Morgunblaðið - 22.08.1980, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980
Kom glæta eftir flóðin
í Gljúfurá í Boníarfirði var
ákafleKa slök vriði lanjft framan
af veiðitímanum. 1‘urrkarnir
herjuðu illa á ána ok ós hennar
var allt aó því á þurru landi
lanfftimum saman. 8. ágúst voru
aöeins komnir um 10 laxar á land
<>K mátti heita ordeyóa í ánni. En
um það leyti uentiu miklar rign-
int;ar eins ok menn muna, ok óx
þá verulega í ánni. Er skemmst
frá að senja. að hópurinn. sem
hóf veiðar 8. áxúst. varð var við
mikla fiskfor upp ána og 27
stykki veiddust á þremur döt'um.
Næsti hópur veiddi einnití vel. en
síðan fór að draga úr smám
saman á ný. Laxafjöldinn er þó
kominn á annað hundraðið. Með-
alþunginn er ekki hár, líklega
um 5 pund og stærst hefur veiðst
14 punda. t>rjár stanjfir eru
leyfðar í Gljúfurá, en um 300
laxar komu á land úr ánni í
fyrra.
Reytingsveiði í Álftá
Fyrir skömmu voru komnir
tæpir 200 laxar á land úr Álftá á
Mýrum, en veiðisvæði hennar er
fremur stutt og aðeins veitt á tvær
stangir. Heildarfjöldi laxa á síð-
asta sumri var frekar lítill og
stefnir í svipað nú. Það er bæði
vegna langra þurrkakafla bæði
sumrin, svo og vegna þess að í
Álftá liggur obbinn af laxinum í
miklu magni á fáum stöðum.
Meðan að rigningarnar miklu
geisuðu fyrr í mánuðinum og
• Losað úr feigum stórlaxi norður í Aðaldal.
Rúmir 200 laxar úr Víðidalsá á viku
- Laxveiðin engu að síöur léleg víðast hvar
næstu daga á eftir, var veiði
óhemju góð í ánni, en hefur
annars mátt heita reytingsveiði,
1—7 laxar á dag á stangirnar
tvær. Stærð laxanna skiptist í tvo
hópa. Annars vegar eru 5—7
punda laxar, sem hafa verið fjöl-
mennari í sumar en oft áður. Hins
vegar eru 10—14 punda laxar, sem
alltaf er slatti af. Mbl. hafði
spurnir af 20 punda laxi úr
Hrafnhylnum nálægt síðustu
mánaðamótum. Hins vegar var
fiskur þessi einhverra hluta vegna
aldrei bókaður. Samkvæmt heim-
ildum Mbl. veiddist hann á flugu
að nafni „Tveir á kamrinum", sem
er, eins og nafnið bendir til,
íslensk smíð.
Sæmileg veiði í Norðurá
I Borgarfirðinum hefur stang-
arveiðin verið einna skást í Norð-
urá. Þar eru komnir á land
eitthvað í kringum 1600 laxar, en
það er nokkuð frá því besta, sem
Norðurá hefur náð. Norðurá gefur
í góðu ári um og yfir 2000 laxa og
veiði lýkur þar um næstu mánaða-
mót, þannig að hún nær varla 2000
úr þessu.
Það veiðist lítið fyrir neðan
Laxfoss þessa dagana, hins vegar
er ágæt veiði bæði milli Laxfoss
og Glanna, svo og fyrir ofan
Glanna, en á þeim slóðum er
bráðskemmtilegt veiðisvæði þar
sem laxinn lætur sig ekki vanta er
líður á sumarið. Meðalþunginn er
með albesta móti, líklega í kring-
um 8 pund og mun minna bera á
smálaxi heldur en oft áður. Mjög
stórir laxar hafa hins vegar verið
jafn sjaldséðir og undanfarin ár
og 20 punda fiskar hafa ekki sést
nema í ánni, þ.e.a.s. þeir hafa ekki
verið dregnir á þurrt.
