Morgunblaðið - 16.08.1980, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 16.08.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980 29 fclk í fréttum Fótalaus maraþonhlaupari + PETER Strudwick, fimmtiu ára gamali, býr i Californiu. 1 hverri viku hleypur hann 6—8 milur. Peter hefur enga fætur og einnig vantar hann hægri hendi og þrjá fingur á þá vinstri. En ekki er að sjá að það hái honum mikið i hans daglega lifi, hann keyrir bil, hann hefur einnig lært að fljúga, og hann hefur mjög gaman af að dansa. Peter hefur tekið þátt i mörgum maraþonhlaupum, þar af þrisvar sinnum i „Pike's Peak" hlaupinu i Colorado sem þykir erfiðasta hlaup i heimi. Hann hefur skrifað bók um þetta hlaup og kom hún út i fyrrasumar. Næst á dagskrá hjá Peter er maraþonhlaup yfir hæsta fjall Afríku Kilimanjaro. Peter gerir sér ekki vonir um að vinna nokkurn tima maraþonhlaup „enda er það ekkert atriði*, segir hann, „aðalatriðið er að vera með.“ + ENGLENDINGURINN Mike Hazel- wood er heimsmeistari í vatnaskída- stökki áhugamanna. Mike æfir nú á fullu þessa dagana, hann ætlar sér að reyna að bæta fyrra heimsmetið sem er 60 metrar. Fjnnbjörn Finnbjörnsson: Islandsvinur- inn Martinus Danski rithöfundurinn og spek- ingurinn MARTINUS er af mörg- um fremstu dulvísindamönnum vesturlanda talinn mesti vitring- ur, sem nú er uppi. Hann varð 90 ára 11. ágúst síðastl. Árið 1921 varð hann fyrir einstæðri reynslu, sem hann hefur skrifað litla bók um. Þar segir hann frá því þegar hann öðlaðist alheimsvitund (COSMIC CONSCIOUSNESS). Síðan þá hefur hann skrifað 7 þykk bindi, sem hann kallar „BÓK MARTINUS á fjölda vina hér á landi, sem hann biður fyrir kveðj- ur til. Það hafa verið þýddar nokkrar af bókum hans á íslensku, sem bókaforl. LEIPTUR gaf út. Við vorum lítill hópur íslend- inga nýlega í Danmörku, og vorum viðstödd hátíðarafmælisveislu, sem honum var haldinn í FALK- ONER CENTRET í Kaupmanna- höfn. Þar voru samankomin rúm- lega 1200 manns víðsvegar að úr heiminum. sem flnttn afmælis- ‘ II »í; Hitl *' y|| J| Martinus Institut i Kaupmannahöfn. LÍFSINS" (LIVETS BOG) og fjölda af smærri bókum. Einnig hefur hann haldið fjölda fyrir- lestra um allan heim, svo sem í Japan og Indlandi, Englandi, og heimsótt ísland 6 sinnum og haldið hér fyrirlestra og sýnt jafnframt táknmyndir. Hann kom hér síðast árið 1970. MARTINUS er mikiil íslands- vinur, og spáir því að ísland sé framtíðarlandið, hér sé allt svo hreint og ómengað og hér munu milljónir manna koma í framtíð- inni til þess að skoða landið og anda að sér fersku lofti. Við þurfum ekki að notast við hin stórhættulegu karnorkuver. • Við höfum ótæmandi orkulindir, þar sem eru fallvötnin og jarðhitinn. barninu kveðjur, undirritaður flutti honum kveðjur frá Islend- ingum, sem honum þótti mjög vænt um, og einnig færðum við honum litla táknræna íslenska gjöf. Nú er staddur hér á landi ungur, sænskur menntamaður, sem mun flytja fyrirlestra og sýna tákn- myndir um HEIMSMYND MART- INUSAR. Hann heitir ROLV ELVING og hefur davalið 10 ár við nám í MARTINUS INSTITUT í K.höfn. Vonum við að allir, sem hafa áhuga á andlegum málum fjöl- menni á fyrirlestra hans. FINNBJÖRN FINNBJÖRNSSON, YRSUFELLI11 R: New York 14. áKÚst 1980. EDMUND S. Muskie, utanríkis- ráðherra Bandarikjanna, gagn- rýndi i siðustu viku hlutverk varnarmálaráðuneytisins i al- þjóðasamskiptum þjóðarinnar. Hann sagði fréttamönnum sem fylgdu honum á ferð um Kali- forniu að hann teldi skort á samstarfi milli varnarmálaráðu- neytisins og utanrikisráðuneytis- ins mun alvarlegri fyrir utanrik- isstefnu landsins en deilur utan- rikisráðherra og ráðgjafa forset- ans i öryggismálum sem mikið hefur verið gert úr undanfarið. Muskie mislíkaði að lesa fyrst í New York Times og Washington Post um nýja fyrirskipan forseta sem mun breyta stöðu Bandaríkj- anna ef til kjarnorkustyrjaldar kemur við Sovétríkin. Blöðin höfðu eftir ónafngreindum aðilum Muskie óánægður á miðvikudag að Carter hefði skrifað undir fyrirskipanir um að færa skotmörk bandarískra kjarnorkueldflauga frá þéttbýl- iskjörnum að stjórnar- og her- stjórnarsetrum í Sovétríkjunum. Muskie gat ekki svarað spurn- ingum varðandi þetta á miðviku- dag. Hann hafi aðeins heyrt lauslega á málið minnzt í sam- ræðum við Zbigniew Brzezinski öryggismálaráðgjafa forseta og Harold Brown varnarmálaráð- herra en hafi ekki vitað að það væri svo langt komið. Hann mun fá skyrslu um málið í vikunni. Án þess að vilja ræða smáatriði, sagði Muskie að hann óttaðist að ákvörðun hafi verið tekin án fyllstu íhugunar um afleiðingar hennar á utanríkisstefnu lands- ins. Brzezinski sagði í viðtali við útvarpsstöðina Voice of America á laugardag að breytingin yrði gerð til að gefa forsetanum tæki- færi til að prútta á hættu stundu. Skotmörk kjarnorkueldflauga eru mikilvæg í sambandi Bandaríki- anna og Sovétríkjanna. Þau geta einnig haft áhrif á hernaðar- og stjórnmálastefnu einstakra bandamanna Bandaríkjanna og bandalaga. Þá taldi Muskie sem þá var öldungardeildarþingmaður svipaða hugmynd James R. Schlesingers þá varnarmálaráð- herra slæma og sagði hana aðeins líklega til að stofna heiminum í frekari hættu. ab.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.