Morgunblaðið - 16.08.1980, Page 5
Bygginganefnd
flugstöðvar:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
5
Formaður
flugráðs kem-
ur í stað
húsameistara
ríkisins
LEIFUR Magnússon, formaður
flugráðs, hefur verið skipaður i
byggingarnefnd flugstöðvar á
Keflavíkurflugveili í stað Garð-
ars Ilaildórssonar, húsameistara
rikisins, vegna anna þess siðar-
nefnda við hönnunarstörf. Ólafur
Jóhannesson, utanrikisráðherra,
sagði í samtali við Mbl. i gær. að
hann gerði ráð fyrir að bygg-
ingarnefndin skilaði af sér full-
hannaðri flugstöð i október n.k.
Helgi Ágústsson, deildarstjóri
varnarmáladeildar utanríkisráðu-
neytisins, er formaður nefndar-
innar, Pétur Guðmundsson flug-
vallarstjóri varaformaður og aðrir
nefndarmenn eru Ásgeir Einars-
son, skrifstofustjóri flugmála-
stjórnar, Keflavíkurflugvelii, og
Jón E. Boðvarsson, skrifstofu-
stjóri fjárlaga- og hagsýslustofn-
unar. Ráðunautur nefndarinnar er
Guðmundur Eiríksson, þjóðréttar-
fræðingur í utanríkisráðuneytinu,
en hann er einnig lærður verk-
fræðingur.
Messa
umsækjanda
Seljasóknar
PRESTKOSNINGAR fara fram í
Seljasókn í Reykjavík þann 31.
þessa mánaðar, eins og áður
hcfur komið fram í fréttum
Morgunblaðsins. Á morgun,
sunnudag, mun annar umsækj-
enda, séra Úlfar Guðmundsson
messa i Bústaðakirkju. Hefst
guðsþjónustan kl. 11 árdegis.
Messunni verður útvarpað á mið-
bylgju, 1412 KHZ 210 metrar.
Á kjörskrá í Seljasókn eru 2450
manns en alls búa í sókninni um
tíu þúsund manns. Kjörskrá ligg-
ur þessa daga frammi í Öldusels-
skóla alla daga frá kl. 16 til 19.
Þar getur fólk fengið upplýsingar
um hvort það er á kjörskrá, eða
ekki.
Fjárlög 1981:
Fjárlagadrögin
tilbúin eftir tvær
til þrjár vikur
AÐ SÖGN fjármálaráðherra,
Ragnars Arnalds, miðar gerð
fjárlagafrumvarpsins fyrir árið
1981 vel. Undirbúningur að fjár-
lagagerðinni er nú i fullum gangi
og er þess að vænta, að drög að
þeim verði tilbúin eftir tvær til
þrjár vikur. „Fjárlagafrumvarp-
ið er fyrsta mál hvers þings og ef
takast á að leggja það fram við
þingsetningu, sem væntanlega
verður venju samkvæmt 10. okt.
n.k., vcrður rikisstjórnin að vera
búin að samþykkja það i byrjun
september.“
— Hafa tillögur efnahagsnefnd-
arinnar, sem þið fenguð í dag,
einhver áhrif á fjárlagagerðina?
„Ég hef nú aðeins rennt í
gegnum þessar tillögur og minnist
þess ekki að slikt komi til, þó er
líklega minnst á ríkisfjármálin í
heild á einum eða tveimur stöðum,
en það varðar aðeins heildarum-
fang útgjalda og tekna. Ríkis-
stjórnin á einnig eftir að fjalla um
þessar tillögur efnahagsnefndar-
innar,“ sagði Ragnar í lokin.
Pétur
Guðjénsson
á ferðalági í
NEWYORK
í New York gefur að líta alla heimsbyggðina í
hnotskurn. Þar eru öll þjóöerni, öll trúarbrögð, öll
form húsagerðarlistar, öll þjóðerni matargerðar, allt
vöruúrval heimsins, mestur fjöldi skýjakljúfa, er
gefur borginni þann stórkostleik, er fyrirfinnst
aöeins í New York. Heimsókn á topp Empire
State-byggingarinnar, R.C.A.-byggingarinnar eöa
World Trade Center, 110 hæöir,
opinberar hvað bezt þennan
einstæöa stórkostleik.
World Trade Center, með
heilu verzlunarhverfi neðanjarð-
ar, er syðst á Manhattan-eyjunni,
langri og mjórri, liggjandi frá
noröri til suöurs, en hjarta New
York-borgar er á henni. Hiö
fræga Wall Street, sem er li'ka
samnafn fyrir stærsta fjármagns-
markaö heimsins, er hér. Hér
rísa risabankarnir í eigin skýjakljúfum, og hér er
stærsta kauphöll heimsins, New York Stock
Exchange. Þar gefur að líta, hvernig jafnvel
smæsti fjármagnseigandi getur orðið eigandi og
þátttakandi í stórfyrirtækjum Bandaríkjanna.