Grím.sá mjój? léleg
Það skilur enginn hvað komið
hefur fyrir Grímsá, helst er talað
um að sá árgangur, sem á að vera
í ánni nú, sé mjög veikur. A.m.k.
hefur ekki verið jafnléleg veiði í
Grímsá í manna minnum. T.d.
veiddist einn daginn fyrir skömmu
einn lax á 11 stangir. Var það
-4» »(*4 feá Vi* tb* fe.4* vltl
þriðji laxinn sem sá hópur dró á
land og hafði sami maður veitt
alla laxana! Ekki nóg með það,
heldur hefur meðalþungi þeirra
laxa, sem dáið hafa, verið með
minnsta móti. Langmest ber á
5—6 punda löxum. Stærsti fiskur-
inn var þó 18 pund og var hann
dreginn i Strengjunum. Að sögn
kunnugra, er það ekki einungis
hin mikla þurrkatíð, sem staðið
hefur í sumar, sem veldur þessari
ördeyðu. Það virðist vanta tilfinn-
anlega fleira heldur en meira vatn
í ána, t.d. fleiri laxa ...
Munar 1000 löxum í Þverá
„Það er bókstaflega engin veiði
eins og er,“ sagði viðmælandi Mbl.
í veiðihúsinu við Þverá í gær.
„Jæja, ég segi það nú kannski
ekki,“ dró hann samt í land í sömu
svipan. Að sögn viðmælanda voru
í gær komnir um 580 laxar á land
af neðra svæði Þverár. Til gamans
má geta þess, að á sama tíma í
fyrra var aflinn af sama svæði um
1400—1500 laxar og munar miklu.
„Meðalþunginn er mjög góður í
sumar, örugglega yfir 10 pund.
Það hefur verið alveg hreint
ótrúlega lítið af smálaxi, hins
vegar mest frá 8—14 pundum og
fullt af 17—20 punda löxum hefur
komið á land. Stærsti laxinn til
þessa veiddist snemma í ágúst á
flugu og var hann 21 pund.“
Betra á Fjallinu
Heldur hefur veiðst betur á
Fjallinu svokallaða, eða efri hluta
Þverár. Þar hafa veiðst um 1100
laxar. Er það minni afli en á sama
tíma i fyrra, en munurinn er þó
langt frá því að vera eins mikill og
á neðra svæðinu. „Veiðimenn hafa
ekkert orðað að þeir hafi verið að
fá lúsuga og nýrunna laxa, þetta
er allt legið sem veiðist nú,“ sagði
tíðindamaður Mbl. 6 stangir eru
leyfðar á Fjallinu, en sjö á neðra
svæðinu. Á neðra svæðinu hefur
góð sjóbirtingsveiði verið nokkur
búbót, t.d. veiddi einn hópurinn 40
slíka fiska. Laxarnir, sem sá
hópur veiddi, voru aðeins 9 talsins
á stangirnar sjö, þannig að sjóurr-
iðanum hefur örugglega ekki verið
sleppt.
Mokveiði í Víðidalsá
„Það var alger mokveiði hjá
okkur í síðustu viku. Það var
fyrsti íslendingahópurinn eftir út-
lendingatímabilið og landinn
mokveiddi á maðkinn," sagði
starfsmaður í veiðihúsinu við
Víðidalsá í spjalli í gær. „íslend-
ingarnir veiddu yfir 200 laxa í
þeirri viku, flesta eða alla á maðk.
