Morgunblaðið - 03.08.1980, Blaðsíða 40
Síminn
á afgreiöslunnl er
83033
ovöuntiTa^ií)
' s. J J ,
£ Siminn a afgreiðslunm er
83033
JKtrounblnbib
SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980
Rólegasta versl-
«£ unarmannahelgi
um langt árabil
Þúsundir landsmanna hafa lagt land undir fót um helfnna aö þessu
sinni eins og undanfarnar verslunarmannahelgar.
ÚTISAMKOMUR og hátíð-
arhöld víða um land um
verslunarmannahelgina
höfðu alls staðar gengið
stórslysalaust, þó nokkur
ölvun væri þar sem flest
fólk er samankomið. Engar
óspektir höfðu þó orðið
vegna ölvunar, og margir
lögreglumenn er Morgun-
blaðið ræddi við í gær töldu
þetta vera rólegustu versl-
unarmannahelgi um árabil,
það sem af er alla vega.
Fjölmenni er líklega mest
á þjóðhátíðinni í Herjólfsdal
í Heimaey, og var ölvun þar
nokkur í fyrrinótt, að sögn
lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum. Allt hefur þó gengið
vel, og hegðun fólks sögð síst
verri en venja hefur verið
til. Á Laugum í Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu voru í
gærmorgun um tvö þúsund
manns, og allt með friði og
spekt, að sögn löggæslu-
manna á staðnum. I Þórs-
mörk var talið að væru um
600 manns í gær, að sögn
lögreglunnar á Hvolsvelli,
ölvun var nokkur en þó gekk
allt vandræðalítið. Þá var
margt um manninn á Laug-
arvatni og í Þjórsárdal, og
einnig á Þingvöllum og við
félagsheimilin í Árnessýslu,
en að sögn lögreglunnar á
Selfossi hafði allt gengið vel
er blaðamaður Morgunblað-
sins ræddi við lögreglumenn
í gær. Ölvun var nokkur, en
þó minni en oftast áður, og
töldu lögreglumenn til dæm-
is að þessi helgi væri rólegri
á Þingvöllum en flestar
helgar fyrr í sumar.
Umferð var fremur lítil á
þjóðvegum landsins á föstu-
dagskvöld og fyrri hluta
dags í gær, en búist var við
að hún myndi aukast þegar
liði á gærdaginn. Veður var
gott víðast um land, og var
til dæmis um 20 stiga hiti í
Þórsmörk, og einnig í Galta-
lækjarskógi, þar sem voru
um 2000 manns á vel heppn-
uðu bindindismóti.
Geir Hallgrímsson í viðtali um efnahagsmálin:
Geðþótti ráðherra ræð-
ur í verðlagsmáhun
Afnema ber hið úrelta kerfi
Hvanná og Krossá:
Margir
ökumenn
haf a lent í
erfiðleikum
LÖGREGLUMENN og Björg-
unarsveitin á Hvolsvelli áttu
annríkt siðastliðna nótt við
árnar í Þórsmörk, að því er
lögreglan á Ilvolsvelli tjáði
hlaðamanni Morgunblaðsins i
gær. Torfarið hefur verið yfir
vötnin, en þó hefur allt gengið
stórslysalaust. Nokkuð hefur
þó verið um að ferðalangar
hafi fest bifreiðar sínar í
ánum, en enn sem komið er,
hefur tekist að ná þeim öllum
upp úr án mikilla skemmda
eða meiðsla á fólki.
Það eru einkum Krossá og
Hvanná, sem eru erfiðar yfir-
ferðar, að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli, og er fyllsta ástæða
til að hvetja fólk til að gæta
ýtrustu varúðar. Um 20 stiga
hiti er nú í Mörkinni, og árnar
því vatnsmiklar. Hefur það
meðal annars valdið því, að þær
hafa víða breytt rennsli sínu og
farvegi, og getur því verið
viðsjárvert að aka út í árnar, þó
á gömlum vöðum sé. Sem fyrr
segir, hafa margir ökumenn
lent í erfiðleikum og fest far-
artæki sín í ánum, þó ekki hafi
orðið slys af, en lögreglan á
Hvolsvelli óskaði sérstaklega
eftir því, að ökumönnum yrði
sagt, að jeppabifreiðar af minni
gerðinni ættu ekkert erindi í
nar eins og þær eru nú.
254 hval-
ir á land
KOMNIR voru á land hjá Hval-
stöðinni í gær 254 hvalir það sem
af er vertíðinni samkvæmt upp-
lýsingum, sem Mbl. fékk þar í gær.
Ekkert hvalveiðiskipanna hafði
tilkynnt veiði í gærmorgun, en
nokkur veiði hefur þó verið í
vikunni og stóð vinnsla yfir í gær.