Federal Hall er í Wall Street með minjagripum frá
embættistöku George Washington, fyrsta forseta
Bandaríkjanna. Trinity Church, ein elzta kirkja í
New York, er við enda Wall Street.
China Town er nokkuö til austurs, kínverskt
hverfi í miðri New York með austurlandamat og
austurlenzkt vöruúrval. Nokkuð til noröurs er Wash-
ington Square, aöaltorg í Greenwich Village, sem er
listamannahverfi New York. Þúsundir skapandi
listamanna eiga hér heimkynni, og hér eru haldnar
stórar og litríkar útisýningar. Stórkostleg listasöfn
eru í New York. Frægast er Metropolitan Museum of
Art á 5. breiögötu í Central Park. Önnur listasöfn,
Frick Collection, Guggenheim, og Museum of
Modern Art eru meö stööugar farandsýningar.
Madison-breiðgatan ofan viö 60. götu býður upp á
fjölda lítilla sölusýninga (galleries). Central Park,
Miögaröur, er stór trjágarður á miöri Manhattan-
eyju. Hann gefur aö deginum í góöu veöri tækifæri til
skógargöngu í miöri stórborginni. í honum er
dýragarður. Rétt frá suö-vesturhorni Miögarös
er Lincoln Center meö Metropolitan-óperunni,
leikhúsi og tónlistarhöll. Þar eru fluttar óperur og
haldnir hljómleikar og þar fara fram sýningar á
leikritum og listdansi samtímis.
Nú skal haldiö á 5. breiögötu miöja og skoöuö
St. Patricks-dómkirkjan, gotneskt listaverk í
hæsta gæöaflokki. Viö hliö hennar er hiö fræga
vöruhús Sack’s 5th Avenue. En andspænis henni er
Rockefeller Center, samsafn stórbygginga byggöra
um 1930, neðanjaröar verzlunarhverfi og skrifstof-
ur Flugleiöa. Þetta eru áhugaverðir stoppistaöir á
leiö okkar til aöalbyggingar Sameínuðu þjóðanna,
eins af fyrstu stórverkum hús-
ageröarlistar úr málmi og gleri.
Kynnisferðir eru farnar um aö-
setrið og upplýsingar gefnar um
starfsemi SÞ.
Ekkert jafnast á viö ameríska
steik, þaö vita þeir, sem kynnzt
hafa. Pen and Pencil og The Palm
eru frægir steikarstaöir. í hádeg-
ismat er skemmtilegt aö fara á
Sexurnar, 666, 5. breiögötu,
Rainbow Room í RCA-byggingunni
og Windowa of the World í World Trade Center
(laugard. sunnud. og á kvöldin), allir staöirnir á
efstu hæö skýjakljúfa meö ógleymanlegu útsýni yfir
borgina. Einnig í Tavern on the Green, (Crystal room)
í Central Park. Snöggur lúxushamborgari á J.P.
Clark á 3. breiögötu. Á sunnudögum iöar allt af lífi
í verzlunargötunni Grant Street í gyöingahverfinu
á Lower Eaataide. Þar má gera reyfarakaup.
Vöruhús eru Macy, Gimbles, og Alexanders. Hærri
gæöaflokkar eru í Bloomingdales, B. Altman,
Sacks 5th Avenue.
Til hvíldar frá stórborgihni efu bátsferöir til
Liberty Island þar sem Frelsisstyttan er eöa
^hringferö meö bát um Manhattan-eyjuna. Einnig
ganga fljótaskip upp Hudson-fljótið. Viö þaö
stendur West Point Military Academy, sem er
frægasti herfræðiháskóli Bandaríkjanna. Fraeg nöfn
nemenda: Mac Arthur, Patton, Eisenhower. í minja-
safninu er veldissproti Görings. Á austurbakka
árinnar í Hyde Park eru heimili Roosevelts og
Vanderbilts, sem eru áhugaverð söfn í dag.
Ef fara á aöeins stutta ferö í friö og kyrrö þarf
ekki út fyrir Manhattan-eyju aö fara, því í Fort Tryon
Park er The Cloisters, einstætt safn franskrar og
spánskrar miöaldalistar. Þarna er safni uppruna-
legra herbergja meö upprunalegum listaverkum
komiö fyrir í byggingum sem minna á miðalda-
klaustur.
í sambandi viö New York-ferö væri tilvalin 3ja
daga ferö til Washington, einnar fegurstu og
sérstæöustu borgar heimsins.
FLUGLEIDIR