Morgunblaðið - 22.08.1980, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST1980
Svörtu mennirnir
fleyttu Korchnoi áfram
í GÆR var t efId 14. skákin í
einvÍKÍ Korchnois ok PoluKaj-
evskys. Polu stýrði hvítu mönn-
unum ok tefldist skákin eins ok
5. einvíjfisskák Hubners ojí Port-
isch fram að 15. leik er Polu kom
með nýjunt;. Korchnoi tók
hraustlega á móti og náði frum-
kvæðinu. í 28. leik lék Polu af
scr manni og varð að nefast upp
stuttu síðar. Með þessum sigri
sínum tryxgði Korchnoi sér rétt
til þátttöku i einvígi þar sem
keppt er um réttinn til að skora
á hcimsmeistarann. Andstæðing-
ur hans verður sÍKurvegarinn úr
einvÍKÍ Hlibners o»? Portisch.
Fyrirfram var Korchnoi álitinn
örugKur sigurvegari en Polugaj-
evsky veitti honum harða mót-
spyrnu svo að aukaskákir þurfti
til þess að skera úr um sigur.
Athyglisvert er að Korchnoi vann
allar sínar skákir á svart en slíkt
er algjört einsdæmi í áskorenda-
einvígjum. Því er vel við hæfi að
sýna eina af sigurskákum hans —
þá sem að réði úrslitum í einvíg-
inu.
14. einvígisskák
Ifvítt: L. Polugajevsky
Svart: V. Korchnoi
Enski leikurinn
1. Rf3 - Rf6, 2. c4 - c5, 3. Rc3
— d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e4 —
Rb4, 6. Bc4 — Rd3+. (Algengara
er að leika 6. ... Be6 ásamt 7. ...
Rd3+). 7. Ke2 - Rf4+, 8. Kfl -
Re6, 9. b4. (9. Re5 er einnig
mögulegt). 9.... cxb4,10. Rd5 —
g6, 11. Bb2 - Bg7, 12. Bxg7 -
Rxg7, 13. Rxb4 - 0-0, 14. d4 -
Bg4, 15. Ke2. (Eftir 15. Dd2 -
Bxf3, 16. gxf3 - Rc6, 17. Rxc6 -
bxc6 hafði svartur jafnað taflið
(Húbner — Portisch 5. einvíg-
isskák). Polu telur kóngi sínum
óhætt að vera nálægt miðju
borðsins en eins og sjá má af
framhaldinu er það ýmsum vand-
kvæðum bundið). 15.... Dd6, 16.
Dd2 — Re6, 17. Bxe6 — Dxe6,
18. Kc3?. (Betri leikur er 18.
Hhel! því að eftir 18. ... Dxe4+,
19. Kfl — Df5, 20. Re5 stendur
hvítur betur. Að vísu getur svart-
ur leikið 18.... Dc4+ en þá kemur
19. Ke3 og hvíta staðan er í lagi.
Nú nær svartur betra endatafli).
18. ... Í5, 19. Dd3 - fxe4, 20.
Dxe4 — Dxe4+, 21. Kxe4 — Rd7.
(Svartur hefur nú mun betra tafl
vegna slæmrar stöðu kóngsins og
hálfopinnar f-línu sem svartur
getur notað til árásar á stöðu
hvíts). 22. Hhcl — Hf5! (Hér
stendur hrókurinn vel eins og
brátt kemur í ljós). 23. Hc7 —
Rf6+, 24. Kd3 - a5. 25. Rc2 -
Rd5, 26. Hxb7 - Rf4+, 27. Ke4
- Rxg2.
28. Re5? (Tapar manni. Skásti
kosturinn var 28. Rfel þótt stað-
an eftir 28. ... Hxf2 sé ekki
fögur). 28. ... HÍ4+, 29. Kd5 -
BÍ5, 30. Hc7 - Hd8+. 31. Kc5 -
Bxc2. (Svartur er þar með orðinn
manni undir. Framhaldið þarfn-
ast því ekki skýringa). 32. Rc6 —
He8,33. Rxe7+ - Kf8,34. Rc6 -
Hf5+, 35. Re5 - Rf4, 36. Hxh7
- Kg8, 37. Hd7 - Rd3+, 38. Kb6
— Rxe5, 39. dxe5 — H8e5, 40.
Ilcl - Hf6+, 41. Ka7 - Hxf2. í
þessari stöðu lagði hvítur niður
vopnin.
Ljómarall '80:
ÓMAR og Jón Ragnarssynir voru
í fyrsta sæti eftir lengstu sérleið-
ir dagsins yfir Kjalveg í gær. Sjö
bílar voru fallnir út úr keppninni
Ljómarall '80 þegar blaðið fór i
prentun en tiu héldu áfram
keppni. Meðal þeirra sem hætt
hafa þátttöku eru báðir ítölsku
keppendurnir og þeir Eggert
Sveinbjörnsson og Tryggvi Aðal-
steinsson á Mazda Rx7, sem
lengst af hafa vcrið í öðru sæti og
voru þeir í fyrsta sæti þegar
spyrna brotnaði í öðru framhjóli
bifreiðar þeirra, en þar með voru
þeir úr leik.
