Morgunblaðið - 16.08.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
17
„Hreinsanir“ í
Suður-Kóreu
Deilur um herút-
gjöld í Danmörku
Óöld í Suður-Afríku
Frederick Jansen situr hér í aur og eðju á Klipíontein-stræti í
Höfðaborg i Suður-Afríku eftir að híllinn hans hafði verið
grýttur. velt um koll og eldur borinn að honum sl. mánudag.
Jansen brenndist mjög í árásinni og er enn iila haldinn.
Seoul, 15. ágÚHt. AP.
TALSMAÐUR stjórnvalda
í Suður-Kóreu sagði í dag,
að rúmlega 30.000 manns,
sem hann lýsti sem alls
kyns glæpalýð, hefðu verið
handtekin síðan herstjórn-
in hóf „hreinsunarherferð-
ina“ svokölluðu sl. mánu-
dag. Rúmlega þúsund
þessara manna verða
dregnir fyrir herrétt en
aðrir flestir ganga í gegn-
um fjögurra vikna endur-
hæfingu í herbúðum
I hreinsunarherferð stjórn-
valda hefur mörgum ríkis-
starfsmönnum og kennurum
verið sagt upp störfum og þeim
gefið að sök að vera spilltir og
Aftökur
í Iran
TUTTUGU og fimm voru
teknir af lifi í íran í dögun
á föstudag, 15 þeirra fyrir
hlutdeild í misheppnaðri
byltingartilraun í síðasta
mánuði. Þar með hafa 68
verið líflátnir fyrir þátt-
töku í byltingartilrauninni.
Fyrrverandi seðlabanka-
stjóri og háttsettur yfirmað-
ur Savak voru meðal hinna
liflátnu.
Sendiherrar átta vestrænna
ríkja ræddu í gær við Hashemi
Rafsanjani þingforseta og báðu
hann um aðstoð til að hraða því að
gíslarnir í bandaríska sendiráðinu
verði látnir lausir. Rafsanjani
lofaði að ræða málið við þingið, en
gaf ekki til kynna að gíslunum
yrði fljótlega sleppt.
Lon Anjfeles, 15. ájfúst. AP.
LEIKFELAGI Playboy timarits-
ins í ár, Dorothy Stratten, tvitug
að aldri, var myrt mcð byssuskoti
í andlitið í gær að sögn lögreglu.
Flest bcndir til að eiginmaður
hennar hafi verið að verki og að
hann hafi siðan framið sjálfs-
morð.
hysknir við vinnuna. A vegum
margra fyrirtækja og blaða
hefur einnig verið hrundið af
stað svokallaðri „frjálsri
hreinsunarherferð" og hafa
margir verið látnir taka pokann
sinn.
Veður
víða um heim
Akureyri 12 léttskýjaö
Amtterdam 26 heiöakírt
Aþena 29 heiöakírt
Berlin 21 akýjad
BrUssel 27 akýjað
Chicago 25 rigning
Feneyjar 25 akýjað
Frankfurt 23 akýjað
Faareyjar 11 akýjeö
Gent 25 ekýjaö
Helsinki 21 heiöakirt
Jerúsalem 29 heiöakírt
Jóhannesarborg 12 heióskírt Kaupmannahötn 23 skýjað
Laa Palmaa 25 akýjaö
Uaaabon 24 rigning
London 24 rigning
Loa Angelea 32 heiðakírt
Madrid 32 heiöakírt
Malaga 30 löttakýjaó
Mallorca 28 akýjaó
Miami 30 rigning
Moakva 20 akýjeö
New York 31 heióakírt
Oaló 23 heiöakirt
Paría 27 akýjeö
Reykjavík 11 akúrir
Rio do Janeiro 29 akýjaó
Róm 30 heiöskfrt
Stokkhólmur 23 heióskírt
Tel Aviv 30 heióskirt
Tókýó 32 heióakírt
Vancouver 19 skýjaó
Vinarborg 21 skýjsó
Komið var að líki Strattens á
heimili hennar í vesturhluta Los
Angeles á rúmi í svefnherbergi, og
lá lík eiginmannsins fyrrverandi,
Paul Snyders, á gólfinu við hlið-
ina, þar sem einnig fannst hand-
byssa. Hvorugt var í klæðum. Þau
höfðu verið gift í tvö ár, en búið
sitt í hvoru lagi siðasta mánuðinn.