„RÍKISSTJÓRNIN setti sér
það mark að tryggja kaup-
máttinn. Alþýðubandalags-
menn börðu sér á brjóst og
strengdu þess heit, að stjórn-
arseta þeirra myndi koma í
veg fyrir kjararýrnun. Nú er
hins vegar að öllu óbreyttu
spáð 6% kaupmáttarrýrnun á
þessu ári. Á ýmsum aðstand-
endum ríkisstjórnarinnar má
skilja. að ætlun rikisstjórnar-
innar sé með lagasetningar-
valdi að koma í veg fyrir, að
áhrif þess verulega „gengis-
sigs í einu stökki“, sem ég
áður minntist á komi fram i
verðbótaþætti launa. Þess
vegna mun allt kapp vera
lagt á það nú, að kjarasamn-
ingar takist fyrir 1. septem-
ber, en kosningaloforðið um
sólstöðusamningana í gildi er
gleymt og grafið, þ<)tt kaup-
máttur sé nú lægri en fyrir
þá og eftir febrúarlögin
1978.“
Þannig kemst Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, að orði í sam-
tali við Morgunblaðið, sem
birt er á blaðsíðu 14 í dag.
Geir er þar spurður álits á
efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar og þróun efnahagsmála
þjóðarinnar almennt. Hann
segir, að framkvæmd niður-
talningarstefnunnar hafi verið
með þeim hætti, að verðlags-
ráð hafi í raun verið gert
óstarfhæft. Geðþótti ráðherra
ráði í raun ferðinni og ætti sú
misbeiting á hinu úrelta verð-
lagskerfi endanlega að leiða
mönnum fyrir sjónir, hve mik-
ið hagsmunamál það er, jafnt
fyrir fyrirtæki og neytendur,
að afnema kerfið með öllu.
Ríkisstjórnin haldi þannig á
þessum málum, að við blasi
taprekstur bæði verslunar og
þjónustufyrirtækja. Verslun-
armenn hafi því yfir litlu að
gleðjast á hátíðisdegi sínum.
Geir Hallgrímsson segist
engu vilja spá um langlífi
ríkisstjórnarinnar, en telur, að
það velti annars vegar á því,
hvað framsóknarmenn vilji
fylgja fast eftir upphrópunum
sínum og rokum á þriggja
mánaða fresti um nauðsyn
strangra aðhaldsaðgerða gegn
verðbólgunni og hins vegar
því, hve langt kommúnistarnir
í Alþýðubandalaginu þori að
ganga á bak orða sinna varð-
andi kjaramálin.
VEGNA frídags verzlunar-
manna kemur Morgunblaðið
næ8t út miðvikudaKÍnn 6.
ágúst.
Kaffineyzla jókst
um 30% á einu ári
- Hver landsmaður
KAFFINEYZLA landsmanna
jókst um 30% milli áranna 1978
og 1979, en á síðasta ári var
heildarneyzlan á hvert manns-
barn um 11,4 kíló á móti 8,7
kíióum árið á undan. Þetta
þýðir, að i heild hafi landsmenn
neytt rúmlega 2,5 milljóna
tonna af kaffi á sl. ári.
Kaffineyzlan hefur gengið
nokkuð í bylgjum sl. ár, t.d. var
hún 8,1 kíló á hvert mannsbarn á
tímabilinu 1951—1955. Hún fór
síðan í 10,8 kíló á árabilinu
1966-1970.
neytti um 50 kílóa af sykri á sl. ári
Hver einasti íslendingur borð-
aði að meðaltali um 50,3 kíló af
sykri á sl. ári, sem jafngildir því,
að landsmenn í heild hafi neytt
um 11,3 milljóna tonna af sykri.
Arið á undan var neyzlan heldur
minni, eða um 48,0 kíló á hvern
landsmann, sem þýðir, að heild-
arneyzlan hafi verið um 10,7
milljónir tonna.
Sykurneyzla landsmanna hef-
ur verið nokkuð stöðug í gegnum
árin, en árið 1975 minnkaði hún
stórlega, fór niður í 38,9 kíló á
hvern landsmann, eða um 8,5
milljónir tonna í heildina.
Áfengisneyzlan á hvern lands-
mann á sl. ári var í kringum 3,22
lítrar, eða tæplega 7,2 milljónir
lítra í heildina. Þetta er um
10,3% hækkun frá árinu áður,
þegar neyzlan á hvern lands-
mann var um 2,95 lítrar, eða 6,6
milljónir lítra í heildina.
Heildarneyzla landsmanna á
tóbaki á sl. ári, var um 500
þúsund kíló, eða um 2,2 kíló á
hvern landsmann. Aukningin frá
árinu áður var um 14%, en þá
var heildarneyzlan um 437 þús-
und kíló, eða um 1,9 kíló á hvern
landsmann.