Staðan í keppninni eftir lengstu
sérleiðir yfir Kjalveg í gær var
Ómar og Jón Ragnarssynir á siðustu sérleiðinni sem ekin var i gær.
r _
Omar og Jón Ragn-
arssynir í fyrsta sæti
þessi: 1 fyrsta sæti, Omar og Jón
Ragnarssynir á Renault Alpine
með 24:07 refsimínútur. í öðru
sæti, Anderson og Johansson á
Datsun 160 J með 26:19 refsimín-
útur og í þriðja sæti Hafsteinn
Aðalsteinsson og Ólafur Guð-
mundsson á Subaru GFT með
32:40 refsimínútur. Keppendur
- sjö bilar fallnir
út úr keppninni
komu til Reykjavíkur á tíunda
tímanum í gærkvöldi.
í dag leggja keppendur upp frá
Austurbæjarskólanum kl. 8.00 og
verður ekið fyrir Reykjanes, yfir
Lyngdalsheiði, þaðan um Kjalveg,
ekin sérleið um Langadal og loks
ekið fyrir Skaga til Sauðárkróks
þar sem keppendur gista í nótt.
Að sögn stjórnenda keppninnar
er mikill áhugi á keppninni meðal
almennings og einnig hefur verið
spurst fyrir um hana erlendis frá.
Keppninni lýkur í Reykjavík á
sunnudagskvöld.
Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ASÍ:
Ekki nægilegar forsendur
til að meta ekki niður-
greiðslurnar i vísitöluna
ALÞÝÐUSAMBAND íslands
hafði sem kunnugt er fyrirvara
varðandi áhrif niðurgreiðslna á
kjöti á verðbótavísitöluna, en i
vísitöluútreikningnum, sem nú
hefur verið gengið frá, er tekið
fullt tillit til þess verðs, sem nú er
í gildi. Mbl. spurði Ásmund Stef-
ánsson, fulltrúa ASt í kauplags-
nefnd, um ástæður þess og einnig
ra'ddi hlaðið við Ásmund og Gunn-
ar Guðmundsson, fulltrúa VSÍ í
nefndinni. um ágreininginn varð-
andi hækkun hita og rafmagns.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af Guðmundi Skaftasyni,
oddamanni kauplagsnefndar.
„Þau gögn, sem aflað var, sýna
að í byrjun mánaðarins hafi óum-
deilanlega verið kjöt á boðstólun-
um, þótt 1. flokkur hafi væntanlega
ekki verið fáanlegur alls staðar,"
sagði Ásmundur Stefánsson. „Mér
virðist af þessum gögnum, að í
byrjun mánaðarins hafi verið til
staðar tveggja mánaða birgðir. Ef
Reykjavíkursvæðið er tekið sér-
staklega, en vísitölufjölskyldan býr
einmitt í Reykjavík, þá hefur verið
þar til sölu í ágúst magn sem
svarar til tæplega tveggja mánaða
sölu, það er birgðir í upphafi
mánaðarins og það magn, sem flutt
hefur verið á svæðið. Samtals eru
þetta hátt í 600 tonn. Þá má vænta
þess að sú ákvörðun framleiðslu-
Steingrímur Hermannsson í ræðu á Bolungarvík:
„Seiðatalning, dánartala
liðun eru ekki nákvæm
sem unnt er að byggja á spádóma66
og ny-
vísindi,
í RÆÐU, sem Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra
hélt á Bolungarvík um helgina
fjallaói hann meðal annars um
ástand þorskstofnsins. Hluti ræð-
unnar er birtur á forsiðu Tímans
í gær. Þar segir að eftir að
ráðherrann hafi velt fyrir sér
spám og rannsóknum fiskifræð-
inga á þorskstofninum undanfar-
in ár og eins þeim veiðum, sem
fram hafa farið á honum hafi
Steingrímur sagt:
„Niðurstaða mín af þessum hug-
. leiðingum verður sú, að þorskstofn-
inn sé alls ekki í þeirri hættu sem
fiskifræðingar hafa talið og spáðu
sérstaklega í hinni frægu svörtu
skýrslu sem út kom í október árið
1975. Þá lögðu þeir til að þorskafli
yrði aðeins 231 þús. lestir árið 1976.
Hann varð 348 þús. lestir og hefur
verið af þeirri stærðargráðu síðan.
