Morgunblaðið - 16.08.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.08.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980 »4» / 1 1 V Ó "* kaff/nu 1 ^ ást er... að vinna hlutina saman. BRIDGE Umsjón: Péll Bergsson Það er alveg öruggt, að sá setn situr með trompás í vörn getur alltaf komið í veg fyrir, að and- stæðingar vinni alslemmu. En slík spil eru líka þau einu, sem telja má hundörugga trompslagi í vörn. Suður gaf, allir á hættu. Norður S. 92 H.8763 T. ÁD L. Á8632 Vestur S. ÁDG85 H. G109 T. K109 L. D10 Austur S. - H. K542 T. 7532 L. K9754 COSPER 8414 IJ COSPER — Hvað, geturðu ekki sofið? Ég trúi því vel, þegar þú ert að þvælast á ganginum hálfnakinn og ónáða friðsama borgara. Missa Reykvíkingar útibaðstað sinn? Sigurður G. Ilaraldsson skrif- ar: „Eins og marga rekur eflaust minni til, samþykkti borgarráð Reykjavíkur á fundi sínum í júní sl. nýjar reglur um opnunartíma heita læksins í Nauthólsvík. Sam- kvæmt þeirri smþykkt átti lækur- inn að vera opinn frá klukkan sjö að morgni til klukkan ellefu að kvöldi. • Framkvæmdin úr skorðum En fljótlega eftir þessa sam- þykkt fór það hins vegar að koma í ljós, að framkvæmd þessarar samþykktar stóð eitthvað í þeim, sem um hana áttu að sjá. Eftir mínum skilningi er það Hitaveita Reykjavíkur og ráðamenn hennar sem eiga að sjá um að áður tiltekin samþykkt borgarráðs sé haldin og framkvæmd. • Spurningar vakna í framhaldi af þessu hljóta að vakna ýmsar spurningar. Á t.d. enginn aðili í borgarkerfinu að sjá svo um, að samþykktir borgarráðs séu haldnar en ekki hunsaðar? Er það ekki niðurlægjandi fyrir borg- arráð, að framkvæmd samþykkta þess skuli ganga svona skrykkj- ótt? • Þáttur Hita- veitunnar Hitaveitan er sá aðili í þessu tilviki, sem ég nefndi, er sjá á um Suður S. K107643 H. ÁD T. G864 L. G Bólivíubylting, kókaínbylting? Suður opnaði á 1 spaða og varð seinna sagnhafi í 4 spöðum. Út af fyrir sig la-la samningur, sem vinnst þegar heppnin er í sam- ræmi við bjartsýnina. En sögnum var ekki lokið, vestur gat ekki stillt sig og doblaði og hver láir honum það? Útspil hjartagosi. Hagstætt upphaf og suður fékk á drottn- ingu. Sagnhafi svínaði tígli og tók næst á báða rauðu ásana. Þá trompaði hann tígul í blindum og hjarta heima. Þessu fylgdi lauf á ásinn og lauf trompað heima. Þá voru eftir fimm spil á hendi og sagnhafi spilaði síðasta tíglinum. Vestur varð að trompa og í reynd valdi hann gosann svo nían tæki ekki slaginn. Og eftir það var sama hvað hann gerði. Sagnhafi hlaut að fá slagina tvo, sem hann vantaði, slétt unnið. Auðvelt er að vera vitur eftirá. Vestur gat hnekkt spilinu með því að spila út í upphafi trompás og síðan drottningunni. Þá fær hann seinna á tígulkóng og losar sig úr spilinu með trompfimmi. Og síðan fær hann á bæði trompgosa og áttu eða fjóra í allt. Miami. Florida, 14. ágÚHt — AP. BANDARÍSKA utanríkis- ráðuneytið rannsakar hugsanlega þátttöku kóka- insala á Florida í herbylt- ingunni í Bólivíu að sögn blaðsins nMiami News“ í dag. Bólivía er einn helzti framleiðandi coca-plönt- unnar sem kókain er búið til úr. Joseph Reap, talsmaður ráðu- neytisins, sagði í viðtali við blaðið að Bandaríkin hefðu hætt eftirliti með eiturlyfjasölu í Bólivíu eftir byltinguna. „í svipinn erum við að kanna ásakanir um að meiriháttar eiturlyfjasamtök hafi stutt bylt- inguna í Bólivíu." Reap sagði að ráðuneytið hefði upplýsingar um að nokkrir liðsfor- ingjar, sem eiga sæti í nýju stjórninni, séu að einhverju leyti bendlaðir við eiturlyfjasala. Hann sagði að fastlega mætti gera ráð fyrir að kókaínsalar á Flórída hafi veitt þann stuðning, sem þeir máttu, þótt ekki lægji enn fyrir óyggjandi vitneskja. Enn sem komið væri lægju aðeins fyrir ásakanir um að eiturlyfjasalar væru viðriðnir fjárhagslegan stuðning við herforingjastjórnina. Seinna sagði Reap í Washing- ton, að rangt væri eftir honum haft í viðtalinu um tengsl liðsfor- ingja í stjórninni við eiturlyfja- sala. Blaðið kvaðst standa við frétt sína. Dennis Deconcini öldungadeild- armaður hefur beðið Daniel Inoye, formann undirnefndar fjárveit- ingarnefndar öldungadeildarinn- ar, að fyrirskipa lokaðar vitna- leiðslur um möguleika á „kókaín- byltingu" í Bólivíu. Svín á bænastað veldur uppþotum Moradahad, Indland. 14. ágúnt — AP. 86 manns biðu bana í dag í átökum sem brutust út milli lögreglu og æstra múham- eðstrúarmanna í Moramabad i norðurhluta Indlands. Átökin komu upp eftir að orðrómur barst út um að svini hefði verið hleypt inn i moskuna i borg- inni, meðan bænastund stóð yfir i tiiefni þess að Ramadan mánuðurinn er liðinn. Ramadan mánuðurinn er heilagur mánuður hjá múham- eðstrúarmönnum og þeim er bannað að leggja svínakjöt sér til munns. Ef svínið hefur farið inn í moskuna eru það helgi- spjöll af versta tagi. Reiðir tilbiðjendur sökuðu lögregluna annaðhvort um að hafa sýnt kæruleysi í vörslu moskunnar eða jafnvel viljandi hleypt svíninu inn í moskuna. Mótbárur lögreglunnar komu að engu gagni og hinir 15 þúsund tilbiðjendur ruddust út á götur borgarinnar og lögðu eld að stjórnarbyggingum og heimilum og verslunum hindúa. Allt tiltækt lögreglulið var kallað út þegar átökin brutust út og er liðið enn í viðbragðs- stöðu. Maður, sem segist hafa verið viðstaddur upptök átakanna segir að svínið hafi komið hlaupandi inn í moskuna og lögreglan ekki aðhafst neitt til þess að reyna að hindra það. Þegar tilbiðjendurnir urðu síð- an varir við dýrið köstuðu þeir grjóti að því til þess að hrekja það út og hélt lögreglan þá að verið væri að grýta sig. Skaut hún þá á tilbiðjendurna og átökin brutust út. Enn er ekki vitað með vissu hvort svín kom inn í moskuna eða ekki en yfirvöld segja að óeirðaseggir hafi komið orð- rómnum á kreik. Enn aðrir segja að tilnefnt svín hafi í raun verið kálfur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.