Morgunblaðið - 16.08.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
7
Fiskifræö-
ingar — heima
og heiman
Tímaritið Sjávarfréttir,
aérrit um sjávarútvegs-
mál, sagir svo í lorystu-
grein lyrir skemmstu:
„Um nokkurt skeið hef-
ur ríkt friður að kalla á
milli sjávarútvegsráðu-
neytisins og fiskifrœð-
inga. Nú ber svo við að
frá ráðuneytinu heyrast
gagnrýnisraddir og
niðurstöður fiskifræðinga
eru véfengdar í veiga-
miklum atriðum.
Fiskifræöingar eru ekki
óskeikulir og deila má
um markmið við stjórnun
fiskveiða og nýtingu ein-
stakra fiskistofna. Mörg
sjónarmiö geta einnig
ráöiö því að ekki reynist
með góðu móti unnt aö
fara að tillögum fiski-
fræðinga. Viö getum
samt verið sammála um
að lýsing þeirra á ástandí
helstu nytjastofna við
landið sá í meginatriðum
rátt.
Við höfum ekki ein-
göngu leitað ráða hjá
fiskifræðingum við eigin
fiskveiðar heldur höfum
við einnig beitt þeim fyrir
okkur í samskiptum við
aðrar fiskveiðiþjóðir. í
þeim efnum eigum við
mikitla hagsmuna að
gæta. í síðasta þorska-
stríði við Breta var óspart
vitnað í orö fiskifræð-
inganna og sömuleiöis í
samningum okkar við
Norðmenn um loðnuveið-
ar við Jan Mayen og fleira
mætti telja.
Hvernig getum við ætl-
ast til þess að aðrar
þjóðir taki mark á fiski-
fræðingum okkar ef viö
gerum það ekki sjálfir?
Með því að vísa á bug
niöurstöðum þeirra erum
við að slá vopn úr eigin
hendi jafnframt því sem
við getum stefnt eigin
fiskveiðum í tvísýnu."
Vandamál
fólks og
fyrirtækja
Kristján Ragnarsson,
formaöur LÍÚ, sagöi ný-
verið í viðtali viö Helgar-
póstinn:
„Það er sameiginlegt
vandamál, bæði vinnu-
veitenda og launþega,
hve ríkisvaldið tekur mik-
ið af þjóðarframleiðsl-
unni og eyöir illa. Þaö á
að vera sameiginlegt bar-
áttumál þessara aöila að
ná aftur til fólksins stærri
hluta af aflafé þess til
eignar og ráðstöfunar".
Hár hittir formaður LÍÚ
naglann á höfuðið.
Ofsköttun fyrirtækja
veldur því m.a. aö þau
geta ekki endurhæft sig
(tæknivætt) í æskilegum
mæli, til að standast
kröfur tímans, ekki byggt
sig upp til að mæta sam-
keppniskröfum samtíma
og framtíðar, vinnueft-
irspurn komandi ára —
né raunhæfum kjarabót-
um.
Á sama hátt veldur
þynging beinna skatta á
almenning því, að veru-
lega færri krónur en ella
verða eftir í launaum-
slögum sem ráöstöfunar-
tekjur heimilanna.
Hækkkun söluskatts,
hækkun vörugjalds, tvö-
földun benzínverös með
ríkissköttum o.sv.frv.
„bæta svo um betur“ og
klípa af kaupgildi eftir-
stöðvanna í umslaginu.
Ofsköttun dregur leynt
og Ijóst úr vinnuframlagi
almennings og verð-
mætasköpun atvinnu-
vega. Hún heldur því
beinlínis lífskjörum al-
mennings niðri.
Hókus/pókus,
vísitala og
kindakjöt
Niðurgreiðslur á kinda-
kjöti eru að sjálfsögöu
sóttar í vasa almennings
■neð sköttum til ríkisins.
