Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 23

Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980 23 6% samdrátt- ur hjá SAS UM það bil 6% samdráttur hefur átt sér stað á flug- starfsemi SAS-flugfélags- ins skandinavíska á fyrstu sex mánuðum þessa árs að því er segir í frétt frá fyrirtækinu. Ástæður þessarar minnkunar er m.a. að finna í verkfalli flugum- ferðarstjóra í Svíþjóð og starfs- manna flugvalla í Noregi á tíma- bilinu. Það skýrir þó ekki allt og í frétt fyrirtækisins segir að meta megi samdráttinn um 2,5% við venjulegar aðstæður. Fyrirtækið flutti um 750 þúsund farþega fyrstu sex mánuði ársins, sem er um 19% færri farþegar heldur en á sama tíma í fyrra. Vöruflutningar fyrirtækisins stóðu hins vegar má segja i staö fyrstu sex mánuði ársins. Ohagstæður vöruskipta- jöfnuður Bandaríkjanna VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR Bandaríkjanna hefur verið mjög óhagstæður síðustu mánuð- ina, en í júní var hann „aðeins“ óhagstæður um tæpa 2.3 miiljarða Bandarikjadoliara. eða rúmiega 1100 milljarða íslenzkra króna. I maímánuði hafði vöruskiptajöfnuðurinn verið óhagstæður um rúmlega 4 milljarða Bandaríkjadollara, eða sem næst 2 þúsund milljörðum íslenzkra króna. — Aðalástæður þessa bætta jöfnuðar eru taldar aukinn útflutn- ingur iðnaðarvara og lækkandi verð á olíu, eða um 6 cent hver tunna, eða sem næst 30 krónum íslenzkra. Heildarútflutningur Bandaríkjamanna jókst um 5,5% í júní, en á sama tíma minnkaði innflutningur um tæplega 3,3%. Þessi minnk- andi innflutningur er talinn bera þess glöggt merki, að eftirspurn hefur minnkað töluvert með hinum almenna samdrætti í efnahagslífinu. Eins og fyrr sagði lækkaði verð lítillega á olíu til landsins, en á sama tíma jókst innflutningur- inn um 5%. Ástæður lækkunarinnar eru aukið framboð á olíu á heimsmarkaði samfara minnk- andi eftirspurn. Bandaríkin: Neytendaverð hækk- aði um 1% í júní Iðnaðarvöruút- flutningurinn jókst nokkuð í Bandaríkjunum á 2. ársf jórðungi. Svíþjóð, janúar — marz: Þjóðarframleiðsla jókst um nær 4,5% ALMENNT neytendaverð í Bandaríkjunum hækkaði um 1% i siðasta mánuði, en hafði hækkað um tæplega 0.9% í maímánuði, að því er banda- ríska viðskiptaráðuneytið til- kynnti fyrir skömmu. Neytendaverð, sem er mikill mælikvarði á verðbólguna hef- ur hækkað um nær 14,8% fyrstu sex mánuði ársins. Að vísu ber að geta þess, að heldur hefur þokazt til betri vegar síðustu þrjá mánuðina. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira í háa herrans tíð í Bandaríkjunum, en nú eru um 8,75% vinnufærra manna at- vinnulausir. Hagfræðingar spá því, að atvinnuleysið verði kom- ið yfir 12% áður en árið er á enda. ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA Svía fyrstu þrjá mánuði ársins jókst um 4.5% samanborið við fyrstu þrjá mánuðina 1979, að því er segir í frétt frá sænska viðskipta- ráðuneytinu. Framleiðslan í námuiðnaði jókst á þessu tímabili um nærri 6%, sem er með því mesta á undanförnum árum. í landbúnaði og skógariðnaði var aukningin í kringum 5%. Útflutningur landsmanna jókst um 10.5% fyrstu þrjá mánuðina en það er um 3% meiri aukning heldur en fyrstu þrjá mánuði ársins 1979. Þá kemur einnig fram í fréttinni, að einkaneyzla hefur aukist um 1.5% fyrstu þrjá mán- uði ársins. Þetta gen)ist 1978 — ísraelsmenn ráðast á palestínskar búðir í Líbanon eftir hryðjuverk í Tel Aviv. 1975 — 188 farast með leigu- flugvél við Agadir í Marokkó. 1963 — Dean Rusk heimsækir Sovétríkin fyrstur bandarískra utanríkisráðherra. 1962 — Ben Bella hylltur í Algeirsborg eftir sigur í mánað- arlangri valdabaráttu. 1%0 — Níger fær sjálfstæði. 1958 — Kjarnorkukafbáturinn „Nautilius" siglir fyrstur undir Norðurpólinn. 1949 — Evrópuráðið fyrst sett. 1940 — Lettland verður sovézkt lýðveldi. 1914 — Þjóðverjar segja Frökk- um stríð á hendur og gera innrás í Belgíu. 1882 — Brezkt herlið tekur egypzku borgina Súez herskildi. 1858 — John Speke finnur upptök Nílar. 1830 — Júlí-byltingunni í Frakklandi lýkur. 1803 — Annað Mahratha-stríðið gegn furstanum í Gwallior hefst. 1767 — Herlið frá Burma gerir innrás í Síma. 1675 — Frakkar sigra hollenzk- an og spænskan flota á Pal- ermo-flóa og taka Sikiley. 1670 — Frakkar hertaka Lot- hringen. 1645 — Bromsebo-friður Svía og Dana sem missa mikið land. 1589 — Hinrik af Navarre 3. ríffúst verður Hinrik IV Frakkakon- ungur. 1571 — Tyrkir taka Famagusta, Kýpur, eftir 11 mánaða umsátur og myrða marga borgarbúa. 1500 — Alfonso af Napoli, eiginmaður Lucretia Borgia, myrtur. 1492 — Kristofer Kolumbus siglir i vesturveg og finnur Ameríku. Afmæli — James Wyatt, enskur arkitekt (1746-1813) - Stanley Baldwin, brezkur stjórnmála- leiðtogi (1867-1947) - Hákon VII Noregskonungur (1872— 1957) — Dolores del Rio, banda- rísk leikkona (1905—). Andlát — 1422 Hinrik V Eng- landskonungur — 1924 Joseph Conrad, rithöfundur — 1977 Makarios erkibiskup, forseti Kýpur. Innlent — 1030 Stiklastaðarorr- usta (d. Þormóður Kolbrúnar- skáld) — 1524 Vígður Jón bp Arason — 1727 Eldgos í Öræfa- jökli — 1856 Ríkisarfi Hollands sækir ísland heim — 1%1 Geng- isfelling (13,2%) - 18% f. Sigurgeir bp Sigurðsson — 18% f. Brynjólfur Jóhannesson — 1915 f. Ágnar Kofoed Hansen — 1959 d. Sigtr. pr. Guðlaugsson. Orð dagsins — Hræsni er virð- ingin sem lestirnir sýna dyggð- unum — La Rouchefoucauld, franskur rithöfundur (1613— 1680). Tískuverzlun til sölu Lítil verzlun í verzlunarsamstæðu í miðborginni, góö umboð. Tilboð merkt: „Tískuverzlun — 4610“ sendist augld. Mbl. sem fyrst. Okkar vinsæla sumarútsala hefst þriöjudaginn 5. ágúst, Pi ft tiiUtoria EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (ÍLYSINGA SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.