Með þessum afla átti þorskstofninn
að hrynja samkvæmt áætlun fiski-
fræðinganna. Svo hefur sem betur
fer ekki orðið. Og fiskifræðingarnir
sjálfir hafa hækkað sínar tillögur
um aflahámark upp í 300 þús.
lestir.
Þetta hljómar eflaust sem mikil
gagnrýni á fiskifræðingana. Það er
ekki ætlun mín. Staðreyndin er
hins vegar sú, að seiðatalning,
dánartala, nýliðun og fleira í haf-
rannsóknum eru ekki nákvæm vís-
indi sem unnt er að byggja á
spádóma um þróun fiskstofns fram
í tímann. Fiskifræðingunum ber að
vera íhaldssamir í sínum tillögum.
Þeir geta ekki gert ráð fyrir öðru
en meðalástandi sjávar eða jafnvel
því í lakara lagi.
Sem betur fer hefur, eins og ég
hefi áður sagt, aðstaðan verið góð
og eflaust er það af þeirri ástæðu/
að ekki hefur farið fyrir þorsjc-
stofninum eins og fiskifræðingarn-
ir óttuðust. Jafnframt er nauðáyn-
legt að hafa í huga, að fiskifræð-
ingarnir eru ráðgjafar. Á grund-
velli þeirra tillagna taka aðrir
ákvarðanir.
Niðurstaða mín verður því sú, að
þrátt fyrir meiri veiði af þorski en
tiskifræðingar hafa lagt til sé
þorskstofninn á uppleið. Mikil veiði
nú í ár af 1973 árganginum getur
orðið til þess, að afli suðvestan-
lands verði minni á næsta ári, því
1974 árgangurinn er stórum veik-
ari. Hins vegar er engin ástæða til
að ætla að aflabrestur verði vest-
an-, norðan- og austanlands. 1976
árgangurinn kemur nú inn í veið-
ina á þessum landsvæðum og er
mjög sterkur," sagði Steingrímur
Hermannsson.
Sjá viðtal við Jakub Jak-
obsson á blaðsíðu 2.
Flsklfræöingar mjög fbaldssamir 1 dliögum slnum um þorskveiöi:
Þorskstofninn á uppleið
seglr Stelngrlmur Hermannsson, sjávarútvegsráöberra
ráðs að endurgreiða ekki birgða-
kostnað þeirra, sem halda birgðum
fram yfir 1. september, stuðli að
auknum tilflutningum á kjöti.
Nú er ljóst, að mikið hamstur var
fyrstu vikurnar í mánuðinum, en
þó er víðast hvar til kjöt til
daglegrar neyzlu, þótt misjafnt sé
eftir verzlunum og jafnvel hverf-
um. Augljóslega er ekki um að
ræða nú eðlilegt val milli 1., 2. og 3.
flokks kjöts og því til viðbótar geta
þeir, sem ekki hömstruðu kjöt, nú
ekki kornið sér upp eðlilegum
birgðum. En engu að síður töldum
við, þegar á allt er litið, ekki
nægilegar forsendur til þess að
taka ekki tillit til þessarar verð-
lagningar við vísitöluútreikning-
inn. Það þýðir þó ekki stimpil upp á
að allt sé þetta gott og blessað.
En í heildina tel ég, að þessar
umræður allar hafi orðið til þess að
meira kjötmagn hefur verið flutt á
Reykjavíkursvæðið en ella.“
„Við teljum, að þessar hækkanir
á rafmagni og hitaveitu eigi ekki að
reikna inn í vísitöluna nú, þar sem
þær voru ekki birtar í Stjórnartíð-
indum fyrr en eftir þann tíma, sem
grundvallarreglur kveða á um,“
sagði Gunnar Guðmundsson í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi. „Reglur
segja 5 eða 6 fyrstu daga mánaðar-
ins, en rafmagnshækkunin var ekki
tilkynnt fyrr en 10. og hitaveitan
þann 14. með gildistöku þann 16.
Við teljum að nú hefði aðeins átt að
miða við þá taxta, sem í gildi voru í
byrjun ágúst, og ég lagði því fram
tillögu um það, en hún var felld
með 2 atkvæðum gegn 1.
í vísitölunni þýðir þetta 11,12
stig, rafmagnið 3,22 og hitaveitan
7,88 og án þess hefði vísitalan
aðeins hækkað í 2588 stig og
verðbótavísitalan hækkað um
8,23%. Við áskildum okkur allan
rétt til að bera þennan ágreining
undir dómstóla."
„Ég tel ótvírætt og óhjákvæmi-
legt að taka þessar hækkanir báðar
inn í vísitöluna nú, þar sem annað
er þvert á þá stefnu, sem við
lögðum til grundvallar vísitölu-
útreikninga við síðustu samn-
ingsgerð," sagði Ásmundur Stef-
ánsson. „Fyrir þessu eru einnig
ótal mörg fordæmi."