Morgunblaðið - 16.08.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
23
Bílar
Umsjón: JÓHANNES
TÓMASSON OG SIG-
HVATUR BLÖNDAHL
Þriðja tölu-
blað Motor-
sports komið
ÞRIÐJA töluhlað tímaritsins
Mótorsport er nú komið á
markaðinn til ángægju fyrir
bilaáhugamenn.
Efni blaðsins er mjög fjöl-
breytt, og má þar nefna frásagn-
ir af torfærukeþpninni á Akur-
eyri fyrir skömmu, hópakstri
fornbíla, Rallý Húsavík, sand-
spyrnu, kvartmílu svo eitthvað
sé nefnt. Blaðið er prýtt miklum
fjölda mynda, en ritstjóri þess er
Jón Sigurður Halldórsson.
Datsun-bilar bíða nýrra kaupenda i Bandaríkjunum.
Volvo
semur við
Kínverja
SAMNINGAR hafa nú tekizt
með Volvo-verksmiðjunum
sænsku og yfirvöldum í Guang-
Dong héraði í Kína. að á næstu
fimm árum muni Volvo-verk-
smiðjurnar framleiða fólksbíla
og stærri bíla fyrir Kínverjana
að verðmæti um 2.5 milljarða
sænskra króna. eða sem na'st
300 milljörðum islenzkra
króna.
Þetta er langstærsti samning-
ur sem Volvo-verksmiðjurnar
hafa gert í einu lagi og hefur
verið haft eftir forsvarsmönnum
verksmiðjanna, að þeir hyggist
leita hófanna við önnur héruð
Kina um framleiðslu á bílum
verksmiðjunnar.
MÓTOBSPORT
l'Mal við HafsUm Svemsson
/ 7. júni sýnmg Akurryrat
R rautamuMlill þrhtgu
RargarfjardarralH
RnlH-<rns\
Forsíða þriðja tölublaðs Mót-
orsports.
Krefjast innflutnings-
á japanska bíla
hafta
VERKALÝÐSFÉLÖG víða um
heim eru nú farin að hóta
aðgerðum verði ekki stemmt
stigu við stöðugt vaxandi inn-
flutningi japanskra bíla. sér-
staklega eru talsmenn verka-
lýðsfélaga í Bretlandi, Banda-
rikjunum og Vestur-Þýzkalandi
orðnir háværir.
Innflutningur japönsku bíl-
anna hefur farið mjög vaxandi á
síðustu mánuðum og í júlí-
mánuði var um algert met að
ræða í Bretlandi, en þá náðu
japanskir bílar um 18% mark-
aðshlutdeild í fyrsta sinn í sög-
unni. Þá er þetta hærri mark-
aðshlutdeild heldur en hjá Brit-
ish Leyland, sem löngum hefur
verið stærsti aðilinn í Bretlandi.
Markaðshlutdeild þeirra í júlí-
mánuði var kominn niður í
16.23% úr um 20% í upphafi
ársins.
í Bretlandi er mest selt af
Datsunbílum, en í Bandaríkjun-
um er Hondan komin í efsta
sætið og í Vestur-Þýzkalandi eru
nokkrir stærstu japönsku fram-
leiðendurnir með svipaða mark-
aðshlutdeild.
Á síðasta ári varð um það
munnlegt samkomulag milli
Breta og Japana, að innflutning-
ur japönsku bílaframleiðend-
anna myndi ekki fara yfir 11%
af markaðnum. Það er ljóst, að
það samkomulag verður ekki
haldið, því á fyrstu sjö mánuðum
ársins er heildarhlutur japönsku
bílanna um 14.99%, og þyrfti því
að koma til gífurlegur samdrátt-
ur á innflutningnum, eða hann
jafnvel að stöðvast alveg hjá
sumum framleiðendunum.
Nýja K-línan
frá Chrysler
CHRYSLER-bílaverksmiðjurn-
ar handarísku berjast nú á hæl
og hnakka fyrir lífi sínu, en
tapið á þessu ári er fyrirsjáan-
lega gífurlega mikið. eða 1,2
milljörðum Bandaríkjadollara
eða um 600 milljörðum ís-
lenzkra króna.
Síðasta nýjasta nýtt frá verk-
smiðjunum er hin svokallaða
K-lína, en það er tiltölulega
litlar sex manna fjölskyldubif-
reiðar með framhjóladrifi, en
nýju bílarnir nefnast: Plymouth
Reliant og Dodge Aries. — Lee
A. Iacocca, forstjóri verksmiðj-
anna, sagði á fundi með frétta-
mönnum fyrir skömmu, að þéss-
ir nýju bílar verksmiðjanna
væru eyðslugrannir smábílar,
sem stæðust japönsku bílunum
fyllilega á sporði. Þeir eiga
samkvæmt upplýsingum verk-
smiðjunnar að eyða um og innan
við 10 lítrum á hundrað kíló-
metra. Þrátt fyrir, að verksmiðj-
urnar auglýsi K-línuna fyrir sex
manns, segja sérfræðingar, að
bílarnir seú alls ekki nema fyrir
fimm.