Reyndar veiddu útlendingarnir
sem síðastir voru einnig mjög vel,
170 laxa í vikunni á undan og var
allur sá afli tekinn á flugu. En það
er ekki alltaf þessi hamagangur
hérna, mokveiðin kemur í smá-
kippum,“ sagði viðmælandinn
einnig. Að sögn starfsmannsins
eru komnir um 1100 laxar á þurrt,
heldur minna en á sama tíma í
fyrra. Skýringin liggur líklega í
hinum miklu þurrkum, sem herj-
uðu lengi framan af sumri. Meðal-
þunginn hefur verið mjög góður í
Víðidalsá í sumar, „áreiðanlega
12—13 pund, það hefur verið
óvenjulega stór lax í sumar, mjög
margir 16—22 pund og slatti allt
upp í 24 pund. Stærsti laxinn
veiddist í aflarokunni í síðustu
viku, hann var 25 pund og veiddist
við Galtarnes. Það hafa aðeins
örfáir smálaxar komið á land og
eru menn mjög ánægðir með það,“
bætti viðmælandi vor við. Þess má
að lokum geta um Víðidalsá, að í
henni eru leyfðar 8 stangir og
veiði lýkur 15. september.
Elliðaárnar daufar
Veiði hefur verið frekar dauf í
Elliðaánum í sumar, en ekki er þó
laxleysi um að kenna. 16. ágúst
voru nákvæmlega 730 laxar komn-
ir á land, en á sama tíma í fyrra
voru þeir hins vegar 992. Og í
fyrra voru þeir einnig færri held-
ur en árið áður, ef blm. man rétt.
Það hefur komið fram merkileg
kenning um hvers vegna veiði
minnkar stöðugt í Elliðaánum, þó
svo að laxgengd hafi stóraukist.
Flestir laxveiðimenn hafa rekið
sig á það, að lax tekur gjarnan illa
þar sem mikið magn af fiski
kemur saman. í því liggur um-
rædd kenning. Síðustu tvö árin
hefur heildarveiðin í Elliðaánum
verið langt fyrir neðan meðallag
síðustu ára. Og nú stefnir allt í
það sama. Það skyldi þó aldrei
vera vegna þess að of mikið sé af
laxi i ánni?
Leirvogsá léleg
Undirritaður hefur það eftir
laxveiðimanni, sem hefur stundað
Leirvogsá í mörg ár, að hann hafi
aldrei séð hana jafn laxlitla og í
sumar. „T.d. i Helguhyl þar sem
þeir skipta venjulega tugum, sá ég
aðeins 3 eða 4 fiska þegar ég var
að veiða skömmu eftir flóðin,"
sagði kappinn. Og víst hefur
veiðin i ánni verið slök, rétt um
100 laxar, ef talan er þá svo há.
Það er af sem áður var, er
Leirvogsá gaf allt upp í rúma 600
laxa yfir sumarið.
Stóra Laxá laxlítil
Stóra Laxá hefur mátt heita
steindauð í sumar. Byrjunin lofaði
engu að síður góðu og þá veiddust
flestir þeirra fiska, sem veiðst
hafa, en þeir eru varla fleiri
heldur en 50—60. Eins og komið
hefur fram í fréttum, eru Hvítá og
Öifusá æði dökkar og vatnsmiklar
sökum jakaburðar í upptökunum.
Sér laxinn ekki glóru og þvælist
hálfblindur með löndum í jökul-
vatninu. Mbl hefur góðar heimild-
ir fyrir því að sumarið hjá neta-
bændum hafi verið ein samfelld
laxahátíð. Hætt er við, að detti úr
árgangur í Stóru Laxá innan fárra
ára.
Sogið frekar slakt
Nokkuð hefur gengið af laxi í
Sogið, enda styttra að fara fyrir
þann hreistraða heldur en upp í
Hreppa í Stóru Laxá. Best hefur
veiðst fyrir landi Alviðru og Ás-
garðs, um 100 á hvorum stað.
Onnur svæði hafa verið frekar
slök, t.d. hefur veiðin verið innan
við 20 fiskar fyrir landi Bíldsfells.
Einhver slatti hefur veiðst fyrir
landi Syðri Brúnar, en Mbl. hefur
ekki til reiðu tölur þaðan.
- Kg.
4Ui