Kaupmannahöfn, 15. ágúst.
Frá fréttaritara Mbl.
MIKLAR umræður fara nú fram
i Danmörku um útgjöldin til
hermála. Rætt er um skyldur
Dana sem aðila að NATO og
Kjeld Olesen, utanrikisráðherra,
hefur látið fara frá sér harðorða
yfirlýsingu vcgna ummæla Rússa
þar að lútandi.
Umræðurnar stafa af því, að
flest NATO-rikin eru hlynnt þvi,
að herútgjöid verði aukin um 3%
árlega á næstu árum og bera
fyrir sig aukinn herstyrk Rússa
og innrásina i Afganistan. Anker
Jörgensen vill hins vegar, að
hlutfallsleg aukning verði engin
en þar eru borgaralegu flokkarn-
ir á öðru máli. Útgjöld til her-
mála eru nú 6% af útgjöldum
danska rikisins og hækka sjálf-
krafa með aukinni verðbólgu.
Yfirmenn hersins halda því
fram, að ef útgjöldin verði ekki
aukin frá því, sem nú er, verði ekki
unnt að verja Sjáland ef til
styrjaldar kemur. Yfirmaður
danskra varnarmála, G-K. Krist-
ensen, segir að ef Danir ráði ekki
fram úr þessum málum sjálfir
verði þeir að sjá til þess, að unnt
verði að taka á móti bandarískum
liðsstyrk á ófriðartímum.
Afstaða Ankers Jörgensen til
herútgjaldanna varð til þess, að
honum var hælt á hvert reipi í
Prövdu, málgagni rússneska
kommúnistaflokksins. Þar var
sagt, að Anker vildi ekki „ýta
undir vígbúnaðarkapphlaupið" og
að útgjöldin til varnarmála væru
„þung byrði á dönskum skattborg-
urum". Kjeld Olesen utanríkisráð-
herra vísaði þessu „axlaklappi"
algerlega á bug og sagði, að það
væri tilraun til að reka fleyg á
Tyrkland:
Ankara. 15. ájcúst. AP.
ÚTLIT var fyrir það í dag,
að kosninKar færu fyrr
fram í Tyrklandi en fyrir-
huKað var. Lítill flokkur
ákafra múhameðstrúar-
manna, sem stutt hefur
stjórn Suleyman Demirels,
hefur krafist þess að efnt
verði til kosninga 26.
október nk. en þær áttu að
fara fram næsta vor.
Frelsisflokkurinn, sem
krefst nýrra kosninga,
heldur því fram, að nauð-
synlegt sé að stokka upp á
þinginu en þar hefur nú
enginn flokkur hreinan
meirihluta. Búist er við að
Réttlætisflokkurinn og
Demirel forsætisráðherra
séu hlynntir kosningum í
haust í ljósi þess, að nokk-
uð hefur dregið úr verð-
bólgu í Tyrklandi. Hún er
nú um 60% en var 83%
þegar Demirel tók við.
Leiðtogar Lýðveldisflokks-
Blóðbað
á Indlandi
í deilum
trúflokka
_ Nýju-Delhi, 15. áKÚst. AP.
ÁTÖK milli múhameðstrúar-
manna og* hindúa brutust út i
Gömlu-Delhi i dag og óeirðir
eru enn í Moradabad, þriðja
daginn í röð, þar sem á annað
hundrað manns hafa beðið
bana.
Útgöngubann var sett á í
nokkrum fátækrahverfum i
Gömlu-Delhi. nálægt Jama
Masjid, stærstu mosku í Ind-
landi, eftir að kveikt hafði
verið í versiunum og nokkrir
menn beðið bana i átökunum.
Óeirðirnar í Gömlu-Delhi, sem
er áföst höfuðborginni, eru taldar
stafa af reiði múhameðstrúar-
manna yfir blóðbaðinu í borginni
Moradabad. Þar henti það, að svín
hlupu inn í mosku meðan á
bænastund stóð en í augum mú-
hameðstrúarmanna eru Svín
óhreinar skepnur. Múhameðstrú-
armennirnir segjast hafa grýtt
svínin en lögreglumenn, sem voru
þar nærri, héldu að skeytunum
væri beint að þeim og skutu á
mannfjöldann.
milli NATO-ríkjanna. „Þetta
segja menn, sem ekki aðeins draga
niður lífskjör þjóðar sinnar með
óheyrilegum herútgjöldum, heldur
beita nýjustu drápstækjunum
gegn almenningi í Afganistan,
sem fer ekki fram á annað en að fá
að ráða sér sjálfur í sínu eigin
landi," sagði Olesen.
