Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980
39
Pottarím
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
Nú er ekki sízt tækifæri til
að útbúa glóðir og steikja mat
sinn þar á. Víða má fá ágætis
grill. Auk þess er hægurinn á
að gera sér hlóðir með því að
hlaða steinum í kringum
grunna gryfju, setja kol í og
grind yfir. Tækjaskortur þarf
því ekki að koma í veg fyrir
glóðarsteiktan mat.
Bezt er að gæta þess, að
grillið sé vel stöðugt, því eng-
inn vill sjá á eftir góðmetinu
ofan í grasið, eða jafnvel í
moldarflag. Gætið þess, að
kolin séu orðin að glóð og setjið
þá kjötið á heita grindina, sem
þið hafið smurt lauslega með
olíu. Bezt er að snúa matnum
við nokkrum sinnum, svo ekk-
ert brenni nú við. Glóðarsteiktur
matur er nefnilega ekki það
sama og brenndur.
Það er hægt að glóðar-
steikja alls konar mat. Oftast
er það kjöt og fiskur. Athugið að
nota meyra og magra kjötbita.
Kjöt meyrnar alls ekki á
glóðunum, svo það er mjög
áríðandi að það sé vel meyrt. Og
ekki má það vera feitt. Fitan
bráðnar nefnilega og drýpur
niður á glóðirnar. Þá blossa
upp logar, sem geta brennt
matinn. Fisk er bezt að steikja
í þar til gerðum fiskgrindum,
því það er erfitt að snúa
fiskinum við, án þess að missa
hann í smábita. Það er hægt að
rista kartöflur á glóðum, og
t.d. tómata. Einnig er hægt að
pakka kartöflum í málmpappír
og stinga í glóðirnar. Þá fáið
þið ljómandi bakaðar kartöfl-
ur. Og ekki má gleyma laukn-
um. Það er ljómandi gott að
baka lauk á sama hátt og
kartöflur. Hann verður
mjúkur, ótrúlega sætur og öll
remma fer úr honum.
En glóðarsteiking er ekki
bara glens og gaman, því alltaf
þarf að umgangast opinn eld
með varúð. Gætið þess, að
ekkert eldfimt sé nærri, þar
með talin náttúran. Athugið,
að neisti í þurra mosaþembu er
ekkert grín. Farið því vel og
varlega með opinn eld úti við.
Og svo eru það þið sjálf. Ef þið
steinkið kolin með íkveikju-
vökva, skuluð þið hafa í huga,
að hann fuðrar upp um leið
og eldur er borinn að. Gætið
því að hári, augnabrúnum og
skeggi, ef eitthvert er, og hallið
ykkur ekki of glannalega yfir
eldinn. Ég mæli fremur með að
þið notið spritttöflur en vökva.
Það er auðvelt að kveikja upp
með þeim, og sumir segja, að
vökvinn gefi aukabragð.
Það er vinsælt að leggja
kjöt í kryddlög og ýmsar kjöt-
búðir eru óðfúsar að aðstoða
okkur með því að bjóða krydd-
legið kjöt til sölu. En það er
fjarska auðvelt að útbúa sinn
eiginn lög, og það er ekki svo
vitlaust að hugsa sig um tvis-
var og jafnvel þrisvar, áður
en búðarhjálpin er þegin. At-
hugið að nota ekki salt í krydd-
lög eða salta mat, áður en hann
er glóðarsteiktur. Salt brenn-
ur nefnilega fljótt.
Glóðar-
steikt
og gott
Og munið svo að það þarf
ekki að fara í langa útilegu til
þess að glóðarsteikja. Notið
einnig garðinn eða svalirnar,
því þá getið þið notað grillið
að staðaldri.
Góða skemmtun!
Kryddlögur I
Þessi lögur er einfaldur og
fljótlagaður. Hann hentar
mjög vel fyrir lambakjöt, kálfa-
kjöt og kjúklinga, eða það
annað kjöt, sem þið hafið.
Látið kjötbita liggja í leginum
í 1—3 daga. Nokkrir klukkutím-
ar gera líka sitt gagn. Þegar
komið er að steikingu, látið
þið löginn renna af kjötinu í
um 1 klst. Notið t.d. sigti.
Ef þið eigið kvörn, er alveg
ljómandi að nota hana til að
blanda kryddlög. Þið þurfið þá
minna af kryddi, því kvörnin
malar svo smátt, að bragðið
verður meira en ella.