Áætlað verð í Bandarikjunum
er í kringum 6000 dollara, eða
sem næst 3 milljónum íslenzkra
króna. Það þýðir, að bíllinn
myndi kosta vel yfir 9 milljónir
hér á landi.
Forstjórinn sagði ennfremur á
fréttamannafundinum, að ef allt
gengi að óskum hvað varðar
söluna á þessum bílum, ætti
fjórði ársfjórðungur að koma"
mjög vel út fyrir verksmiðjurn-
ar.
Omni 021,einn af smærri bílum Chrysler, sem selst hefur vel í Bandaríkjunum á sl. ári.
í Bandaríkjunum hafa fram-
leiðendur þarlendra bíla sjálfir
farið fram á það við stjórnvöld,
að innflutningur japanskra bíla
verði takmarkaður í framtíðinni,
þar eru fremstir í flokki Ford og
Chrysler, en bæði þessi fyrirtæki
eiga í gífurlegum rekstrarerfið-
leikum eins og kunnugt er.
Gífurleg aukning hefur átt sér
stað á innflutningi japanskra
bíla nema á Ítalíu og í Frakk-
landi, þar sem innflutningstak-
mörkunum er beitt, t.d. er aðeins
leyfilegt að flytja eitt þúsund
bíla inn til Ítalíu og í Frakklandi
má innflutningurinn ekki fara
yfir 3% af heildarmarkaðinum.
Brezk yfirvöld hafa ekki feng-
ist til að taka ákveðna afstöðu í
málinu, en látið hefur verið að
því liggja, að beitt verði einhvers
konar verndaraðgerðum, ef ekki
verður breyting á innflutningn-
um, auk þess, sem varaviðskipta-
ráðherra Breta sagði fyrir
skömmu, að forráðamenn Dats-
unverksmiðjanna hefðu gefið
loforð um, að verulega verði
dregið úr framleiðslunni fyrir
Bretlandsmarkað.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
herb íbúö í Njarövík eöa Kefla-
vík koma til gretna.
Fasteignasala Vilhjálms Þór-
hallssonar Vatnsnesvegi 20,
Keflavik, sími 1263. sölumaöur
heima 2411.
Keflavík
Höfum kaupanda aö eldra ein-
býlishúsi helst meö 4 herb.. má
vera hæö og ris í skiptum fyrir
150 ferm mjög góöa sérhæö í
tvíbýll.
Til sölu nýleg 5 herb. íbúö meö
bllskúr.
Njarðvík
Til sölu fokhelt einbýlishús vlö
Njarövíkurbraut. skipti á 3ja
3ja herb. íbúð
óskast til leigu fyrir hjúkrunar-
fræöing frá 1. sept. n.k. Uppl.
hjá starfsmannahaldi í síma
29302. St. Jósepsspítalinn,
Reykjavík.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferöir 17. ágúst:
1. kl. 09. - Þórisjökull - Þóris-
dalur. Fargj. kr. 6.000 -
2. kl. 13. - Ketilstígur - Krísuvík
kr. 4.000,-
Helgarferðir
22.—24. ágúst:
1. Þórsmörk - Gist (húsi.
2. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í húsi.
3. Hveravellir - Hrútfell - Þjófa-
dalir. Gist í húsi.
4. Álftavatn á Fjallabaksleiö
syöri. Gist í nýju sæluhúsi F.Í.:
5. Berjaferö í Dali. Svefnpoka-
pláss aö Laugum
Brottför kl. 08 föstudag.
Farmiöasala og upplýsingar um
feröirnar á skrifstofu F.Í., öldu-
götu 3.
Krossinn
Æskulýössamkoma í kvöld kl.
20.30 aö Auöbrekku 34, Kópa-
vogi. Allir hjartanlega velkomnir.
Félag kaþólskra
leikmanna
efnir til skemmtiferöar fyrir
kaþólsk börn, 5—12 ára, laugar-
daginn 30. ágúst. Fariö veröur
aö Martíustööum í Kjós, kl. 9 aö
morgni, frá Landakotsskóla.
Æskilegt aö einhverjir gætu haft
meö sér tjöld. Þátttaka tilkynnist
í síma 43304 fyrir 23. ágúst.
Stjórn FKL
Heimatrúboðiö
Óðinsgötu 6A
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30. Allir velkomnir.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Bæn og vitnisburöir.
Sunnud. 17. 8.
kl. 8 Þórsmörk, einsdagsferö. 4
tíma stanz I Mörkinni, verö
10.000 kr.
kl. 13 Árnastigur eöa létt ferö
um Hafnaberg og Reykjanes,
verö 5000 kr., frítt f. börn m
fullorðnum. Fariö frá B.S.i. vest-
anveröu
Graanland, Eystribyggö, 4 —11.
sept, fararstj. Kristján M Bald-
ursson.
Útivist 6, ársrit 1980 er komiö,
og óskast sótt á skrifstofuna
Lækjarg. 6a.
Útivist s. 14606