Við greiöum hluta kjöt-
verðsíns í verzlunum —
en afganginn hjá gjald-
heimtunni. Sá hluti kjöt-
verðsins, sem greiddur
er hjá gjaldheimtunni,
kemur hinsvegar ekki inn
í vísitölu. Ef nógu mikið
er tekið af heimilunum í
sköttum til að greiða
niður kindakjöt — sem
máske er ekki fáanlegt —
má halda vísitölunni
niðri, eða réttara sagt
verðbótum á almenn
laun. Það er mergurinn
málsins; — og þannig vill
Alþýðubandalagið
„vernda kaupmátt", að
sögn, enda eru „kosn-
ingar kjarabarátta", eins
og menn muna væntan-
lega, og setja má „samn-
inga ( gildi“ á furðu-
legasta hátt.
Kjötið er að vísu greitt
niöur fyrir hátekjufólk
ekki síður en lágtekjufólk
en jöfnuður, þar á meðal
launajöfnuður, er hjart-
ans mál hinna rauðu ráö-
herra, sem eru hófsemin
ein í eigin verðbótum á
laun, ekki síður en í
dagpeningum, (til að
verða þjóðinni ekki til
skammar), eða öðrum
„skittiríis" hlunnindum,
sem ekki sjást einu sinni
undir stækkunargleri. Af
þessum hófsemdarráð-
herrum Alþýðubanda-
lagsins getur „vísitölu-
fjölskyldan" mikið lært,
enda mun ekki af veita að
„pöpullinn" nái áttum í
„atéttabaráttunni"!
Tilíbúa
Selja-
og
Skógahverfa
(Seljasóknar)
Messa
Séra Úlfar Guðmundsson messar í
Bústaðakirkju sunnudaginn 17. ágúst
kl. 11 f.h.
Útvarpað verður frá messunni á mið-
bylgju 1412 KHZ 212 m.
•
Messukaffi
Á sunnudaginn kl. 3—5 verða kaffiveit-
ingar í Félagsheimili Fáks fyrir kirkju-
gesti og aðra er vildu hitta prestshjón-
in og kynnast þeim nánar.
•
Stuðningsfólk
Stuðningsfólk séra Úlfars Guðmunds-
sonar mun hafa opna skrifstofu í
Fáksheimilinu alla daga til kjördags.
Opið verður kl. 17—22. Símar 39790 og
39791.
Kjörskrá
Athygli er vakin á því að kjörskrá
miðast við 1. desember s.l. Þeir sem eru
nýfluttir í sóknina þurfa því að aðgæta
hvort þeir séu á kjörskrá. Vinsamlega
hafið samband við skrifstofuna. Símar:
39790 og 39791.
Kosningarnar
Kosið verður 31. ágúst. Engin utankjör
staðakosning.
Innilegar þakkir færi ég ykkur öllum, frændfólki og vinum er
glöddu mig á áttrœðisafmœli mínu 1. júlí si
Sérstakar þakkir fœri ég bömunum mínum og tengdabömum.
GuÖ blessi ykkur öll
Elísa G. Einarsdóttir,
Túngötu 18, ísafiröi.
íbúar Seljaprestakalls
athugiö, þeir sem flutst hafa í Seljaprestakall eftir 1.
des. 1979 eru ekki á kjörskrá vegna prestkosn-
inganna og þurfa því aö færa sig inn á kjörskrá sem
liggur frammi í Ölduselsskóla til 19. ágúst milli kl. 16
og 19 daglega.
Sóknarnefnd.
Kynningarguðþjónusta
vegna væntanlegra prestkosninga í Seljaprestakalli
fer fram í Bústaöakirkiu þann 17. ágúst kl. 11. Séra
Úlfar Guömundsson annar umsækjandi Seljapresta-
kalls predikar. Guöþjónustunni verður útvarpaö á
miöbylgju 1412 KHZ 210 metrar.
Safnaöarnefnd.
Hesta-
eigendur
Þeir, sem ætla aö hafa hesta á fóörum í vetur í
húsum félagsins, eru áminntir um aö panta
pláss sem fyrst og greiða inn á vetrarfóðrið.
Þeir, sem voru meö hesta sl. vetur, ganga fyrir
meö pláss til 31. ágúst.
Hestamannafélagið Fákur.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
MIÐBÆR
Hringið í síma
35408