Enn er nægur tími til stefnu
áður en ákvarðanir verða teknar
um herútgjöldin og eins og oftast
áður er búist við að flokkarnir
komi sér saman um pólitiska
lausn.
ins eru andvígir haustkosn-
ingum og telja að stjórnin
muni tapa fylgi fram til
vors vegna óaldarinnar í
landinu.
59 börn
fórust í
bíóbruna
Baxdad. 15. ágúst. AP.
FIMMTÍU og níu börn biðu
bana og 49 slösuðust i bíó-
bruna i Bagdad i dag að sögn
innanrikisráðuneytis íraks.
Flest börnin týndu lífi þegar
þau reyndu að ryðjast út úr
kvikmyndahúsinu er eldurinn
kom upp. Sagt er að skamm-
hlaup hafi valdið eldsvoðan-
um. Ekki var minnzt á hermd-
arverk.
Flest barnanna, sem voru
flutt í sjúkrahús, fengu fljót-
lega að fara heim til sín þar
sem þau reyndust lítið slösuð.
Þetta gerðist
1976 — Kakuei Tanaka, fv. for-
sætisráðherra Japans, ákærður
fyrir að þiggja mútur af Lockheed.
1974 — Tyrkir lýsa yfir vopnahléi
eftir skiptingu Kýpur.
1972 — Misheppnað tilræði við
Hassan II Marokkókonung.
1964 — Nguyen Khanh hershöfð-
ingi forsætisráðherra í Saigon í
stað Duong Van Minh.
1960 — Bretar veita Kýpur sjálf-
stæði og Makarios erkibiskup
verður forseti.
1956 — Ráðstefna notendafélags
Súez-skurðar hefst í London.
1953 — Byltingartilraun keisara-
sinna hefst í Persíu.
1896 — Bretar gera Ashanti í
Vestur-Afríku að verndarríki —
Guli finnst við Bonanza Creek,
Alaska, og Klondyke-gullæðið
hefst.
1870 — Orrustan um Vionville.
1827 — Tyrkjasoldán hafnar orð-
sendingu Rússa, Frakka og Breta
um vopnahlé í Grikklandi.
1825 — Lýst yfir stofnun lýðveldis
í Bóliviu.
1819 — Peterloo-fjöldamorðin í
Bretlandi.
1812 — Orrustan um Smolensk
hefst.
1780 — Orrustan um Camden,
Suður-Karó'.ínu.
1777 — Orrustan um Bennington,
Vermont.
1717 — Her Eugens prins af
Savoy sigrar Tyrki við Belgrad
sem fellur.
1570 — Jóhann Sigismund Zap-
olya af Transyivaníu gerir leyni-
samning víð Maximilian keisara II
í Speyer gegn Tyrkjasoldáni og
afsaiar sér stórum hluta Ung-
verjalands.
1513 — Hinrik VIII sigrar Frakka
við Guinegate.
620 — Orrustan á Brávallaheiði
(d. Haraldur kgr hilditönn).
Afmæli. Jean de La Bruyere,
franskur rithöfundur (1645 —
1696).
Andlát. 1678 d. Andrew Marveii,
skáid — 1977 d. Elvis Presley.
Innlent. 1662 Prestsetrið í Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd brennur
— 1238 Sighvatur kemur með lið
sitt í Skagafjörð 1920 Sveinn
Björnsson skipaður sendiherra í
Kaupmannahöfn — 1941 Winston
Churchill kemur til Reykjavíkur
— 1978 Lúðvík Jósefssyni falin
stjórnarmyndun — 1978 Fyrsta
banaslys í failhlífastökki hér —
1886 f. Ólafur Friðriksson.
Orð dagsins. Helztu orsakir
vandamála eru lausnir vandamála
— Severeid-lögmálið.
Playboy-fyrirsæta
ársins fannst myrt
Vilja að kosið
verði í haust