum dögum þótt botninn halli ekki nema fjórar gráður á sléttu. Þannig gæti Titanic hafa hrakizt langt frá þeim stað, sem tiltekinn hefur verið." Það er ekki útilokað heldur, telur Ryan, að flakið sé grafið á bólakaf í lausum ruðningi, er sums staðar hefur hlaðizt upp tvö þúsund metra í gröfum neðansjávar. En fari á endanum svo að leiðangursmenn hafa árangur sem erfiði er ráðgert að fara í aðra ferð siðar á árinu. Verður þá notað verkfæri, sem dregið verður yfir botninn til þess að krækja í óyggjandi sannanir um ástand skipsins og verður hlut- um úr flakinu lyft upp á yfir- borðið. Lokaáfangi rannsóknanna á næsta ári verður að senda kaf- bátinn „Álnökkva" í djúpið. Alls getur báturinn rúmað sex til sjö menn innanborðs og kafað á um fjögur þúsund og fimm hundruð metra dýpi. Báturinn verður útbúinn sterkum ljóskösturum og logsuðutækjum utanborðs. Samkvæmt áformum Grimms gæti Álnökkvinn sent fjarstýrð vélmenni út af örkinni. Þau gætu borið myndavélar og jafnvel smeygt sér inn í flakið til að ná í fenginn — og e.t.v. snúið aftur með fjársjóðinn langþráða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.