í stað þess að leggja kjötið
í löginn, getið þið notað krydd-
lög til að pensla kjötið með,
þegar þið steikið það. Berið
kjötið fram með góðu brauði.
Það er alveg nóg meðlæti. Á
eftir eða undan getið þið borið
fram skál með góðu grænmeti,
annaðhvort skorið í bita,
stafi og sneiðar, eða sem salat.
Þessi lögur nægir fyrir um 1 kg
af kjöti:
1 dl ólífuolía
'h. dl sítrónusafi
1 hvítlauksrif
10 einiber
1 msk. timjan eða oregano,
notið blóðbergskvisti ef þið
náið í þá.
nýmalaður pipar.
1. Blandið löginn. Saxið
hvítlauksrifið, grófsteytið eini-
berin. Blandið öllu saman og
hellið yfir kjötið eða notið
löginn til að pensla með.
Kryddlögur II
Þessi lögur er góður með
áðurnefndu kjöti, en auk þess
einnig nautakjöti og svínakjöti.
1 dl ólífuolía
'A-l dl þurrt vermút,
gjarnan franskt
1 hvítlauksrif
1 tsk timjan
1 tsk oregano
1 tsk basil
nýmalaður pipar
Kryddlögur III
Þessi lögur er býsna sterk-
ur, en það eru hinir ekki. Hann
hentar vel með hvers konar
kjöti.
1 dl ólífuolía
2 negulnaglar
eða W tsk duft
6 allrahandaber
eða % tsk duft
1 tsk kanell
3—4 dropar tabascosósa
eða svolítið af rauðum pip-
ar, chilidufti eða öðrum
sterkum piparsósum.
1. Steytið kryddið, ef þið
notið heilt krydd. Blandið sós-
una. Ef þið viljið hafa hana
eldsterka, þá kryddið hana enn
frekar.
Glóðarsteiktur
innmatur
Auk þess sem það er ljóm-
andi að glóðarsteikja alls kyns
góða kjötbita, er alveg fyrirtak
að glóðarsteikja lifur og nýru.
Sá matur er reyndar óvenju-
lega góður matreiddur á glóð-
um, og jafnvel þeir, sem hrífast
lítt af innmat, verða áreiðan-
lega þægilega undrandi að
bragða svona rétt. Þið getið
notað eingöngu lifur, eða ein-
göngu nýru, eða blandað þessu
saman, eða notað það ásamt
kjöti, svo að möguleikarnir eru
býsna margir. Leggið innmatinn
gjarnan í kryddlög, sjá t.d.
einhverja af þessum krydd-
lagaruppskriftum. Reykt
svínaflesk er ljómandi með inn-
matnum. Stingið þá vænum
fleskbitum innan um lifur
og/eða nýru á teina og glóðar-
steikið. Þetta er mikið sælgæti.
ídýfa
Ég nefndi áður, að það
væri tilvalið að bera fram nýtt
grænmeti sem forrétt eða milli-
rétt með gióðarsteiktum mat.
Ekki má gleyma öðrum tæki-
færum. Auk þess sem það er
ljómandi gott að bera grænmetið
fram eintómt, er góð hugmynd
að bera fram góða ídýfu með
því. Ég hef áður nefnt þann
tilfinnanlega jógurtskort sem
hér ríkir. Meðan skorturinn er,
getum við oft notað súrmjólk
í staðinn, og eins ými.
2 dl súrmjólk
2 msk sítrónusafi
1 hvítlauksrif
nýmalaður pipar
2—4 msk nýjar kryddjurtir,
t.d. steinselja og graslaukur
(e.t.v. ofurlítið hafsalt)
Hvítlaukurinn er saxaður
og kryddið, ef þarf. Blandið
ídýfuna, bragðið á og kryddið
frekar, ef ykkur sýnist svo.
Það er ljómandi að blanda
ídýfuna í kvörn, en notið þá
heldur minna af hvítlauk, því
bragðið verður annars býsna
sterkt. Þessi skammtur dugir
handa fjórum eða þar um bil.
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
W KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAfí
EXTIR
IKUNNAR
Appelsínur — greipaldin —
sítrónur — epli græn — vínber
blá — perur — vatnsmelónur —
melónur gular — plómur —
ferskjur — bananar.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, simi 85300